Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 89

Morgunblaðið - 29.09.2016, Síða 89
MENNING 89 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2016 Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Læknavísindi og tónlist er ekki óþekkt blanda þótt hún teljist kannski ekki hin hefðbundnasta. Lyfjafræðineminn og tónlistarkonan Elín Dröfn Jónsdóttir hefur einstakt lag á að sinna þessu tvennu og í kvöld kemur hún fram á tónleikum í Hörpu þar sem hún mun flytja frumsamda tónlist með dyggri aðstoð fjölda hljóðfæraleikara. Upplifunin verður sjónræn í meira lagi þar sem mynd- bandsverk eftir Elínu Dröfn verða sýnd samhliða nokkrum laganna. Elín Dröfn er með klassískan bak- grunn á fiðlu en hefur kynnst fjöl- breyttum hliðum tónlistar með aldr- inum. „Ég byrjaði fimm ára að læra á fiðlu hjá Mary Campbell í Suzuki- tónlistarskólanum í Reykjavík og var í grunnskóla þar sem var mikið tón- listarlíf. Ég var alltaf að reyna að semja og skapa og á unglingsaldri togaði það sterkar í mig en að æfa á fiðluna.“ Elín Dröfn hætti í fiðlunámi á svip- uðum tíma og hún hóf nám í Verzló þar sem hún tók virkan þátt í félags- lífinu, þar á meðal Söngkeppni fram- haldsskólanna. „Eftir Verzló fór ég í tónlistarlýðháskóla í Danmörku þar sem ég var með 80 manns að stússast í tónlist allan daginn. Ég tók svo eitt sumar í að ferðast og haustið eftir það byrjaði ég í lyfjafræði. En ég var alltaf að semja og spekúlera hvað ég ætti að gera með tónlistina, ég vissi alltaf að tónlist myndi verða stór hluti af því sem ég ætlaði að gera, en ég vissi ekki hvernig ég myndi byggja það upp.“ Sinnir tónlistinni fyrir sjálfa sig Þegar Elín Dröfn var komin á ann- að ár í lyfjafræðinni uppgötvaði hún hvað hún saknaði tónlistarinnar. „Ég sinni tónlistinni fyrir sjálfa mig, en fann á þessum tíma að ég saknaði þess að koma fram. Auk þess vantaði mig einhverja nýja vídd inn í tónlist- ina sem ég var að semja.“ Hún ákvað því að feta nýja braut og skráði sig í raftónlistarnám í Tónlistarskóla Kópavogs. „Mér fannst mig vanta kunnáttu á þennan hljóðheim sem raftónlistin inniheldur. Í því felast einnig sjálfstæð vinnubrögð, en raf- tónlist er ekki bara að búa til tónlist heldur einnig alls konar hljóð- blöndun og upptökutækni,“ segir El- ín Dröfn, sem veit fátt betra en að eyða heilli kvöldstund í stúdíóinu í að hlusta á mismunandi hljóð í leit að hinu fullkomna hljóði. Raftónlistar- námið hefur einnig veitt henni auk- inn drifkraft til að koma sér og tón- listinni á framfæri. „Ég hef fundið kjarkinn í að halda tónleika með frumsömdu efni og sótt um styrki til þess. Maður þarf alveg aðeins að stappa í sig stálinu og standa með sjálfum sér.“ Elín Dröfn hefur sinnt lyfjafræð- inni samhliða raftónlistinni og mun útskrifast sem lyfjafræðingur í vor. „Ég tók mér frí frá lyfjafræðinni eft- ir að ég lauk BS-gráðunni og var að vinna hjá lyfjafyrirtæki í hlutastarfi og sá þá að ég gat sinnt tónlistar- verkefnum með. Ég samdi til dæmis tónlist fyrir stuttmyndina Hæ Pabbi – þótt við þekkjumst ekki neitt eftir Hauk Karlsson sem var sýnd á RIFF í fyrra. Þá fékk ég það á tilfinninguna að ég gæti fléttað þessum ólíku svið- um saman.“ Elín Dröfn lítur þó fyrst og fremst á sig sem námsmann. „Ég er að læra það sem mér finnst skemmtilegt núna og það er að vera í tónlist og svo hef ég mikinn áhuga á læknavísindum. Hvað ég verð svo að gera eftir fimm ár veit ég ekki, nema að tónlist verður mjög líklega ein- hver hluti af því.“ Raftónlistarnámið er þriggja ára diplómanám. „Þar sem ég er með bakgrunn á fiðlu þá stefni ég að því að klára framhaldspróf í raftónlist innan tveggja ára. En ég útiloka ekk- ert frekara nám í tónsmíðum, þegar ég hef klárað masterinn í lyfjafræði.