Morgunblaðið - 02.11.2016, Page 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016
✝ Jónína IngileifGunnlaugs-
dóttir Melsteð
fæddist 8. ágúst
1944 í Reykjavík.
Hún lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 21.
október 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Helga Sím-
onardóttir Melsteð,
fædd í Vatnskoti,
Þingvallasveit, 22.
maí 1914, d. 1. október 2000, og
Gunnlaugur Bjarnason Melsteð,
fæddur á Framnesi, Skeiða-
hreppi, 5. maí 1908, d. 21. janúar
1962. Alsystkini Jónínu voru Sig-
ursteinn, f. 1938, d. 2005, Símon,
f. 1939, d. 1983, Pétur Þór, f.
1941, d. 2006, og Gunnlaugur
Bjarni, f. 1949, d. 1979. Sam-
feðra systkini Jónínu eru Erla
Thomsen, f. 1946, og Einar
Símonarson, f. 1949.
Jónína giftist hinn 8. ágúst
1965 Gunnari H. Gunnarssyni
byggingaverkfræðingi, f. 16 maí
1942. Foreldrar hans voru Gunn-
ar H. Bjarnason, f. 1917, d. 1971,
og Ingibjörg Óladóttir, f. 1920, d.
2012.
Börn Jónínu og Gunnars eru:
1) Gunnlaugur Melsteð, f. 9. sept-
ember 1963. Gunnlaugur er í
sambúð með Hallgerði Gunnars-
fræði. Fjölskyldan flutti 1971 á
Vesturberg 10. Jónína og Gunn-
ar byggðu sér raðhús í Brekku-
seli 26 og fluttust þangað 1976
og bjó Jónína þar til dauðadags.
Árið 1975 hóf Jónína, þá
þriggja barna móðir, nám í FB til
að undirbúa sig undir hjúkr-
unarnám sem hafði lengi verið
draumur hennar. Hún útskrifast
sem hjúkrunarfræðingur 1981,
þá orðin fjögurra barna móðir.
Jónína hóf störf á Landspítalan-
um en starfaði lengst við heima-
hjúkrun. Hún vann síðustu árin
við öldrunarhjúkrun á Landspít-
alanum Fossvogi þar sem hún lét
af störfum 2008.
Jónína var mikið náttúrubarn
og hafði unun af því að ferðast
um landið með fjölskyldu sinni.
Jónína og Gunnar ferðuðust
einnig víða erlendis. Jónína var
frá unga aldri mikil áhugamann-
eskja um tónlist og dans, lærði
m.a. á harmonikku. Á fullorðins-
árum hóf hún gítarnám og að
syngja með kórum. Hún söng
með Samkór Trésmíðafélagsins
en síðustu átján árin með Árnes-
ingakórnum í Reykjavík. Á eftir-
launaárunum tók hún upp þráð-
inn í harmonikkunámi og ýmiss
konar handverki og listsköpun.
Hún lagði stund á olíumálun,
leir- og glerlist og skartgripa-
gerð.
Útför Jónínu verður gerð frá
Háteigskirkju í dag, 2. nóvember
2016, klukkan 15.
dóttur, f. 15. mars
1968. Börn Gunn-
laugs eru Hrafnkell
Grímur, móðir Sig-
fríður Guðlaugs-
dóttir, og Jónína
Melsteð, móðir Mar-
grét Baldursdóttir.
2) Ingibjörg, f.
18. mars 1966, í
sambúð með Pétri
Daníelssyni, f. 21.
nóvember 1975.
Börn þeirra eru
Daníel, Helga Björg og Lilja
Kristín.
3) María Sigrún, f. 26. ágúst
1968, d. 1. október 2014, eigin-
maður Gísli Héðinsson, f. 19. des-
ember 1969, börn þeirra eru
Ágústa Mjöll, Hjörtur Snær og
Una Sóley. 4) Sveinborg Hlíf, f. 8.
ágúst 1979, sambýlismaður Ei-
ríkur G. Ragnars, f. 22. apríl
1979, sonur þeirra Gunnar
Hrafn.
Jónína ólst upp hjá foreldrum
sínum á Rauðarárstíg 3 en dvald-
ist oft á sumrin hjá afa sínum og
ömmu í Vatnskoti í Þingvalla-
sveit. Jónína gekk í Landakots-
og Lindargötuskóla. Jónína hóf
búskap með eiginmanni sínum,
Gunnari, árið 1962 á Rauðarár-
stíg 3. Þau bjuggu tvo vetur í
Þrándheimi þar sem Gunnar
stundaði framhaldsnám í verk-
Látin er Jónína Melsteð,
mágkona mín, 72 ára að aldri.
