Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 56
56 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 899 9787 696 0901 Löggiltur fasteignasali Mikil eftirspurn Frítt verðmat Einbýlishús við Stekkjarflöt í Garðabæ staðsett á stórri hornlóð í góðri rækt við lækinn, stór verönd og mikið útsýni. Hafið samband við Reyni Erlingsson fasteignasala, sími 414 6600, reynir@nyttheimili.is. Reynir Erlingsson lögg. fasteigna- fyrirtækja- og skipasali GSM 820 2145 Stekkjarflöt, Garðabæ Hlíðasmári 10 • 201 Kópavogur • Sími 414 6600 • nyttheimili.is Breytingar á lögum almannatrygginga hafa verið til umræðu og frumvarp lagt fram á Alþingi. Það er þekkt að aldraðir sem þurfa að setja allt sitt traust á velferðarkerfið eru margir mjög illa settir og svo hefur verið um árabil. Í frumvarpi fé- lagsmálaráðherra, Eyglóar Harðardóttur, um breytingu á lögum almanna- trygginga, eru tilgreind markmið, m.a. að auka stuðning við þann hóp aldraðra sem hefur mjög lágar eða engar tekjur til framfæris nema líf- eyri frá Tryggingastofnun (TR). Það skýtur því skökku við að þeir sem eru verst settir eiga ekki að fá krónu hækkun! Niðurstöður sýna að aldr- aða, sem hafa engan lífeyrissjóð, vantar 34% upp á að greiðslur TR dugi til lágmarksframfærslu. Ef mið- að er við dæmigert neysluviðmið vel- ferðarráðuneytisins vantar umtals- vert meira! Hvers vegna hefur ráðherra ekki þessi framfærslu- viðmið til hliðsjónar þegar upphæðir lífeyris TR eru ákveðnar nú við fyr- irhugaðar breytingar almannatrygg- inga? Þannig væri hægt að draga úr skorti og fátækt aldraðra, sem mest- megnis er tilkomin vegna stefnumót- unar stjórnvalda! Markmið og leiðir fara ekki saman! Hvaða hópar eru verst settir? Aldraðir sem þurfa að lifa á stríp- uðum lífeyri TR og hafa lítinn eða engan rétt til lífeyrissjóðsgreiðslna standa verst að vígi. Það er ekki sjálf- valið að eiga ekki lífeyrissjóðsréttindi – fyrir því liggja ýmsar ástæður sem m.a. má rekja til sjúkdóma, slysa, ör- orku og fötlunar. Það eru ein- staklingar sem aldrei hafa haft möguleika til atvinnuþátttöku og aðr- ir sem kippt hefur verið út af vinnu- markaði í einni svipan. Það er mark- mið og hlutverk velferðarkerfisins að styðja fólk í slíkum aðstæðum! Í dag hafa aldraðir á strípuðum lífeyri með sérstaka félagslega uppbót kr. 212.776 á mánuði. Einstaklingur sem býr einn getur sótt um heimilis- uppbót og hefur þá um 207.000 kr. eftir skatt. Sérstök uppbót til framfærslu var sett með reglugerð 2008 og lögfest 2009 og ætluð þeim sem hafa ekki greiðslu úr lífeyr- issjóði og eru innan ákveðinna tekjumarka. Þessi sértæki lífeyr- isflokkur skerðist krónu á móti krónu ef aðrar tekjur koma til. Nú á að afnema þennan stuðning. Þessi hópur fær ekki krónu hækkun samkvæmt frumvarpinu sem liggur fyrir Alþingi! Félag eldri borgara í Reykjavík og fleiri hafa kallað eftir því að lífeyrir verði að lágmarki 300.000 kr. á mánuði. Hluti aldraðra er í hættu á að lenda í fátækt! Konur fremur en karlar eiga lítinn sparnað í lífeyrissjóði til efri ára. Það eru bæði konur sem sinnt hafa fjöl- skylduábyrgð og umönnun á heim- ilum og einnig stór hópur kvenna sem farið hefur út á vinnumarkað með mikla reynslu og þekkingu á umönnun og færni í mannlegri nánd og samskiptum. Þekkt er að störf ófaglærðra