Morgunblaðið - 29.09.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Dr. Jón Þór Þórhalls-
son, framkvæmdastjóri
European Consulting
Partners og fyrrver-
andi forstjóri Skýrr,
lést í Reykjavík 18.
september sl., 77 ára að
aldri. Hann var fæddur
21. júní 1939 í Reykja-
vík sonur Sigríðar
Jónsdóttur húsfreyju
frá Neðri-Dal í Mýrdal
og Þórhalls Árna Bene-
diktssonar trésmiðs frá
Tjörnesi í Norður-
Þingeyjarsýslu.
Jón Þór lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1959
og hélt sama ár til náms í Þýska-
landi, fyrst við Tækniháskólann í
Karlsruhe en síðar við háskóla í
Hessen þar sem hann lauk doktors-
prófi í eðlisfræði með láði árið 1967.
Að námi loknu réðst Jón Þór til
starfa í Alberta í Kanada þar sem
hann varð prófessor við Red Deer
College. Kenndi hann þar eðlisfræði,
stærðfræði og tölvunarfræði auk
þess sem hann var forstöðumaður
tölvudeildar háskólans þar.
Jón Þór flutti aftur heim til Ís-
lands árið 1974 og var þá ráðinn til
Reiknistofu Háskóla Íslands sem
hann starfaði hjá í þrjú ár, lengst af
sem forstöðumaður,
uns hann var ráðinn
forstjóri Skýrsluvéla
ríkisins og Reykjavík-
urborgar sem síðar
breyttist í Skýrr ehf.
Jón Þór var forstjóri
félagsins í tvo áratugi.
Á árunum 1974 - 1997
kenndi Jón Þór sam-
hliða öðrum störfum
upplýsingatækni við
Háskóla Íslands. Jón
Þór stofnaði eftir það
ráðgjafa- og hugbún-
aðarfyrirtækið ECP sem hann rak
til dánardags.
Jafnhliða föstum störfum var Jón
Þór eftirsóttur til ráðgjafar hjá al-
þjóðastofnunum og erlendum ríkj-
um, einkum í Eystrasaltsríkjunum
frá árinu 1997 þar sem hann aflaði
sér mikillar þekkingar á samfélagi
þeirra ríkja og starfaði þar hluta úr
hverju ári, einkum við ráðgjafastörf.
Jón Þór var mikilvirkur í félags-
og nefndarstörfum og eftir hann
liggur mikill fjöldi ritgerða og
greina. Hann var heiðursfélagi
Skýrslutæknifélags Íslands.
Eiginkona Jóns Þórs var Hrefna
Beckmann, löggiltur skjalaþýðandi
og dómtúlkur, en hún lést 19. nóv-
ember 2013. Þau voru barnlaus.
Andlát
Jón Þór Þórhallsson
Vertu upplýstur!
blattafram.is
BREGSTU VIÐ,
EF ÞÚ SÉRÐ EÐA VEIST
AF OFBELDI, EÐA FINNST
ÞÉR ÞÆGILEGRA
AÐ LÍTA UNDAN?
Laugavegi 52 | 101 Reykjavík
Sími 552 0620 | gullogsilfur.is
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Galla-
buxur
Kr. 8.500
Str. 36-48
Sídd: 78, 82, 86
Háar í mittið
Beinar skálmar
Eyrnalokkagöt
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ekki náðist að veiða 23 hreinkýr og
sex tarfa á þeim hluta hreindýra-
veiðitímans sem lokið er. Tarfaveiði-
tímabilið stóð frá 15. júlí til 15. sept-
ember og veiði á hreinkúm frá 1.
ágúst til 20. september. Auk þess
verða veiddar 135 hreinkýr á syðstu
veiðisvæðunum þremur, 7, 8 og 9, í
nóvember næstkomandi. Nóvember-
veiðarnar eru til þess að dreifa veiði-
álagi á hreindýrahjarðir á veiðisvæð-
unum.
Þau leyfi sem ekki tókst að veiða
út á skiptust þannig að ein kýr gekk
af á nyrsta veiðisvæðinu, svæði 1, og
önnur á svæði 6. Kvótinn veiddist
upp á svæðum 2, 3, 4 og 5. Á svæði 7
gengu af tíu kýr og fjórir tarfar. Á
svæði 8 sex kýr og einn tarfur, á
svæði 9 fimm kýr og einn tarfur.
Jóhann G. Gunnarsson, sérfræð-
ingur Umhverfisstofnunar á Egils-
stöðum, sagði að nóg hefði verið af
hreindýrum á svæði 7 og fundust um
700 hreindýr í leitarflugi. Dýrin voru
hins vegar fjarri vegum og slóðum og
þurfti að hafa talsvert fyrir því að
komast í þau. Nokkuð var um að
veiðileyfum væri skilað á svæði 7.
