Fréttablaðið - 09.12.2016, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 09.12.2016, Blaðsíða 36
Elín Erna Stefánsdóttir förðunar­ fræðingur verslar mikið á net­ inu og meira að segja meira en hún ætti að gera að eigin sögn. „Það er bara svo hrikalega kósí að geta keypt sér eitthvað fínt meðan maður hangir uppi í rúmi og hámar í sig nammi,“ segir hún hlæjandi og bætir við að hún sjái fyrir sér að versla enn meira á net­ inu í framtíðinni. Elín byrjaði að versla á netinu þegar hún var í kringum fjórtán til fimmtán ára, þá uppgötvaði hún eBay og síðan þá hefur hún ekki getað hætt. Hún segir kosti þess að versla á netinu vera þá að þar sé miklu meira úrval og oftast betra verð. „Ég skrái mig alltaf á póst­ lista svo ég missi aldrei af neinum afsláttum sem eru í gangi. Ég vel miklu frekar að versla í gegnum netið heldur en að fara í búðir, mér finnst það mun þægilegra. Búða­ ráp finnst mér oftast ansi stress­ andi og þegar maður er á netinu er maður alveg laus við háværa leið­ indatónlist og kæfandi mátunar­ klefa,“ segir hún og brosir. Það skiptir ekki máli hvað Elínu vantar, hún segist kaupa flest á netinu. „Allavega snyrtivörur, föt, bækur og plötur.“ Aðspurð um helstu kosti og galla þess að versla í gegnum tölvuna heima hjá sér segir Elín helsta kostinn vera úrvalið, á netinu sé hægt að finna allt sem maður þurfi að finna. „Það versta er að þurfa að bíða eftir vörunni, þótt það sé nú vanalega enginn svakalegur tími. Getur verið leiðinlegt líka ef flík­ ur passa ekki en ef maður fylgir stærðartöflunni vel þá er maður oftast í góðum málum.“ Elín var beðin um að nefna eftir lætisnetverslanir sínar og þá sérstaklega þær sem selja snyrti­ vörur, föt og skó. „Uppáhalds ís­ lensku snyrtivörunetverslanirnar mínar eru fotia.is, haustfjord.is og nola.is. Þær bjóða upp á frábærar vörur og maður fær alltaf góða þjónustu. Þegar kemur að erlend­ um netverslunum með snyrtivörur þá er cultbeauty.co.uk í mestu uppáhaldi, mörg merki sem ég held upp á, mjög góð þjónusta og er vefsíðan vel upp sett og auðvelt að fletta í gegn. kissandmake upny. com er líka í miklu uppáhaldi en þar kaupi ég til dæmis Nars­vör­ urnar mínar þegar ég kemst ekki til útlanda. Feelunique og Beauty­ bay eru líka alltaf skemmtilegar, mörg merki í boði og reglulega góðir dílar í gangi. Þegar kemur að fatnaði og skóm versla ég lang­ oftast á asos.com, enda vinsæl­ asta fatavefverslun heimsins. Þar geta allir fundið sér eitthvað enda flíkur í öllum stærðum, gerðum og verðum. Tobi.com er líka mjög skemmtileg síða en þar er hægt að finna fallegar flíkur, meðal annars mjög sæta kjóla, og það er reglu­ lega fjörutíu til fimmtíu prósent afsláttur af öllu á síðunni,“ segir Elín. Lilja Björk Hauksdóttir liljabjork@365.is Elín verslar mikið á netinu og kaupir þá sérstaklega snyrtivörur enda er hún förðunarfræðingur. MYND/ANTON BRINK Finnst mjög gott að versla uppi í rúmi Þegar Elín Erna Stefánsdóttir uppgötvaði eBay á unglingsaldri byrjaði hún að versla á netinu og hefur haldið því áfram síðan. Hún kaupir aðallega snyrtivörur, föt og bækur á netinu. Hún segir mun minna stress að kaupa á netinu en í búðum. Ég skrái mig alltaf á póstlista svo ég missi aldrei af neinum afsláttum sem eru í gangi. Elín Erna Stefánsdóttir NETvERSLuN Kynningarblað 9. desember 20164 0 9 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 9 C -9 D 5 C 1 B 9 C -9 C 2 0 1 B 9 C -9 A E 4 1 B 9 C -9 9 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.