Morgunblaðið - 29.09.2016, Qupperneq 50
50 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru
margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi,
umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og
alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki,
stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt
að gera kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
BLI A3 MFP Line of the Year:
2011, 2012, 2013, 2014
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
BLI Pro Award:
2013, 2014
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
„Ég á son, hann er tíu ára gamall,“
svaraði Donald Trump, forsetafram-
bjóðandi repúblikana fyrir forseta-
kosningarnar í Bandaríkjunum í nóv-
ember, þegar hann var spurður um
hernað á netinu í kappræðum fram-
bjóðendanna aðfaranótt þriðjudags.
„Hann er svo flinkur í þessum tölvum
að það er ótrúlegt. Öryggisþátturinn
á netinu er mjög, mjög vandasamur
og kannski er varla gerlegt [að
tryggja hann].“
Trump er ekki einn um að hafa
áhyggjur af því að erfitt sé að tryggja
öryggi á netinu. Í sumar fór fram
heræfing á vegum bandaríska varn-
armálaráðuneytisins í Suffolk í Virg-
iníu. Þar komu saman 800 sérfræð-
ingar á vegum Bandaríkjahers og
ýmissa opinberra stofnana.
Æfa varnir gegn nethernaði
Í æfingunni var gert ráð fyrir því
að tekist hefði að taka rafmagnið af í
Michigan, Pennsylvaníu og Ohio,
milljónir manna sætu í myrkri, heim-
ilistæki og símar virkuðu ekki og
eldsneyti fyrir neyðarrafstöðvar
sjúkrahúsa væri orðið af skornum
skammti. Í Tennessee hefðu götuljós,
netvæddar gatnamerkingar og vega-
tollstöðvar verið tekin úr umferð. Í
höfninni í Los Angeles lamaðist upp-
skipun. Óþekktum árásarmönnum
hafði tekist að brjótast inn í tölvunet
loftferðaeftirlitsins og komast yfir
hugbúnað, sem gerir kleift að sjá
hvar allar herflugvélar í bandarískri
lofthelgi eru niðurkomnar.
Í blaðinu Military Times var rætt
við Kvein Lundsay, yfirmann úr
Bandaríkjaher, um æfinguna. „Í okk-
ar huga er spurningin ekki hvort eitt-
hvað þessu líkt muni gerast, heldur
hvenær,“ sagði hann.
Hvað eftir annað hefur komið í ljós
hversu berskjaldaðir menn geta ver-
ið á netinu. Ekki er langt síðan brot-
ist var inn tölvukerfi Demókrata-
flokksins í Bandaríkjunum.
Samskiptum forystumanna í flokkn-
um var lekið á netið og augljóst að til-
gangurinn var að koma höggi á demó-
krata fyrir forsetakosningarnar í
nóvember.
Nokkru síðar var brotist inn í
tölvupóstinn hjá Colin Powell, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, og birtar
hugleiðingar þar sem kom fram að
honum væri ekki vel við Clinton, en
sýnu verr við Trump.
Í fréttaskýringu, sem birtist um
liðna helgi í þýska tímaritinu Der
Spiegel, segir að stafræna byltingin
hafi kollvarpað öllum leikreglum í
stríði. Með ódýrri fartölvu sé hægt að
lama stýrikerfi eldflaugavarnarkerf-
is, sem kosti milljarða. „Stærð og bol-
magn ein og sér duga ekki lengur til
að tryggja hernaðarlega yfirburði,“
sagði í greininni.
Þar er vitnað í orð Henrys Kiss-
ingers, fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, um að netið geri að
verkum að spyrja megi hvort söguleg
reynsla sé yfir höfuð marktæk. Kiss-
inger óttast afturhvarf til þess „nátt-
úrulega ástands“ sem enski heim-
spekingurinn Thomas Hobbes gerði
sér í hugarlund á 17. öld og lýsti með
orðunum „stríð allra gegn öllum“.
Joel Brenner, fyrrverandi yfirmað-
ur bandarísku þjóðaröryggisstofnun-
arinnar, NSA, og yfirmaður gagn-
njósna í Bandaríkjunum, segir að
ríkisstjórnir og fyrirtæki búi í gler-
húsum, sem séu nánast gagnsæ
njósnurum um allan heim. Hann talar
um „varanlegt ástand átaka milli ein-
stakra ríkja, sem afar sjaldan verði að
opnu stríði“.
Hillary Clinton, forsetaframbjóð-
andi demókrata, sagði í kappræðun-
um á mánudag að Bandaríkin myndu
ekki hika við að beita nethernaði til að
verjast Rússum og Kínverjum.
Þegar árásir eru gerðar á netinu
berast böndin iðulega að Rússum, en
Bandaríkjamenn hafa ekki látið sitt
eftir liggja.
Í gögnum NSA, sem Edward
Snowden tók sér til handargagns og
birti, kemur fram að þegar árið 1996
hafi þáverandi yfirmaður NSA, Ken-
neth Minihan, lagt hernaðarvægi
upplýsingabyltingarinnar að jöfnu við
atómsprengjuna og skrifað í minnis-
blaði til samstarfsmanna sinna að sá
sem stjórni útbreiðslu upplýsinga sé
með lykilinn að völdum á 21. öldinni.