Allar umsóknir á svæði 8 kláruð-
ust og því var ekki hægt að koma öll-
um kýrleyfunum á svæðinu út. Ekki
fundust kýr á svæði 9 til að veiða út á
leyfin sem þar gengu af.
Mikil vinna hefur farið í að koma
út hreindýraveiðileyfum síðustu vik-
ur veiðitímans. Jóhann sagði að
veiðimenn virtust ekki fylgjast með
því hvernig biðlistarnir styttust og
kom á óvart þegar röðin kom að
þeim. Þá áttu þeir eftir að fara í skot-
prófið. Hann kvaðst telja að síðustu
vikur veiðitímans ætti að gilda sú
regla að sá sem fyrstur kæmi og væri
á biðlista á svæðinu og með öll sín
mál í lagi fengi veiðileyfi. Það myndi
flýta mikið fyrir úthlutun. Jóhann
sagði alltaf vera dæmi um veiðimenn
sem sýndu enga tilburði til að koma
til veiða né að skila leyfinu sínu.
Leyft var að veiða 1.300 hreindýr á
þessu ári, 848 kýr og 452 tarfa.
29 hreindýr
veiddust ekki
135 hreinkýr veiddar í nóvember
Veiðisvæði hreindýra
0 10 20 30 40
Heimild: Náttúrustofa Austurlands
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Vatnajökull
Morgunblaðið/Ómar
Hreindýr Af 1.165 hreindýrum sem mátti veiða í haust gengu 29 af.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hafnarfjarðarbær er að endur-
heimta votlendi í Bleiksmýri, austan
við Arnarfell í Krýsuvík. Votlendið
verður í kringum 50 hektarar (0,5
km2), að sögn Berglindar Guðmunds-
dóttur, landslagsarkitekts og um-
hverfisfulltrúa Hafnarfjarðarbæjar.
Fuglalífið á svæðinu tók mikinn kipp
um leið og vatn tók að safnast í mýr-
ina.
Bærinn fékk styrk til verksins,
eina milljón króna, úr landbótasjóði
Landgræðslunnar. Með endurheimt
votlendisins dregur úr losun gróður-
húsalofts úr mýrinni. Verkefnið er í
samræmi við sóknaráætlun Íslands í
loftslagsmálum. Sótt var um leyfi
fyrir framkvæmdunum til Umhverf-
isstofnunar vegna þess að Bleiks-
mýri er innan Reykjanesfólkvangs.
Berglind sagði að landið hefði ver-
ið dæmigert framræst votlendi.
Verkið var unnið nú í september-
mánuði og er lokafrágangur við stífl-
ur eftir, að sögn Berglindar. Mokað
var ofan í framræsluskurði, sem eru
samtals 2,5 km langir, á nokkrum
stöðum til að stífla þá. Efnið lá í
haugum við skurðbakkana frá því að
skurðirnir voru grafnir. Einnig voru
gerðar sjö jarðvegsstíflur úr efni á
staðnum til að hækka grunnvatns-
stöðuna. Torf var rist ofan af jarð-
veginum og það síðan sett yfir stífl-
urnar. Sárið þar sem jarðvegurinn
var tekinn var látið eiga sig og þar
mun staðbundinn vatnagróður festa
rætur. Sett voru yfirfallsrör í stífl-
urnar til að forða því að þær skolist í
burtu í leysingum. Yfirfallsvatninu er
beint í gamla, uppþornaða farvegi.
„Það safnaðist meira vatn en við
bjuggumst við í skurðina á milli
stíflnanna svo við ætlum að styrkja
stíflurnar til að þær fari ekki af stað,“
sagði Berglind. Hún sagði að svæðið
væri mjög gróið og þýft og ekki létt
yfirferðar. Hins vegar auðvelduðu
stíflurnar fólki að komast um mýrina.
Landgræðslan mun fylgjast með
hvernig til tekst við endurheimt vot-
lendisins. Endurheimt votlendis
hófst einnig á Bessastaðanesi á
Álftanesi á liðnu sumri.
Bleiksmýri á Reykjanesi
ber aftur nafn með rentu
Hafnarfjarðarbær stendur fyrir endurheimt votlendis
Votlendi endurheimt í Bleiksmýri
Sv
ei
flu
há
ls
(A
us
tu
rh
ál
s)
Austurengjahæð
Kleifarvatn
Heimild: Hafnarfjarðarbær
Sandgerðisbær
Reykjanesbær
GarðabærHafnarfjörður
Grindavík Krísuvík
Grindavík
(mörk óviss)
Gr
ind
av
ík
(m
ör
k ó
vis
s)
Langahlíð
Krísuvíkurhverfi
Bleiksmýri
Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir
Bleiksmýri Fyllt var í skurði og
gerðar stíflur með yfirfallsrörum.
mbl.is
alltaf - allstaðar
Atvinnublað alla laugardaga
mbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?