Morgunblaðið - 29.09.2016, Qupperneq 92
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 273. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Vildu meiri mat og neituðu að …
2. Hópuppsögn hjá Arion banka
3. Ágústa Eva og Aron skráð í …
4. Kónguló beit mann í typpið (aftur)
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Gjörningaklúbburinn, The Ice-
landic Love Corporation, opnar sýn-
inguna Love Conquers All í ARoS-
listasafninu í Árósum í Danmörku á
laugardag. Sýningin, sem er hluti af
seríunni ARoS Focus/New Nordic,
samanstendur af innsetningum,
vídeóum, hljóði, ljósum, skúlptúrum
og gjörningi. Þrjú verkanna eru sér-
staklega gerð fyrir sýninguna í
ARoS.
Morgunblaðið/Einar Falur
Gjörningaklúbburinn
sýnir í ARoS
Baskneski tón-
listamaðurinn
Héctor Rey, sem
haft hefur aðset-
ur á Seyðisfirði
undanfarnar vik-
ur, heldur tónleika
í Mengi í kvöld kl.
20 áður en hann
flýgur af landi
brott. Á efnisskránni er ný tónlist
sem Rey leikur á munnhörpu og
bassakonsertínu.
Héctor Rey frum-
flytur efni í Mengi
Bandaríski fiðluleikarin Jamie
Laval heimsækir Íslandi í annað sinn
og heldur tónleika í Hannesarholti í
kvöld kl. 20. Laval starfaði með Sin-
fóníuhljómsveitinni í
Victoria þar til ástríða
hans fyrir seiðandi tón-
um skoskrar sveita-
tónlistar yfir-
tók huga
hans. Nú helg-
ar hann sig ein-
göngu keltneskri
tónlist.
Jamie Laval leikur í
Hannesarholti í kvöld
Á föstudag Norðlæg átt, víða 3-8 m/s skýjað með köflum, stöku
skúrir eða slydduél með N-ströndinni og dálítil rigning SA-lands.
Á laugardag Suðaustlæg átt, 8-13 m/s og rigning með köflum, en
hægara og þurrt að kalla A-lands. Hiti 2 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning N- og A-lands og slydda inni til
landsins en bjart SV-til. Hiti 5 til 12 stig, mildast syðst.
VEÐUR
Leikir á Íslandsmóti kvenna í
knattspyrnu hafa ekki verið
jafnari en á keppnistímabil-
inu sem lýkur á morgun, ef
horft er til síðasta áratugar.
Morgunblaðið rýndi í úrslit
leikja frá því að 10 liða deild
var stofnuð árið 2008 og má
sjá mikinn mun á milli ára.
Auk þess er enn óráðið hvaða
lið verður Íslandsmeistari og
hvaða lið fellur með ÍA niður
í 1. deild. »3
Úrslitastund í
jafnasta mótinu
Knattspyrnumaðurinn Guðmundur
Kristjánsson hefur upplifað erfiðan
tíma með Start í norsku úrvalsdeild-
inni síðasta árið, en liðið þurfti að
bíða í 448 daga eftir sigurleik. Guð-
mundur veit ekki hvað tekur við hjá
honum í haust en fall úr
deildinni blasir við liðinu
og hann er samnings-
bundinn félaginu út
næsta ár. »2
Guðmundur beið í meira
en ár eftir sigurleik
Heimir Guðjónsson, þjálfari Íslands-
meistara FH í knattspyrnu, mun
halda kyrru fyrir hjá félaginu, en
hann skrifaði í gær undir nýjan
tveggja ára samning. FH-liðið hefur
verið sigursælt undir stjórn Heimis,
en Hafnarfjarðarliðið hefur unnið Ís-
landsmeistaratitilinn alls fimm sinn-
um og lyftir bikarnum á loft á laugar-
daginn annað árið í röð. »3
Heimir gerði nýjan
samning við FH-inga
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Hverjir tónleikar eru mikil veisla
og mig hungrar alltaf í að fara aftur
og aftur,“ segir Guðbjörg Ögmunds-
dóttir, Rolling Stones-aðdáandi.
