Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 79
MENNING 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir
gith@mbl.is
„Það má eiginlega segja að við
höfum stofnað hér ungmenna-
deild,“ segir Björk Jakobsdóttir
um fyrstu frumsýningu vetrarins
hjá Gaflaraleikhúsinu en nýr og
öflugur leikvetur er nú hafinn þar
á bæ. Verkið, sem er nýtt íslenskt
leikverk um unglinga, heitir Stef-
án rís og er eftir Arnór Björnsson
og Óla Gunnar Gunnarsson en
sjálf er Björk leikstjóri. „Það er
mikið til af fjölskyldusýningum
fyrir yngri börn og mikið auðvitað
til af fullorðinssýningum líka en
það hefur hins vegar minna verið
til af sýningum fyrir unglinga. Við
leggjum mikið upp úr því að þetta
sé bæði skrifað og leikið af ungu
fólki. Svo erum við komin með svo
marga unga einstaklinga núna
sem eru þegar komnir með mikla
reynslu af leikhúsi. Þessir krakkar
hafa verið að leika í Óvitum, Mary
Poppins og Billy Elliot og sú
reynsla er dýrmæt.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Gaflaraleikhúsið setur upp sýn-
ingu fyrir þennan aldurshóp en
árið 2014 sýndu Gaflarar leikritið
Unglinginn. „Sú sýning gekk svo
vel hjá okkur að við ákváðum að
halda áfram og sýningin Stefán rís
er að hluta byggð á bókinni Leitin
að tilgangi unglingsins sem þeir
Arnór og Óli skrifuðu ásamt Bryn-
dísi Björgvinsdóttur. „Þetta verð-
ur söngur og dans og númeri
stærra en síðasta sýning.“
Vertu þú sjálfur
Aðspurð segir Björk söguna
vera ástarsögu. „Verkið fjallar um
Stefán, sem er að byrja í 10. bekk
og lendir í því að verða ástfanginn
í fyrsta skipti sem er vissulega
stórkostleg tilfinning en því fylgja
afskaplega erfiðir hlutir eins og að
missa málið, byrja að stama, vita
ekki hvað maður heitir og breyt-
ast í fávita í hvert sinn sem maður
hittir ástina. Þannig að Stefán
hættir að vera þessi ljúfi, litli
drengur sem mamma hans og
kennarinn elska og fer að taka
upp á ýmsu misviturlegu í til-
raunum sínum til að ná í dömuna.
Hliðarsagan er síðan það sem ger-
ir þetta verk svo ferskt, að mínu
mati – höfundarnir tveir eru nefni-
lega rétt aðeins eldri en Stefán, 17
og 18 ára, og ég er nokkuð viss
um að Stefán væri talsvert betur
settur ef hann hefði höfunda sem
vissu aðeins betur út á hvað svona
mál ganga,“ segir Björk og hlær.
„Þeir taka endalaust af kolröng-
um ákvörðunum fyrir söguhetjuna
þangað til hún síðan á endanum
rís upp gegn yfirboðurunum. Höf-
undarnir geta svo gert ýmislegt;
látið bresta á með söngatriði, spól-
að fram og aftur í tíma og svo eru
þeir heldur ekki alltaf sammála
um það hvernig söguhetjan á að
tækla ástamálin. Þeir fara líka í
gegnum það í verkinu hvernig
maður skrifar handrit að leikriti –
hetjan lendir í hrakningum, svo
lendir hún á botninum og svo rís
hún upp á eftir, þannig að til-
gangur höfundarins er í raun að
gera söguhetjuna óhamingjusama,
svo hún geti orðið hamingjusöm
aftur í lokin,“ útskýrir Björk kím-
in. „Höfundarnir standa síðan á
vissan máta líka fyrir þann fé-
lagsþrýsting sem allir finna fyrir á
þessum árum ævinnar og gerir
það að verkum að við reynum að
lifa lífi okkar eins og við höldum
að aðrir vilji að lifum því. Þá miss-
um við allt samband við okkur
sjálf, þannig að skilaboð leikritsins
eru í raun einföld: Vertu þú sjálf-
ur og hættu að rembast við að
vera eitthvað annað.“
Nýtt verk um Skugga Svein
Í undirbúningi hjá leikhúsinu er
einnig nýtt verk eftir Karl Ágúst
Úlfsson sem heitir Í skugga
Sveins en þar mun Karl umbreyta
hinu klassíska verki Skugga
Sveini í leikrit með söngvum fyrir
alla fjölskylduna. Meðal fleiri
verka sem eru í vinnslu má nefna
Nýja Ísland, nýtt verk sem frum-
sýnt verður í Gaflaraleikhúsinu
eftir áramót. Sýningunni má líkja
við rannsóknarverkefni þar sem
leitað verður svara við spurn-
ingum á borð við það hvort allt
stefni aftur í hjólför ársins 2008,
hvort Íslendingar séu almennt
hálfvitar og af hverju við erum
svona góð í boltaíþróttum og
sundi. „Gunnar Helgason er front-
urinn í því verki og fær með sér
nokkra frábæra penna. Svo verður
háðsádeilugleraugunum brugðið
upp og vonir standa til þess að
þetta verði hárbeitt, pólitískt og
drepfyndið verk.“
Gaflaraleikhúsið tekur vel á
móti góðum gestum í vetur en
leikfélag Menntaskólans í Reykja-
vík, Frúardagur, verður þar með
sýningu í nóvember og leikhóp-
urinn Silfurtunglið með Jón Gunn-
ar Þórðarson ætlar að frumsýna
krefjandi og spennandi verk eftir
spænska leikskáldið Gabríel
García Lorca í janúar.