með börnum, sjúkum og öldruðum, á stofnunum og heima- þjónustu eru láglaunastörf. Árið 2004-2005 voru konur um og yfir 90% þeirra sem gegndu slíkum störfum, greint eftir kyni. Láglaunastörf fyrir fulla vinnu (100%) duga ekki til lág- marksframfærslu. Lágum launum á vinnumarkaði fylgja lágar lífeyr- issjóðsgreiðslur á efri árum. Þar á of- an gefur velferðarkerfið hinum verst settu lífeyri sem er langt undir lág- marksframfærslu. Afleiðing þessa er fátækt og skortur! Til fjölda ára hafa aldraðir með fullar og óskertar greiðslur TR verið umtalsvert fleiri konur en karlar. Ár- ið 2000 vantaði þessa hópa um 32% til að tekjur dygðu fyrir lágmarks- framfærslu. Árið 2005 hafði staðan heldur batnað og þar mátti m.a. greina að stefnumótun stjórnvalda hafði stuðlað að bættum hag (sjá Harpa Njáls, 2003, 2006). Sterkar vísbendingar eru um að staða þess- ara hópa hafði lítið og ekkert breyst (Harpa Njáls, 2009, 2011, 2015). Samkvæmt frumvarpi ráðherra er ætlunin að breyta sérstakri uppbót til framfærslu úr félagslegum stuðn- ingi í áunnin réttindi og sameina hana ellilífeyri og tekjutryggingu (ör- yrkja) og sagt að hún nái þá til breiðari hóps aldraðra en þeirra sem eru á strípuðum lífeyri í dag. Upp- hæðin til hækkunar er um 47.000 kr. á mánuði og nær til allra lífeyrisþega – ellilaun verða þá kr. 212.776 fyrir einstakling sem býr með öðrum. Þessi upphæð skerðist um 45% ef aðrar tekjur koma til og 37,13% fer í skatt. Það er spurning hvort þessi ráðstöfun dugir til að forða öldruðum frá skorti og fátækt? Dugir lífeyrir Tryggingastofn- unar til framfærslu? Það eru nær tuttugu ár síðan und- irrituð kallaði fyrst eftir því að stjórnvöld létu gera framfærslu- viðmið – sem byggðist á raun- framfærslukostnaði á Íslandi. Slíkt verkfæri myndi gagnast við raunhæf- ar ákvarðanir lífeyris og launa og draga úr fátækt. Velferðarráðuneytið lét gera Neysluviðmið árið 2011, sem er byggt á neyslukönnun Hagstofu Íslands: Dæmigert viðmið sýnir með- altalsneyslu heimila eftir fjöl- skyldugerð. Það er hvorki talið lúxus- né lágmarksneysla, samkvæmt ráðu- neytinu. Þá hefur Umboðsmaður skuldara UBS, (áður Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna) útfært fram- færsluviðmið sem byggjast einnig á Neyslukönnun Hagstofunnar. Það er ætlað um takmarkaðan tíma meðan einstaklingur nýtur aðstoðar og vinn- ur sig út úr skuldavanda. Í báðum viðmiðum þarf að bæta við húsnæð- iskostnaði. Hér eru þessi viðmið sett fram með húnæðiskostnað (sbr. Harpa Njáls, 26.4.2015) og fram- reiknað skv. vísitölu neysluverðs til 2016. Dugar lífeyrir aldraðra – fyrir framfærsluviðmiði UBS og dæmi- gerðu neysluviðmiði velferðarráðu- neytisins? Tekjur einstaklings og útgjöld Meðfylgjandi tafla sýnir að ráð- stöfunartekjur einstaklings á stríp- uðum lífeyri TR sem býr einn eru 207.141 kr. Niðurstöður sýna að sam- kvæmt framfærsluviðmiði Umboðs- manns skuldara (UBS), vantar aldr- aða á þessum launum 34% upp á að lífeyrir TR dugi til framfærslu, sem telst lágmarksframfærsla. Til að eft- irlaunaþegi geti veitt sér dæmigert neysluviðmið velferðarráðuneytisins, kr. 402.265, – sem hvorki er talið lúx- us- né lágmarksneysla – þarf að hækka lífeyri TR um nær helming til að aldraðir geti notið þess sem „með- al-Íslendingur“ getur veitt sér! Ljóst