Morgunblaðið - 29.09.2016, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Fallegir kjólar
Túnikur
Bolir
Peysur
Buxur
O.fl.
Mikið úrval
Ný sending
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
DIMMALIMM
Kuldagallar
20% afsláttur frá
29. sept til 7. okt
Húfur, Lambúshettur og
lúffur í miklu úrvali
www.dimmalimmreykjavik.is
Sýningin Sjávarútvegur 2016 /
Iceland Fishing Expo 2016 hófst í
gær í Laugardalshöll. Það var
Gunnar Bragi Sveinsson sjávar-
útvegsráðherra sem opnaði sýn-
inguna formlega að viðstöddum
forseta Íslands, Guðna Th. Jóhann-
essyni, og fleiri gestum.
„Þarna er til dæmis verið að
kynna nýjar vélar sem eru fremst-
ar í heiminum varðandi roðflett-
ingar og flökun sem eiga eftir að
breyta vinnslu á fiski,“ segir Ólaf-
ur M. Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar, en
það eru um 120 innlendir og er-
lendir aðilar sem taka þátt í sýn-
ingunni og verða margar nýjungar
sem tengjast sjávarútvegi kynntar.
Þegar Morgunblaðið náði tali af
Ólafi hafði hann nýlokið við að
fylgja hópi gesta um sýninguna og
sagði þá nær orðlausa yfir því sem
þar bar fyrir augu.
Í opnunarathöfn sýningarinnar í
gær voru einnig veittar viðurkenn-
ingar til þeirra sem þykja hafa
skarað fram úr í greininni að mati
helstu samtaka í íslenskum sjávar-
útvegi en Eliza Reid forsetafrú
veitti viðurkenningarnar.
Axel Helgason hlaut viðurkenn-
ingu Landssambands smábátaeig-
enda sem trillukarl ársins. Fisk-
vinnslan Íslandssaga á Suðureyri
hlaut viðurkenningu Samtaka fyr-
irtækja í sjávarútvegi og Slysa-
varnarskóli sjómanna fékk við-
urkenningu Sjómannasambands
Íslands. Þá hlaut Einar Lárusson
viðurkenningu Íslenska sjávarklas-
ans. Fiskmarkaður Þórshafnar og
útgerð Saxhamars SH 50 hlutu
bæði viðurkenningu Samtaka fisk-
framleiðenda og útflytjenda.
Tækni Garmin kynnir ýmsar nýjungar á sjávarútvegssýningunni og í gær leit fjöldi fólks við á bás fyrirtækisins. Nýtt Beitir er með rými í Laugardalshöll en fyrirtækið var stofnað 1988.
Morgunblaðið/Eggert
Heiður Forsetafrúin veitti Einari Lárussyni, Hilmari Snorrasyni, Óðni Gestssyni, Karli Sveinssyni, Friðþjófi Sævarssyni og Axel Helgassyni viðurkenningar.
Fjöldi Eimskip er einn þeirra 120 aðila sem sýna á sjávarútvegssýningunni.
Fjölbreytni á sjávarútvegssýningu