Morgunblaðið - 23.07.2016, Blaðsíða 22
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ísland er eitt örfárra landasem er laust við sníkjudýriðtríkínu, að því er fram kemurá veggspjaldi sem dr. Karl
Skírnisson, dýrafræðingur við Til-
raunastöð Háskóla Íslands í meina-
fræði að Keldum, útbjó. Talið er að
fábreytt fána villtra spendýra hér á
landi, takmakaður innflutningur
dýra og dýraafurða og einangrun
landsins eigi stærstan þátt í að trík-
ínur eru ekki landlægar hér.
Fræðilega séð gæti tríkína
(Trichinella nativa) sú sem einkum
lifir í hvítabjörnum, rostungum, úlf-
um og refum á norðurheimskauts-
svæðinu náð fótfestu á Íslandi. Trík-
ína þessi er algeng á Grænlandi,
Svalbarða og í norðurhluta Skandin-
avíu. Lirfur hennar þola að frjósa
langtímum saman. Tríkína gæti til
dæmis borist hingað ef hagamýs eða
tófur ætu tríkínusmitað hvítabjarn-
arhræ. Hringrásin gæti viðhaldist
milli þessara spendýra og jafnvel
borist úr þeim yfir í húsdýr.
Hvað eru tríkínur?
Tríkínur eru sníkjuþráðormar
og eru þekktar ellefu tegundir, að
því er fram kemur í grein Karls, Um
líffræði tríkína og fjarveru þeirra á
Íslandi, sem birtist í Náttúrufræð-
ingnum, 3.-4. tbl 2013. Talið er að um
tíu milljónir manna um allan heim
séu smitaðar. Tríkínur valda mönn-
um þjáningarfullum sjúkdómi sem
stundum leiðir til dauða.
Tríkínur sem hafa lirfur í þol-
hjúpum hafa fundist í meira en 100
tegundum spendýra, auk mannsins.
„Þolhjúpar meltast utan af lirf-
um í maga spendýra. Eftir að hafa
borist niður í smáþarma tekur lirfan
sér bólfestu í slímhúð. Þar þroskast
þær óvenjuhratt. Næstu 24-36
klukkustundir skiptir lirfan fjórum
sinnum um ham og þroskast ann-
aðhvort í kynþroska karl- eða kven-
orm. Fullorðnu ormarnir leita þegar
í stað uppi gagnstætt kyn til að mak-
ast. Fljótlega eftir mökun drepast
karlormarnir en lirfur fara strax að
þroskast í kvendýrunum,“ skrifar
Karl í fyrrnefndri grein.
Fullþroska lirfur fara að fæðast
að einungis fimm dögum liðnum.
þær taka stefnuna inn í sogæðar og
blóðrás hýsilsins og dreifast um all-
an líkamann. Fljótlega fer að bera á
bólguviðbrögðum í þeim vefjum og
líffærðum sem lirfurnar stöðvast í.
„Lirfurnar eru algengastar í sí-
starfandi vöðvum sem krefjast stöð-
ugs blóðflæðis (hjarta, þind, tungu,
kjálkavöðvum og augnvöðvum),“
skrifar Karl. Lirfurnar vaxa á
áfangastaðnum og fljótlega fara þær
að framleiða efni sem myndar hjúp
utan um lirfuna. Lirfurnar eru lang-
lífar og er til dæmi um lirfu sem
fannst í manni 31 ári eftir smitun.
Sjúkdómseinkenni í mönnum
eru þekkt. Í fyrri fasa ber á kvið-
verkjum, niðurgangi og uppköstum.
Einnig verður vart við svima, hita og
kláða. Þessi einkenni geta varað frá
5-45 daga. „Þegar lirfurnar byrja að
dreifast um líkamann fer fólk að fá
höfuðverk, kuldaköst, hósta, lið- og
vöðvaverki, bólgur og blæðingar í
húð, augnabólgur og kláða. Þessi
einkenni, áamt slappleika, geta svo
verið viðvarandi mánuðum saman
áður en bataferlið hefst og sárs-
aukinn fer að dvína.“ Dauðsföll
verða helst þegar mikið af lirf-
um nær að trufla starfsemi
hjartans.
Tríkína er leitað hér á landi
í sýnum úr hrossum og svín-
um sem slátrað er. Lirfur
hafa ekki fundist. Ekki
fundust heldur lirfur í
villiminkum sem rann-
sakaðir voru 1990-1992.
Eitt fárra landa sem
laust er við tríkínu
Morgunblaðið/Ófeigur
Krufning Birnan sem felld var á Skaga 16. júlí sl. var krufin. Í ljós kom að
hún var smituð af sníkjuorminum tríkínu sem ekki er landlægur hér.
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Flokksþingstóruflokkanna í
Bandaríkjunum í
aðdraganda for-
setakosninga eru
jafnan heilmikið
sjónarspil. Oftast nær eru
þingin hugsuð sem hálfgerðar
hallelúja-samkomur, þar sem
raðirnar eru þéttar og fólkið
sem áður tókst á um hugs-
anlega frambjóðendur geti
komið af fundinum sameinað á
bak við „sinn mann,“ tilbúið
fyrir kosningaslaginn um
haustið.
