Morgunblaðið - 23.07.2016, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
Ófeigur
Stólpaskip Stólpar reknir niður við Gullborgina sem stendur við Sjóminjasafnið í Reykjavík. Gullborgin var mikið aflaskip í Vestmannaeyjum á sínum tíma, í eigu aflakóngsins Binna í Gröf.
Hvernig má það vera
að tveir stjórnmála-
menn, sem stoppuðu
stutt við í pólitíkinni,
skuli ætla að komast
upp með þau spjöll að
loka neyðarbrautinni á
Reykjavíkurflugvelli og
þar með að loka leiðinni
inn á Landspítalann
fyrir sjúkraflugið í vit-
lausum veðrum og
leggja drög að því að koma flugvelli
þjóðarinnar í Vatnsmýrinni fyrir
kattarnef? Þessa ákvörðun tóku
Hanna Birna Kristjánsdóttir, þá inn-
anríkisráðherra, og Jón Gnarr, fyrr-
verandi borgarstjóri Reykjavíkur.
Þetta var gert án aðkomu Alþingis og
örugglega ekki rætt í ríkisstjórninni,
gerendurnir undirrituðu þetta í bak-
herbergi eftir að annað skjal hafði
verið undirritað af þeim með for-
sætisráðherra árið 2013 um að allt
flugvallarmálið væri sett í bið um
nokkurra ára skeið. Sem sé – hið
fyrra samkomulag var lítilsvirt and-
artaki síðar.
Hæstiréttur hefur fellt þann dóm
að gjörningurinn sé löglegur og eftir
honum verði að fara, en það útilokar
ekki nýja ákvörðun Alþingis í ljósi af-
leiðinganna sem hljótast af samningi
Hönnu Birnu við Jón Gnarr og niður-
stöðu Rögnu-nefndar-
innar, ekkert flugvall-
arstæði annað til staðar
í Reykjavík. Hæstarétt-
ardómurinn snerist
ekkert um flugvöllinn,
mikilvægi hans og flug-
öryggi heldur um að
gjörningurinn stæðist
lög. Núverandi innan-
ríkisráðherra með Al-
þingi á bak við sig getur
hrint þessari niðurstöðu
og tekið aðra ákvörðun
vegna mikilvægra ör-
yggishagsmuna. Sökudólgarnir eru á
bak og burt, horfnir úr hinum stóru
embættum en Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri glottir við gaflaðið og
braskararnir sem ætla að byggja dýr-
ustu hús og hótel í Vatnsmýrinni
strjúka sitt peningaveski og fagna því
að flugvöllurinn í heild er kominn á
dauðalistann. Þetta gerist þótt þjóð-
arviljinn hafi verið mældur hvað eftir
annað milli 80% og upp í 84%, sem
vilja flugvöllinn á þessum stað og í
friði. Meiri stuðningur en við nokkuð
annað verkefni, samt komast Vals-
menn allra flokka upp með að hrekja
flugvöllinn á burt.
Dauðans alvara
Reykjavíkurflugvöllur er sjúkra-
flugvöllur allra landmanna og allra
þeirra sem veikjast og slasast alvar-
lega á ferðalögum um landið. Flug-
völlurinn hefur verið brú milli höfuð-
borgarinnar og landsbyggðarinnar,
um hann fóru 750 sjúkraflug árið
2015, þar af helmingur farþega í lífs-
hættu og margir upp á líf og dauða.
Hvar sem menn búa í landinu gerir
flugið og flugvöllurinn það að verkum
að á einni klukkustund er hægt að
ferðast til höfuðborgarinnar sem allir
Íslendingar hafa byggt upp og
Vatnsmýrin er lykillinn að því, með
flugvellinum stendur eða fellur
innanlandsflugið. Spyrja má er
Vatnsmýrin hentugt byggingaland
fyrir hótel eða íbúðabyggð? Fróðir
menn segja mér að hún sé vatnssósa
mýri eins og nafnið bendir til, nokk-
urra metra djúp, og jarðvegur meng-
aður eftir veru hersins. Gríðarleg
jarðvegsskipti yrðu að eiga sér stað,
hvað kostar það og hvert skal aka
mýrinni/moldinni og hvert verður
mölin sótt? Hverjir bíða eftir hinum
rándýru íbúðum? Fræðimenn segja
að þetta muni lækka grunnvatnsstöð-
una í Vatnsmýrinni og Reykjavík-
urtjörn kunni að þorna upp?
