Morgunblaðið - 17.08.2016, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Skilningsleysiráðamanna íReykjavík á
afleiðingum þess að
loka hinni svoköll-
uðu neyðarbraut á
Reykjavík-
urflugvelli sætir
furðu. Í þessu máli
hefur verið vaðið
áfram þvert á rök og vilja al-
mennings.
Ráðist hefur verið í úttektir á
öðrum kostum, en það virðist
aðeins hafa verið til málamynda
því að ekki hefur af neinni al-
vöru verið gengið í að búa þann-
ig um hnútana að annað standi
til boða til að bæta upp þá
skerðingu öryggis, sem lokun
brautarinnar fylgir.
Reyndar virðast þeir, sem
stjórna borginni, staðráðnir í að
loka eyrum fyrir þeim röddum,
sem ítrekað hafa bent á að lokun
neyðarbrautarinnar fylgi
áhætta.
Ein þeirra, Þorkell Á. Jó-
hannesson, flugstjóri hjá Mý-
flugi, sem sér um sjúkraflugið,
var ómyrkur í máli í viðtali við
Morgunblaðið í gær og gagn-
rýnir bæði Isavia og ráðamenn í
höfuðborginni. „Við horfum til
næsta vetrar með hryllingi,“
segir hann.
Að sögn Þorkels geta vélar
Mýflugs ekki lent nema á neyð-
arbrautinni í stífri suðvestanátt.
„Suðvesturhorn landsins verður
þá alveg lokað fyrir okkur, það
er engin braut í
Keflavík í þessari
stefnu,“ segir hann.
Þorkell hefur
tekið saman gögn
frá árunum 2011 til
2013. Í 40 til 50 til-
fellum hafi skilyrði
verið alveg á mörk-
unum að hægt væri
að lenda á öðrum brautum og í
11 tilfellum hafi engar aðrar
brautir en neyðarbrautin komið
til greina. Á hinum brautunum
hafi hliðarvindur einfaldlega
verið of mikill til að vélar Mý-
flugs gætu lent.
„Ég veit í raun ekki hvað er
hægt að kalla þessa aðgerð að
loka neyðarbrautinni. Það er
ekki eins og þetta fólk sé að
gera þetta í ógáti,“ segir Þor-
kell. „Það er margbúið að vara
það við. Ef þetta endar með
manntjóni verður ekki hægt að
kalla það manntjón af gáleysi.“
Þorkell talar af mikilli
reynslu og þekkingu um þessi
mál, en viljinn til að hlusta er
takmarkaður. Markmiðið virð-
ist vera að halda áfram atlög-
unni að flugvellinum þangað til
svo er komið að ekki verði snúið
aftur. Meirihlutinn í borginni á í
mesta basli með að sinna helstu
þörfum borgarbúa og veita þeim
grunnþjónustu, fjárhagur borg-
arinnar er í molum, en í þessu
máli er því miður engan bilbug á
honum að finna, hvað sem líður
öryggi og vilja almennings.
Ráðamenn í Reykja-
vík loka eyrum fyrir
röddum þeirra sem
benda á hætturnar
af lokun neyðar-
brautarinnar }
Atlagan að flugvellinum
Þá er þingiðkomið saman.
Kosningadagur var
tilkynntur á fundi
ráðherra með for-
ystukonum stjórn-
arandstöðu. Þingflokkar stjórn-
arliðsins sögðu að minni viðhöfn
hefði snúið að þeim. Fróðlegt er
að sjá hvernig talsmenn Sam-
fylkingarinnar sýndu þakklæti
sitt í garð ríkisstjórnarinnar.
Sigríður I. Ingadóttir úr
Samfylkingu, sem lengi hefur
leitað að eina atkvæðinu sem
vantaði, hafði þetta að segja í
þingbyrjun: „Ríkisstjórn Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokks sem nú er að hrökklast
frá völdum vegna vantrausts
þjóðarinnar á henni eftir að upp
komst um eignir þriggja ráð-
herra hennar í Panamaskjöl-
unum í aflandseyjum fékk ríku-
lega í vöggugjöf frá ríkisstjórn
Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún
fékk í hendurnar ríkissjóð sem
var að hjarna við eftir nánast
gjaldþrot 18 ára valdatíðar
Sjálfstæðisfokks og Framsókn-
arflokks...“
Ef ekki væri alkunna að menn
hafi ekki enn komist til Mars
mætti ætla að þingmaðurinn
kæmi beint þaðan, enda yrðu
margir illa haldnir
af þotuþreytu eftir
slíkt flug. Enginn
hefur sagt þessum
þreytulega þing-
manni að Jóhanna
Sigurðardóttir tók við af rík-
isstjórn þar sem Jóhanna sat
sjálf né frá gjaldkera Samfylk-
ingar, eina nafngreinda stjórn-
málamanninum, sem skv. pan-
amagögnum reyndi að komast
hjá íslenskum skattgreiðslum.
Kjósendur hafa aldrei leikið
stjórnarforystuflokk jafn
grimmilega og Jóhönnuflokk-
inn, sem hékk hálft kjörtímabil
eftir að hafa misst meirihluta
sinn upp í Kattholt.