er að þó lágmarkslífeyrir hækki í kr. 300.000 (240.000 eftir skatt) þá vantar 30,7% upp á að aldr- aðir geti veitt sér lágmarks- framfærslu UBS. Ljóst er að langur vegur er frá því að aldraðir geti veitt sér dæmigerða neyslu samkvæmt Velferðarráðuneytinu sem hvorki er talið lúxus- né lágmarksneysla! Ríkisvaldið hefur tæki og tól Ljóst er að það lifir enginn á stríp- uðum lífeyri TR. Stjórnvöld hafa verkfæri til að breyta þessari stöðu aldraðra. Lægstu laun og lífeyr- isgreiðslur þurfa að hækka og taka mið af framfærslukostnaði í íslensku samfélagi – annað er ábyrgðarleysi. Stjórnvöld hafa verkfæri til tekju- jöfnunar, m.a. að lækka skattpró- sentu á lægstu laun og lífeyri – og einnig að hækka persónuafslátt og skattleysismörk. Vandinn er heima- tilbúinn – skortur og fátækt er að stærstum hluta afleiðing af stefnu- mótun stjórnvalda. Því þarf að breyta! Eftir Hörpu Njáls Harpa Njáls Dugar lífeyrir til lágmarksframfærslu? Höfundur er sérfræðingur í velferðarrannsóknum og félagslegri stefnumótun. Tekjur einstaklings og útgjöld Framfærsluþættir Framfærsluviðmið UBS Dæmigert viðmið VEL Matur og hreinlætisvörur 45.466 kr. 35.331 kr. Föt og skór 8.062 kr. 15.294 kr. Lækniskostnaður og lyf 9.864 kr. 11.840 kr. Tómstundir 12.852 kr. 33.336 kr. Sími og internet tenging 11.092 kr. 10.662 kr. Önnur þjónusta 4.535 kr. 8.547 kr. Samgöngur 42.381 kr. 76.039 kr. Annar ferðakostnaður – 9.687 kr. Heimilisbúnaður – 4.695 kr. Raftæki og viðhald – 5.147 kr. Menntun og dagvistun – 1.517 kr. Veitingar – 10.670 kr. Samtals 134.232 kr. 222.765 kr. Húsaleiga 153.000 kr. 153.000 kr. Hiti, rafmagn og fráv.gj. 16.300 kr. 16.300 kr. Hússjóður 10.200 kr. 10.200 kr. Útgjöld 313.732 kr. 402.265 kr. Ráðstöfunartekjur 207.147 kr. 207.147 kr. Mismunur í krónum 10.585 kr. 195.118 kr. Mismunur, hlutfall % 34% 48,50% » Skortur og fátækt er að stærstum hluta afleiðing af stefnumótun stjórnvalda. Ég hlustaði á Sprengisand á Bylgjunni einhvern sunnudags- morguninn í september þar sem talað var við Jóhannes Karl Sveinsson hæstaréttarlögmann og einn af samningamönnum Steingríms og Jóhönnu við hræ- gamma- og vogunarsjóðina. Þar tók Jóhannes sérstaklega fram að ef hann vildi gera eitthvað öðruvísi í dag en á árunum eftir hrun, þá hefði hann viljað að rík- isvaldið hefði farið öðruvísi að gagnvart SPRON og Dróma. Takk fyrir það Jóhannes. Þessu er ég búin að vera að hamra á síðan 2010. Þarna var fólki hent út á götu hundruðum ef ekki þúsundum saman, senni- lega til þess helst að Drómi og starfsmenn hefðu sem mestar prósentutekjur af viðskiptavin- um sínum. Þarna fengu starfs- menn Dróma að leika lausum hala árum saman eftir hrun í boði Norrænu Velferðarstjórn- arinnar. Ég þekki nokkur dæmi um vinnubrögð Drómafólksins sem einkenndust fyrst og fremst af 100% yfirþyrmandi óréttlæti. Ef skýrsla Vigdísar Hauksdóttur kemur að einhverju leyti inn á þessi mál, þá styð ég hennar vinnu heilshugar. Það væri alveg upplagt ef fréttastofa RUV kynnti sér Dró- maglæpinn frá A-Ö, sérstaklega eftir að þessar nýju upplýsingar komu fram hjá Jóhannesi Karli. Áfram Ísland! Halldór Úlfarsson, Mosfellsbæ. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Áfram Vigdís ! Takk Jóhannes! Áfram Ísland!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.