Samfélagsleg skylda að sinna
framtíðaráhorfendum
Í mars frumsýnir leikfélag
Flensborgarskóla þar síðan nýtt
verk. „Við lítum á það sem sam-
félagslega skyldu okkar að leggja
okkar af mörkum við að rækta
leiklistina meðal ungmenna og
gefa þeim vettvang – og auðvitað
ekki síst í Hafnarfirði, þar sem við
erum staðsett,“ segir Björk en
Gaflararnir sjá einmitt um leiklist-
arkennslu í skólum Hafnarfjarðar.
„Við fundum það líka vel þegar við
sýndum Unglinginn hversu mikil
eftirspurn er eftir leikritum fyrir
unglinga. Allt í einu kom þarna
leikverk sem þeir skildu, þetta var
þeirra húmor og þeirra veruleiki.
Krakkar á þessum aldri fara oft á
leikrit sem eru valin fyrir þau og
þá alltof oft í einhvers konar upp-
eldistilgangi og krökkunum meira
og minna hundleiðist, þó þetta séu
frábærar sýningar sem fullorðna
fólkið kann að njóta. Unglingar
eru ekki kurteisir áhorfendur, þeir
detta miskunnarlaust í símana
sína ef þeim leiðist – en þeir láta
líka vel í sér heyra ef þeir kunna
að meta það sem þeir sjá. Það er
leikur einn að missa framtíðar-
áhorfendur okkar með einni leið-
inlegri sýningu, svo mér finnst
það vera okkar ábyrgð að gera
meira af samfélagslegum spegil-
verkum fyrir þennan áhorfenda-
hóp, verkum sem þau tengja við
og hafa gaman af,“ segir Björk að
lokum.
Morgunblaðið/Eggert
Hæfileikakrakkar Björk Jakobsdóttir leikstýrir unglingasýningunni Stefán rís hjá Gaflaraleikhúsinu.
„Mikil eftirspurn eftir
leikritum fyrir unglinga“
Gaflaraleikhúsið undirbýr unglingaverkið Stefán rís
Karl Ágúst Úlfsson skrifar söngleik um Skugga Svein
Franski myndlistarmaðurinn
Pierre Huyghe er handhafi Nasher-
verðlaunanna í ár. Huyghe hefur
útvíkkað form listarinnar á síðast-
liðnum árum með því að skapa
skúlptúra með aðstoð býflugna,
kóngulóa, skeifukrabba og gervi-
snjóstorma, svo dæmi séu nefnd.
Verðlaunin eru veitt í flokki
höggmyndalistar af Nasher-
höggmyndalistarmiðstöðinni í Dall-
as. Tilgangur verðlaunanna er að
vekja athygli á áhrifamiklum högg-
myndlistarmönnum nútímans.
Verðlaunin eru nú veitt í annað
sinn og er verðlaunaféð alls 100.000
dollarar, eða sem nemur rúmum
11,4 millljónum króna.
Huyghe undir-
býr nú nýja sýn-
ingu í Palais de
Tokyo í París og
er óhætt að full-
yrða að þar muni
hann taka frum-
leikann í nýjar
hæðir þar sem
hann vinnur með
krabbameins-
frumur frá
Curie-stofnuninni. Huyghe hefur
haldið sýningar um allan heim, þar
á meðal á Íslandi. Árið 2007 var
sýning hans hluti af menningar-
veislunni Pourquoi Pas? Franskt
vor á Íslandi.
Pierre Huyghe hlýtur Nasher-verðlaunin
Pierre
Huyghe
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 30/9 kl. 20:00 92. sýn Fös 14/10 kl. 20:00 100. s. Fös 28/10 kl. 20:00 108. s.
Lau 1/10 kl. 20:00 93. sýn Lau 15/10 kl. 20:00 101. s. Lau 29/10 kl. 20:00 109. s.
Sun 2/10 kl. 20:00 94. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 102. s. Sun 30/10 kl. 20:00 110. s.
Fim 6/10 kl. 20:00 95. sýn Fim 20/10 kl. 20:00 103. s. Fim 3/11 kl. 20:00 111. s.
Fös 7/10 kl. 20:00 96. sýn Fös 21/10 kl. 20:00 104. s. Fös 4/11 kl. 20:00 112. s.