Netárás á Íran
Þótt það hafi ekki verið staðfest er
talið víst að í forsetatíð George W.
Bush hafi Bandaríkjamenn sleppt
tölvuveirunni Stuxnet lausri til að
grafa undan kjarnorkuáætlun Írana.
Með veirunni er talið að hafi tekist að
eyðileggja um þúsund skilvindur,
sem Íranar gátu notað til að auðga úr-
an og gera það tækt í kjarnorkuvopn.
Í Der Spiegel er jafnframt sagt frá
því að hakkarar á vegum NSA hafi
laumað skaðlegum hugbúnaði inn í
Íran og komið fyrir víða í innviðum
landsins. Barack Obama hafi viljað
hafa vaðið fyrir neðan sig ef viðræð-
urnar við Íran um kjarnorkuáætlun
landsins rynnu út í sandinn. Ef Íranar
gerðu árás á Ísrael væri hægt að nota
búnaðinn til að lama eða stýra mik-
ilvægum tölvum í Íran.
Tveimur árum eftir að skilvindurn-
ar voru eyðilagðar voru 30 þúsund
tölvur sádi-arabíska olíufélagsins
Aramco teknar úr umferð í netárás.
Þetta er sögð fyrsta gagnárásin í
sögu netstríða.
Nú er talið að þau ríki, sem hafi
bolmagn til að lama lykilstarfsemi í
heilu ríkjunum með netárásum séu
orðin fleiri en 15 og það er margfalt
dýrara að verjast árásunum en að
gera þær.
Lögmálum stríðs kollvarpað
Með nethernaði geta smáríki og hryðjuverkasamtök skákað hernaðarlegum stórveldum Með
ódýrri fartölvu má lama loftvarnarkerfi sem kosta milljarða Flest ríki og fyrirtæki berskjölduð
AFP
Skotmark Hægt er að valda gríðarlegu tjóni með netárásum á innviði á borð við olíuhreinsunarstöðvar.
Netvígvæðing
» Bandaríkjamenn leggja mikla
áherslu á að vera tilbúnir til net-
hernaðar. Í gögnum, sem Edw-
ard Snowden lak, var fyrirskipun
frá Barack Obama Bandaríkja-
forseta til yfirmanna njósna-
stofnana landsins um að gera
lista yfir skotmörk netárása.
» Sérfræðingar þjóðaröryggis-
stofnunarinnar, NSA, hafa búið
til urmul netvopna og fyrir
nokkrum vikum kom í ljós að
einhverjum þeirra hefði verið
lekið á netið.
» Kínverjar leggja mesta
áherslu á fyrirtækjanjósnir og er
sagt að liðsmenn nethers þeirra
séu 100 þúsund.
» Rússar eru sagðir leggja
áherslu á nethernað, sér-
staklega í Austur-Evrópu.
» Ísraelar leggja áherslu á net-
hernað og starfa þúsundir sér-
fræðinga á því sviði eingöngu.
Netárás var gerð á Eistland 27.
apríl 2007. Fyrst voru nokkrir
hraðbankar teknir úr umferð og
kortalesarar í stórverslunum urðu
óvirkir. Svo gerðist fleira. Ýmis
þjónusta á netinu lokaðist og
slokknaði á útvarpssendum. Sam-
skiptarásir í eistneska þinginu
lokuðust.
Vefsíða forsætisráðherrans varð
óvirk 9. maí. Andrus Ansip, for-
sætisráðherra Eistlands, lýsti yfir
því að í Eistlandi hefði líkan að
nýjum nethernaði verið prófað.
Enn þann dag í dag hefur ekki
verið tekinn allur vafi af því hver
gerði árásina á Eistland. Ansip er
þó ekki í neinum vafa um að Rúss-
ar hafi verið að baki árásinni. Til
marks um það sé að sama dag og
árásirnar hófust hafi Eistar fjar-
lægt rússneskan stríðsminnisvarða
sem stóð í miðborg Tallinn, þrátt
fyrir hörð mótmæli rússneskra
stjórnvalda.
Í Der Spiegel er rifjað upp að
tveimur árum síðar hafi einn af
leiðtogum rússnesku ungliða-
hreyfingarinnar Okkar, sem styð-
ur Vladimír Pútín, forseta Rúss-
lands, og nýtur stuðnings hans,
gumað af því að hafa skipulagt
árásina. Stjórnvöld í Moskvu
sverja árásina þó af sér og ekki
hafa svo vitað sé fundist sannanir
um að rússnesk stjórnvöld hafi
framið árásina.
Það segir sína sögu um hversu
erfitt er að rekja árásir á netinu að
25% af tölvunum sem notaðar voru
til að gera árásina á Eistland voru
í Bandaríkjunum. Þá hefur tölvu-
veirum sennilega verið dreift á
netinu í tölvur víða um heim og
þær síðan virkjaðar á tilteknum
tíma. kbl@mbl.is
Árásin á Eistland
sýndi veikleikana
Nethernaðurinn
var víðtækur og
stóð í tvær vikur
Reuters
Árás Minnisvarði var fjarlægður í
Tallinn sama dag og netárásin hófst.