Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Qupperneq 26
Vikublað 24.–26. febrúar 201526 Sport
S
einni leikirnir í 16 liða úrslitum
Meistaradeildarinnar fara
fram í vikunni og er óhætt
að segja að stórleikir séu
á dagskránni. Í kvöld,
þriðjudag, tekur Manchester City
á móti Barcelona og á sama tíma
taka Ítalíumeistarar Juventus á móti
Borussia Dortmund. Á miðvikudag
mætast Arsenal og Monaco í
Lundúnum og Bayer Leverkusen tekur
á móti Atletico Madrid í Þýskalandi.
Stórleikur í Manchester
Augu flestra munu eflaust beinast að
leik Manchester City og Barcelona.
Þessi lið mættust einnig í 16-liða úr-
slitunum í fyrra og þá fór Barcelona til-
tölulega létt með City. Fyrri leikurinn
á Etihad-vellinum í Manchester end-
aði með 2–0 sigri Barcelona og sá síðari
með 2–1 sigri Barcelona. Manchester
City hefur átt erfitt uppdráttar í Meist-
aradeildinni á undanförnum árum og
aldrei komist lengra en í 16-liða úrslit.
Á sama tíma hefur Barcelona unnið
keppnina þrisvar á síðustu níu árum.
Úrslitaleikurinn 1997
Hinn leikurinn á þriðjudag verður
einnig býsna athyglisverður. Þá mæt-
ast Juventus og Borussia Dortmund
en þessi lið mættust einmitt í úr-
slitaleik keppninnar árið 1997 þegar
Dortmund fór með 3–1 sigur af hólmi.
Gengi þessara liða í deildarkeppnun-
um heima fyrir hefur verið æði ólíkt.
Dortmund, sem margir spáðu góðu
gengi á tímabilinu, var í fallbaráttu í
þýsku deildinni framan af. Liðið hefur
þó unnið þrjá síðustu leiki sína og eru
batamerki sjáanleg á leik liðsins. Ítal-
íumeistarar Juventus hafa ekki verið í
neinu basli í ítölsku deildinni þar sem
liðið situr á toppnum með þægilegt níu
stiga forskot á Roma. Líkt og Manche-
ster City hefur Juventus þó ekki gert
neinar rósir í Meistaradeildinni á
undanförnum árum þrátt fyrir yfir-
burði heima fyrir. Liðið komst ekki upp
úr riðlakeppninni í fyrra og féll úr leik í
8 liða úrslitum tímabilið á undan.
Hægðarleikur fyrir Arsenal?
Flestir búast við því að það verði
hægðarleikur fyrir Arsenal að
komast í 8 liða úrslit keppn-
innar í ár. Liðið mætir
Monaco sem hefur geng-
ið upp og niður í frönsku
deildinni í vetur. Liðið situr í
5. sæti deildarinnar og virðist
búið að missa af lestinni í baráttunni
um Meistaradeildarsæti að ári. Arsene
Wenger, sem einmitt stýrði Monaco
árin 1987 til 1994, og lærisveinar hans
hjá Arsenal hafa mikla reynslu úr
Meistaradeildinni og ættu að komast
klakklaust í 8 liða úrslit keppninnar ef
allt er eðlilegt.
Leverkusen í basli
Fjórði leikurinn á dagskránni er svo
viðureign Bayer Leverkusen og Atletico
Madrid. Gengi Leverkusen í
þýsku deildinni hefur valdið
stuðningsmönnum liðsins
nokkrum vonbrigðum en liðið
situr í 6. sæti. Atletico Ma-
drid, sem komst alla leið
í úrslit í fyrra, er í 3. sæti
spænsku deildarinnar
og er sigurstranglegra
liðið fyrir þessa viður-
eign. n
Risaleikur í Manchester
n 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar halda áfram n Manchester City mætir Barcelona
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Einvígin í vikunni
Bayer Leverkusen
Sæti í deild: 6. sæti
Besti árangur í Meistaradeild: 2. sæti 2002
Bayer Leverkusen lék í C-riðli með Monaco þar
sem Þjóðverjarnir enduðu í 2. sæti. Fáir hafa trú
á því að Leverkusen fari lengra en í 16 liða úrslit.
Liðinu hefur gengið afleitlega í síðustu leikjum; í
síðustu 11 hefur liðið aðeins unnið þrjá leiki, gert
fimm jafntefli og tapað þremur leikjum. Það er lítill
meistarabragur á Leverkusen þessa dagana.
