Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 55
55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 Haustsól Hún ber með sér gula og hlýja birtu blessuð haustsólin sem fólk fagnar og nýtur í hvívetna þessa dagana. Golli Aldarfjórðungur er liðinn frá Ríóráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 1992 um umhverfi og þróun. Sá merk- isatburður skilaði tveimur veigamiklum alþjóðasamningum, þ.e. um loftslagsbreyt- ingar af mannavöldum og um verndun líf- fræðilegrar fjöl- breytni. Báðir þessi samningar gengu fljótlega í gildi með staðfest- ingu alls þorra aðildarríkja SÞ, af Ís- lands hálfu þegar á árinu 1994. Loftslagssamningurinn hefur lengst af síðan verið miðlægur í umræðunni um aðsteðjandi umhverfisvá og fræðilegur bakgrunnur hans fengið rækilega staðfestingu, síðast á Par- ísarfundinum í lok liðins árs. Íslensk stjórnvöld voru þó lengi í andófi gegn útfærslu hans hérlendis vegna ríkjandi stóriðjustefnu. Hinn samn- ingurinn um líffræðilega fjölbreytni hefur einnig víða haft tilætluð áhrif á þróun löggjafar og alþjóðlegar regl- ur til verndar gróðurríki jarðar, þótt enn halli undan fæti. Íslensk stjórnvöld voru lengi vel áhugalaus um útfærslu þessa samn- ings, sbr. skýrslu Rík- isendurskoðunar frá í janúar 2006 (Samning- urinn um líffræðilega fjölbreytni. Umhverf- isendurskoðun), og enn mæta einstök ákvæði hans andstöðu í stjórn- kerfinu og hjá hags- munaaðilum. Um það vitna m.a. vett- lingatökin gagnvart ágengum teg- undum og ofbeit búfjár á stórum svæðum. Ólíku er saman að jafna hvernig brugðist hefur verið við leiðsögn samningsins á Íslandi annars vegar og í nágrannalöndum hins vegar, m.a. í Noregi þar sem náttúrufar er um margt hliðstætt og hérlendis. Ólíkt höfumst vér að Árið 2001 skipuðu norsk stjórn- völd 13 manna nefnd til að undirbúa tillögur að löggjöf um verndun nátt- úru, landslags og líffræðilegrar fjöl- breytni í Noregi. Tillögur nefnd- arinnar að nýjum lögum voru kynntar 2004 og lögfestar árið 2009 sem Naturmangfoldloven. Lögin taka jafnt til dýra og plantna, þurr- lendis, ferskvatns og strandsvæða. Í fjórða kafla laganna um framandi lífverur er kveðið á um að leyfi þurfi fyrir dreifingu hvers kyns lífvera sem ekki eiga náttúrulegt heim- kynni í Noregi. Slíkt leyfi megi stjórnvöld ekki veita ef ástæða er til að ætla að slík dreifing leiði til um- talsverðra neikvæðra afleiðinga fyr- ir lífríkið. Í byrjun árs 2016 voru í krafti þessara laga innleiddar strangari kröfur til allra sem hyggj- ast flytja inn framandi lífverur og jafnframt var bannaður innflutn- ingur og dreifing 20 lífverutegunda, dýra og plantna, og til viðbótar 11 tegunda landplantna frá ársbyrjun 2021. Í fyrri hópnum eru m.a. þrjár tegundir lúpínu, þar á meðal alaska- lúpína, tvær tegundir af körfu- blómaætt (Solidago spec.) svo og ameríkuhumar. – Bannið á alaska- lúpínu hlýtur að vekja athygli hér- lendis í ljósi áratugadeilna um dreif- ingu hennar. Nýjar rannsóknir og lagafyrirmæli Við Íslendingar höfum hingað til staðið langt að baki nágrannaþjóða í grunnrannsóknum á náttúru þurr- lendisins. Þetta á ekki síst við um plönturíkið, þar sem fé til almennra rannsókna hefur verið skorið við nögl, nema helst þegar ráðast hefur átt í umfangsmiklar virkjanafram- kvæmdir. Almennan samanburð- argrunn og heildarsýn hefur þannig vantað og skipulagsfyrirmæli og ákvarðanir því borið keim af handa- hófi. Á þessu er loks að verða breyt- ing með kortlagningu Nátt- úrufræðistofnunar Íslands á landvistgerðum, sem hófst á hálendi Íslands fyrir nokkrum árum en nær nú til landsins alls. Innan skamms er að vænta útgáfu Íslandskorts þar sem birtast munu yfir 60 aðgreindar vistgerðir ásamt skýringum. Með því skapast nýr grunnur til sam- ræmds mats á ástandi landsins og um leið forsendur til skipulags- ákvarðana um nýtingu og meðferð gróður- og jarðvegsauðlindarinnar. Lagaumhverfið hefur jafnframt tek- ið breytingum til bóta þar sem eru skipulagslögin frá 2010 ásamt ný- samþykktri landsskipulagsstefnu frá 16. mars 2016. Hún gerir m.a. ráð fyrir að flokkun og greining lands verði lögð til grundvallar skipulagsákvörðunum. Slík ákvæði eiga og þurfa að varða alla þætti landnotkunar, landbúnað, að búfjár- beit og nytjaskógrækt meðtalinni, sem og náttúru- og landslagsvernd. Gífurleg verkefni á skipulagssviði Fram að þessu hefur Ísland staðið aftarlega