Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 74
74 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 Við erum á bólakafi í skóla-heimsóknum, byrjuðum áþeim fyrir tveim dögum og ætlum að fara í alla skóla á land- inu, 170 talsins,“ segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunn- skólakennara (FG), en hann á 50 ára afmæli í dag. Grunnskólakenn- arar felldu kjarasamninga í byrjun september og er ætlunin að ræða við félagsmennina til að heyra sjónarmið þeirra. „Þetta er ærið verkefni en við erum 12 manns sem tökum þátt í því. Það eru engin veisluhöld fyr- irhuguð í tilefni af tímamótunum en ef veðurspáin verður góð þá stefni ég á að fara upp að Apavatni þar sem við fjölskyldan erum með lítinn kofa og taka upp gulrætur og kartöflur. Það yrði loka- upptökuferðin. Við erum með risastóran kartöflugarð og fullt af gróð- urreitum með salati, gulrótum, jarðarberjum, káli o.fl. Einnig eru margar tegundir af sólberjum, rifsberjum og nokkrar tegundir epla- trjáa sem hafa þó ekkert gefið af sér ennþá. Ég gantaðist með að nota afmælisdaginn til að byrja á að koma mér aftur í hlaupaform, en ég gerði mikið af því að hlaupa og hef hlaupið maraþon. Var í feiknagóðu formi 2014 og nú stefni ég á að koma mér aftur í gott hlaupaform með því að hlaupa 4-6 kílometra í dag og sjá hvort ég komi mér ekki í gang aftur.“ Ólafur er í samhæfingarhópi á vegum Sameinuðu þjóðanna, en sá hópur er fyrstur á svæðið þegar hamfarir verða, helst innan sólar- hrings, og sér m.a. um að skipuleggja björgunarstarfið. „Við erum um 300 manns í þessum hópi alls staðar að úr heiminum. Eins og ég segi: maður er alltaf tilbúinn, ég er með minn poka úti í bíl, en sem betur fer er ekki mikið um útköll. Það er svæðisbundið hverjir fá útkall en eftir því sem hamfarirnar eru meiri þá víkkar svæðið út. Ég var á Filippseyjum þegar fellibylur varð þar fyrir nokkrum árum og svo fór ég til Haiti þegar stóru jarðskjálftarnir urðu þar. Maður gerir nýjan samning við Sameinuðu þjóðirnar á hverju ári og þá þarf að fylgja með læknisvottorð og það eru strangar reglur um hvað þarf að uppfylla til að geta sinnt þessu starfi varðandi þjálfun og kunnáttu.“ Eiginkona Ólafs er Dagný Hermannsdóttir kennari og dætur þeirra eru Birta lyfjafræðingur, Guðrún tölvunarfræðingur hjá Landsbank- anum og Ásta nemi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Formaður FG Ólafur Loftsson. Ávallt tilbúinn fyrir björgunarstörfin Ólafur Loftsson er fimmtugur í dag S igmundur Guðbjarnason fæddist á Akranesi 29.9. 1931. Hann lauk stúd- entsprófi frá MA 1952. Dipl. Chem. í efnafræði frá Technische Hochschule í Münc- hen 1957 og Dr. rer. nat-prófi frá sama skóla 1959. Sigmundur var yfirverkfræðingur og framleiðslustjóri hjá Sements- verksmiðju ríkisins 1959-60, rann- sóknamaður og kennari í lífefnafræði og lyflæknisfræði við Wayne State University School of Medicine í Detroit, Michigan í Bandaríkjunum 1961-62, aðstoðarprófessor og pró- fessor við sama skóla 1962-70, pró- fessor í lífefnafræði og lyflæknis- fræði við Indiana University Medical Center í Indianapolis 1970-71, pró- fessor í efnafræði við HÍ 1970-2001 og rektor Háskóla Íslands 1985-1991. Sigmundur var