Manchester City
Sæti í deild: 2. sæti
Besti árangur í Meistaradeild: 16-liða úrslit
Manchester City varð að gera sér 2. sætið að góðu í
E-riðli en liðið tryggði sig áfram með góðum sigri á
Bayern München í lokaleiknum. Gengi City í ensku
úrvalsdeildinni hefur verið þokkalegt en liðið er
fimm stigum á eftir toppliði Chelsea og á mikið verk
fyrir höndum ætli það sér að verja titilinn sem liðið
vann í fyrra.
Juventus
Sæti í deild: 1. sæti
Besti árangur í Meistaradeild: 1 sigur (1996)
Juventus hefur sem fyrr segir borið höfuð og herðar
yfir önnur félög í ítölsku deildinni á undanförnum
árum. Liðið siglir hraðbyri að sínum fjórða deildar-
meistaratitli á jafnmörgum árum. Liðið er taplaust
í tuttugu og einum leik í röð, ef undan er skilið tap
gegn Napoli eftir vítaspyrnukeppni í ítalska bikarn-
um rétt fyrir jól.
Monaco
Sæti í deild: 5. sæti
Besti árangur í Meistaradeild: 2. sæti 2003
Þó að Monaco hafi endað á toppi C-riðils er liðið líklega
eitt það lakasta sem eftir er í 16 liða úrslitunum.
Nokkrir frábærir leikmenn eru þó á mála hjá Monaco;
má þar nefna Dimitar Berbatov, Joao Moutinho, Layvin
Kurzawa og Geoffrey Kondogbia. Monaco er sýnd veiði
en ekki gefin en það verður við ramman reip að draga
þegar Arsenal kemur í heimsókn á frönsku Rívíeruna.
Barcelona
Sæti í deild: 2. sæti
Besti árangur í Meistaradeild: Þrír sigrar
Fá lið standast Barcelona snúning eins og liðið hefur
leikið að undanförnu. Liðið hefur unnið 11 af síðustu
tólf leikjum sínum og er markatala liðsins í þessum
leikjum 42–9. Liðið hefur á að skipa magnaðri
framlínu þar sem Neymar, Messi og Suarez eru
fremstir í flokki. Það er ljóst að City þarf á tveimur
toppleikjum að halda til að slá Barcelona úr keppni.
Borussia Dortmund
Sæti í deild: 15. sæti
Besti árangur í Meistaradeild: Sigur 1997
Borussia Dortmund hefur náð fínum árangri í
Meistaradeildinni á undanförnum árum. Liðið komst
í úrslit vorið 2013 þar sem liðið tapaði gegn Bayern
München. Þrátt fyrir afleitt gengi í þýsku deildinni í
vetur lék liðið ágætlega í Meistaradeildinni og endaði
í 1. sæti D-riðils. Í raun er ómögulegt að spá fyrir um
einvígi liðsins við Juventus.
Arsenal
Sæti í deild: 5. sæti
Besti árangur í Meistaradeild: 2. sæti 2006
Arsenal hefur ekki haft heppnina með sér í 16 liða
úrslitum Meistaradeildarinnar á undanförnum
árum þar sem liðið hefur jafnan dregist gegn betri
liðum. Nú mætir liðið hins vegar Monaco og hafa
stuðningsmenn Arsenal fullt tilefni til bjartsýni.
Liðið hefur unnið átta af síðustu níu leikjum sínum
og virkar í fínu standi.
Atletico Madrid
Sæti í deild: 3. sæti
Besti árangur í Meistaradeild: 2. sæti 2014
Atletico Madrid kom allra liða mest á óvart á síðustu
leiktíð þegar liðið hampaði spænska meistaratitlinum og
komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Liðið hefur verið
á ágætu flugi í vetur þó að það hafi ekki náð sömu hæðum
og í fyrra. Flestir búast við því að Atletico fari nokkuð
örugglega áfram úr einvíginu og það ekki að ástæðulausu.
Liðið er einfaldlega sterkara en Bayer Leverkusen.
Þriðjudagur
Miðvikudagur Miðvikudagur
Þriðjudagur
Frábærir Diego Godin fagnar marki sínu
gegn Real Madrid í úrslitaleik Meistara-
deildarinnar í fyrra. Hvað gerir liðið gegn
Bayer Leverkusen?
Illviðráðanlegur Lionel
Messi sýnir hér listir sínar í
leik gegn Manchester City í
16 liða úrslitum keppninnar í
fyrra. Barcelona vann einvígið
örugglega. Hvað gerist núna?