Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Qupperneq 17
Vikublað 24.–26. febrúar 2015 Fréttir Erlent 17
Hrópandi andstæður Flóttamaður skríður
á land eftir að hafa lifað af ferðalag á báti yfir Miðjarðarhafið í maí
2005. Í baksýn eru ferðamenn, eða heimamenn, að baða sig í sólinni á
Kanaríeyjum. Juan Medina ljósmyndari segir að þegar hann hafi mætt
á svæðið hafi Rauði krossinn verið að aðstoða fólkið; gefa því mat og
drykk. „Þau voru örmagna eftir ferðalagið. Styrkur myndarinnar felst
í andstæðunum sem birtast á henni.“ Fjölmargir flóttamenn láta lífið
í ferðum sem þessum á hverju ári – í leit sinni að betra lífi.
Olíuleki BP
Myndin sýnir fólk í
sólbaði á Dauphin
Island í Alabama í
Bandaríkjunum 11. maí
2010. Fyrir framan
fólkið, í sjávarmálinu, eru
heybaggar sem búið er
að setja upp til að drekka
í sig olíu sem gæti skolað
á land í kjölfar gríðarlegs
olíuleka olíurisans BP
í Mexíkóflóa. „Í mínum
huga sýnir myndin
glögglega hvernig
olíuleki getur haft áhrif
á ferðamannaiðnaðinn
og daglegt líf fólks.
Þetta sýnir líka hversu
einfaldar aðferðir eru
notaðar við að hreinsa
upp olíu.“
Söknuður Hin 25 ára Lesleigh Coyer liggur hér við grafreit bróður síns, Ryans Coyers, sem var banda-
rískur hermaður. Ryan starfaði bæði í Írak og Afganistan en hann lést í kjölfar meiðsla sem hann hlaut í átökum í
Afganistan. Myndin er tekin 11. mars 2013 í Arlington-kirkjugarðinum í Virginíuríki.
Í skot-
bardaga
William Olas
Bee, bandarískur
hermaður, sleppur
naumlega undan
kúlnahríð talíbana
í Helmand-héraði
í Afganistan í maí
2008. „Nokkrum
andartökum áður
en ég tók myndina
ráfaði ég um í
eyðimerkurhitan-
um og velti því fyrir
mér hvað ég gæti
myndað,“ segir
ljósmyndarinn
Goran Tomasevic.
Hann segist hafa
heyrt skothljóð
og drifið sig af
stað. „Ég greip
skothelda vestið
mitt, setti á mig
hjálm og dreif mig
af stað. Ef ég hefði
ekki þá þegar beint
vélinni að honum
hefði ég aldrei náð
þessari mynd,“
segir hann.
Látinn bróðir Georgískur maður heldur utan um látinn bróður sinn eftir að sprengjuárás var gerð á
bæinn Gori skammt frá höfuðborg Georgíu, Tblisi, í ágúst 2008. „Ég var á leið í frí þegar yfirmaður minn hringdi og
sagði mér að það hefðu brotist út átök milli Georgíumanna og Rússa,“ segir ljósmyndarinn Gleb Garnich. Hann segir
að maðurinn á myndinni hafi verið þjakaður af sorg vegna dauða bróður síns. „Hann leyfði engum að koma nálægt
honum.“
Hamfarir í Kína Asísk
kona grætur hástöfum því hún finnur
hvorki manninn sinn né fjögurra ára
dóttur eftir gríðarsterkan jarðskjálfta
sem skók suðvesturhluta Kína þann
17. maí 2008. Myndin var tekin fimm
dögum eftir skjálftann og fólk leitaði
í örvæntingu að ástvinum sínum,
að sögn ljósmyndarans Jason Lee.
„Skriða olli því að heill leikskóli grófst
undir jarðvegi og rústum. Konan á
myndinni grét hástöfum kallaði stöð-
ugt nafn dóttur sinnar [...] Hún sagði
að þetta væri allt sín sök því dóttirin
hafði um morguninn sagt að hún væri
veik og vildi ekki fara í leikskólann.“
Hrópar
á hjálp
Líbanskur maður
kallar á aðstoð fyrir
samborgara sinn
sem særðist þegar
bílsprengja sprakk
í miðborg Beirút,
höfuðborg Líbanon,
þann 14. febrúar
2005. Í þessari
sömu árás féll Rafik
al-Hariri sem þá var
forsætisráðherra
Líbanon. Auk Hariris
féllu átta aðrir, þar
á meðal nokkrir úr
lífvarðasveit for-
sætisráðherrans.
Ólýsanlegar hörmungar Börn voru meðal
fórnarlamba efnavopnaárásar sem gerð var á Duma-hverfið í
Damaskus í Sýrlandi þann 21. ágúst 2013. Árásin vakti heimsathygli
enda er notkun efnavopna bönnuð samkvæmt alþjóðalögum.
Afleiðingar árásarinnar voru skelfilegar eins og myndin ber með sér.
Talið er að 213 manns hafi fallið í árásinni.