Langar mig að minnast hennar.
Leiðir okkar hafa legið saman í
rúmlega 50 ár og við alltaf verið
góðar vinkonur. Ég man vel
þegar Gunnar bróðir kom upp á
Akranes og kynnti Jónínu fyrir
fjölskyldunni. Hún var hávaxin,
glæsileg, ung kona, glaðleg,
blátt áfram og einlæg.
Árið 1965 flytja þau til
Þrándheims og Gunnar lýkur
sínu verkfræðinámi þaðan. Þeg-
ar þau flytja heim eru börnin
orðin tvö, síðan eignuðust þau
önnur tvö. Næstu árin er Jónína
heimavinnandi og hugsar um
börnin. Síðan dreif hún sig í
hjúkrunarfræðinám. Sýndi þar
mikinn dugnað, ásamt því að
hugsa um stórt heimili. Vann
sem hjúkrunarfræðingur í mörg
ár, bæði í heimahjúkrun og á
sjúkrahúsum í Reykjavík. Börn-
in okkar eru á svipuðum aldri
og vorum við mikið saman, sér-
staklega þegar þau voru yngri.
Gunnar og Jónína voru miklir
náttúruunnendur. Voru þau
mjög dugleg að ferðast innan-
lands. Oft vorum við saman í
þeim ferðum, ásamt börnunum.
Börn þeirra hafa erft þennan
áhuga á íslenskri náttúru. Einn-
ig fórum við saman til útlanda
seinni árin. Jónína átti mörg
áhugamál. Fyrst og fremst hafði
hún yndi af söng, hún söng í
mörg ár með Árnesingakórnum
í Reykjavík. Hún var mikið fyrir
barnabörnin, sem eru níu tals-
ins. Oft var tekið lagið með
þeim. Jónína var mjög fé-
lagslynd og ræktarsöm við sitt
fólk. Hún kunni að gleðjast í
góðra vina hópi. Seinni árin fór
hún að mála myndir og vinna úr
gleri og leir. Veikindum í fjöl-
skyldunni mætti hún með kjarki
og dugnaði. Í sínum veikindum
sýndi hún einnig mikinn bar-
áttuvilja. Í tvö ár glímdi hún við
krabbameinið, sem hafði vinn-
inginn að lokum. Hún hélt sinni
reisn allt til loka. Ég mun sakna
trygglyndis hennar, uppörvandi
og góðs félagsskapar. Að leið-
arlokum þakka ég kærri mág-
konu minni samfylgdina og óska
fjölskyldu hennar velfarnaðar.
Álfdís Gunnarsdóttir.
Elskuleg mágkona mín, Jón-
ína Melsteð, er fallin frá. Við
kynntumst þegar ég var rétt um
átján ára gömul og Jónína á
fermingaraldri þegar við Símon,
eldri bróðir hennar, hófum sam-
búð. Um tíma bjuggum við báð-
ar á Rauðarárstígnum sem var
nokkurs konar fjölskylduhús
Melsteð-fjölskyldunnar og var
þá samgangur mikill.
Jónína var sterkur persónu-
leiki. Hún var mikil fjölskyldu-
manneskja og fylgdist vel með
öllum, bæði ungum og öldnum, í
fjölskyldu sinni, sinnti þeim og
lét sér annt um. Í sumarbú-
staðnum á Þingvöllum, hennar
heimasveit, áttum við saman
margar góðar stundir í tímans
rás. Hún hafði yndi af tónlist og
söng og við sungum um tíma
saman í kór.
Við höfum átt samleið í
gegnum lífið í ríflega fimmtíu
ár. Á þeim tíma höfum við
myndað trausta og góða vináttu
og gengið saman í gegnum þau
verkefni sem lífið hefur fært
okkur. Jónína átti fjóra albræð-
ur en þeir eru allir gengnir á
undan henni, margir hverjir
nokkuð ungir. Ég vil með þess-
um fáu orðum þakka Jónínu
fyrir vináttuna í gegnum árin
og allt það sem við áttum sam-
eiginlegt. Eiginmanni hennar,
börnum og fjölskyldu allri votta
ég mína innilegustu samúð.
Guð blessi minningu hennar.
Laufey Erla Kristjánsdóttir.
Fyrir um hálfri öld kynnt-
umst við hópur ungra kvenna
sem ýmist vorum í námi eða
giftar námsmönnum í Þránd-
heimi. Við stofnuðum sauma-
klúbb og hittumst með hann-
yrðir í þröngum húsakynnum
námsmanna, glöddumst saman
og nutum góðra veitinga. Við
fráfall vinkonu okkar, Jónínu
Melsteð, rifjast upp að það var
hún sem hóaði okkur saman í
framhaldsklúbb eftir að heim
var komið.