forstöðumaður Efnafræðistofu Raunvísindastofn- unar Háskólans 1971-83, deildar- forseti verkfræði- og raunvísinda- deildar 1977-79, sat í stjórn Sementsverksmiðju ríkisins 1971-81, stjórnarformaður þar 1973-77, for- maður nefndar er fjallaði um vinnslu lyfja og lífefna úr innlendu hráefni, skýrsla 1973-74, sat í Rannsóknaráði ríkisins 1974-82, var formaður fram- kvæmdanefndar 1974-79, formaður starfshópa er gerðu langtímaáætl- anir um rannsóknir og þróun- arstarfsemi í þágu atvinnuveganna, fyrir árin 1976-81 og 1982-87, for- maður matsnefndar rannsóknasjóðs Rannsóknaráðs ríkisins 1985-87 og 1992-94, formaður Rannsóknarráðs Íslands 1994-97, formaður stjórnar Náttúruverndar ríkisins 1995-99, sat í framkvæmdanefnd Vísindastofn- unar Evrópu, European Science Fo- undation 1996-99, í nefnd á vegum NATO-International Scientific Exc- hange Programmes sem úthlutar styrkjum til rannsóknarstarfa, 1995- 98, framkvæmdastjóri fyrir Lipid- forum, sem er norrænn vettvangur fyrir vísindi og tækni, frá 2001-2008, formaður Sammenntar, Samstarfs- nefndar atvinnulífs og skóla, 1992-98, formaður Hollvinasamtaka HÍ 1995- 97 og Mannverndar 1998-99 og for- seti Rótarýklúbbs Reykjavíkur 1999- 2000. Sigmundur hefur að auki starfað í fjölda nefnda á vegum HÍ og menntamálaráðuneytisins er fjalla um eflingu vísinda, fjarkennslu, há- skóla á Akureyri, starfað í stjórn Vísindasjóðs, Vísindaráði Krabba- meinsfélagsins o.m.fl. Sigmundur er frumkvöðull að stofnun SagaMedica – Heilsujurta ehf. árið 2000, sem stundar rann- sóknir á íslenskum lækningajurtum og þróar náttúruefni eða fæðubót- arefni úr völdum lækningajurtum fyrir innlendan og erlendan markað. Sigmundur var gistiprófessor við Eidgenössische Technische Hoch- schule í Zürich 1979-1980, Universi- tat Heidelberg 1980-1981, University of Minnesota, Hormel Institute 1981; Food and Drug Administration (FDA), Washington DC, Disting- uished Visiting Scientist 1983 og við University of Oxford 1998. Sigmundur sat í ritstjórn eftirfar- andi vísindatímarita: Journal of Molecular and Cellular Cardiology, 1970-1980; Journal of Cardiovascular Pharmacology, 1977-1990, og Journ- al of Applied Cardiology, 1985-1991. Hann er höfundur fjölmargra fræði- legra ritverka og hefur flutt yfir 100 vísindafyrirlestra í sérgreinum sín- um á ráðstefnum í öllum heimsálfum. Sigmundur fékk Heiðursverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmunds- Sigmundur Guðbjarnason, fyrrv. rektor Háskóla Íslands – 85 ára Fjölskyldufagnaður haldinn í sumar Talið frá vinstri: Margrét, Logi, Viktor, Alex, Eric, Snorri, Sigmundur, Sara, Jessica, Íris og Anna Linda. Ægir var ekki fjarri góðu gamni þótt hann vanti á myndina því hann tók myndina. Vísindin efla alla dáð Reykjavík Baldur Orri Þorsteinsson fæddist á miðnætti 29. júlí 2015. Hann vó 2.798 g og var 50 cm að lengd. Foreldrar hans eru Kristín Auður Halldórsdóttir og Þorsteinn Sigurður Guðjónsson. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Ekki taka óþarfa áhættu, fáðu fagmenn í verkið Sérþjálfaðir starfsmenn og búnaður fyrir erfiðustu aðstæður Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Trjáfellingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.