Að vissu leyti var flokksþing
repúblikana í Cleveland, sem
lauk nú á fimmtudaginn, eftir
bókinni hvað þetta varðar. Þó
gekk ekki allt snurðulaust.
Eftir að tilraun „uppreisnar-
manna“ til þess að breyta regl-
unum á þann veg að hægt yrði
að koma í veg fyrir að Donald
Trump hlyti útnefninguna var
felld á fyrsta degi, fór þingið
aftur í hefðbundinn farveg, þar
sem ræðumenn stigu á stokk
og mærðu frambjóðandann í
löngu máli, sem stundum kom
frá eigin brjósti.
Öldungadeildarþingmað-
urinn Ted Cruz, sá sem komst
næst því að hindra framgang
Trumps í vor, reyndi síðan sitt
besta til þess að skemma fyrir.
Honum voru úthlutaðar tíu
mínútur, en hann ákvað að tala
í rúmlega tvöfaldan þann tíma.
Þannig náði Cruz að ýta Mike
Pence, varaforsetaefni
Trumps, út úr þeim tíma-
glugga sem sjónvarps-
stöðvarnar vestra nefna
„Prime Time“, tímann þar sem
líklegast þykir að flestir séu að
horfa.
Hafi einhver velkst í vafa
um að það hafi verið viljandi
hjá Cruz, tók efni ræðunnar af
öll tvímæli þar um. Hann
hvatti repúblikana og banda-
ríska kjósendur til þess að
fylgja samvisku sinni og velja
þann frambjóðanda sem þeir
teldu hæfastan til þess að
verja stjórnarskrá Bandaríkj-
anna. Þegar ljóst varð að Cruz
hygðist ekki lýsa yfir stuðningi
við Trump var hann baulaður
af sviðinu.
Það ríkti því nokkur spenna
síðasta dag flokksþingsins,
ekki síst vegna þess að há-
punkturinn sjálfur var eftir,
ræða frambjóðandans, þar
sem hann myndi leggja lín-
urnar fyrir flokkinn vegna
komandi kosninga. Trump
gerði þar sitt besta í að rekja
það, hversu illa Obama-
stjórnin hefði staðið sig, eink-
um í utanríkismálum, þar sem
Hillary Clinton,
mótframbjóðandi
Trumps, hélt um
taumana í fjögur
ár.
Trump hamraði
á þeim skilaboðum
sem fleyttu honum á toppinn í
forkosningum repúblikana.
Hann talaði um það hvernig
Bandaríkjamenn skorti öryggi
og um nauðsyn harðrar stefnu
í innflytjendamálum. Og hann
talaði um það hvernig Trump
sjálfur væri lausnin við öllum
þeim vandamálum sem nú hrjá
Bandaríkin innan lands og ut-
an.
Trump hefur áður alið á ótta
og uppskorið ríkulega. Ræða
hans var vel flutt, og hefur ef-
laust látið vel í eyrum margra
Bandaríkjamanna. Trump
höfðaði til dæmis sérstaklega
til stuðningsmanna Bernie
Sanders, sem varð undir í bar-
áttunni gegn Clinton demó-
kratamegin, og talaði um sér-
stakar aðgerðir til þess að
fjölga störfum og auka jöfnuð.
Á öðrum stað lofaði Trump því
að verja hinsegin fólk fyrir of-
beldi, og uppskar dynjandi
lófatak fyrir.
Þrátt fyrir að skoðana-
kannanir bendi flestar til þess
að Clinton muni bera auðveld-
an sigur úr býtum í nóvember
sýnir ræða Trumps að í því
efni er ekki á vísan að róa.
Takist honum að færa um-
ræðuna yfir á sinn „heima-
völl“, gæti hann náð að snúa
stöðunni sér í vil. Þá verður að
hafa í huga að þær forkosn-
ingar sem nú eru að baki hafa
verið með miklum ólíkindum
og einstakar á margan hátt,
ekki aðeins hjá repúblikönum
heldur einnig hjá demókröt-
um.
Eitt sem til að mynda er
óvenjulegt við komandi for-
setakosningar er hve óvinsælir
frambjóðendur beggja flokka
mælast í könnunum. Vonir
frambjóðendanna tveggja um
sigur snúast því venju fremur
um það hversu illa kjósendum
er við hinn frambjóðandann.
Þess vegna má búast við að
baráttan verði á neikvæðari
nótum en oft áður, ekki aðeins
af hálfu Trumps og stuðnings-
manna hans, heldur einnig af
hálfu Clinton og demókrata.
Það má því búast við að
þrátt fyrir að nú séu vísbend-
ingar kannana Clinton í vil geti
margt breyst fram að kosn-
ingum. Og hvort sem mönnum
kann að þykja baráttan upp-
byggileg eða ekki eru allar lík-
ur á að að hún verði áhugaverð
og spennandi.