Lau 8/10 kl. 20:00 97. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 105. s. Lau 5/11 kl. 20:00 113. s.
Sun 9/10 kl. 20:00 98. sýn Sun 23/10 kl. 20:00 106. s. Fös 11/11 kl. 20:00 114. s.
Fim 13/10 kl. 20:00 99. s. Fim 27/10 kl. 20:00 107. s. Lau 12/11 kl. 20:00 115. s.
Gleðisprengjan heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 1/10 kl. 13:00 3. sýn Lau 8/10 kl. 13:00 5. sýn Lau 15/10 kl. 13:00 Auka.
Sun 2/10 kl. 13:00 4. sýn Sun 9/10 kl. 13:00 6. sýn Sun 16/10 kl. 13:00 7. sýn
Nýr Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra snæd Magnasonar
Sending (Nýja sviðið)
Fös 30/9 kl. 20:00 9. sýn Sun 9/10 kl. 20:00 11.sýn Fim 20/10 kl. 20:00 13. sýn
Lau 1/10 kl. 20:00 10.sýn Fim 13/10 kl. 20:00 12.
sýn
Nýtt verk eftir Bjarna Jónsson
Njála (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00 Mið 26/10 kl. 20:00
Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 19/10 kl. 20:00 Sun 6/11 kl. 20:00
Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa fyrirlestur.
Hannes og Smári (Litla sviðið)
Fös 7/10 kl. 20:00 Frums. Lau 15/10 kl. 20:00 4. sýn Sun 23/10 kl. 20:00 7. sýn
Lau 8/10 kl. 20:00 2. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 5. sýn Fim 3/11 kl. 20:00 aukas.
Fös 14/10 kl. 20:00 3. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 6. sýn
Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar
NJÁLA – ★★★★ „Unaðslegt leikhús“ S.J. Fbl
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Sun 2/10 kl. 19:30 10.sýn Sun 16/10 kl. 19:30 14.sýn Mið 26/10 kl. 19:30 18.sýn
Fim 6/10 kl. 19:30 11.sýn Mið 19/10 kl. 19:30 15.sýn Sun 30/10 kl. 19:30 17.sýn
Fös 7/10 kl. 19:30 12.sýn Fim 20/10 kl. 19:30 16.sýn
Lau 15/10 kl. 19:30 13.sýn Lau 22/10 kl. 19:30 19.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fim 29/9 kl. 19:30 6.sýn Fim 13/10 kl. 19:30 11.sýn Sun 23/10 kl. 19:30 16.sýn
Lau 1/10 kl. 19:30 7.sýn Fös 14/10 kl. 19:30 12.sýn Fös 28/10 kl. 19:30 17.sýn
Fös 7/10 kl. 19:30 8.sýn Sun 16/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 30/10 kl. 19:30 18.sýn
Lau 8/10 kl. 19:30 9.sýn Fim 20/10 kl. 19:30 14.sýn Lau 5/11 kl. 19:30 19.sýn
Sun 9/10 kl. 19:30 10.sýn Lau 22/10 kl. 19:30 15.sýn Sun 6/11 kl. 19:30 20.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Horft frá brúnni (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 19:30 Aðalæfing Sun 9/10 kl. 19:30 4.sýn Fös 28/10 kl. 19:30 8.sýn
Fös 30/9 kl. 19:30 Frums Fim 13/10 kl. 19:30 5.sýn Sun 6/11 kl. 19:30 9.sýn
Lau 1/10 kl. 19:30 2.sýn Fös 14/10 kl. 19:30 6.sýn Fim 10/11 kl. 19:30 10.sýn
Lau 8/10 kl. 19:30 3.sýn Sun 23/10 kl. 19:30 7.sýn
Eitt magnaðasta leikverk 20. aldarinnar
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 1/10 kl. 13:00 Lau 8/10 kl. 13:00 Lau 15/10 kl. 13:00
Lau 1/10 kl. 15:00 Lau 8/10 kl. 15:00 Lau 15/10 kl. 15:00
Sun 2/10 kl. 13:00 Sun 9/10 kl. 13:00
Sun 2/10 kl. 15:00 Sun 9/10 kl. 15:00
Ævintýraför með forvitnum fílsunga - kemur þú með?
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00 Mið 19/10 kl. 20:00
Fös 7/10 kl. 20:00 Fös 14/10 kl. 20:00 Fös 21/10 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Sun 2/10 kl. 21:00
Aðeins þessi eina sýning á árinu - hópurinn snýr aftur á nýju ári
Lofthræddi örnin Örvar (Kúlan)
Lau 8/10 kl. 15:00 Sun 16/10 kl. 15:00
Lau 15/10 kl. 15:00 Lau 22/10 kl. 15:00
Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki.
Stertabenda (Kúlan)
Lau 1/10 kl. 17:00 aukasýn Sun 2/10 kl. 19:30 aukasýn
Meinfyndin og hárbeitt atlaga að íslenskri þjóðarsál