Morgunblaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2. N Ó V E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 257. tölublað 104. árgangur
ÓVENJUMIKIÐ
UM FORVITNI-
LEGAR KONUR
ENGIN TÆPI-
TUNGA, KINN-
ROÐI EÐA SKÖMM
ÁSGEIR ÁFRAM
MEÐ NIMES Í
FRAKKLANDI
OMGYES.COM 12 ÍÞRÓTTIRAIRWAVES HAFIN 18, 30
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ákvörðun kjararáðs frá því á kjördag
að hækka verulega laun alþingis-
manna, ráðherra og forseta Íslands
hefur vakið hörð viðbrögð. Forystu-
menn Alþýðusambands Íslands, Sam-
taka atvinnulífsins, BSRB og BHM
gagnrýna ákvarðanir ráðsins og það
hafa einnig verkalýðsfélög um allt
land og fleiri samtök gert.
Alþýðusamband Íslands, Samtök
atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands
skora á nýkjörið Alþingi að hafna
ákvörðunum kjararáðs. ASÍ krefst
þess að Alþingi komi strax saman til
þess. Atvinnurekendasamtökin vilja
að málið verði lagt í sáttaferli. Öll
samtökin vilja einnig að það sama
gildi um fyrri ákvörðun kjararáðs um
hækkun launa embættismanna.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra segir það ekki að undra að menn
hafi skoðanir á þessum hækkunum.
Hann rifjar upp að hann hafi lagt til
miklar breytingar á hlutverki kjarar-
áðs. „En það situr alltaf eftir spurn-
ingin um það hvernig eigi að ákvarða
laun kjörinna fulltrúa og annarra sem
heyra undir kjararáð og hvaða viðmið
á að leggja til grundvallar.“
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að verði ekki gripið í taumana
og sameiginlegri launastefnu fylgt
muni sú ólga sem af því hlýst verða í
boði Alþingis.
Mótmæla launahækkun
Samtök verkalýðs og atvinnurekenda telja ákvörðun kjararáðs ógna stöðugleika
ASÍ krefst þess að Alþingi komi strax saman til að draga hækkanirnar til baka
MHækkanir »4
Launabreytingar
» Laun þingmanna hafa hækk-
að um 119% á áratug og ráð-
herra um 102% en launa-
vísitalan um 95%.
» ASÍ segir að laun æðstu
embættismanna hafi hækkað
um 75% á 3 árum en almenn
laun um 29%.
Stjórnmálaforingjar telja að Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands, gefi
það út í dag eða allra næstu daga,
hvaða flokksformaður fær í fyrstu
umboð til stjórnarmyndunar. Þrír
formenn sækjast eftir að fá umboðið.
Óformlegar þreifingar voru milli
formannanna í gær, eins og undan-
farna daga, en ekki er vitað til að
neinn þeirra hafi komist verulega
áleiðis með að tryggja stuðning nógu
margra flokka og þingmanna til að
geta myndað meirihlutastjórn. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins hringdi
forsetinn í Katrínu Jakobsdóttur, for-
mann VG, og Benedikt Jóhannesson,
formann Viðreisnar, í gær. Ekki náð-
ist í Bjarna Benediktsson, formann
Sjálfstæðisflokksins, í gærkvöldi til
að fá staðfest að forseti hefði einnig
haft samband við hann. „Ég vil ekk-
ert láta hafa eftir mér um trúnaðar-
samtöl, hvorki við hann né aðra,“
sagði Benedikt spurður út í hvað
þeim fór á milli.
Nokkurrar óþreyju er farið að
gæta hjá þingmönnum Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks í garð
forseta. Telja þingmenn þessara
flokka, sem rætt var við, að forset-
anum beri að afhenda Bjarna Bene-
diktssyni umboð til stjórnar-
myndunar. »6
Búist við
útspili
forseta
Morgunblaðið/Ómar
Bessastaðir Bústaður forsetans er
jafnan í sviðsljósinu eftir kosningar.
Ræddi við for-
menn í síma í gær
Arnar Már Arngrímsson hlaut
verðlaun Norðurlandaráðs í flokki
barna- og unglingabókmennta fyrir
bókina „Sölvasaga unglings“ en af-
hending verðlaunanna fór fram í
tónleikahúsi danska ríkisútvarpsins
í gærkvöldi.
Bókin fjallar um nútímaungling
og viðfangsefni sem hann þarf að
glíma við. Í rökstuðningi dóm-
nefndar segir: „Höfundi tekst í
þessari fyrstu bók sinni að búa til
persónu sem er áhugaverð, fyndin,
óþolandi, leitandi og heillandi.
Tungutak sögunnar er lífleg blanda
af unglingamáli og ritmáli eldri
kynslóðarinnar og þar takast á
menningarheimar.“ Jakob Wege-
lius, sem hlaut verðlaunin í fyrra af-
henti Arnari Má verðlaunin auk pen-
ingaverðlauna sem nema um sex
milljónum króna. »8
Arnar Már hlaut verðlaun Norðurlandaráðs
fyrir sína fyrstu bók, Sölvasögu unglings
Magnus Fröderberg/Norden.org
Verðlaun Arnar Már tók við verðlaunum í
flokki barna- og unglingabókmennta í gær.
Margir kúabændur vildu selja
greiðslumark á tilboðsmarkaði fyr-
ir greiðslumark í mjólk sem lokað
var í gær. 69 gild tilboð bárust um
sölu á alls tæplega 6 milljónum
lítra. Ljóst er af því að margir kúa-
bændur eru á þeim buxunum að
hætta framleiðslu.
Einnig var töluverð eftirspurn
eftir mjólkurkvóta. 45 gild tilboð
bárust um kaup á alls um 3,6 millj-
ónum lítra.
Viðskipti urðu með um 2,7 millj-
ónir lítra á jafnvægisverði sem var
205 krónur á lítrann. Er það 35
krónum lægra en í september.
Þetta er stærsti og jafnframt síð-
asti tilboðsmarkaður með mjólkur-
kvóta. Með nýjum búvörusamningi
tekur við innlausnarskylda ríkisins
á mjólkurkvóta á ákveðnu verði
sem er mun lægra en það kvótaverð
sem hefur myndast. »11
Margir kúabændur vildu selja mjólkurkvót-
ann á tilboðsmarkaði og hætta framleiðslu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kýr Eftir áramót mun ríkið innleysa
mjólkurkvóta sem bændur vilja selja.
hluti af
ÞÚ ÞARFT
á morgnana
Þessir voru að leggja lokahönd á uppsetningu
Pönksafns Íslands með því að veggfóðra inn-
ganginn með risastórum myndum af Utangarðs-
mönnum og Sykurmolunum, en safnið verður til
húsa á fyrrverandi almenningssalerni í Banka-
stræti 2, sem flestir kannast við sem Núllið.
Fyrrverandi söngvari Sex Pistols, John Lydon,
eða Johnny Rotten, frægasti pönkari sögunnar,
mun opna safnið formlega í dag. »30
Andrúmsloft pönksins fangað á fyrrverandi salerni
Morgunblaðið/Golli