Vatnsmýrin er besta
flugvallarstæðið
Þrasið um að færa flugvöllinn upp
á Hólmsheiði eða út á Löngusker er
afskrifað í úttekt Rögnunefndarinnar
og sú dæmalausa tillaga um flugvöll í
Hvassahrauni í hlaðinu á Keflavík
var bábilja og sennilega úr munni
borgarstjórans, Dags B. Eggerts-
sonar, sem sat í staðarvalsnefndinni
og hlýtur hann að hafa verið gjör-
samlega vanhæfur þar. Reykjavíkur-
flugvöllur er nefnilega merkilegur að
því leyti að hann uppfyllir öll skilyrði
hvað flug og flugöryggi varðar. Enn
fremur er hann varaflugvöllur lands-
ins, fari hann er búið að veikja flugið í
landinu og líka til og frá landinu því
hann er Keflavík mikilvægur, hann
er einn af varaflugvöllum Keflavíkur
sem færist þá til Skotlands. Flug-
menn segja að allar hugmyndir um
styttingu brauta og skerðingu þeirra
séu varhugaverðar og það ætti ekki
að setja slíkt fram eða ráðast í þær
nema eftir nákvæma rannsóknar-
vinnu.
Með brotthvarfi flugvallarins er
stefnt að óafturkræfu tjóni í sam-
göngumálum landsins og sjúkrakerfi
þess. Og miklum skaða fyrir Reykja-
vík í þjónustu, lífsöryggi og atvinnu
kringum flugið sem varð reyndar til
með Reykjavíkurflugvelli.
Alþingi stungið svefnþorni?
Því miður hefur Alþingi verið
stungið svefnþorni í þessu máli þótt
góður vilji margra þingmanna hafi
staðið til að bjarga flugvellinum. Nú
liggur fyrir að neyðarbrautin er á för-
um nema að tekin verði ný ákvörðun
og þá um að bjarga henni og flugvell-
inum. Ég hvet innanríkisráðherra,
Ólöfu Nordal, og alþingismenn til að
taka málið upp á sumarþingi og ræða
það í aðdraganda alþingiskosninga.
Það er hægt með löggjöf að bjarga
flugvellinum og það á að gera. Hæsti-
réttur hefur aðeins fellt dóm um að
gjörningur borgarstjórans fyrrver-
andi og innanríkisráðherrans stand-
ist, en enginn bannar þinginu að taka
nýja ákvörðun út frá hagsmunum
þjóðarinnar, því ekkert flugvall-
arstæði leysir Reykjavíkurflugvöll af
hólmi, það er hin nýja niðurstaða
Rögnunefndarinnar. Það er bæði
betra og ódýrara að borga Reykjavík-
urborg skaðabætur en láta eyðilegg-
inguna ganga fram, hún kostar mörg
hundruð milljarða og er óafturkræft
tjón sem varðar alla Íslendinga.
„Hjartað Í Vatnsmýrinni“ hrópar á
hjálp. Myndum breiða pólitíska sam-
stöðu um Reykjavíkurflugvöll. Ger-
um flugvallarmálið að kosningamáli
verði það ekki leyst á sumarþingi.
Eftir Guðna
Ágústsson »Reykjavíkurflug-
völlur er sjúkra-
flugvöllur allra lands-
manna og allra þeirra
sem veikjast og slasast
alvarlega á ferðalögum
um landið.
Guðni Ágústsson
Höfundur er fv. alþingismaður og
ráðherra.
Á að sparka þjóðarflugvellinum burt úr höfuðborginni?