Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Page 29
Vikublað 24.–26. febrúar 2015 Lífsstíll 29 S ítrónur eru stútfullar af C- vítamíni sem er akkúrat það sem við gætum ver- ið að fara á mis við svona á miðjum vetri þegar kvef- pestirnar hrjá okkur sem mest. Ein sítróna uppfyllir dagsþörf okkar af C-vítamíni, auk þess að vera vatns- losandi og bólgueyðandi. Þá er um að gera að skella nokkrum mat- skeiðum af nýkreistum sítrónusafa út í glas með volgu vatni og fá sér í morgunsárið. Örvar meltingu Sagt er að sítrónusafinn hjálpi lík- amanum að losna við óæskileg aukaefni og örvi þarma og meltingu. Eins furðulega og það hljómar þá hefur súr sítrónusafinn einmitt öfug áhrif á sýrustigið í líkamanum. Lík- aminn verður basískari, pH-gildið hækkar og líkaminn er þá talinn geta betur barist gegn kvefpestun- um sem virðast hrjá annan hvern mann þessa dagana. Notum börkinn líka Börkurinn utan af sítrónu er svo ekki síðri. Hér er fínrifinn börkur notaður til að krydda kjötbollurnar. Ótrúlega frísklegt og gott, yndislegt að fá smá Miðjarðarhafsstemningu á heimilið í febrúar. n Leggðu rækt við þig og lifðu góðu lífi! Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Við höfum um áraraðir boðið konum á öllum aldri fjölbreytta, heilsueflandi líkamsrækt og leggjum metnað í að veita vandaða og örugga þjálfun sem byggir upp og viðheldur líkamshreysti. Æfingakerfi okkar miðast við að skapa vellíðan og leggja þannig grunn að auknum lífsgæðum. E F LI R a lm an na te ng s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í sk h ön nu n Staðurinn - Ræktin 1-2-3. NÝTT ÞJÁLFUNARKERFI JSB: Mikið úrval af opnum tímum frá morgni til kvölds. Blönduð æfingatækni þar sem rík áhersla er lögð á rétta líkamsbeitingu. Bjóðum sérsniðin kort fyrir þínar þarfir • Hvað má bjóða þér marga mánuði? • Staðgreiðslu eða áskrift? • Kynntu þér málið á jsb.is. LOKAÐIR TÍMAR: Námskeið. Einstaklingsmiðaðri tímar og meira aðhald. Frjáls mæting í opna tíma og tækjasal. TT- Frá toppi til táar • TT3-Taktu þér tak (16 - 25 ára) FIT FORM (50 - 60+) • MÓTUN • YOGA STUTT OG STRANGT • FJÖLÞJÁLFUN Sjá nánari upplýsingar á jsb.is Innritun stendur yfir á öll námskeið Þú getur strax byrjað að æfa Finndu þinn tíma: Sítrónuangandi kjötbollur með sérrírjómasósu Í eldamennsku er alltaf gott að nota lífrænt ræktaðar sítrónur. Venjulegar sítrónur þarf að skola og skrúbba vandlega upp úr volgu vatni til að ná vaxáferðinni af berkinum. Þessi réttur er tilvalinn fyrir stærri matarboð því það er auðvelt að stækka uppskriftina og undirbúa eldamennskuna að miklu leyti fyrirfram. Móta kjötbollurnar og geyma í kæli, undirbúa hvítlaukssveppina og rífa niður parmesanostinn. Bollur n 800 g svínahakk n 1 laukur, saxaður n steinselja, handfylli, söxuð n börkur af einni sítrónu, fínrifinn n salt og pipar Kveikið á ofni: 200 gráður. Auðveldast er að skella hakkinu, saxaða lauknum, rifnum sítrónuberkinum, nokkrum góðum snúningum af nýmuldum pipar, salti og steinseljunni í matvinnsluvél og láta hana í gang þar til allt er vandlega blandað saman. Mótið um 20 kjötbollur á stærð við golfkúlur og setjið á bökunarpappírsklædda ofnskúffu. Best er að rúlla í höndum því þá verða bollurnar jafnari í áferð og stærð. Smellið þeim inn í ofn, þær ættu að vera tilbúnar eftir 25 mínútur. Á meðan eru hvítlaukssveppirnir undirbúnir. Hvítlaukssveppir n 1–2 pakkar sveppir, snyrtir og stöngullinn tekin af n 2 hvítlauksgeirar, skornir í þunnar sneiðar n 2 msk. olía n salt og pipar Sveppahöttunum er raðað á eldfast fat. Hvítlaukssneiðunum dreift yfir, olíunni einnig og salti og pipar stráð yfir herlegheitin. Sett inn í ofninn á grind fyrir neðan kjötbollurnar þegar um 15 mínútur eru í að bollurnar verði tilbúnar. Sérrírjómasósa n 1 dl sérrí n 2,5 dl sýrður rjómi Þegar allt í ofninum er tilbúið er það tekið út, panna hituð og sveppunum ásamt vökva hellt í pönnuna. Sérrí og sýrðum rjóma bætt við og leyft að malla við lágan hita í nokkrar mínútur. Vökva af kjötbollunum má nota út í sósuna. Bragðbætið með salti og pipar. Pestóparmesanspagettí n 500 g spagettí n 4 msk. pestó að eigin vali n tvær vænar lúkur af nýrifnum parmesanosti Spagettí soðið samkvæmt leið­ beiningum. Vatni hellt af og pestó og parmesanosti hrært saman við. Framreiðslan fer svo eftir smekk. Hægt er að færa kjötbollurnar yfir í rjómasósuna, strá saxaðri steinselju yfir og bera fram með spagettíinu. Það er líka fallegt að setja kjötbollurnar á fat og hvítlauksrjómasósuna til hliðar. Girnilegt Stútfullt af prótíni og vítamínum. Sælkerahorn Beggu Bergljót Halldórsdóttir Ritstjóri Sælkerapressunnar ­ pressan.is/ saelkerapressan. MyNdir SiGtryGGur Ari „Ein sítróna upp- fyllir dagsþörf okkar af C-vítamíni. Öðruvísi sítrónukjötbollur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.