Þakkir Helga Hjörvar til rík-
isstjórnar fyrir að gefa 20% af-
slátt af kjörtímabilinu voru slá-
andi: „Það er ánægjulegt að
vera kominn hér til fundar á ný
og gott að það er búið að ákveða
kjördag. Það er sérstakt fagn-
aðarefni að 38 þingmanna
stjórnarmeirihluti skuli sjálfur
hafa ákveðið að stytta sitt eigið
kjörtímabil um heilt þing og
segir meira en mörg orð um
stöðu ríkisstjórnarinnar að það
er niðurstaða stjórnarmeiri-
hlutans sjálfs að ríkisstjórnin sé
ekki á vetur setjandi.“
Saltinu var stráð í
sár ríkisstjórnar á
fyrsta þingfundi}
Þrungnir af þakklæti
Í
ljósi þess að þú ert örugglega eldri
en tvævetur, kæri lesandi, þá eru
örugglega orðinn býsna vanur því að
það sé verið að ljúga að þér, eða í
það minnsta ekki segja allan sann-
leikann. Að þessu sinni ætla ég þó ekki að
tala um stjórnmálamenn, sem hafa atvinnu af
því að fara frjálslega með, heldur vil ég beina
sjónum að netinu, upplýsingahraðbrautinni
svonefndu, þar sem fjöldi manna hefur at-
vinnu af því að segja ósatt og enn fleiri gera
það sér til gamans.
Nánast um leið og við byrjum að vafra um
netið í fyrsta sinn eru apparöt og algrím tek-
in að kortleggja þarfir okkar og áhugamál og
passa svo upp á að við fáum sem mest af því
efni sem eigandi þeirra telur víst að við vilj-
um sjá – eða honum finnst helst henta að við
sjáum. Ýmsir óprúttnir hafa séð hagnaðarvon í þessu og
gott dæmi er hvernig vélráðir egna gildru fyrir miðaldra
íhaldssama karla, með lygifréttum um mannilla músl-
íma, illvilja innflytjendur og harðsýlda homma (það síð-
arnefnda þó aðallega vestan hafs). Viðkomandi fréttir
eru rækilega kryddaðar og kokkaðar til að fá sem flesta
til að smella á fyrirsagnir og deila þeim svo áfram, en
vefsetrið sem framleiðir selur svo auglýsingar út á
heimsóknirnar – sannkallaðir smelludólgar.
Ekki er bara að fégjarnir nýti sér áhuga fólks á þenn-
an hátt – það gefur augaleið að þetta getur verið harla
góð leið til að stýra almenningsáliti, eða svo telja rúss-
nesk stjórnvöld í það minnsta. Austur í
Rússíá, nánar til tekið í Sankti Pétursborg,
hefur her manna það hlutverk að bera lof á
rússnesk stjórnvöld og allt sem rússneskt er
og framleiða lygifréttir um Vesturlönd.
Einnig rekur rússneska ríkið sjónvarpsstöð-
ina og vefmiðilinn RT, sem nær víst til 700
milljón manna í hundrað löndum, og frétta-
stofuna og útvarpsstöðina Sputnik. (Sputnik
er arftaki Novosti sem var lýst sem hinni
„svokölluðu fréttastofnun“, „sem sér um að
dreifa áróðri Kremlverja um allar jarðir“.)
Það var vel rakið á Daily Beast um daginn
hvernig friðsamleg mótmæli við bandaríska
herstöð í Tyrklandi urðu að frétt um umsát-
ur og átök við stöðina með tilheyrandi
spennu og óvissu, enda eru geymd í henni
kjarnorkuvopn. Fyrsta „fréttin“ kom sem
tíst frá flugumanni rússneskra stjórnvalda, sem frægur
er fyrir slík tíst, og síðan tóku aðrir slíkir við, frétta-
miðlar (RT og Sputnik nema hvað) og rugludallar vest-
an hafs, ekki síst þegar búið var að blanda smá músl-
imafælni inn í allt saman. Forvitnilegast í
samantektinni var hve margir af þeim sem tístu sem
Rússlandsvinir fyrir nokkrum árum eru nú orðnir mið-
aldra enskumælandi hægrimenn (og náttúrlega allir
stuðningsmenn Donalds Trump).
Niðurstaðan af þessu öllu saman er að það er eins
gott að hafa varann á og trúa engu og engum. Nema
mér, náttúrlega. arnim@mbl.is
Árni
Matthíasson
Pistill
Varist vélráða
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
L
andsvirkjun gerir alvar-
legar athugasemdir við
mat verkefnisstjórnar
rammaáætlunar á vind-
myllugarðinum Búr-
fellslundi. Í athugasemd við drög að
tillögum verkefnisstjórnar bendir
fyrirtækið á að faghópur 2 telji að
vindmyllurnar hafi veruleg neikvæð
áhrif á nánast allar tegundir ferða-
þjónustu á mjög stóru svæði, allt frá
miðbiki Þjórsárdals að Skagafjarð-
ardölum og alla Sprengisandsleið.