Guðbjörg hefur farið á 18 tónleika
með hljómsveitinni yfir ævina, þá
fyrstu árið 1969, þann 5. júní í Hyde
Park í London.
Guðbjörg man vel þegar hún
heyrði lag með The Rolling Stones
fyrst, það var árið 1964 þegar hún
var 13 ára og hana minnir að lagið
hafi verið „I Wanna Be Your Man“.
„Það heillaði mig strax. Ég er frá
Vestmannaeyjum, Kanaútvarpið
náðist ekki vel þar, svo við hlust-
uðum á bresku stöðvarnar og þar
heyrði ég þessa músík fyrst og
keypti síðan fyrstu Stones-plötuna
mína stuttu síðar.“ Síðan þá hefur
hún keypt allt sem Rolling Stones
hefur gefið út. Áður en hún heill-
aðist af Stones hlustaði hún á Bítl-
ana og á allar þeirra plötur líka. En
Stones höfðu betur en Bítlarnir.
Stones og The Who sama dag
„Mínir fyrstu Stones-tónleikar
1969 voru haldnir tveimur dögum
eftir að Brian Jones lést. Þeir voru
frá hádegi og fram að kvöldmat en
um kvöldið fór ég svo á tónleika The
Who og Chuck Berry í Albert Hall.
Svo þessi dagur var ansi magnaður.
Ég skrifaði ritgerð um hann sem
var gefin út í bókinni You had to be
there; The Rolling Stones live 1962-
69,“ segir Guðbjörg, sem heldur
næstmest upp á The Who.
Hún komst á tvenna tónleika með
Stones í viðbót árið 1969. Ári síðar
flutti hún heim og tók tuttugu ára
pásu tónleikum. En síðan þá hefur
hún farið tvisvar árið 1990, einu
sinni 1995, 1998, 2003, 2005, fimm
sinnum árið 2006, einu sinni 2012,
tvisvar 2013 í Hyde Park og einu
sinni 2014 í Berlín.
„Ég hef orðið æstari með ár-
næsta sumar. Í tilefni af sýningunni
voru tekin viðtöl við þá alla og þar
er Ronnie Wood spurður hvort það
sé einhver staður eftir á jörðinni
sem þeir eigi eftir að spila á sem
hann langi að koma til, þá sagði
hann skýrt og greinilega „Yes,
Reykjavik Iceland“,“ segir Guð-
björg.
Orðið æstari með árunum
Hefur farið á
átján tónleika með
Rolling Stones
Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Aðdáandi Guðbjörg umvafin ýmsum hlutum sem tengjast Rolling Stones, m.a. fyrstu plötunni sem hún eignaðist.
Harpa Guðbjörg, önnur frá vinstri, á Forty
Licks Stones-tónleikunum um síðustu helgi.
Hippi Guðbjörg á leið á
Stones í Hyde Park 1969.
unum,“ segir Guðbjörg og hlær.
„Þeir verða líka betri í hvert skipti
sem ég heyri í þeim á tónleikum.“
Í ár fór hún á Rolling Stones-
sýningu í Saatchi gallerínu í Lond-
on. En eru einhverjir tónleikar á
dagskrá hjá henni? „Ég stefni bara
á Ísland á næsta ári. Það er orðróm-
ur um það en þeir fara í Evróputúr
Spurð hvort hún haldi upp á
einn hljómsveitarmeðlim um-
fram annan stendur ekki á
svari: „Ég hef alltaf elskað
Mick Jagger síðan ég sá hann
fyrst, ég elska alla þessa
gömlu karla eftir öll þessi ár
en ég hef alltaf haldið mest
upp á Mick.“
Uppáhaldsplata Guðbjargar
með Stones er Beggars Ban-
quet en hún á ekkert uppá-
haldslag. Hún er virk á vefsíð-
unum Rollingstones.com og
Mickjagger.com og þar hefur
hún eignast góða vini sem hún
hefur farið með á tónleika úti.
Elskar Mick
HVER ER Í UPPÁHALDI?