Morgunblaðið - 29.09.2016, Page 84
VIÐTAL
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Næstkomandi þriðjudagskvöld held-
ur ljósmyndarinn Ragnar Axelsson,
RAX, svonefndan myndakonsert í
Kaldalóni í Hörpu, en þar hyggst
hann sýna úrval ljósmynda sinna og
segja sögur af þeim. Myndakonsert-
inn er haldinn öðru þræði í tilefni af
því að sama dag
kemur út ný út-
gáfa ljósmynda-
bókarinnar Andlit
norðursins, sem
er mjög aukin og
endurbætt frá
fyrri útgáfu, og
fylgir eintak af
bókinni hverjum
keyptum miða á
myndakonsert-
inn.
Kristján B. Jónasson hjá Crymo-
geu er útgefandi Ragnars og er hug-
myndin að myndakonsertinum frá
honum komin. Hann segir að þetta sé
þekkt og gamalreynd leið til að sýna
ljósmyndir víða um veröld, en á slík-
um sýningum sýnir ljósmyndarinn
myndir sínar og spjallar um þær í
myrkvuðum bíósal.
Andlit norðursins kom út fyrir
rúmum áratug á íslensku, ensku,
þýsku og frönsku og er löngu upp-
seld. Endurútgáfa bókarinnar hefur
lengi staðið til og Kristján segir að
unnið hafi verið að henni síðustu
fjögur ár. „Bókin er náttúrlega löngu
uppseld og eintök af henni hafa geng-
ið kaupum og sölum á netinu þar sem
menn hafa boðið hana á fáránlegu
verði, allt upp í 3.000 dollara fyrir
áritað eintak. Það er því mikill áhugi
fyrir bókinni og mikið um hana spurt
þannig að Ragnari fannst rétt að
gefa hana út að nýju. Þá blasti hins
vegar við að gefa hana ekki út eins og
hún var heldur að hafa hana í sömu
stærð og síðustu tvær bækur Ragn-
ars og um leið að nota tækifærið til
að fara á bak við myndirnar.
Þegar bókin var unnin á sínum tíma
voru framkallaðar myndir Ragnars
skannaðar í prentsmiðjunni og prent-
að eftir því en fyrir þessa útgáfu eru
myndirnar skannaðar beint af filmu
og hann vinnur þær síðan þar til hann
er sáttur við þær í myndvinnsluforriti
eins og hann sé í myrkraherbergi,
þannig að myndgæðin verða meiri.
Síðan er bókin prentuð í prentsmiðju
á Ítalíu sem hefur sérhæft sig í að
prenta ljósmyndabækur með svart/
hvítum myndum.“ Eins og fram kem-
ur er bókin mjög aukin frá fyrri út-
gáfu og Kristján segir að hún sé í
raun tvöfalt stærri, um 410 blaðsíður
í stærra broti. Í henni eru allar
myndirnar sem voru í eldri útgáf-
unni, unnar upp á nýtt, en síðan er
bak við hverja mynd önnur mynd,
jafnvel tvær eða þrjár, og sögur
Ragnars eru líka lengri og ítarlegri.
„Þetta eru myndir sem voru kannski
teknar við sama tækifæri og hafa
ekki verið birtar áður, en stundum fór
Ragnar aftur á stúfana og kláraði sög-
una. Besta dæmið um það er kannski
mynd sem hann tók í Færeyjum. Í
upprunalegu bókinni er mjög hjart-
næm mynd af ungbarni í Hattarvík
sem sést eitt og sér þar sem hendur
lyfta því inn í myndflötinn. Ragnar fór
aftur til Færeyja og hitti barnið, sem
er ungur maður í dag, talaði við fjöl-
skyldu hans og tók mynd á sama stað.
Íslenska endurútgáfan lokar líka
sögum hér heima því 80% af þeim sem
hann tók myndir af á níunda áratugn-
um og fram á þann tíunda eru látnir,
þannig að nú er þetta að vissu leyti
orðið minning um þetta fólk og að
sumu leyti líka minning um byggð sem
ekki er til lengur.“
Bókinni er skipt í fjóra hluta: Andlit
norðursins Ísland, Færeyjar og
Grænland og síðan Á bak við andlit
norðursins. Líkt og forðum kemur hún
út á fleiri tungumálum, á þýsku hjá
þekktu forlagi í Þýskalandi um leið og
hún kemur út á íslensku og Crymogea
gefur hana út á ensku í Bretlandi og
eins verður hún gefin út vestan hafs.
„Ragnar er löngu orðinn þekktasti
ljósmyndari Íslendinga fyrr og síðar
og það sem ég finn fyrir þegar ég er að
tala við sýningarstjóra og útgefendur
erlendis er að þeir falla í stafi yfir því
hve ævistarf hans er umfangsmikið og
samtengt, enda hefur hann verið að
safna myndum í það frá níunda ára-
tugnum, að skrásetja lífshætti fólks á
norðurslóðum og þær breytingar sem
þar eru að verða og hafa orðið.
Ég hef unnið að sýningum fyrir
Ragnar í Noregi, Þýskalandi og
Frakklandi, bara svo ég nefni þrjú
dæmi, og það hvernig menn koma
fram við hann þar er allt annað en
hér heima. Fyrir okkur en hann bara
Raxi og í návíginu finnst okkur ekk-
ert merkilegt að hann sé að taka góð-
ar ljósmyndir, það er bara það sem
hann á að gera og við erum ekkert að
velta því fyrir okkur, frekar en með
aðra íslenska listamenn sem vekja
athygli erlendis. Þegar hann er á ferð
erlendis mæta límósínur að sækja
hann og alls kyns pótintátar koma og
bugta sig og beygja fyrir meistara
ljósmyndunarinnar og hann spyr
mig: Hvað er eiginlega að þessu
fólki,“ segir Kristján og hlær en
heldur svo áfram af meiri alvöru.
„Fyrir þeim er hann meistari
ljósmyndarinnar og þeir hrífast af
úthaldi hans og krafti að halda áfram
að vinna við þetta verkefni áratugum
saman.“
Myndakonsert Ragnars Axels-
sonar verður í Kaldalóni í Hörpu á
þriðjudagskvöld og hefst kl. 20.
Hægt er að kaupa miða á tix.is.
Myndakonsert Rax í Hörpu
Ragnar Axelsson sýnir myndir frá norðurslóðum og segir frá þeim í Kaldalóni Aukin og endur-
bætt Andlit norðursins gefin út með upprunalegum myndum og myndum á bak við myndirnar
Morgunblaðið/RAX
Naut Frá bænum Bøur á Vogey í Færyjum. Verið er flytja naut yfir í Gásadal sem var lengi eitt einangraðasta þorp Færeyja, en þangað eru nú jarðgöng.
Ís Hjelmer Hammeken, einn mesti ísbjarnaveiðimaður Grænlands.
Kristján B.
Jónasson
84 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016
Veggfóðursdagar 20% afsláttur
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
Opið alla virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 11-15