Fréttablaðið - 09.12.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.12.2016, Blaðsíða 2
Veður Norðaustan 18 til 28 við suðaustur- ströndina, hvassast í Öræfasveit og undir Eyjafjöllum og með vindhviðum allt að 40 m/s. Annars staðar norðaustan 10-18, hvassast norðvestan til. Rigning suðaustan til og á Ströndum, él NA-lands en annars úrkomulítið. sjá síðu 28 Nemar byrjaðir í prófatörn GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400 HÁGÆÐA JÓLALJÓS LED Mikið úrval vandaðra LED útisería fyrir fyrirtæki, húsfélög og heimiliFrá Svíþjóð Opið virka daga kl. 11-18 og laugardaga frá 26. nóv. Grillbúðingrillbudin.is VELDU SEM END AST OG ÞÚ SPARA R JÓLAL JÓS samfélag Bæjarráð Garðabæjar tók fyrir bréf Björns Leifssonar, eiganda World Class, varðandi lóð við sundlaugina í Ásgarði á fundi sínum í gær. Samkvæmt bréfi Björns er ætl- unin að reisa um 1.500-1.700 fer- metra húsnæði við norðvestur- enda íþróttahússins. Yrði þar heilsuræktarsalur og þrír leik- fimisalir auk aðstöðu fyrir barna- gæslu. Vill Björn að gerður verði sérstakur eignaskiptasamningur milli fyrirtækisins og bæjarins um mannvirkin og lóðina auk hefðbundins lóðarleigusamnings. Lýkur hann bréfinu á að verði viðbrögð við erindinu jákvæð sé hann tilbúinn til frekari við- ræðna. Bæjarráð vísaði málinu til nán- ari skoðunar Gunnars Einars- sonar bæjarstjóra. – bb World Class vill koma Garð- bæingum í form sveitarstjórnir Bæjarráð Reykja- nesbæjar hefur ákveðið að boða til íbúafundar vegna loftmengunar frá kísilmálmverksmiðju United Silicon í Helguvík. Íbúar Reykjanesbæjar hafa kvartað mikið undan mengun frá verksmiðjunni frá því að hún var sett á laggirnar. Mikill útblástur sé og súr reykjarlykt liggi yfir bænum. Fundurinn verður haldinn þann 14. desember næstkomandi klukk- an 20.00 í Stapanum. Fulltrúar frá bæjarstjórn Reykjanesbæjar, United Silicon, Orkurannsóknum Keilis og frá Umhverfisstofnun verða á fund- inum. Að lokinni framsögu fara fram pallborðsumræður og gefst gestum fundarins tækifæri til þess að spyrja spurninga. – þh Íbúafundur vegna mengunar Háskólanemendur vinna nú hörðum höndum við próflestur þessa dagana á Þjóðarbókhlöðunni. Prófatímbil Háskóla Íslands hófst fyrir viku og því lýkur í lok næstu viku. Í augsýn er langþráð jólafrí. Fréttablaðið/Eyþór. neytendamál Ríkið mun taka í sinn hlut 94 prósent af verði vodka- flösku úr Vínbúðinni í formi áfengis- gjalds, skilagjalds, virðisaukaskatts og álagningar Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins. Þetta kemur fram í samantekt Félags atvinnurekenda á verðlagningu áfengis hér á landi með tilliti til boðaðra hækkana í fjárlaga- frumvarpinu. „Þessi staða hér á innlendum mark- aði er með ólíkindum. Ég efast um að fólk hafi hugmyndaflug í að átta sig á því að það sé að greiða 94 prósent af verðinu til ríkisins þegar það kaupir vodkaflösku úti í búð,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Áfengisgjöld á Íslandi eru nú þegar þau langhæstu í Evrópu og stefnt er að því að hækka þau enn frekar eða  um 4,7 prósent í fjárlagafrum- varpi ársins 2017. „Þetta er tíunda hækkun áfengisgjalda frá hruni. Á þeim tíma hafa þau rúmlega tvö- faldast. Eru engin takmörk fyrir því hversu langt stjórnvöld telja sig geta gengið í skattlagningu á einni neyslu- vöru?