Morgunblaðið - 29.09.2016, Page 29
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Stefnir-Samval á 20 ára afmæli!
Stefnir-Samval er einn elsti og fjölmennasti
fjárfestingarsjóður landsins, með yfir 4.000
viðskiptavini. Ef þú vilt byggja upp þinn sjóð
til lengri tíma getur verið góð hugmynd að
byrja með reglulegan sparnað, 5.000 krónur
á mánuði eða meira.
Það er fljótlegt og einfalt að ganga frá því
í netbanka Arion banka.
Í sparnaði getur
munað um hvert ár
ára20
Samval
1996 - 2016
Stefnir
Stefnir-Samval er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 128/2011. Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki
verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Fjárfesting í fjárfestingar-
sjóðum telst almennt vera áhættusamari fjárfesting en í verðbréfasjóðum. Meiri áhætta er fólgin í rýmri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni
áhættudreifingar en í verðbréfasjóði. Nánari upplýsingar um sjóðinn, þar á meðal nánari upplýsingar um áhættu við fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum hans, má
finna í útboðslýsingu og lykilupplýsingum sjóðsins sem nálgast má á arionbanki.is/sjodir. Auglýsingin er aðeins í upplýsingaskyni og skal ekki litið á hana sem
ráðgjöf um að ráðast í eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum. Sjóðurinn er í rekstri
Stefnis hf. sem er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki. Stefnir hf. rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði skv. lögum nr.128/2011. Arion
banki er helsti söluaðili sjóða Stefnis hf. sem er dótturfélag Arion banka.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað
í gær að vísa tveimur málum gegn
Íslandi til EFTA-dómstólsins þar
sem Ísland hefur ekki innleitt EES
löggjöf innan tilskilinna tíma-
marka.
Fram kemur í tilkynningu frá
ESA, að annars vegar sé um að
ræða reglugerð sem varðar öryggi
og markaðssetningu á forefnum
sprengiefna og hins vegar tilskipun
um vélar sem notaðar eru til að
dreifa skordýraeitri.
Málaferlin varða EES-reglur,
sem innleiddar hafa verið í EES-
samninginn en ekki lögfestar.
Vísun máls til EFTA-dómstólsins
er lokaskrefið í formlegu samnings-
brotamáli ESA á hendur EFTA-
ríki. Áður hefur Ísland verið upp-
lýst um afstöðu stofnunarinnar og
veittur kostur á að koma röksemd-
um sínum á framfæri sem og að
ljúka málinu með því að innleiða
viðeigandi löggjöf innan gildandi
tímamarka.
Tvö mál til
EFTA-
dómstóls
Fjalla um sprengi-
efni og skordýraeitur
Morgunblaðið/Ómar
Lúxemborg EFTA-dómstóllinn er
með aðsetur í Lúxemborg.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
(HSN) var rekin með lítilsháttar
rekstrarafgangi árið 2015, eða um
1,1 milljón króna. Sex heilbrigðis-
stofnanir á Norðurlandi samein-
uðust þann 1. október 2014 í Heil-
brigðisstofnun Norðurlands og
markaðist fyrsta heila rekstrarár
stofnunarinnar af þeim verkefnum
sem fylgdu sameiningunni. Fjár-
hags- og rekstrarstaðan var þung í
upphafi en hefur breyst mjög til
batnaðar. Þetta er meðal þess sem
fram kom á fyrsta ársfundi HSN,
sem haldinn var í menningarhúsinu
Hofi á Akureyri á þriðjudag.
Á fundinum tilkynnti Kristján
Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
að innan fárra vikna fengi HSN 50
milljóna króna sérframlag sem ætl-
að væri að mæta óskum HSN um
framkvæmd ýmissa verkefna á
starfssvæðinu. Meðal slíkra verk-
efna nefndi hann heimahjúkrun á
starfssvæðinu, eflingu sjúkraflutn-
inga á Sauðárkróki og Húsavík og
aukna heilsueflingu á starfssvæði
stofnunarinnar.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
nær frá Þórshöfn í austri til
Blönduóss í vestri og sinnir allri
heilsugæsluþjónustu á því svæði. Á
starfssvæðinu eru sex meginstarfs-
stöðvar, þ.e. Húsavík, Akureyri,
Dalvík, Fjallabyggð, Sauðárkrókur
og Blönduós en alls eru heilsu-
gæslustöðvar og heilsugæslusel 17
talsins. Íbúafjöldi á svæði HSN er
35.119, þar af eru 20.527 á Akur-
eyri. Á HSN störfuðu um 514 að
jafnaði á árinu 2015, í um 357
stöðugildum. sisi@mbl.is
HSN rekin með hagnaði
Ljósmynd/Bragi Bergmann
Hof Fjöldi manns sótti aðalfund HSN sem haldinn var í vikunni.
Ráðherra tilkynnti um 50 milljóna sérframlag
Íslenska þjóð-
fylkingin, E-
listinn, hefur stillt
upp framboðs-
lista sínum í
Reykjavíkur-
kjördæmi Suður.
Tíu efstu sætin
skipa:
1. Gunnlaugur
Ingvarsson, bif-
reiðastjóri.
2. Arndís Ósk Hauksdóttir, prestur.
3. Jón Valur Jensson, guðfræðingur.
4. Ægir Óskar Hallgrímsson, bif-
reiðastjóri.
5. Höskuldur Geir Erlingsson, húsa-
smiður.
6. Ásdís Höskuldsdóttir, námsmaður.
7. Hildur Hrönn Hreiðarsdóttir,
verkakona.
8. Sólveig Jóhanna Guðmundsdóttir,
klæðskeri.
9. Sigurður Hólm Guðmundsson,
eldri borgari.
10. Loftur Altice Þorsteinsson, verk-
fræðingur.
Þjóðfylkingin
stillir upp í
Reykjavík
Gunnlaugur
Ingvarsson