Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 Ljósmyndir/Björgvin Pálsson Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Félagi minn fullyrðir aðþetta sé besti ábreiðu-söngur sem til er af laginuHallelujah eftir Leonard Cohen. Ég flissa alltaf að yfirlýstur guðleysinginn láti svona og ég er viss um að hann er að gera grín að mér. En hann heldur minningunni á lofti, því hann er enn að gefa fólki þessa plötu í tækifærisgjafir,“ segir Gunnbjörg Óladóttir guðfræðingur um plötuna Þú ert mér nær, sem kom út fyrir þrjátíu árum, en þar syngur hún öll lögin tíu sem eru á plötunni. „Þessi plata var gefin út af Samhjálp, en foreldrar mínir Ásta Jónsdóttir og Óli Ágústar, sem er áttræður í dag, ráku Samhjálp í tutt- ugu og tvö ár, frá 1977 til 1999. Til að fjármagna starfið gaf Samhjálp ann- að hvert ár út plötur og bækur, með kristilegu ívafi. Þessi plata seldist í bílförmum, hún seldist meira en Bubbi það árið, en þó fór hann yfir gullplötumarkið í sölutölum, með sín 5.000 eintök. Samhjálparplöturnar seldust reyndar alltaf vel og það var mikið söluátak í gangi og keyrt um allt land, svo þessi plata mín er ef- laust til á mörgum sveitabæjum,“ segir Gunnbjörg og bætir við að langt sé liðið síðan hún kvaddi þenn- an heim Samhjálpar og að öll fjöl- skyldan sé nú gengin úr Fíladelfíu, nema hugsanlega tveir elstu bræð- urnir sem létu sig þessi mál litlu varða. „Foreldrar mínir mega eiga það að þau rifu upp starfið í Samhjálp. Það var boðið upp á súpu fyrir heim- ilislausa, og svo sá Samhjálp líka um meðferðarstöðina í Hlaðgerðarkoti, stoðbýli fyrir þá sem vildu spreyta sig í lífinu og samtöl við þá sem gengu lengst og náðu bata. Þetta var mikið batterí sem óx í höndum for- eldra minna, og var hugsjónastarf hjá þeim. Það var einföld hugsjón, sem meðferðarkerfin hér heima mis- skildu, en hugsjónin snerist um að veita húsaskjól og fæða og klæða þá sem bera ekki hönd fyrir höfuð sér. Við vorum á kafi í starfinu í Sam- hjálp, foreldrar mínir og við fjögur yngstu börnin, og lærðum margt sem ég vona að ég gleymi aldrei. Við höfum öll komið við í tónlist með ein- um eða öðrum hætti, bræður mínir voru í lúðrasveit, einn spilaði á bassa, annar á gítar og ég spilaði á gítar og söng. Við vorum heilmikið að spila á þessum árum, eins og gert er í þessum kristilegu hreyfingum, það gengur voða mikið út á söng.“ Bjólan og fleiri góðir með Gunnbjörg var ekki nema 21 árs þegar hún söng inn á plötuna, þá nýbyrjuð í guðfræði við Háskóla Ís- lands. „Ég var nýkomin heim frá Ameríku, hafði verið þar í eitt ár sem barnapía, tók mér smá frí eftir menntaskóla. Það var gaman að vinna að þessari einu sólóplötu minni og þeir sem spiluðu og unnu að út- setningum voru heldur betur flottir náungar til að hafa með sér á plötu, meðal annarra Björn Thoroddsen, Þórir Baldursson, Sigurður Bjóla og Skúli Sverris. Gerður var sjónvarps- þáttur til að kynna plötuna þar sem ég söng í sjónvarpssal, þetta voru þættir sem voru kallaðir Rokkarnir geta ekki þagnað, ef ég man rétt, og Dóra Takefusa tók við mig viðtal. Hrafn Gunnlaugsson var dagskrár- stjóri innlendrar dagskrárgerðar á þessum tíma og í framhaldi af þess- um þætti hvatti hann mig til að sækja um vinnu sem aðstoðardag- skrárgerðarmaður hjá sjónvarpinu. Ég sló til og starfaði sem svokölluð skrifta um stund. Það var gaman að sjá inn í sjónvarpsheiminn og ég kynntist mörgu áhugaverðu. En ég hafði ekki áhuga á að staldra lengi við, enda vildi ég ólm komast aftur í háskólann og lesa heimspeki sem ögraði fallega allri minni tilveru á þeim tíma.