Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Blaðsíða 2
Vikublað 3.–5. mars 20152 Fréttir
Íslenskir skartgripir
Úra og skartgripaverslun Heide Glæsibæ
Tilvalin fermingargjöf
Við erum líka á Facebook
E
ngin áform hafa verið lögð
fram um að lækka gjaldskrár
Orkuveitu Reykjavíkur fyr-
ir heitt vatn, rafmagn, kalt
vatn eða fráveitu eftir stór-
fellda hækkun árin 2010 og 2011. Þá
neyddist OR til þess að grípa til víð-
tækra ráðstafana til þess að bjarga
fyrirtækinu frá greiðsluþroti. Skuldir,
aðallega í erlendum gjaldmiðlum,
höfðu hækkað og urðu mestar um 233
milljarðar króna. Staðan hefur batnað
umtalsvert frá hruni og nema skuldir
OR nú um 175 milljörðum króna.
Neyðaraðgerðir
Til þess að bregðast við vanda OR var
samin aðgerðaáætlun sem rennur
sitt skeið á næsta ári. Hún fólst með-
al annars í miklum gjaldskrárhækk-
unum, frestun fjárfestinga, lækkun
rekstrarkostnaðar og eignasölu.
Eigendur OR lögðu inn í þessa áætl-
un 12 milljarða króna víkjandi lán til
þess að verja OR frekari áföllum.
Ráðgert var að á gildistíma áætl-
unarinnar til ársins 2016 skili gjald-
skrárhækkanir einar og sér liðlega
8 milljörðum króna. Þannig var frá-
veitugjald hækkað um 45 prósent í
einu lagi árið 2011 og heitt vatn um
8 prósent. Árið áður hafði rafmagns-
verð til neytenda hækkað um 11 pró-
sent, verð á heitu vatni um 35 pró-
sent og dreifing á rafmagni, sem
verðlögð er sérstaklega, hækkaði um
40 prósent.
Í ágúst 2010 sagði í tilkynningu
frá OR að fjögurra manna fjölskylda
í 130 fermetra íbúð í fjölbýli mætti
búast við um 2.400 króna hækkun
útgjalda á mánaðarlegum orkuút-
gjöldum. Það nemur um 29 þúsund
krónum á ári.
Svört skýrsla
Gjaldskrárhækkanirnar og önnur
viðleitni OR til að auka tekjur kom í
kjölfar úttektar, meðal annars rýni-
hóps, sem birti æði svarta skýrslu í
febrúar 2011. Þar var meðal annars
vakin athygli á nauðsyn þess að
hækka gjaldskrár verulega og um-
fram áætlanir til að mæta áföll-
um vegna hrunsins og gengisfalls
krónunnar. Í skýrslunni kom með-
al annars fram að nánast allar fjár-
festingar OR frá 2007 til ársloka 2008
hefðu tapast, að lágmarki 30 millj-
arðar króna á verðlagi ársins 2007.
Á það var bent af rýnihópnum
að æði róttækar aðgerðir árið 2010
til að bæta stöðu OR, meðal annars
með gjaldskrárhækkunum hefðu
bætt stöðuna umtalsvert. „Nú liggur
fyrir fagleg úttekt sem staðfestir að
þessar aðgerðir nægja alls ekki til að
tryggja rekstrarhæfni OR og aðgengi
að nauðsynlegu fjármagni vegna
fjárfestinga og endurfjármögnun-
ar lána til næstu ára. Mikið vantar
á að OR komist í svokallaðan fjár-
festingarflokk samkvæmt kenni-
tölum Moody's. Það er því að mati
rýnihópsins brýn þörf á að finna nýj-
ar leiðir til að treysta fjárhagsstöðu
fyrir tækisins,“ segir í lok skýrslu rýni-
hópsins í febrúar 2011.
Á það er að líta að gjaldskrá OR
hafði ekki fylgt verðlagi síðasta ára-
tuginn og fram til ársins 2010. Orku-
reikningar heimilanna höfðu því
lækkað í samanburði við margvísleg
önnur útgjöld heimilanna. Hækkun-
in 2010 og 2011 var því afar brött og
þungbær fyrir heimilin.
Í ársskýrslu OR 2012 er gjaldskrár-
hækkunin nefnd leiðrétting. Hún
hafi átt að auka tekjur á tímabilinu
2011 til 2012 um nær 2,7 milljarða
króna. „Það náðist og 654,3 milljón-
um króna betur.“ Reyndin varð sú
eftir gjaldskrárhækkanirnar að árið
2012 voru þær um 42 prósentum yfir
áætlun og heilum 78 prósentum yfir
áætlun árið 2013.
Ekki ljóst hvað verður eftir 2016
Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafull-
trúi OR, segir að stóru skrefin hafi
„Engri
lækkun
vErið lofað“
n Stórfelld gjaldskrárhækkun OR eftir hrun
stendur enn n Björgunaraðgerðum OR lýkur 2016
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is „… gjaldskrárhækk-
anirnar árið 2012
voru um 42 prósentum
yfir áætlun og heilum 78
prósentum yfir áætlun
árið 2013.
