Fréttablaðið - 09.12.2016, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 09.12.2016, Blaðsíða 44
Bókin er um prinsessu en er þó ekki hefðbundin prinsessu bók. Sagan hefur ákveðinn boð- skap varðandi útlits- dýrkun. - Viggó Ingimar Jónasson Kosturinn við hrákökur er að þær eru fljótgerðar enda fer enginn tími í bakstur í ofni. Það tekur nákvæm- lega 15 mínútur að gera þessa. Botn Um 200 g döðlur 100 g pekanhnetur 2 dl kókosmjöl 4 msk. kakó 1 tsk. vanilludropar Sjávarsalt á hnífsoddi Leggið döðlur í bleyti í um 5-10 mínútur. Hellið mesta vatninu af og tætið í matvinnsluvél. Bætið pekan hnetum við og hakkið. Bætið kókosmjöli, vanilludropum, kakói og sjávarsalti saman við og hrær- ið þar til úr verður þétt deig. Bætið örlitlu vatni við ef þarf. Takið botninn úr hringlaga spring- formi og komið kantinum fyrir á þeim kökudiski sem ætlunin er að bera kökuna fram á. Hellið deig- inu á diskinn. Þjappið því vel niður og út til hliðanna með skeið. Kælið um stund. Krem 4 msk. kókosolía 4 msk. kakó 2 msk. hunang 1 tsk. vanilludropar Salt á hnífsoddi Mýkið kókosolíuna í heitu vatni. Hellið öllu í skál og hrærið vel saman. Hellið yfir kökuna. Látið storkna. Skreytið með kókos- flögum. Ofureinföld hrásúkkulaðikaka Viggó segist lengi hafa verið skúffurithöfundur. „Ég hef alltaf haft gaman af því að segja sögur, skrifa þær gjarnan niður og set þær síðan ofan í skúffu. Þessi saga varð til fyrir dóttur mína sem er sjö ára. Ég þurfti að finna upp á einhverju uppátæki með henni. Það byrjaði á bullsögu sem ég teiknaði myndir með og þetta hélt henni hugfanginni,“ útskýrir Viggó. „Ég er reyndar slæmur teiknari en það kom ekki að sök því að úr þessu fæddist grunnurinn að þessari sögu. Bókin er um prinsessu en er þó ekki hefðbundin prinsessu bók. Þar sem dóttir mín þurfti gjarn- an að prófa nokkur dress áður en hún ákvað hverju hún vildi klæð- ast ákvað ég að nota söguna til að koma í veg fyrir útlitsdýrkun. Sagan hefur því þann boðskap að útlitið skipti ekki öllu máli,“ grein- ir Viggó frá. TeiKningarnar sKipTa máli Viggó á þrjú börn, 12, 7 og 3 ára. Hann segist alltaf hafa haft gaman af því að segja börnunum sögur en aldrei hugsað út í að gefa þær út fyrr en þessi varð til. „Áður en börnin mín fæddust sagði ég öðrum börnum í fjölskyldunni sögur. Ég hef hins vegar aldrei klárað sögurnar fullkomlega þar sem þær lentu alltaf ofan í skúffu. Prinsessan hitti hins vegar ekki í skúffuna,“ segir Viggó glettinn. Hann fékk Ara Yates til að teikna söguna með mjög góðum árangri. „Mér var einu sinni sagt að teiknistíllinn minn væri eins og hjá risavöxnu barni sem samt væri með augu fullorðins manns,“ segir Viggó og hlær. „Ari er hins vegar þvílíkt fær listamaður og myndirnar gera bókina að því sem hún er. Sjálfur skrifaði ég bók- ina meðfram vinnu minni á kvöld- in og um helgar. Það gat stundum verið erfitt að fá næði frá þremur börnum en hver mínúta sem gafst var vel notuð. Þetta er hjá mér eins og öðrum, þegar vinnupakk- inn er búinn tekur fjölskyldupakk- inn við,“ segir Viggó sem er þjón- ustufulltrúi hjá Tryggingamiðlun. Hann starfaði um tveggja ára skeið sem blaðamaður hjá Blaðinu og 24 stundum en í hruninu réðst hann í að setja upp tölvuleikjafyrirtæki ásamt fleirum sem nú hefur hætt rekstri. les upp á leiKsKólum Viggó segir að bókin sé fyrir börn frá tveggja, þriggja upp í átta ára. Hann hefur fengið góð viðbrögð frá fólki, sérstaklega börnum, en hann og Ari hafa lesið upp úr bókinni á leikskólum. „Ég er óþekktur höf- undur og það getur verið erfitt að koma sér á framfæri í jólabókaflóð- inu. Bókaútgáfan Hringur gefur bókina út og þetta er annað starfs- árið hennar. Í fyrra gaf Hringur út bók um sögu Bítlanna. Mér fannst ótrúlega gaman að fá bókina í hend- ur en ég hafði engum sagt frá henni nema mínum allra nánustu. Ég er svartsýnn að eðlis fari og var alltaf viss um að eitthvað myndi klúðrast í ferlinu. Þess vegna trúði ég ekki að bókin kæmi út fyrr en ég hélt á henni. Það var ljúf tilfinning,“ segir Viggó. BóluBasl prinsessunnar Viggó I. Jónasson var að gefa út sína fyrstu bók, barnabókina Konungborna bólubaslið, ásamt teiknaranum Ara Yates. Bókin er skemmtilega myndskreytt saga af fagurri prinsessu sem er elskuð og dáð en er samt með stórt vandamál. Viggó er himinglaður með nýju barnabókina sína, Konungborna bólubaslið, enda finnst krökkunum hún ofboðslega skemmtileg. MYND/VILHELM MEÐMÆLI NOTENDA. "Heilsan, húðin, meltingin og almenn vellíðan hefur aldrei verið betri. Undraverður aloe vera safi" Lifestream fæst í Hagkaup, Nettó, Fjarðarkaup, Melabúðinni, Græn heilsa og apótekum | celsus.is ALOE VERA óblandað,  99,7% hreinn safi úr innsta kjarna plöntunnar    ekkert vatn, engin sykur. 30 da ga skam mtur ALOE BERRY hreinn safi með sólberjum.     Safinn er unnin úr innsta geli laufsins sem er virkasti hluti plöntunar. Því er safinn fullkomlega tær, ekkert beisk eftirbragð. Sólber eru rík af andoxunar efnum C vítamíni góð fyrir sjónina, minnið og aukna getu. BRA GÐG OTT Við gætum verið með næsta starfsmann mánaðarins á skrá www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf. 9 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T U d A G U r10 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l 0 9 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 9 C -D D 8 C 1 B 9 C -D C 5 0 1 B 9 C -D B 1 4 1 B 9 C -D 9 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.