“ Heimsins fyrsta ábreiða Leonard Cohen kom sjálfur til Íslands ekki svo löngu eftir að plat- an kom út, á Listahátíð 1988. „Mér var boðið í móttöku í Höfða þar sem ég átti að afhenda honum plötuna mína, af því að hún innihélt heimsins fyrstu ábreiðu af lagi hans Hallelujah. Það er svolítið skondið að ég syng íslenskan kristi- legan texta við lagið, um Davíð og Batsebu, sem pabbi samdi. En við völdum lag Cohens af því það er andlegur þungi í því en Cohen var alls ekki með það í huga, því hann er í grunninn Gyðingur og er raunar virkur Búddisti í dag. En þetta var skemmtileg ögrun og ágætur fundur tveggja heima.“ Mjúka kinnin er ekki gleymd Gunnbjörg segir að það hafi verið ljúf stund að hitta Cohen. „Ég kyssti hann, þessa elsku. Við vorum beðin um að kyssast og gerðum eins og okkur var sagt. Þessi mjúka kinn er auðvitað ekki gleymd. Cohen hefur alla tíð verið mikill kvennamaður en mér sýndi hann ekkert nema herramennsku. Frá honum stafaði raunar einstakri hlýju. Ég hugsaði ekkert um það þá hvað þetta væri stór stund, ég var svo ung að ég gerði mér ekki grein fyrir því. Ég man að ég nennti varla að mæta í þessa móttöku. Nú þrem- ur áratugum síðar átta ég mig á hvað þetta voru mikil forréttindi,“ segir Gunnbjörg og bætir við að hún hafi í boðinu kynnst lítillega þeim sem voru í hljómsveit Cohens. „Ég man sérstaklega eftir strák frá Tex- as sem spilaði á trompet í bandinu hans og hafði ferðast með honum um allan heim. Hann sagði að það væru ekki til stjörnustælar í Cohen, hann væri svo mikill húmanisti. Ég spjall- aði líka við gítarleikara frá Grikk- landi sem var að ærast úr heimþrá, hann var ánægður með að vinna með Cohen því hann væri einstaklega hlý manneskja. Ég hef alla tíð síðan fylgst með Cohen, hann er djúp- þenkjandi og hefur verið hræðilega þjakaður af þunglyndi og varpað ljósi á þann arma sjúkdóm með heiðarlegri játningu. Mér finnst eftirminnileg orð hans í viðtali þar sem hann sagði að manneskjunni gengi illa að kalla fram fólkið í mannkynssögunni sem raunveru- lega ætti að vera þar. Þórir Baldurs hélt því fram að hann væri af sumum talinn meiri Dylan! En það er held ég ekki hægt. Þeir hafa þó báðir þetta einstaka mark að textarnir þeirra eru vart af þessum heimi.“ „Ég kyssti þessa elsku“ „Ég hugsaði ekkert um það þá hvað þetta væri stór stund, ég var svo ung að ég gerði mér ekki grein fyrir því. Ég man að ég nennti varla að mæta í þessa mót- töku.“ Svo segir Gunnbjörg Óladóttir þegar hún rifjar upp fund sinn með Leonard Cohen fyrir löngu. Hlý nærvera Gunnbjörg segir það hafa verið ógleymanlega stund þegar hún hitti Leonard Cohen og gaf honum plötuna sína og fékk að kyssa goðið. Hann sýndi henni mikla herramensku. Músíkkonur Vinkonurnar Eva Mjöll Ingólfsdóttir (standandi) og Gunnbjörg (sitjandi) umvafðar tónlistarmönnum í ferð sinni nýlega til New York. Yogabandið Glimmer Mysterium ætl- ar að lyftum andanum í söng og gleði í kvöld kl 20 hjá Yogavin á Grensás- vegi 16, í tilefni tveggja ára afmælis. Björgvin Gíslason sítar, Hilmar Örn Agnarsson harmonium, Andri Hilm- arsson gítar, Ásgeir Ásgeirsson bou- zouki, Ingibjörg Guðmunds og Ásta Arnar söngur. Allir eru hjartanlega velkomnir á kærleikssamkomuna. Tónleikar í tilefni afmælis Eðal Yndislegt band Yogabandið. Glimmer Myst- erium leikur Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur sími 571 5464 Nýjar vörur í hverri viku Viltu selja eða kaupa fyrirtæki? Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík, GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665, Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög- giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef- andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára- hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting. (magnus@firmaconsulting.is) Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.