Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Page 28
28 Lífsstíll Vikublað 24.–26. febrúar 2015
Alexandra Sif
Nikulásdóttir
ale_sif@hotmail.com
Ale hafraklattar
Hollir og góðir klattar sem innihalda hvorki hvítan sykur né hveiti
Innihald Ale hafraklatta
n 250 gr bananar (þeir sem eru með
ofnæmi fyrir banana geta notað epli)
n 1 heilt egg
n 1 hvíta
n 130 g hafrar
n 70 g rúsínur eða döðlur (sjálf nota ég
rúsínur)
n 1 msk. gróft kókosmjöl
n Hreinn kanill eftir smekk
Aðferð
Ég byrja á því að stappa niður ban-
anana með sama tóli og er notað
til þess að stappa kartöflur í kart-
öflumús. Þannig næ ég að mauka
þá vel. Því næst bæti ég egginu og
hvítunni við maukið og þeyti mjög
vel saman með gaffli, ég er ekk-
ert að flækja þetta neitt, gaffallinn
veitir meiri ást í baksturinn. Eft-
ir að hafa þeytt baunamaukið og
eggin vel saman með gafflinum er
næsta skref að bæta við höfrunum.
Þeim blanda ég hægt og rólega
saman við deigið. Eftir það bæti ég
svo við rúsínum og kókos. Það er
gott að dreifa því vel út í allt deg-
ið svo rúsínurnar endi ekki bara á
einum stað. Punkturinn yfir i-ið er
svo kanillinn, það er hann sem gef-
ur gott bragð og finnst mér sjálfri
einstaklega gott að hafa hann í
mjög miklu magni.
Ég leyfi þessu að standa í stutta
stund ofan í skálinni áður en ég set
þetta í ofninn. Deigið set ég svo í eld-
fast mót með bökunarpappír undir,
til þess að koma í veg fyrir að þetta
festist við mótið. Þetta baka ég á
blæstri með hita uppi og niðri við
180° gráður í u.þ.b. 15–20 mínútur
eða þangað til deigið er orðið nokkuð
fast í sér og smá „krispí“ á hliðunum.
Mjög góð regla er að baka þá ekki of
lengi, því þá verða þeir of þurrir.
Geymsla
Eftir að ég tek þá úr ofninum
læt ég þá standa í smá stund og
kólna áður en ég skipti þessu svo
niður í fjóra jafna bita. Ég baka
jafnan nokkrar svona uppskrift-
ir í einu, um 3–4 á sunnudegi
þegar ég er í undirbúningsskapi
og set í poka til að eiga fyrir vik-
una. Ég set yfirleitt nokkra í kæl-
inn, en restinni kem ég fyrir í
frystinum. Það er virkilega hent-
ugt að geta tekið þá út kvöldið
áður svo þeir þiðni og eiga fyrir
næsta dag.
Þegar mig langar til að gera
vel við mig bæti ég smá dökku
súkkulaði út í uppskriftina og
aukalega af kókos. Kókosinn
bráðnar inn í deigið og gerir
þetta enn meira djúsí og sætara.
Að lokum er bara að njóta!
É
g veit fátt betra en að borða
góðan mat og ég er einstaklega
skotin í að gera hann hollan
og góðan. Enn skemmtilegra
finnst mér að deila slíkum un-
aði með öðrum þegar ég „gúrma“
fram girnilegar uppskriftir. Þessi
uppskrift sem mig langar að deila
með ykkur núna hefur svo sannar-
lega slegið í gegn hjá þeim sem eru
í þjálfun hjá okkur og fylgjast með
blogginu mínu. Ég get ekki annað en
brosað þegar ég sé „Ale hafraklattar“
í yfirferð matardagbóka í vinnunni.
Eitt sem mig langar að benda
á er að þó svo að vara beri nafnið
hafraklatti, þá þýðir það ekki að sú
vara sé holl. Mikið af þeim klöttum
sem fást í matvöruverslunum inni-
heldur töluvert magn af hitaein-
ingum sem og hvítan sykur. Sum-
ir þeirra geta innihaldið rúmar 500
kaloríur sem er talsvert mikið magn
fyrir svo litla fyllingu í magann.
Ég, sem hafraklattaáhugamað-
ur og bökunaróð í þokkabót, sá mér
ekki annað fært en að taka málin í
mínar eigin hendur.
Þar af leiðandi útbjó ég mína
eigin uppskrift, sem er talsvert betri
kostur og hægt að nýta sem millimál
eða máltíð fyrir æfingu hvenær sem
er dagsins.
Einn slíkur klatti inniheldur um
það bil 270 hitaeiningar. Við ráð-
leggjum þeim konum sem eru í þjálf-
un hjá okkur að miða við að hvert
millimál sé á bilinu 200–300 hitaein-
ingar.
Það góða við klattana er að þeir
innihalda hvorki hvítan sykur né
hveiti. n
Minn uppáhaldsdagur fyrir undirbúning er
án efa sunnudagur en þá er helgin að enda
og ný vika að hefjast.
