Morgunblaðið - 02.11.2016, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016
Ástæða þess að alþingiskosningarvoru haldnar um sl. helgi en
ekki næsta vor er sú „krafa“ sem
þáverandi stjórnarandstaða hélt
fram að væri uppi meðal almenn-
ings um að fá að kjósa.
Í framhaldi afþessari
meintu kröfu
hótaði stjórnar-
andstaðan því að
hleypa engum
málum í gegnum
þingið fyrr en
kjördagur lægi
fyrir í haust.
Raunar fór það
svo að jafnvel eftir að kjördagur lá
fyrir hindraði stjórnarandstaðan
þingstörfin sem mest hún mátti, sem
sýnir þau heilindi sem bjuggu að
baki meintri kröfu.
Um liðna helgi gáfu svo kjós-endur svar sitt um hvort krafa
þeirra hefði verið að fá að kjósa sem
fyrst. Svarið var að aldrei hafði
lægra hlutfall kjósenda séð ástæðu
til að taka þátt í kosningum til Al-
þingis.
Krafan var því bersýnilega ekkifyrir hendi.
Það kom líka í ljós, að fleiri kjós-endur, sem þó mættu á kjör-
stað, vildu að núverandi ríkisstjórn
sæti áfram en að stjórnarandstaðan
tæki við.
Þetta var önnur staðfesting þessað engin krafa var uppi um að
fá stjórnarandstöðuna inn í
stjórnarráðið, þvert á fullyrðingar
hennar sjálfrar um annað.
Sjálfsagt er, og raunar nauðsyn-legt, að hafa þetta í huga nú
þegar unnið er að myndun nýrrar
stjórnar.
„Krafa“ kjósenda
um kosningar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.11., kl. 18.00
Reykjavík 4 alskýjað
Akureyri 1 léttskýjað
Nuuk -1 skýjað
Þórshöfn 8 rigning
Ósló 2 léttskýjað
Kaupmannahöfn 8 skýjað
Stokkhólmur 5 rigning
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 12 léttskýjað
Brussel 14 skýjað
Dublin 10 heiðskírt
Glasgow 7 heiðskírt
London 12 alskýjað
París 13 léttskýjað
Amsterdam 13 alskýjað
Hamborg 10 rigning
Berlín 11 alskýjað
Vín 11 léttskýjað
Moskva -8 skýjað
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 17 skýjað
Barcelona 19 heiðskírt
Mallorca 21 alskýjað
Róm 17 heiðskírt
Aþena 17 heiðskírt
Winnipeg 3 skýjað
Montreal 4 léttskýjað
New York 12 heiðskírt
Chicago 18 skýjað
Orlando 25 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:17 17:07
ÍSAFJÖRÐUR 9:35 16:59
SIGLUFJÖRÐUR 9:18 16:41
DJÚPIVOGUR 8:49 16:33
Tilboðsverð kr. 109.990,-
Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál
og svunta
Fullt verð kr. 137.489,-
Vitamix TNC er
stórkostlegur.
Mylur alla ávexti,
grænmeti, klaka og
nánast hvað sem er.
Býr til heita súpu og ís.
Til í fjórum litum,
svörtum, hvítum
rauðum og stáli.
Besti vinurinn í
eldhúsinu
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Verðlaun Norðurlandaráðs voru
veitt við hátíðlega athöfn í tónleika-
sal danska ríkisútvarpsins í Kaup-
mannahöfn í gærkvöldi. Arnar Már
Arngrímsson hlaut verðlaunin í
flokki barna- og unglingabók-
mennta, en einnig var Ragnhildur
Hólmgeirsdóttir tilnefnd fyrir bók-
ina Koparborgina.
Verðlaun í flokki bókmennta hlaut
sænska ljóðskáldið Katarina Fros-
tenson fyrir bók sína Sånger och
formler. Í flokki bókmennta voru af
Íslands hálfu tilnefnd Guðbergur
Bergsson fyrir skáldsöguna Þrír
sneru aftur og Elísabet Jökulsdóttir
fyrir ljóðabókina Ástin er ein tauga-
hrúga: enginn dans við Ufsaklett.
Í flokki kvikmynda urðu hlut-
skarpastir Norðmennirnir Joachim
Trier, Eskil Vogt og Thomas Rob-
sahm, fyrir kvikmyndina Louder
Than Bombs. Í þeim flokki var Rún-
ar Rúnarsson tilnefndur fyrir kvik-
mynd sína Þresti.
Tónlistarverðlaun Norðurlanda-
ráðs hlaut Daninn Hans Abraham-
sen fyrir söngbálk sinn Let me tell
you. Af Íslands hálfu voru tilnefnd
Jóel Pálsson og Kjartan Valdemars-
son fyrir tónverkið Innri og Karól-
ína Eiríksdóttir fyrir óperuna
MagnusMaria.
Umhverfisverðlaun Norðurlanda-
ráðs hlaut danska smáforritið Too
Good To Go. Þar voru tilnefnd ís-
lensku smáforritin e1 og Strætó-
appið.
Verðlaun Norður-
landaráðs veitt í gær
Þórunn Egilsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins í Norðaust-
urkjördæmi, hefur tekið við sem
starfandi forseti Alþingis.
Fráfarandi alþingismenn misstu
allir umboð sitt á laugardaginn,
þegar nýtt þing var kosið.
Í þeim hópi var þingforsetinn
sjálfur, Einar Kristinn Guðfinns-
son. Ef þingforseti hættir er venj-
an sú að næsti varaforseti taki
við, nái hann kjöri. Fyrsti vara-
forseti var Kristján L. Möller, en
hann hætti einnig á þingi. Þórunn
tekur því við sem 2. varaforseti.
Hún mun gegna
embættinu þar
til nýkjörið þing
hefur komið
saman og kosið
forseta.
Þórunn situr
nú sem fulltrúi
Íslands á þingi
Norðurlanda-
ráðs í Kaup-
mannahöfn. Hún
situr jafnframt árlegan fund þing-
forseta á Norðurlöndum.
sisi@mbl.is
Þórunn forseti Alþingis
Þórunn
Egilsdóttir
Stofnvísitala rækju í Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi
var undir meðallagi í leiðangri í haust.
Hafrannsóknastofnun ráðleggur að leyfðar verði
veiðar á 167 tonnum í Arnarfirði á þessu fisk-
veiðiári og í Ísafjarðardjúpi eru ráðlagðar veiðar á
484 tonnum. Rækjustofnar á öðrum svæðum eru
enn í lægð og ekki er lagt til að veiðar verði stund-
aðar á þeim svæðum fiskveiðiárið 2016/2017.
Þar sem magn ýsuseiða var yfir viðmiðunarmörk-
um í Ísafjarðardjúpi ráðleggur Hafrannsóknastofnun að rækjuveiðar
hefjist ekki á því svæði fyrr en magn seiða hefur minnkað. Líkt og
undanfarin ár var mest af rækju innst í Djúpinu. Sömu sögu er að
segja úr Arnarfirði, þar var helsta útbreiðslusvæði rækju innst í firð-
inum.
Stofnar innfjarðarækju undir meðallagi eða í lægð