Síðan þá höfum við skipst á
að hafa saumaklúbb heima hver
hjá annarri eða farið saman út
að borða. Flestar búum við á
höfuðborgarsvæðinu en nokkrar
búa eða hafa búið úti á landi eða
erlendis. Það hefur þýtt ófá
ferðalög og stundum hafa mak-
ar verið með í för.
Jónína var sannur vinur og
bar hag annarra fyrir brjósti,
sem sýndi sig í því m.a. að hún
lagði á sig nám í FB til að geta í
framhaldi komist inn í Hjúkr-
unarskólann. Þá var hún þegar
orðin þriggja barna móðir og
það fjórða fæddist meðan hún
var enn í hjúkrunarnáminu.
Hún vann síðan við hjúkrun og
sinnti því starfi af alúð.
Jónína vildi alltaf drífa í hlut-
unum og kom oft með djarfar
hugmyndir. Hún hvatti mjög til
fararinnar þegar klúbburinn
ákvað að stefna á skemmtiferð
ásamt mökum til Prag. Í ferðina
komust þau Jónína og Gunnar
þó ekki í það sinn. Síðar fórum
við í eftirminnilega ferð saman
þegar ein úr hópnum bauð í
saumaklúbb til sín í London.
Heimili Jónínu var smekklegt
og bar vitni áhuga hennar fyrir
málaralist og tónlist. Orkidea
var hennar blóm. Hún eignaðist
sumarbústað í Þingvallasveitinni
og ekki fannst henni leiðinlegt
að geta boðið upp á nýveidda
murtu úr Þingvallavatni eitt
sinn er við sóttum þau hjón
heim.
Jónína sýndi óbilandi bar-
áttuþrek gegn krabbameininu
þegar í hlut átti dóttirin og síð-
ar hún sjálf. Hún trúði á bata
sér til handa allt til loka. Við
vinkonurnar minnumst hennar
af kærleik og þökkum samfylgd-
ina.
Við sendum fjölskyldu hennar
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Jónínu
Melsteð.
F.h. Þrándheimsklúbbsins,
Sigríður Ágústa
Ásgrímsdóttir.
Bognar aldrei brotnar í
bylnum stóra seinast.
(Stephan G. Stephansson.)
Nú hefur hún Jónína kvatt
þetta líf. Í fjölda ára var hún fé-
lagi í kórnum okkar. Há og
glæsileg var hún, alltaf glöð og
jákvæð. Þau hjón, Jónína og
Gunnar, voru dugleg að taka
þátt í félagslífi kórsins og um
tíma söng hann einnig með
kórnum.
Jónína var dugleg kona. Sér-
staka aðdáun vakti hún hjá okk-
ur félögunum þegar við fylgd-
umst með henni takast á við
veikindi og andlát dóttur þeirra.
Alltaf mætti hún á söngæfingar
og ef dáðst var að dugnaðinum
sagði hún: Það hjálpar að
syngja.
Í kjölfarið tók svo við hennar
eigin barátta við sama sjúkdóm.
Og enn fylltumst við aðdáun.
Enn sýndi þessi sterka kona
ótrúlegt æðruleysi. Hún barðist
hetjulega við óvininn og þær
stundir komu að við héldum að
hún hefði betur. En svo fór um
síðir að hetjan okkar varð að
játa sig sigraða. Það er tóma-
rúm á staðnum hennar í kórn-
um og munum við ætíð minnast
hennar með virðingu og þökk.
Gunnari og fjölskyldunni allri,
sem gengið hafa í gegnum svo
mikið á stuttum tíma, sendum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Kveikt er ljós við ljós, burt er sortans
svið.
Angar rós við rós, opnast himins hlið.
Niður stjörnum stráð, engill framhjá
fer.
Drottins nægð og náð boðin alþjóð
er.
(Stefán frá Hvítadal.)
Fyrir hönd Árnesingakórsins
í Reykjavík,
Herdís Petrína Pálsdóttir,
Ingibjörg Valdimarsdóttir,
Þorgerður Guðfinnsdóttir.
Jónína Melsteð
Það voru erfiðar
fréttir sem við
fengum hinn 28.
okt. síðastliðinn. Hafsteinn
frændi var alvarlega veikur og
ekki hugað líf. Við vissum að
frændi okkar lá inni á sjúkra-
húsi mikið veikur og var hann
búinn að vera á spítala um það
bil eina og hálfa viku mjög veik-
ur. Kom í ljós við nánari rann-
sóknir að Hafsteinn átti ekki
langt eftir og urðu þau veikindi
banamein hans á endanum.