“ Syngur með sínu nefi Á tónleikunum í kvöld mun Elín Dröfn syngja frumsamin lög og njóta aðstoðar við flutninginn frá fjöl- breyttum hópi tónlistarfólks. Hún hefur þó aldrei lært söng. „Að sækja kúrsa í tónfræði, raftónlist og tón- smíðum hefur átt hug minn þegar kemur að því að velja tónlistarnám.“ Það er þó aldrei að vita hvort söng- nám verði næsta nám sem námsmað- urinn Elín Dröfn tekur sér fyrir hendur. „Annars syng ég bara með mínu nefi og er eiginlega alltaf syngj- andi, eða flautandi.“ Elín Dröfn hlaut styrk frá Ýli, tón- listarsjóði Hörpu fyrir ungt fólk, sem styrkir árlega tónlistarfólk til að koma fram í Hörpu. Efnisskráin á tónleikunum einkennist af verkum sem Elín hefur samið síðastliðin fimm ár, eða frá því að hún var tví- tug. „Mér þykir vænt um þessi lög þar sem ég var að finna minn takt í tónlistinni þegar ég samdi þau.“ Tón- leikarnir hefjast á raftónlistarlegum nótum þar sem trommur, hljóð- gervlar og rafmagnsgítar koma við sögu. „Það er kannski smá erfitt að útskýra hvernig tónlist þetta er en ég myndi segja að hún væri dreymandi, lýrísk og stundum leikræn.“ Strengjakvintett mun smátt og smátt taka yfir tónleikana og lýkur þeim á verkinu „Fjallasýn“ þar sem samnefnt myndbandsverk verður sýnt meðan á flutningnum stendur. Fjölbreytni er því sannarlega lýsandi yfir það sem mun fram fara í Kalda- lóni í Hörpu í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og miðasala fer fram á www.harpa.is. Morgunblaðið/Ófeigur Tónskáld „Ég sinni tónlistinni fyrir sjálfa mig,“ segir Elín Dröfn, sem heldur tónleika í Hörpu í kvöld. Lyfjafræðingur og tónskáld fléttar saman ólíkum sviðum  Tónlistarkonan Elín Dröfn Jónsdóttir flytur frumsamda tónlist í Hörpu Söngkonan Ing- rid Örk Kjartans- dóttir, kontra- bassaleikarinn Leifur Gunnars- son og gítar- leikarinn Gunnar Hilmarsson koma fram á hálftíma löngum hádegistón- leikum í Fríkirkj- unni í dag sem hefjast kl. 12. Hyggjast þau setja nokkur þekkt popp- og dægurlög í sínar eigin djassútsetningar þar sem létt swing ræður för. Ingrid Örk Kjartansdóttir Djassað popp í Fríkirkjunni í dag Síðustu tónleikar ársins á Kvoslæk verða laugardaginn 1. október kl. 14.30. Þar leika Arnþór Jónsson sellóleikari og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari Sospiri op. 70 eftir Edward Elgar, Suite Popular Espanola eftir Manuel de Falla, Fratres eftir Arvo Pärt og Sónata í A-dúr eftir César Franck. Uppbyggingarsjóður Suðurlands styrkir menningarstarf á Kvoslæk. Helga Bryndís starfar sem píanó- leikari við Listaháskóla Íslands og tónlistarskólana í Reykjanesbæ og Kópavogi. Hún er meðlimur í Caput-hópnum. Arnþór hefur starf- að við tónlist og tónlistarflutning frá 1973 og var formaður verkefna- valsnefndar Sinfóníuhljómsveitar Íslands 1997-2005 skipaður af menntamálaráðherra. Hann er starfandi stjórnarformaður SÁÁ. Síðustu tónleikar ársins á Kvoslæk Dúó Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó- leikari og Arnþór Jónsson sellóleikari. BRIDGET JONES’S BABY 5:20, 8 EIÐURINN 6, 9, 10:30 KUBO 2D ÍSL.TAL 6 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar Allt fyrir eldhúsið Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–18. Þú færð ASKO hjá Progastro Inspired by Scandinavia Þvottavél A-W6444W • Tromla úr stáli • Tekur 8 eða 11 kg • Ætluð í 10.000 tíma eða 5.000 þvotta Þurrkari A-T756HPW • Barkalaus • Tekur 8 • Hljóðstyrkur 66db • Orkunýting A+++ • Með varmadælu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.