Fréttablaðið - 09.12.2016, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.12.2016, Blaðsíða 6
Viðsnúningur í Aleppo Kveðju kastað á liðsmann sýrlenska stjórnarhersins í gamla bæjarhlutanum í Aleppo í Sýrlandi, sem stjórnarherinn hefur nú náð úr höndum uppreisnarmanna eftir langvarandi umsátur og hörð átök. Nordicphotos/AFp Tilnefningar til Blóðdropans Til hamingju! www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsins | F i sk i slóð 39 Bretland „Brexit-kosningin klýfur Bretland. Hún klýfur það í fjóra parta,“ sagði Richard Gordon, lög- maður heimastjórnarinnar í Wales, í málflutningi sínum við Hæstarétt Bretlands í gær. Með því að ganga úr Evrópusam- bandinu sé breska stjórnin að brjóta gegn breskri stjórnskipun, sem gerir ráð fyrir heimastjórn í Wales, rétt eins og í Skotlandi og á Norður-Írlandi. Hún hafi engan rétt til þess. Gordon tók samt skýrt fram að hann ætlist alls ekki til þess að vilji kjósenda verði hunsaður. Stjórnin í Wales vilji hvorki tefja fyrir né koma í veg fyrir útgöngu Bretlands úr Evr- ópusambandinu. Meirihluti kjósenda hafi verið því fylgjandi, þótt kjós- endur í Wales, Skotlandi og á Norður- Írlandi hafi verið því andvígir. Breska stjórnin hafi vissulega völd til þess að gera samninga við önnur ríki og leggja niður slíka samninga. Hins vegar hafi ríkisstjórnin ekki völd til þess að víkja frá lögum sem breska þingið hefur samþykkt. Hann segir þetta svo einfalt að sex ára barn  eigi auðveldlega að geta skilið. Hæstiréttur hefur nú í vikunni fjallað um það hvort breska ríkis- stjórnin hafi rétt til þess að virkja útgönguákvæði Evrópusambandsins án aðkomu þjóðþingsins. Fjórði og síðasti dagur málflutnings fyrir dómstólnum var í gær, en ekki er búist við niðurstöðu fyrr en í janúar. Yfirréttur í London komst nýver- ið að þeirri niðurstöðu að ríkis- stjórnin verði að spyrja þingið áður en útgönguákvæðið er virkjað, en þeirri niðurstöðu var áfrýjað til Hæstaréttar. Deilan hefur fyrst og fremst snúist um það hvort útgangan, án aðkomu þingsins, myndi brjóta gegn lögum sem breska þingið samþykkti árið 1972 um aðildina að ESB. Breska stjórnin segir að þegar þingið samþykkti fyrr á þessu ári að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um útgöngu, þá hafi þingið gert ráð fyrir því að stjórnin myndi framfylgja niðurstöðunni. Rúmlega helmingur Breta sam- þykkti útgönguna, en tæplega helm- ingur var á móti. Breska þingið lagði svo í gær bless- un sína yfir tímaáætlun Theresu May forsætisráðherra, sem reiknar með að virkja útgönguákvæðið í mars á næsta ári. gudsteinn@frettabladid.is Myndi kljúfa Bretland í fjóra parta Stjórnin í Wales segir að yfirgefi Bretland Evrópusambandið sé brotið gegn lögum um heimastjórn Wales, Skotlands og Norður-Írlands. Málflutningi fyrir Hæstarétti um útgönguna er nú lokið. Breska þingið lagði blessun sína yfir tímaáætlun Theresu May í gærkvöldi. Jérôme cahuzac stjórnaði herferð gegn skattsvikurum í Frakklandi. MYNd/EpA skjalakassar streymdu inn í byggingu hæstaréttar Bretlands í London í gær, á fjórða og síðasta degi málflutnings fyrir dómstólnum um útgöngu úr Evrópusambandinu. Nordicphotos/AFp FraKKland  Fyrrverandi ráðherra í franska fjármálaráðuneytinu, Jérôme Cahuzac,  hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa falið fé í skattaskjólum og fyrir peninga- þvætti. Fyrrverandi eiginkona hans, Patricia Menard, var dæmd í tveggja ára fangelsi. Cahuzac var ráðherra í stjórn François Hollande frá því í maí 2012 til mars 2013. Hann átti að leiða herferð gegn skattsvikum en faldi samtímis milljónir evra fyrir skattayfirvöldum. Árið 2013 neyddist hann til að játa að hann hefði falið eigið fé á reikningi í Sviss um 20 ára skeið og logið að þinginu. Fyrrverandi eiginkona ráð- herrans greindi frá því að þau hjónin hefðu gert sér grein fyrir því að þau væru að brjóta lög með því að stofna bankareikninga í skattaskjólum til að komast hjá því að greiða skatt. Jérôme Cahuzac er lýtalæknir. Á læknastofu sinni í París græddi hann hár á höfuð ríkra Frakka. Hann sagði þörfina fyrir að viðhalda lífsstíl fjöl- skyldunnar skýra ólöglegt athæfi þeirra. – ibs Lífsstíllinn kostaði ráðherra þrjú ár í fangelsi 9 . d e s e m B e r 2 0 1 6 F Ö s t U d a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 0 9 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 9 C -A C 2 C 1 B 9 C -A A F 0 1 B 9 C -A 9 B 4 1 B 9 C -A 8 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.