Engar ákvarðanir Eiríkur Hjálmarsson
segir ekki ljóst hvað við tekur árið 2016 eftir
að aðgerðaáætlun til bjargar OR lýkur, verið
sé að móta stefnuna.
Íslenskur kennari fer á flug á netinu
Tilraun hjá kennara til að sýna fram á hættur netsins
M
ynd sem Rakel Tanja
Bjarnadóttir, sem kennir
áfanga um lýðræði og
mannréttindi fyrir fimmta
bekk í Álftanesskóla, lét taka af sér
og sendi vinum á Snapchat hef-
ur verið deilt meira en tvö þúsund
sinnum. Myndina sendi Rakel til
að sýna nemendum sínum, með
óhefðbundinni aðferð, að það verð-
ur að fara varlega þegar kemur að
því að senda myndir og skilaboð á
netinu.
Bjuggu þau til spjald með
skilaboðunum: „Þetta er private
Snapchat mynd. Nemendur mínir
í lýðræði og mannréttindi í fimmta
bekk halda að myndin fari bara á
Snapchat. Mig langar að sjá hversu
langt hún fer á viku.“
Nemendur Rakelar tóku mynd
af henni með spjaldið og hún sendi
svo um 15 vinum sínum
myndina á Snapchat.
Hún spurði svo nem-
endur sína hversu langt
þeir héldu að myndin
færi.
„Krakkarnir héldu
að myndin færi ekki
neitt þar sem ég sendi
þetta sem einkaskila-
boð. Ég gerði sjálf
ráð fyrir að einhver
myndi taka skjáskot af
myndinni og hún fengi
svona mesta lagi 17
Facebook-deilingar.“
Rakel segist varla
trúa viðbrögðun-
um. „Þetta er hálf-
gerð klikkun. Ég er í
smá sjokki en vissi að hún gæti far-
ið langt en kannski ekki svona langt.
Ég veit af deilingu
frá Kanada, Texas og
víða í Evrópu. Ég hef
enga stjórn á þessu.
Það sem er líka klikk-
að er að þetta eru bara
deilingar en ég veit
ekkert hversu margir
hafa séð myndina
og eru þeir örugg-
lega miklu fleiri. Til-
ganginum er náð nú
þegar enda deilingar
löngu komnar yfir það
sem ég reiknaði með.
Þetta kennir okkur að
passa hvað maður set-
ur á netið. Sama hvort
það er mynd eða texti.
Það sem er „private“ er
ekkert endilega „private“. n
johannskuli@dv.is
Rakel Tanja Þetta er
myndin sem Rakel sendi
nokkrum vinum sínum á
Snapchat.
Lögregla kvödd
til vegna titrara
Lögreglan á Suðurnesjum var ný-
verið kvödd að einum landgangi
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna
tösku sem verið var að ferma um
borð í flugvél á leið til London.
Þetta kemur fram í dagbók lög-
reglunnar.
„Þótti taskan sú arna láta
heldur grunsamlega því hún var
öll á iði. Lögreglumenn höfðu
uppi á eiganda hennar, erlendri
konu, og veitti hún leyfi til þess
að taskan yrði opnuð. Gaf þá að
líta tæki sem konur hafa stund-
um við höndina sér til yndisauka,
svokallaðan titrara, sem hrokkið
hafði í gang. Var slökkt á tækinu
og taskan sett um borð að því
búnu,“ segir í dagbók lögreglu.
Þar segir að atvik af svipuðu
tagi eigi sér alltaf öðru hvoru stað
á Keflavíkurflugvelli og er flugfar-
þegum bent á að ganga þannig frá
rafmagnstækjum, svo sem rakvél-
um, tannburstum og öðru slíku,
að þau geti ekki hrokkið í gang við
minnsta núning eða högg.
Innkalla
Energy
For You
Vörur sem framleiddar eru
fyrirtækinu Energy For You, á
Íslandi, hafa verið innkallað-
ar af Heilbrigðis-
eftirliti Reykja-
víkur. Vörurnar
heita Nanoclust-
ered Water og
Wayback Water.
Komið hefur í
ljós að vörurnar
voru framleiddar
án starfsleyfis og
við aðstæður sem
samræmast ekki lögum um
matvæli.
Samkvæmt upplýsingum frá
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur
hafa vörurnar verið til sölu í
tveimur verslunum, Heilsu-
torgi Blómavals og í Lyfsalanum
Glæsibæ. Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur kveðst ekki geta
fullyrt að varan sé örugg til
neyslu. Þeir sem hafa keypt um-
ræddar vörur eru beðnir um að
neyta þeirra ekki. Er fólk hvatt
til að henda þeim eða skila til
þeirrar verslunar þar sem hún
var keypt.