Hafsteinn frændi lést á
Landspítalanum að morgni 29.
september eftir stutt en erfið
veikindi.
Elsku frændi, hvað við sökn-
um þín mikið, okkur verkjar í
hjartað meira en við við héldum
að væri hægt. Minningar
streyma fram og er þar efst
þegar við lékum við þig í að
skjóta niður plasthesta með
járnkúlu. Ógleymanlegar minn-
ingar flæða fram, þú varst dug-
legur í heyskap og þar fengum
við systkinin að vera með og
þótti okkur það ótrúlega gam-
an. Við fengum að sitja á hey-
vagninum fullum af heyi inn í
hlöðu. Ein af barnsminningum
okkar er þegar þú spilaðir
Hafsteinn
Kristinsson
✝ HafsteinnKristinsson
fæddist 3. mars
1963. Hann lést 29.
september 2016.
Útför Hafsteins
fór fram 15. októ-
ber 2016.
matador eða út-
vegsspilið við okk-
ur, þá bara litla
krakkaorma. Þú
varst okkur ávallt
góður og aldrei
voru nú lætin í þér,
allt var rætt á ró-
legu nótunum. Við
elskuðum þegar við
máttum koma með
þér og afa út á
sléttuna að stinga kola eða
draga inn net og sjá hvað var í
netunum hjá ykkur. Allar minn-
ingarnar sem við systkinin eig-
um um hann Hafstein væru efni
í góða bók .
Elsku frændi, við vitum að
afi hefur tekið vel á móti þér í
sumarlandinu og hugsar vel um
þig,
Þó sólin nú skíni á grænni grundu
er hjartað mitt þungt sem blý
því burt varst þú kallaður á á
örskammri stundu.
Í huganum hrannast upp sorgar ský.
Fyrir mér varst þú ímynd þess
göfuga og góða
svo fallegur einlægur og hlýr
en örlög þín ráðin – mig setur hljóða
við hittumst samt aftur á ný.
Megi algóður guð þína sálu nú
geyma.
Gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó kominn sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
Júlía, Stefán Ingi og
Svanur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
tengdafaðir,
ÞÓRIR HAUKUR EINARSSON,
fyrrv. skólastjóri,
Fiskinesi, Drangsnesi,
andaðist föstudaginn 21. október.
Útförin fer fram frá Drangsneskapellu
laugardaginn 5. nóvember klukkan 14.
.
Lilja Sigrún Jónsdóttir,
Hólmfríður Þórisdóttir, Pétur Örn Pétursson,
Þóra Þórisdóttir, Sigurður Magnússon,
Guðbjörg Þórisdóttir, Ágúst Þór Eiríksson,
Ásta Þórisdóttir, Svanur Kristjánsson,
Einar Haukur Þórisson, Kristjana Pálsdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma, dóttir og systir,
VALBORG STELLA HARÐARDÓTTIR,
Lundarbrekku 10, Kópavogi,
lést mánudaginn 24. október á Land-
spítalanum. Hún verður jarðsungin frá
Digraneskirkju föstudaginn 4. nóvember klukkan 13. Blóm og
kransar vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Krabbameinsfélagið.
.
Eggert Þór Jóhannsson,
Hörður Páll Eggertsson, Karen Ómarsdóttir,
Anton Ingi Eggertsson, Þorgerður Jónsdóttir,
Stefán J. Eggertsson, Jóhanna L. Brynjólfsdóttir,
barnabörn,
Pálína M. Stefánsdóttir,
Kristín Harðardóttir.
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
SOFFÍA WEDHOLM GUNNARSDÓTTIR,
sem lést miðvikudaginn 26. október, verður
jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn
4. nóvember klukkan 13.
.
Helgi Björnsson
Jóna Jóhannesdóttir Wedholm
Gunnar Wedholm Helgason Þóra Björk Eysteinsdóttir
Ólöf Helgadóttir Guðmundur J. Kristjánsson
Erlen Björk Helgadóttir Kristinn Ottason
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SJÖFN JÓHANNESDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
er látin. Útförin fer fram frá Akraneskirkju
föstudaginn 4. nóvember klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Höfða.
.
Jóhannes Guðjónsson, Guðrún J. Guðmundsd.,
Guðmundur Guðjónsson, Ólöf Guðmundsdóttir,
Hrefna Guðjónsdóttir, Sigurður Sigurðsson
og ömmubörn.