Sum svæðin liggi óravegu frá stöð-
um sem myllurnar sjást frá.
Í drögum að tillögum verkefn-
isstjórnar um verndar- og orkunýt-
ingaráætlun er Búrfellslundur sett-
ur í biðflokk. Rökin eru það mat
faghóps 2 sem taldi að vindmyll-
urnar myndu hafa mikil áhrif á
ferðasvæði. Svo mikill munur sé á
mati tveggja aðalfaghópanna að
óhjákvæmilegt sé, með tilliti til al-
mannahagsmuna, að bíða með
ákvörðun um ráðstöfun svæðisins.
Vilja vindmyllur fjarri byggð
Fram kemur að faghópur 2 sem
mat áhrif virkjanakosta á ferða-
mennsku og aðra nýtingu en virkj-
anir taldi þennan kost hafa meiri
áhrif á ferðamennsku og útivist en
nokkur annar virkjanakostur. Bent
er á að allir ferðamenn sem eru á
leið um Sprengisandsleið og Fjalla-
bak muni sjá vindmyllurnar og þær
muni því hafa áhrif á mörg ferða-
svæði sem tengjast Sprengisands-
leið, svo og á mörg verðmæt ferða-
svæði á sunnanverðu hálendinu, svo
sem Landmannalaugar, Heklu,
Veiðivötn og Eldgjá.
Aftur á móti taldi faghópur 1
sem mat áhrif á náttúruna að Búr-
fellslundur sem er á röskuðu svæði
hefði lágt verndargildi. Í því efni má
benda á að vindmyllugarðurinn á að
vera á Hafinu, norðan Búrfells.
Svæðið er gróðurlítil slétta og er
stærstur hluti hennar á milli virkj-
ana. Um svæðið liggja tvær öfl-
ugustu raflínur landsins og fjöldi
misstórra orkumannvirkja.
Álit faghópa sem ætlað var að
meta efnahagsleg og samfélagsleg
áhrif virkjanakostanna lágu ekki
fyrir við gerð tillagnanna. Þó kom
fram í greinargerð frá faghópi 3 að í
skoðanakönnun sem hann fékk Fé-
lagsvísindastofnun til að gera lýstu
63% þátttakenda sig hlynnt vind-
myllum á hálendi, fjarri byggð, en
18% sögðust andvíg. Mun færri vildu
sjá vindmyllur á láglendi, nærri
byggð. Þegar spurt var beint um
vindmyllugarð nálægt Búrfells-
virkjun lýstu 64% þátttakenda sig
hlynnt þeirri hugmynd en aðeins
11% andvíg.
Fari í nýtingarflokk
Landsvirkjun reiknar það út að
samkvæmt mati faghóps 2 hafi Búr-
fellslundur áhrif á 11% landsins.
Fyrirtækið telur að áhrifasvæði
Blöndulundar og sá fjöldi ferða-
svæða sem faghópur 2 telur innan
þess sé ekki í samræmi við það
hversu mikið svæðið er nú þegar
nýtt til orkuvinnslu né þá innviði
sem því fylgja. Auk þess bendi rann-
sóknir á viðhorfum ferðamanna til
þess að áhrif Búrfellslundar verði
mun minni en niðurstöður faghóps 2
gefa til kynna.
„Landsvirkjun dregur í efa að
skilgreining faghóps 2 á áhrifasvæði
Búrfellslundar standist skoðun og
fer fram á að áhrif hans á ferðaþjón-
ustu séu metin með faglegum hætti.
Það er mat Landsvirkjunar að end-
urskoðað mat á þessum þætti eitt og
sér nægi til þess að setja verkefnið í
orkunýtingarflokk,“ segir í umsögn
fyrirtækisins.
Deila um áhrif Búr-
fellslundar á ferðafólk
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vindmyllur Tilraunamyllurnar á Hafinu eru á hæð við Hallgrímskirkjuturn.
Myllurnar í Búrfellslundi verða tvöfalt hærri, að minnsta kosti 150 metrar.
Verkefnastjórn þriðja áfanga
verndar- og orkunýtingaráætl-
unar bárust alls 69 umsagnir
frá 44 aðilum við drög að
skýrslu og tillögum. Tólf vikna
umsagnar- og athugasemda-
ferli lauk í byrjun mánaðarins.
Allar athugasemdir hafa verið
birtar á vef verkefnisstjórnar,
ramma.is.
Verkefnisstjórn og faghópar
nýta nú tímann fram að skil-
um lokatillögu til ráðherra til
að fara yfir innsendar um-
sagnir og taka afstöðu til
þeirra atriða sem þar koma
fram. Öllum atriðum sem fram
koma í umsögnunum munu
verða gerð skil í endanlegri
útgáfu af lokaskýrslu 3.
áfanga, að því er fram kemur
á vefnum. Verkefnisstjórn mun
skila endanlegri tillögu sinni
um flokkun virkjunarkosta til
umhverfisráðherra í síðasta
lagi 1. september næstkom-
andi.
69 umsagnir
bárust
UNNIÐ AÐ TILLÖGU