“ spyr Ólafur. Fyrir hrun voru áfengisgjöld á Íslandi þau hæstu í Evrópu. Með veik- ingu íslensku krónunnar eftir hrun breyttist staðan og áfengi varð dýrast í Noregi. Breytingin á gjöldunum um áramótin auk styrkingar krónunnar mun hins vegar hafa í för með sér að áfengisgjöld verða helmingi hærri hér á landi en í Noregi. Álagning ÁTVR á áfengi sem inni- heldur 22 prósent vínanda eða meira er tólf prósent. Virðisaukaskatturinn er ellefu prósent og áfengisgjaldið um 145 krónur á hvert prósent vínanda. Það þýðir að þegar hækkun á áfengis- gjöldum tekur gildi um áramótin renna 94 prósent af 7.300 króna vodkaflösku í ríkissjóð. Áfengisgjaldið af flöskunni eru rúmar 5.400 krónur, virðisaukaskattur um 700 krónur, álagning ÁTVR um 700 krónur og skilagjald 20 krónur. Hlutur fram- Ríkið þyrst í vodkann Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir skattlagningu á áfengi vera komna út úr öllu korti. Um 94 prósent af verði vodkaflösku renna í ríkissjóð. Þetta er tíunda hækkun áfengis- gjalda frá hruni. Á þeim tíma hafa þau rúmlega tvöfaldast. Eru engin takmörk fyrir því hversu langt stjórnvöld telja sig geta gengið í skattlagningu á einni neysluvöru? Ólafur Stephensen, frkstj. FA leiðandans er hins vegar aðeins um 434 krónur. „Hugmyndaauðgi stjórnmála- mannanna okkar í hvernig hægt sé að skattpína neytendur áfengis er alveg ótrúleg. Skattlagning á áfengi er aug- ljóslega komin út úr öllu korti þegar neytandinn er farinn að greiða um og yfir 90% af verðinu í ríkissjóð,“ segir Ólafur og hann skorar á nýtt þing að samþykkja ekki þessa vitleysu og vinda fremur ofan af þessum ofur- sköttum. thorgeirh@frettabladid.is 7.300 króna vodkaflaska úr ÁTVR Hlutur innflytjanda 434 krónur Virðisaukaskatt- ur 700 krónur Álagning ÁtVr um 700 krónur Áfengisgjald 5.400 krónur Skilagjald 20 krónur áfengisgjald á sterku áfengi 150 120 90 60 30 0 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 79,5 91,6 100,7 101,7 106,9 111,9 115,2 114,1 138 144,5 samfélag Róbert Ragnarsson, sem rekinn var sem bæjarstjóri Grinda- víkur, fær 12 milljónir í starfsloka- samning frá bænum. Alls kostaði uppsögnin Grindavík 13,5 milljónir króna en bærinn auglýsti starfið fyrir 265 þúsund, fékk lögfræðiráðgjöf sem kostaði 665 þúsund og ráðgjöf við ráðningu nýs bæjarstjóra sem kostaði bæjarfélagið hálfa milljón. Þetta kom fram á fundi bæjar- ráðs Grindavíkur sem haldinn var á þriðjudag. Róbert mun sinna störfum sem bæjarstjóri til 31. janúar 2017 en hann tók við í ágúst 2010.  Samkvæmt yfirlýsingu meirihluta bæjarstjórnar Grindavíkur frá því í byrjun nóvember kom fram að áætl- aður kostnaður við starfslok Róberts væri um sex milljónir króna og að lögmannskostnaður í málinu  yrði tæpar 830 þúsund krónur. – bb Róbert fékk 12 milljónir róbert ragnarsson 9 . d e s e m b e r 2 0 1 6 f Ö s t u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 0 9 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 9 C -8 4 A C 1 B 9 C -8 3 7 0 1 B 9 C -8 2 3 4 1 B 9 C -8 0 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.