Morgunblaðið - 23.07.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
Þetta tengist allt og ferðamaðurinn
kemur öllum við. Hann er ótrúlega
gjöfull þessi ferðamaður,“ segir
Halldór og hlær.
Að jafnaði kemur um eitt skip á
mánuði í Helguvíkurhöfn með flug-
vélaeldsneyti. Halldór segir að
stundum verði farmurinn þó ekki
allur eftir á Íslandi.
„Oft eru skip að flytja flug-
vélaeldsneyti og koma við hjá okkur
til að létta sig. Þau eru kannski að
flytja eldsneyti í Óslóarfjörð. Óslóar-
fjörður er með þröskuld, þannig að
skipin verða að vera grunnristari
þegar þau koma þangað en þegar
þau koma til okkar,“ segir Halldór
Karl Hermannsson.
höfum hér eru mun minni en erlend-
is. Það eru miklu stærri bátar er-
lendis, þetta segir okkur að við þurf-
um að stækka við okkur,“ segir
Halldór.
Ferðamaðurinn er gjöfull
Meðfram ferðamannastraumnum
hefur innflutningur flugvélaelds-
neytis aukist mjög, líkt og áður
sagði. Halldór segir að breyttar for-
sendur séu í áætlunum Helguvíkur-
hafnar.
„Við þurfum í okkar áætlunum að
athuga hvað hver ferðamaður gefur
okkur í tekjur, þannig við getum
metið eftir aukningaspám hvernig
tekjustreymið verður hjá okkur.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í nýju yfirliti Vinnumálastofnunar
yfir skráð atvinnuleysi kemur fram
að í júní síðastliðnum voru 1.133
einstaklingar með háskólamenntun
á skrá. Voru háskólamenntaðir 28%
þeirra sem voru á atvinnuleys-
isskrá. Af þessum fjölda voru 736
konur og 397 karlar.
Fækkun hefur orðið í þessum
hópi á undanförnum árum og alls
hefur atvinnulausu háskólafólki
fækkað um 203 frá árinu 2015.
Hér til hliðar er yfirlit yfir þær
greinar þar sem sem atvinnuleysið
var mest í júní. Viðskiptafræðingar
eru langfjölmennasti hópurinn eða
144. Í þeim hópi hefur fækkað um
25 frá sama tíma í fyrra. Lögfræð-
ingar eru næstfjölmennasti hóp-
urinn, eða 52. Í þeim hópi hefur
fækkað um 28 frá sama tíma í
fyrra. Þegar atvinnuleysi eftir
menntun og starfsgreinum er skoð-
að aftur í tímann kemur í ljós að ár-
ið 2007, sem almennt er talið eitt
mesta uppgangsár Íslandssög-
unnar, voru 220 háskólamenntaðir
á atvinnuleysisskrá. Árið eftir fer
fjöldinn upp í 389. Árið 2009 verður
algjör sprenging, því þá eru 2.207
háskólamenntaðir einstaklingar
skráðir án atvinnu. Síðan dregur
smám saman úr atvinnuleysi hjá
þessum hópi og í fyrra var talan
komin niður í 1.338.
Hins vegar hefur dregið minna
úr atvinnuleysi háskólafólks en
annarra stétta. Árið 2007 var hlut-
fallið af heildarfjölda atvinnulausra
11% en hlutfallið er nú komið í 28%.
Mesta atvinnuleysi Íslandssög-
unnar var árið 2009 þegar heild-
arfjöldinn á atvinnuleysisskrá var
15.121. Í síðasta mánuði var þessi
tala komin niður í 3.789. Fækkunin
er því 11.332 einstaklingar.
144 viðskiptafræð-
ingar eru án vinnu
Hægar hefur dregið úr atvinnuleysi
háskólafólks en annarra starfsstétta
Atvinnuleysi eftir
greinum
Viðskiptafræði 144
Lögfræði 52
Grunnskólakennaranám 48
Sálfræði 45
Myndlistarnám á háskólastigi 38
Hönnunarnám á háskólastigi 29
Tölvunarfræði 25
Markaðsfræði 24
Félagsráðgjöf 22
Tónlistarnám á háskólastigi 21
Hagfræði 20
Leiklistarnám á háskólastigi 18
Stjórnmálafræði 15
Ferðamálafræði 15
Tækniteiknun 15
Líffræði 14
Uppeldis- og menntunarfræði 14
Alþjóðasamskipti 12
Fjölmiðlafræði 12
Grafísk hönnun á háskólastigi 12
Félagsfræði, afbrotafræði 11
Hjúkrunarfræði i 10
Iðnaðarverkfræði 10
Leikskólakennaranám 10
Kennslufræði til kennsluréttinda 10
Sagnfræði 10
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Matthías Matthíasson, fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs Eim-
skips, segir að Eimskip muni ekki
hækka gjaldskrár sínar aftur á
þessu ári. Pálmar Óli Magnússon,
forstjóri Samskipa, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að ekki
væri hægt að svara því í dag, hvort
Samskip þyrftu að hækka gjald-
skrár sínar aftur á þessu ári.
„Við hjá Eimskip munum ekki
hækka gjaldskrár okkar aftur á
þessu ári. Við endurskoðum gjald-
skrána fyrir 1. júlí ár hvert og svo í
árslok,“ sagði Matthías í samtali við
Morgunblaðið í gær, en Eimskip
hækkaði sjóflutningsgjaldskrár og
þjónustugjöld sín um 3,4% um síð-
ustu mánaðamót.