í skipulagsmálum með til- liti til lagaumhverfis um meðferð og ráðstöfun lands. Samræmd lög þarf að setja um gróður- og jarðvegs- vernd og fella inn í þau ákvæði um skógrækt og landgræðslu, búfjár- beit og aðra þætti landnýtingar. Of- beit er staðreynd á víðlendum og viðkvæmum svæðum. Ágengar teg- undir eins og lúpína eru að leggja undir sig stór svæði, m.a. fyrir til- stilli opinberra stofnana, og eru æ meiri ógn við þá náttúru sem fyrir er. Ekkert minna en stórátak í anda samningsins um líffræðilega fjöl- breytni getur komið í veg fyrir gíf- urlegan og óbætanlegan ófarnað. Skipuleg landnýting, byggð á bestu þekkingu um æskileg landnot, er það tæki sem beita verður fram- vegis. Skipulagsákvarðanir eru áfram í höndum sveitarfélaga með hliðsjón af fyrirmælum í lands- skipulagsstefnu. Stórefla þarf ráð- gjöf og fræðslu um þessi málefni á vegum sveitarfélaga og gera nátt- úrustofur landshlutanna að vett- vangi fyrir óháða ráðgjöf. Gróður- og jarðvegsvernd, skipulag og ágengar tegundir Eftir Hjörleif Guttormsson » Frá ársbyrjun 2016er bannaður inn- flutningur og dreifing 20 tegunda lífvera í Noregi, þar á meðal þriggja lúpínutegunda, alaskalúpína meðtalin. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Píratar hafa lagt til lagafrumvarp á Alþingi um að af- nema 5. grein laga um Kristnisjóð, ákvæðið sem tryggt hefur sóknum Þjóð- kirkjunnar „ókeypis lóðir undir kirkjur“ sínar og safn- aðarheimili í þjett- býli. Þar sem ein- ungis er talað um kirkjur í ákvæðinu gildi ekki um þetta atriði ákvæði stjórn- arskrár um stuðning við Þjóð- kirkjuna. Nú eru lög þessi um Kristni- sjóð. Þau urðu ekki til úr lausu lofti og eru heldur ekki runnin frá stjórnarskrárákvæðinu. Með lögum frá Alþingi frá árinu 1907 var kirkjum landsins gert að afhenda jarðeignir sínar í umsjá ríkisins, sem tók við fjárhaldi þessara eigna kirkn- anna. Stofnaður var Prestlauna- sjóður í vörzlu ríkisins, sem selja átti og leigja þessar kirkjueignir og kosta af þeim rekstri embættislaun presta. Ekki verða hjer rakin örlög þess sjóðs eða meðferð hans í vörzlu ríkisins, heldur látið nægja að vísa til endanlegs upp- gjörs þeirrar meðferðar allrar í samningi ríkis og kirkju frá 1997 sem gera má ráð fyrir að alþingismenn Pírata hafi heyrt af. Nú varðveitti íslenzka ríkið sem fjárhaldari þessara eigna þær eins og það ætti þær sjálft: Seldi og gaf og ráðstafaði nán- ast með hreinni vildarhyggju í anda Pírata. Meðal annars var tekin upp sú venja að afhenda jarðir og önnur landsrjettindi án endurgjalds undir þjettbýli. Mun mikill meirihluti pláza og bæja umhverfis landið hafa risið á landi úr fjárhaldi ríkisins, sem fengið var með þessum hætti fyrir lítið. Örlætisgjörningar bæjarstjórnar Reykjavíkur handa öðrum trúfjelögum en sóknum Þjóðkirkjunnar, hvíla einnig á slíkum örlætisgjörn- ingum ríkisins við Reykjavík- urbæ, því fjölmörg hverfi þar hafa risið á landi úr jarð- eignasjóði þeim, sem íslenzka ríkið tók að sjer að varðveita fyrir Þjóðkirkjuna með lögum frá Al- þingi árið 1907. Það er að vísu fyrir tíð Pírata, en veröldin mun þó jafnvel vera enn eldri. Ákvæði laganna um Kristnisjóð, sem Píratar vilja þakka stjórnar- skránni, hafa ekkert með hana að gjöra, heldur það samhengi, sem hjer hefur verið lýst: Talið var sjálfsagt að kirkjan nyti þeirra rjettinda að fá að byggja á sínu eigin landi, því fjárhald gefur ekki eignarrjett og þá að minnsta kosti siðferðilega skyldu til þess að gæta hags- muna þess, sem með rjettu átti það, sem ráðstafað var. Á bak við lögin um Kristni- sjóð eru að minnsta kosti 25 prestsembætti, sem ríkinu bar að kosta skv. lögunum frá 1907, auk jafn margra prestsseturs- jarða með gögnum og gæðum sem lögð höfðu verið niður um svipað leyti og lögin voru sett. Líta ber á lögin um Kristnisjóð með sama hætti og samkomulag ríkis og kirkju frá 1997 sem lög- fest er í þjóðkirkjulögunum: Um er að ræða kaup kaups, afhend- ingu eigna gegn greiðslu: Greiðslan eru ákvæði laganna um Kristnisjóð, þar með talinn rjettur Þjóðkirkjusafnaða til þeirrar aðstöðu sem. 5. gr. lag- anna greinir. Gott er að þurfa ekki að vita Eftir Geir Waage Geir Waage » Lögin um Kristni- sjóð eru ekki afsprengi stjórnar- skrár. Um er að ræða kaup kaups, afhend- ingu eigna gegn greiðslu. Höfundur er sóknarprestur í Reykholti í Borgarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.