Morgunblaðið - 29.09.2016, Side 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Ljósmyndir/Björgvin Pálsson
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Félagi minn fullyrðir aðþetta sé besti ábreiðu-söngur sem til er af laginuHallelujah eftir Leonard
Cohen. Ég flissa alltaf að yfirlýstur
guðleysinginn láti svona og ég er
viss um að hann er að gera grín að
mér. En hann heldur minningunni á
lofti, því hann er enn að gefa fólki
þessa plötu í tækifærisgjafir,“ segir
Gunnbjörg Óladóttir guðfræðingur
um plötuna Þú ert mér nær, sem
kom út fyrir þrjátíu árum, en þar
syngur hún öll lögin tíu sem eru á
plötunni.
„Þessi plata var gefin út af
Samhjálp, en foreldrar mínir Ásta
Jónsdóttir og Óli Ágústar, sem er
áttræður í dag, ráku Samhjálp í tutt-
ugu og tvö ár, frá 1977 til 1999. Til að
fjármagna starfið gaf Samhjálp ann-
að hvert ár út plötur og bækur, með
kristilegu ívafi. Þessi plata seldist í
bílförmum, hún seldist meira en
Bubbi það árið, en þó fór hann yfir
gullplötumarkið í sölutölum, með sín
5.000 eintök. Samhjálparplöturnar
seldust reyndar alltaf vel og það var
mikið söluátak í gangi og keyrt um
allt land, svo þessi plata mín er ef-
laust til á mörgum sveitabæjum,“
segir Gunnbjörg og bætir við að
langt sé liðið síðan hún kvaddi þenn-
an heim Samhjálpar og að öll fjöl-
skyldan sé nú gengin úr Fíladelfíu,
nema hugsanlega tveir elstu bræð-
urnir sem létu sig þessi mál litlu
varða.
„Foreldrar mínir mega eiga það
að þau rifu upp starfið í Samhjálp.
Það var boðið upp á súpu fyrir heim-
ilislausa, og svo sá Samhjálp líka um
meðferðarstöðina í Hlaðgerðarkoti,
stoðbýli fyrir þá sem vildu spreyta
sig í lífinu og samtöl við þá sem
gengu lengst og náðu bata. Þetta var
mikið batterí sem óx í höndum for-
eldra minna, og var hugsjónastarf
hjá þeim. Það var einföld hugsjón,
sem meðferðarkerfin hér heima mis-
skildu, en hugsjónin snerist um að
veita húsaskjól og fæða og klæða þá
sem bera ekki hönd fyrir höfuð sér.
Við vorum á kafi í starfinu í Sam-
hjálp, foreldrar mínir og við fjögur
yngstu börnin, og lærðum margt
sem ég vona að ég gleymi aldrei. Við
höfum öll komið við í tónlist með ein-
um eða öðrum hætti, bræður mínir
voru í lúðrasveit, einn spilaði á
bassa, annar á gítar og ég spilaði á
gítar og söng. Við vorum heilmikið
að spila á þessum árum, eins og gert
er í þessum kristilegu hreyfingum,
það gengur voða mikið út á söng.“
Bjólan og fleiri góðir með
Gunnbjörg var ekki nema 21
árs þegar hún söng inn á plötuna, þá
nýbyrjuð í guðfræði við Háskóla Ís-
lands.
„Ég var nýkomin heim frá
Ameríku, hafði verið þar í eitt ár
sem barnapía, tók mér smá frí eftir
menntaskóla. Það var gaman að
vinna að þessari einu sólóplötu minni
og þeir sem spiluðu og unnu að út-
setningum voru heldur betur flottir
náungar til að hafa með sér á plötu,
meðal annarra Björn Thoroddsen,
Þórir Baldursson, Sigurður Bjóla og
Skúli Sverris. Gerður var sjónvarps-
þáttur til að kynna plötuna þar sem
ég söng í sjónvarpssal, þetta voru
þættir sem voru kallaðir Rokkarnir
geta ekki þagnað, ef ég man rétt, og
Dóra Takefusa tók við mig viðtal.
Hrafn Gunnlaugsson var dagskrár-
stjóri innlendrar dagskrárgerðar á
þessum tíma og í framhaldi af þess-
um þætti hvatti hann mig til að
sækja um vinnu sem aðstoðardag-
skrárgerðarmaður hjá sjónvarpinu.
Ég sló til og starfaði sem svokölluð
skrifta um stund. Það var gaman að
sjá inn í sjónvarpsheiminn og ég
kynntist mörgu áhugaverðu. En ég
hafði ekki áhuga á að staldra lengi
við, enda vildi ég ólm komast aftur í
háskólann og lesa heimspeki sem
ögraði fallega allri minni tilveru á
þeim tíma.“
Heimsins fyrsta ábreiða
Leonard Cohen kom sjálfur til
Íslands ekki svo löngu eftir að plat-
an kom út, á Listahátíð 1988.