Matthías segir að við endurskoð-
un sé horft á þróun vísitalna og
reynt að halda hækkun gjaldskráa
undir hækkun vísitalna. „80 til 90%
af hækkun okkar 1. júlí sl. má rekja
til aukins launakostnaðar. Launa-
vísitalan hefur hækkað um yfir 5% á
síðustu 6 mánuðum, þannig að
hækkun okkar er vel innan mark-
anna sem hækkun launavísitölu hef-
ur sett,“ sagði Matthías.
Útilokar ekki frekari hækkanir
Samskip hækkuðu sínar gjald-
skrár um 3% í febrúar sl. Pálmar Óli
Magnússon, forstjóri Samskipa, var
í gær spurður hvort um frekari
hækkanir yrði að ræða hjá fyrirtæk-
inu á þessu ári: „Ég get ekki svarað
þeirri spurningu, hér og nú. Það er
alveg ljóst, að þær hækkanir sem
hafa verið hjá okkur undanfarið,
duga ekki til þess að mæta auknum
kostnaði út af launahækkunum. Ég
myndi ekki útiloka að við þurfum að
grípa til frekari hækkana, en um
það hefur engin ákvörðun verið tek-
in,“ sagði Pálmar Óli.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Al-
þýðusambands Íslands, segir að ASÍ
fylgist vel með þróun matvöruverðs
hér á landi. „Það hefur vitanlega
hjálpað til við að halda matvöruverði
í skefjum, ekki síst verði á innflutt-
um matvörum, hversu mikil styrk-
ing hefur orðið á krónunni,“ sagði
Gylfi í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Gylfi telur að verðlækkun á inn-
fluttri matvöru hafi unnið á móti
hækkunum á innlendri matvöru.
„Þegar verðbólga er eins lág og
hún er núna, er ljóst að það er
ákveðin kyrrð yfir verðbreytingum.
Við höfum lagt áherslu á að þegar
tilefni eru til lækkunar, sé verðið
lækkað og almennt held ég að það
hafi gerst,“ sagði Gylfi.
Hækkanir undir launahækkunum
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir ákveðna „kyrrð yfir verðbreytingum“ í lágri verðbólgu Ekki
kemur til frekari hækkana hjá Eimskip á þessu ári, en óvíst er hvort Samskip hækka sínar gjaldskrár
Innflutt flugvélaeldsneyti árið 2013 nam um 158 þúsund
tonnum, en í nýútgefinni eldsneytisspá Orkustofnunar
er ráðgert að um 282 þúsund tonn verði flutt inn á
þessu ári. Vöxturinn verði mikill næstu ár og er gert ráð
fyrir um 363 þúsund tonnum árið 2020. Ekki er gert ráð
fyrir að vöxturinn hætti, en árið 2050 er búist við að inn-
flutt flugvélaeldsneyti verði um 583 þúsund tonn.
Ágústa Loftsdóttir, verkefnisstjóri eldsneytis og vist-
vænnar orku hjá Orkustofnun, segir að stofnunin hafi
verið gagnrýnd fyrir hógværa spá. „Spár um farþega-
flutninga til landsins lýsa mikilli bjartsýni. Við gerum ráð fyrir að á næstu
einu eða tveimur árum verði mikill vöxtur, en svo verði vöxturinn sam-
bærilegur því sem gengur og gerist erlendis,“ segir hún.
Dregur úr vextinum síðar meir
MIKILL VÖXTUR Í FLUGVÉLAELDSNEYTI NÆSTU ÁR
Þotur Icelandair.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Olíuflutningaskipið Navig8 Ex-
ellence kom til Helguvíkurhafnar
aðfaranótt fimmtudags, en skipið er
það stærsta sinnar tegundar sem
komið hefur í höfnina. Kom skipið
frá Indlandi.
Þegar lokið hefur verið við af-
fermingu á eldsneytinu, um 40 þús-
und tonnum, hefur verið flutt jafn
mikið eldsneyti um Helguvíkurhöfn
á þessu ári og allt árið 2013, en allt
eldsneyti sem notað er á Keflavík-
urflugvelli fer um Helguvíkurhöfn.
Navig8 Exellence er 219 metrar á
lengd og 38 metrar á breidd. Hæsta
djúprista skipsins er 13 metrar, en
Helguvíkurhöfn er 14 metra djúp.
Þrír dráttarbátar til aðstoðar
Aðspurður hvernig skipinu hafi
gengið að athafna sig segir Halldór
Karl Hermannsson hafnarstjóri að
það hafi gengið áfallalaust.
„Hingað til hefur mér vitandi ekki
komið stærra skip en 214 metrar á
lengd, þetta er um fimm metrum
lengra og mun breiðara. Þetta er í
raun einstakt tilfelli. Við gefum okk-
ur ekki út fyrir að taka lengri skip
inn en 200 metra,“ segir hann, ekki
hefði verið tekið við skipinu nema
vegna þess að árstími og veðurskil-
yrði hafi boðið upp á það.
Dráttarbátarnir Magni, Jötunn og
Hamar, þeir stærstu á suðvest-
urhorni landsins, drógu skipið að
höfninni. „Dráttarbátarnir sem við
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Helguvík Skipið Navig8 Exellence rúmar um 40 þúsund tonn af eldsneyti. Þrír bátar drógu það inn í höfnina.
Stærsta olíuskip sem
komið hefur í höfnina
Jafn mikið flugvélaeldsneyti flutt inn og allt árið 2013
KLEINUR