Fréttablaðið - 09.12.2016, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 09.12.2016, Blaðsíða 18
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Hafliði Helgason haflidi@frettabladid.is Við undirrituð, starfsfólk Hjálparstarfs kirkjunnar, skorum á nýkjörna fulltrúa þjóðarinnar á Alþingi að móta tafarlaust stefnu í þágu barna sem búa við verulegan skort á Íslandi og tímasetja markmið um að ekkert barn búi við fátækt á Íslandi árið 2020. Samkvæmt skýrslu Hagstofu Íslands um sára fátækt frá 13. september síðastliðnum bjuggu í fyrra um 1,3% landsmanna eða um 4.300 manneskjur við verulegan skort á þeim lífsgæðum sem þykja eðlileg í íslensku samfélagi svo sem að geta staðið í skilum með greiðslur fyrir húsnæði og lán, geta haldið húsnæðinu heitu, geta farið í vikulangt frí með fjöl- skyldunni árlega, haft efni á kjöti, fiski eða sambæri- legri grænmetismáltíð annan hvern dag, geta mætt óvæntum útgjöldum, hafa efni á síma, sjónvarps- tæki, þvottavél eða bíl. Manneskja sem býr við sára fátækt hefur ekki efni á fernum af níu ofangreindum lífsgæðum og getur ekki haldið í við almennar neysluvenjur í samfélaginu. Gögn Hagstofunnar sýna fram á að heilsufar, staða fólks á húsnæðismarkaði sem og heimilisgerð hafi töluvert forspárgildi um sára fátækt. Þannig leiðir bág heilsa og örorka til lágra ráðstöfunartekna sem setur fólki þröngar skorður á húsnæðismarkaði. Sama á við um einstæða foreldra og þá sem búa einir. Niðurstaða Hagstofunnar er líka skýr um það að sár fátækt er tíðari á meðal leigjenda en hús- næðiseigenda. Það liggur því í augum uppi að grípa þarf til almennra aðgerða á húsnæðismarkaði og að tryggja þarf aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Við sem samfélag viljum tryggja hag barnanna okkar. Til þess þurfum við skýra stefnu og sértækar aðgerðir í þágu fólksins sem býr við þannig aðstæður að það getur ekki óstutt tryggt börnum sínum þau lífsgæði sem þykja sjálfsögð á Íslandi. Við erum ríkt samfélag af efnislegum gæðum. Sértæku aðgerðirnar krefjast fjármagns og því verðum við að forgangs- raða í þágu barnanna okkar allra. Ekkert barn búi við fátækt á Íslandi árið 2020! Atli Geir Hafliðason Áslaug Arndal Bjarni Gíslason Kristín Ólafsdóttir Sædís Arnardóttir Vilborg Oddsdóttir starfsfólk Hjálpar- starfs kirkjunnar Þannig leiðir bág heilsa og örorka til lágra ráðstöf­ unartekna sem setur fólki þröngar skorður á húsnæðis­ markaði. JÓLATILBOÐ NÍTRÓ Fylgist með fleiri tilboðum á Facebook. Sendum um allt land . Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi / Sími 557 4848 / www.nitro.is Af... RST götuhjólafatnaði CKX vélsleðagöllum Öllum motocrossgöllum Givi töskum og aukahlutum 20% Afsláttur 30% Afsláttur Strider jafnvægishjól 12.593,- Hærri hag­ vaxtartölur minnka líkur á því að Seðlabankinn lækki vexti nú í desem­ ber, auk þess sem óvissa um endanlega útgáfu fjárlaga hlýtur að hafa sömu áhrif. Fjárlagafrumvarpið er lagt fram við sérstakar aðstæður þar sem sú ríkisstjórn sem leggur það fram hefur ekki þingmeirihluta. Við þær kringumstæður mun reyna talsvert á þingið.Frumvarpið er lagt fram við þær kringum-stæður að nýjar hagtölur sýna meiri vöxt en spár höfðu gert ráð fyrir. Hærri hagvaxtartölur minnka líkur á því að Seðlabankinn lækki vexti nú í desember, auk þess sem óvissa um endanlega útgáfu fjárlaga hlýtur að hafa sömu áhrif. Enda þótt Seðlabankinn hafi tök á að hindra inn- flutning gjaldeyris vegna vaxtamunarviðskipta, þá getur hann ekki komið í veg fyrir að innlendir aðilar stundi þau í raun með þeim hætti að halda inni í landinu fjármunum