Mér finnst svo ótrúlega gott að byrja
hverja viku vel og leggja drög að því sem
koma skal. Mér leiðist þessar tilvitnanir
sem birtast oft á samskiptamiðlum eftir
helgina og tal um mánudaga sem leiðin-
legan dag, mánudagar eru frábærir!
n Ég hef ávallt einn ákveðinn dag sem ég
fer í búðina og kaupi inn fyrir vikuna. Áður
en ég fer hef ég skrifað niður allt sem mig
vantar og kem því vel undirbúin í hvern
verslunarleiðangur.
n Tvisvar í viku elda ég kjúklingabringur
á heilsugrillinu mínu eða í eldföstu móti í
ofninum.
Þeim skelli ég svo í loftþétt nestisbox sem
ég keypti í IKEA og á inni í ísskáp til að grípa
í þegar ég kem heim á kvöldin.
n Ég á svo alltaf nóg til af hollu meðlæti
til þess að matreiða auðveldar en samt
sem áður hollar og góðar máltíðir. Eins og
t.d. hrísgrjón, vefjur, salsasósu, grænmeti,
jógúrtsósu, speltpasta, tómatmauk,
sólþurrkaða tómata og egg.
n Ég baka mjög oft hafraklattana mína á
sunnudögum og á til í frysti yfir vikuna.
n Á kvöldin finnst mér gott að setja allt
sem ég þarf í tösku fyrir æfingu og vinnuna.
Þannig þarf ég ekki að eyða tíma í að tína
það til þegar ég vakna fersk fyrir morgun-
æfingu klukkan 5.20.
n Ein bestu kaup sem ég hef gert er
kælitaskan mín, hún minnir mig helst á
þegar maður nestaði sig á grunnskólaár-
unum. Í töskuna set ég það sem ég ætla að
borða yfir daginn í vinnunni. Þannig spara
ég talsverðan pening sem myndi fara í
óþarfa matarkaup, ásamt því að ég hef
alltaf eitthvað hollt til að grípa í.
n Ef ég borða ekki nógu vel og reglulega
yfir daginn verð ég oft eins og hungraður
úlfur á kvöldin sem gæti borðað allan
heiminn. Þess vegna passa ég mig alltaf að
vera meðvituð um að borða reglulega og
hlusta á líkamann.
Vonandi nýtast þessar ábendingar ein-
hverjum til góðs.
Ég bendi einnig á að fleiri hollar og
einfaldar uppskriftir er hægt að finna í
mataralbúmi sem ég held úti á „likesíðunni“
minni - facebook.com/betriale
Undirbúningur
Stuðlaðu að
árangri með
skipulagi
Nokkrir góðir punktar til
að hafa bak við eyrað
Jákvætt hugarfar
n Þú getur ekki lifað jákvæðu lífi með
neikvæðu hugarfari.Þess vegna er
mjög mikilvægt að temja sér jákvætt
hugarfar, þannig ert þú komin hálfa
leið að settu marki.
Hugarfarið
n Hugurinn þarf að vera á réttum stað
til þess að þú náir árangri. Það eru ekki
einungis líkamleg átök að koma sér í
form, þar leikur hugurinn einnig stórt
hlutverk.
n Mundu að gera þetta fyrir ÞIG
n Þú þarft að sækjast eftir þessum
árangri fyrir þig og engan annan.
Hlustaðu á þjálfarann
n Það er ástæða fyrir að þú valdir
þennan þjálfara og því skaltu hlusta á
hans ráð og treysta.
Síðast en ekki síst
n Hafðu gaman af því sem þú ert að
gera, það að mæta í ræktina á ekki að
vera kvöð. Minn uppáhalds tími yfir
daginn er að mæta á æfingu og taka
vel á því. Þannig næri ég bæði líkama
og sál.
Skipulag í kringum
mataræði og æfingar
„Fail to prepare, prepare to
fail“ – Benjamin Franklin
Það er mjög mikið til í
þessari tilvitnun. Ég bæði
þekki það af eigin raun
og sé hve mikilvægt gott
skipulag er fyrir þær sem
ætla sér að ná árangri hjá
okkur í þjálfuninni. Leiðin
að betri árangri verður
svo mikið greiðari með
góðu skipulagi. Þá ekki
einungis til að halda góðu
mataræði, heldur einnig
til að mæta á æfingar.
Ég sjálf er mjög öguð týpa, enda er það
einn af þeim eiginleikum sem hafa komið
mér hvað lengst í gegnum minn árangur í
bland við metnað og jákvæðni.
Ég elska góða rútínu og að undirbúa mig
fyrir næstu daga. Þrátt
fyrir að það kosti auka
vinnu þann daginn, þá
skilar það sér alltaf seinna
meir.
Þetta snýst allt um að
temja sér betri venjur og
aðlagast aðstæðum.
Þegar skipulagið er ekki
til staðar er svo auðvelt að
fara út af sporinu og jafnvel
breytast í lítið skrímsli
sem getur borðað það sem
hendi er næst, oftar en ekki
eitthvað sætt og óhollt. Þess vegna er gott
að vera ávallt vel undirbúin fyrir daginn og
taka með sér nesti í vinnuna eða skólann
þegar þess er þörf.
Það eru nokkrir hlutir sem ég geri til þess
vera skipulögð og auðvelda sjálfri mér lífið.
Girnilegir
Hafraklattarnir
innihalda
hvorki hveiti né
hvítan sykur.