Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Við flytjum snilligáfu
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það hefur verið heilmikil markaðs-
vinna á þessum svæðum undanfarin
ár. Það er grundvöllurinn. Svæðin
hafa aðdráttaraflið, ekki flugvöllur-
inn,“ segir Jón Karl Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia,
um möguleika á auknu millilanda-
flugi til Akureyrar og Egilsstaða.
Innanlandsflug hefur aukist á
þessu ári, í fyrsta skipti frá hruni.
Þannig fóru 123 þúsund farþegar um
Akureyrarflugvöll fyrstu átta mán-
uði ársins, sem eru 5,8% fleiri en á
sama tímabili í fyrra. 65 þúsund far-
þegar, fóru um Egilsstaðaflugvöll
sem er 4% fjölgun. Á Reykjavíkur-
flugvelli fjölgaði farþegum um 6,4%.
Langmesta fjölgunin var þó um
Húsavíkurflugvöll. Um hann hafa
farið 14 þúsund farþegar það sem af
er ári og það er 90% fjölgun. Skýrist
það væntanlega mest af stórfram-
kvæmdum í atvinnumálum.
Vilja sjá meira af landinu
Jón Karl sér fyrir sér verulega
aukna notkun flugvallanna á Akur-
eyri og Egilsstöðum á næstu árum,
vegna fjölgunar erlendra ferða-
manna. Hann segir að eftir því sem
ferðafólki fjölgi aukist áhuginn á
áfangastöðum sem séu fjær kjarn-
anum. Þegar fólk sé að koma í annað
eða þriðja skipti til landsins hafi það
meiri áhuga á að kanna staði sem
ekki gafst tími til í fyrstu ferðinni. Þá
aukist þörfin fyrir flug beint inn á
þessa staði.
Markaðsstofur og flugklasar hafa
unnið að því að fá beint millilanda-
flug til Akureyrar og Egilsstaða. Það
hefur litlum árangri skilað enn sem
komið er. Flugfélög og ferðaskrif-
stofur hafa ekki fengið nægar bók-
anir til þess að koma á umtalsverðu
flugi. Þær tölur sem nefndar eru um
fjölgun á flugvöllunum fyrir norðan
og austan grundvallast því á innan-
landsfluginu. Erlendir ferðamenn
hafa staðið undir fjölguninni í því og
eru orðnir um 30% farþega.
Þróa nýjar leiðir
Stjórnvöld hafa stofnað sjóð til að
stuðla að uppbyggingu nýrra flug-
leiða til landsins og dreifa þannig
ferðafólki um landið. Eru Akur-
eyrarflugvöllur og Egilsstaðaflug-
völlur nefndir sérstaklega í því sam-
bandi.
Flugþróunarsjóðurinn fær 170
milljóna króna fjárveitingu á þessu
ári og er ætlunin að hann hafi 300
milljónir til ráðstöfunar á hverju ári
eftir það, næstu árin.
Sjóðurinn veitir styrki til þróunar
nýrra flugleiða, sem miðast við
ákveðna upphæð á hvern farþega
sem lendir á Akureyri eða Egils-
stöðum. Hann veitir einnig markaðs-
styrki til að taka þátt í kynningar-
starfi flugfélaganna á flugleiðunum.
Þrjár umsóknir bárust eftir aug-
lýsingu í vor og er enn verið að vinna
úr þeim, að sögn Jóns Karls, sem á
sæti í stjórn Flugþróunarsjóðsins.
Tvö flugfélög standa að baki um-
sóknunum.
Jón Karl segir að það sé mikil
ákvörðun hjá flugfélagi að ákveða
nýjan áfangastað og þurfi að skoða
vel. Verið sé að vinna þessi mál í
samvinnu við umsækjendur. „Þetta
er langhlaup. Mikilvægt er að halda
markaðsstarfinu áfram til þess að
flugfélögin geti valið að koma,“ segir
Jón Karl.
Aðstaðan dugar vel
Hann segir að flugvellirnir geti
tekið við þó nokkurri umferð án þess
að fjárfesta þurfi í aðstöðu. Hann
segir að aukin umferð skipti veru-
legu máli til að styrkja flugvellina til
lengri tíma. Isavia hefur miðað við að
fjöldi farþega sem fara um Akur-
eyrarflugvöll og Egilsstaðaflugvöll
geti þrefaldast á næstu 10 til 15
árum. Nú fara um 150 þúsund far-
þegar um Akureyrarflugvöll á ári og
90-100 þúsund um Egilsstaði. Sam-
kvæmt viðmiði Isavia gæti fjöldinn
farið í 300 til 500 þúsund farþega um
hvorn völl.
Markaðsstarf er grundvöllurinn
Flugþróunarsjóður vinnur með tveimur flugfélögum sem sóttu um styrk til tveggja nýrra flugleiða
Isavia miðar við þreföldun farþega um flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum á næstu 10-15 árum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Næg aðstaða er á Akureyrarflugvelli til að taka við millilandaflugi og auknu innanlandsflugi.