„Mér var boðið í móttöku í
Höfða þar sem ég átti að afhenda
honum plötuna mína, af því að hún
innihélt heimsins fyrstu ábreiðu af
lagi hans Hallelujah. Það er svolítið
skondið að ég syng íslenskan kristi-
legan texta við lagið, um Davíð og
Batsebu, sem pabbi samdi. En við
völdum lag Cohens af því það er
andlegur þungi í því en Cohen var
alls ekki með það í huga, því hann er
í grunninn Gyðingur og er raunar
virkur Búddisti í dag. En þetta var
skemmtileg ögrun og ágætur fundur
tveggja heima.“
Mjúka kinnin er ekki gleymd
Gunnbjörg segir að það hafi
verið ljúf stund að hitta Cohen.
„Ég kyssti hann, þessa elsku.
Við vorum beðin um að kyssast og
gerðum eins og okkur var sagt.
Þessi mjúka kinn er auðvitað ekki
gleymd. Cohen hefur alla tíð verið
mikill kvennamaður en mér sýndi
hann ekkert nema herramennsku.
Frá honum stafaði raunar einstakri
hlýju. Ég hugsaði ekkert um það þá
hvað þetta væri stór stund, ég var
svo ung að ég gerði mér ekki grein
fyrir því. Ég man að ég nennti varla
að mæta í þessa móttöku. Nú þrem-
ur áratugum síðar átta ég mig á
hvað þetta voru mikil forréttindi,“
segir Gunnbjörg og bætir við að hún
hafi í boðinu kynnst lítillega þeim
sem voru í hljómsveit Cohens. „Ég
man sérstaklega eftir strák frá Tex-
as sem spilaði á trompet í bandinu
hans og hafði ferðast með honum um
allan heim. Hann sagði að það væru
ekki til stjörnustælar í Cohen, hann
væri svo mikill húmanisti. Ég spjall-
aði líka við gítarleikara frá Grikk-
landi sem var að ærast úr heimþrá,
hann var ánægður með að vinna með
Cohen því hann væri einstaklega hlý
manneskja. Ég hef alla tíð síðan
fylgst með Cohen, hann er djúp-
þenkjandi og hefur verið hræðilega
þjakaður af þunglyndi og varpað
ljósi á þann arma sjúkdóm með
heiðarlegri játningu. Mér finnst
eftirminnileg orð hans í viðtali þar
sem hann sagði að manneskjunni
gengi illa að kalla fram fólkið í
mannkynssögunni sem raunveru-
lega ætti að vera þar. Þórir Baldurs
hélt því fram að hann væri af sumum
talinn meiri Dylan! En það er held
ég ekki hægt. Þeir hafa þó báðir
þetta einstaka mark að textarnir
þeirra eru vart af þessum heimi.“
„Ég kyssti
þessa elsku“
„Ég hugsaði ekkert um það þá hvað þetta væri stór
stund, ég var svo ung að ég gerði mér ekki grein fyrir
því. Ég man að ég nennti varla að mæta í þessa mót-
töku.“ Svo segir Gunnbjörg Óladóttir þegar hún rifjar
upp fund sinn með Leonard Cohen fyrir löngu.
Hlý nærvera Gunnbjörg segir það hafa verið ógleymanlega stund þegar hún hitti Leonard Cohen og gaf honum plötuna sína og fékk að kyssa goðið. Hann sýndi henni mikla herramensku.
Músíkkonur Vinkonurnar Eva Mjöll Ingólfsdóttir (standandi) og Gunnbjörg
(sitjandi) umvafðar tónlistarmönnum í ferð sinni nýlega til New York.
Yogabandið Glimmer Mysterium ætl-
ar að lyftum andanum í söng og gleði
í kvöld kl 20 hjá Yogavin á Grensás-
vegi 16, í tilefni tveggja ára afmælis.
Björgvin Gíslason sítar, Hilmar Örn
Agnarsson harmonium, Andri Hilm-
arsson gítar, Ásgeir Ásgeirsson bou-
zouki, Ingibjörg Guðmunds og Ásta
Arnar söngur. Allir eru hjartanlega
velkomnir á kærleikssamkomuna.
Tónleikar í tilefni afmælis
Eðal Yndislegt band Yogabandið.
Glimmer Myst-
erium leikur
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
Nýjar vörur í hverri viku
Viltu selja eða
kaupa fyrirtæki?
Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík,
GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög-
giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem
rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef-
andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára-
hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum
fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er
ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við
kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.