sem annars færu í erlendar fjár- festingar. Í Markaðnum í fyrradag var rætt við Almar Guð- mundsson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, sem hefur eins og fleiri nokkrar áhyggjur af því að hröð styrking krónunnar muni bitna á langtímahagsæld þjóðarinnar. Það er full ástæða til að taka undir þessar áhyggjur. Samkeppnishæfni annarra greina en ferðaþjónustu fer hratt minnkandi vegna launakostnaðar mælds í erlendri mynt. Enginn veit svo hver eru sársaukamörk ferðaþjónustunnar sjálfrar og í framhaldinu hvert getur verið langtíma jafnvægisgengi krónunnar. Ísland tekst nú á við algjörlega ný vandamál í hag- stjórn. Hagvöxtur er margfaldur á við nágrannalönd og nettó staða við útlönd er jákvæð um 60 milljarða og lík- legt að hún eigi eftir að batna enn. Sala eigna gæti gert ríkið nánast skuldlaust og tækifæri er til að greiða inn á lífeyrisskuldbindingar Nauðsynlegt er að auka hvatann til þess að fjármunir fari úr landi á móti öllu því innstreymi sem nú er. Lækkun vaxta hjálpar til, en Seðlabankinn mun varla stíga slíkt skref nema að fyrir liggi að ríkisfjármálin séu tekin föstum tökum. Nýkjörið Alþingi verður að sýna ábyrgð og reka ríkis- sjóð með afgangi. Ekki skal lítið úr því gert að á ýmsum sviðum hafa málaflokkar verið sveltir og uppsafnaða þörf má finna í mikilvægum stoðum samfélagsins eins og heilbrigðiskerfi, menntakerfi og í samgöngum. Upplegg fjármálafrumvarpsins eins og það lítur út er skynsamlegt, þótt deila megi um forgangsröðun ýmissa þátta. Það er pólitískt úrlausnarefni fyrir nýtt þing að leysa. Mikilvægast er samt að sú umræða verði innan þess útgjaldaramma sem lagt hefur verið upp með. Krafa um aukin ríkisútgjöld við þessar kringumstæður er því miður óábyrg og mun koma í bakið á okkur. Í núverandi stöðu eru mikil tækifæri til að tryggja langtímahagsæld. Freistnivandi stjórnmála í miklum hagvexti er mikill og sagan sýnir að erfitt er að halda aftur af útgjöldum. Sagan sýnir líka að takist það ekki verður afleiðingin hörð lending hagkerfisins. Fjárlög í miklum hagvexti Undrast eigin loforð Ríkisstjórnin samþykkti sam- gönguáætlun rúmum tveimur vikum fyrir kosningar. Þar var öllu fögru lofað og ráðast átti í miklar umbætur á innviðum landsins. Nú þegar fjárlagafrum- varpið liggur fyrir er ljóst að ekki verður staðið við áætlunina. Fyrr í vikunni sagði Bjarni Benediktsson að ekki hefði verið innistæða fyrir henni; hún hefði verið bólgin af kosningalof- orðum. Er Bjarni búinn að gleyma því að áætlunin var stjórnar tillaga Ólafar Nordal innanríkisráð- herra? Að hann studdi sjálfur áætlunina í öllum atkvæða- greiðslum sem fram fóru? Fjárlaganefnd Bjarna Athygli vakti í byrjun vikunnar þegar starfandi fjármálaráðherra skammaðist út í ríkisstofnanir fyrir að kvarta undan fjárskorti. Annað hljóð var komið í strokk- inn á þriðjudag þegar hann sagðist að sjálfsögðu mundu hlusta með opnum hug á gagn- rýni á fjárlagafrumvarpið. Um leið fullyrti hann hins vegar að að frumvarpið myndi „ekki taka grundvallarbreytingum í fjárlaga- nefnd“. Einhverjum kann að þykja Bjarni hér hafa farið aðeins fram úr sér. Þrír af níu nefndarmönn- um þingnefndarinnar koma úr Sjálfstæðisflokki og varla er það í verkahring Bjarna að ákveða hvað nefndin tekur til bragðs? thorgeirh@frettabladid.is 9 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T U d A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð SKOÐUN 0 9 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 9 C -9 3 7 C 1 B 9 C -9 2 4 0 1 B 9 C -9 1 0 4 1 B 9 C -8 F C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.