Trump markar sér
stöðu gagnvart
Clinton sem fær
sviðið í næstu viku}
Ótti og óvild gætu ráðið
úrslitum í nóvember
S
íðastliðinn sunnudag lá leið mín á
Klambratún. Veður var sæmilega
hlýtt en fremur þungbúið og því
kom á óvart að sjá fjölmenni á flöt-
inni vestan Kjarvalsstaða. Þar voru
samankomnir á að giska 100 einstaklingar,
sem stóðu saman í misstórum hópum. Enn
fleiri dreif að og nálguðust þeir svæðið star-
andi í gaupnir sér, þar sem undantekn-
ingalaust hvíldi snjalltæki. Á örskotsstundu
áttaði ég mig; þarna voru samankomnir Poké-
mon-þjálfarar.
Vinsældir Pokémon Go eru lygilegar og út-
lit fyrir að leikurinn muni skila eigendum
hlutaðeigandi fyrirtækja góðum arði. Hluta-
bréf í Nintendo, sem á um 13% hlut í leiknum,
tvöfölduðust t.d. í verði í kjölfar útgáfunnar
og fróðir hafa leitt líkur að því að hagnaður
fyrirtækisins gæti sömuleiðis tvöfaldast. Í fyrstu fóru
sögur af hættum leiksins; að furðuveruveiðarnar gætu
leitt spilara á hættulegar slóðir, og hreinlega valdið slys-
um vegna gáleysis notenda gagnvart umhverfi sínu, en
síðan hafa kostir hans einnig verið lofaðir. Spilarar
þurfa t.d. að ganga ákveðinn fjölda kílómetra til að fá
Pokémon-eggin sín til að klekjast út og þá segja sér-
fræðingar að leikurinn kunni að auka samskiptafærni
einhverfra.
Öllum nýjungum fylgja kostir og gallar, og það er eins
með Pokémon Go eins og annað; sumir elska leikinn en
aðrir virðast finna honum allt til foráttu. „Hjarðhegðun,“
heyrðist einn segja. „Slysagildra,“ kvað ann-
ar við. Meira að segja ágætur samstarfs-
maður minn harmaði það á síðum blaðsins að
netið, þá ekki síst samskiptamiðlar og fjöl-
miðlar, væru undirlagðir „Pokémon-
vitleysunni“, og sagði að fullorðið fólk ætti að
ráðstafa tíma sínum betur en í leit að furðu-
verum.
Ég er ósammála. Ef menn virða lög og
reglur bak við stýrið og gá að sér þegar þeir
ganga yfir götuna, hver er þá skaðinn?
Framleiðnisamdráttur? Það er sumar, frekar
gott sumar á íslenskan mælikvarða, og allir í
fríi hvort eð er. Raunar var frekar huggulegt
af Nintendo og samstarfsaðilum að gefa leik-
inn út núna; ef hann hefði litið dagsins ljós að
vetri hefðu kverúlantar getað bætt hálku-
slysum á umvöndunarlistann.
Nei, í alvörunni. Í fyrra Korintubréfi segir Páll að full-
tíða maður lagði hann frá sér barnaskap. Oft er það þörf
áminning; þegar alvarleg mál eru til umræðu þurfa menn
að hugsa og álykta eins og fullorðið fólk. En þess á milli
er um að gera að leika sér. Ef leitin að Pokémonum veitir
fró í amstri dagsins, þá (Pokémon) Go for it. Sjálf var ég
mætt á Klambratún til að spila Kubb. Og helgina þar á
undan mætti ég í barnaafmæli fyrir fullorðna. Þar var
fínn grillmatur á boðstólum og fullorðinskökur, en líka
helíumblöðrur, spil og leikir. Lífið er of stutt til að taka
það hátíðlega. Förum út að leita að furðuverum. Síðastur
til að veiða Pikachu er apaköttur! holmfridur@mbl.is
Hólmfríður
Gísladóttir
Pistill
Ert það þú, Pikachu?
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Fimm hvítabirnir hafa verið
felldir hér á landi frá árinu
2008. Ummerki eftir sjötta
dýrið sáust við Bræðrabrekku í
Bitrufirði í desember 2011. Þar
fundust greinileg spor og fleiri
vísbendingar en björninn sást
ekki.
Karlkyns hvítabjörn sem
felldur var var á Þverárfjalli 3.
júní 2008 var smitaður af
tríkínum. Björninn var kominn
á 22. aldursár og með elstu
hvítabjörnum. Ung birna sem
var felld í Þistilfirði 27. janúar
2010 var einnig smituð af
tríkínu líkt og birnan sem
felld var við Hvalnes á
Skaga 16. júlí sl.
Birna sem var skotin
við Hraun á Skaga 17.
júní 2008 og birna
sem var skotin í
Rekavík bak
Höfn 2. maí
2011 voru
ósmitaðar.
Þrír af fimm
voru smitaðir
HVÍTABIRNIR Á ÍSLANDI
Dr. Karl
Skírnisson