Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Blaðsíða 22
22 Umræða Vikublað 3.–5. mars 2015 Bullandi minnimáttarkennd Umsjón: Henry Þór Baldursson Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni E f marka má framkomu landsmanna og þeirra sem stjórna gæti maður haldið að Ísland væri vonlaust. Allt virðist einhvern veginn vefj- ast jafnt fyrir þjóðinni og leiðtogum hennar. Tvær mikilvægar ástæður fyrir þessu eru skortur á hæfileikum við að skilgreina og ótti við að horf- ast í augu við það sem er veruleiki fámennrar eyþjóðar. Svo dæmi sé nefnt er hið mikla þras en engin niðurstaða hvað varðar kvótakerfið í sjávarútvegi. Yfirleitt eru menn sammála um að þjóðin eigi auðlind hafsins með þeim fiski sem hefur haldið sig frá upphafi á sömu slóðum. En hver á að ráða yfir miðunum? Þjóðin. Það er svarið. En hvað er þjóðin í þessu tilviki. Er hún ríkisstjórnin sem situr að völdum hverju sinni? Er ráðlegt að afhenda útgerðinni auðlindina og láta hana ráða, selja eða kaupa kvóta? Hvað er þá „út- gerðin“? Hún er ekki eitthvað var- anlegt heldur breytilegt af því að útgerðarmenn deyja og nýir taka við. Ætli sé hægt að einkavæða haf- ið? Þessu er ósvarað af því að skil- greiningu vantar á flestum aðstæð- um þjóðarinnar og eðli hennar. Þjóðin og stjórnvöld lenda í svipuðum vanda hvað varðar nátt- úrupassa. Hann er talinn nauðsyn til þess að fá fé í það að halda uppi ferðamannastöðum. Ísland er ekki safn sem hægt er að selja að- gang að eins og söfn í öðrum lönd- um. Það þykir sjálfsagt að borga sig inn á þau. En þótt landið sé það sem hægt væri að kalla náttúru- safn hagar þannig til að náttúran er úti um allt og fjöll, dalir og foss- ar liggja í augum uppi. Til þess að skoða „perlurnar“ þarf ferðamað- urinn ekki nauðsynlega að kaupa aðgangsmiða. Hekla er ekkert fal- legri eða merkilegri í nálægð en í fjarlægð. Við að skoða hana þarf maður engan passa. En það er til undantekning hvað náttúru Íslands varðar, Bláa lónið, sem er tilbúin náttúra, gerð af manna höndum. Útlendingar og innfæddir eru fús- ir til að greiða hátt gjald til þess að njóta hinnar einu fölsku náttúru í náttúru landsins. Þannig er aðstaða okkar á flest- um sviðum. Hún er önnur en í öðr- um löndum og þjóðin verður að lúta sérstöðu sinni og una við hana að svo miklu leyti sem slíkt er hægt. Við höfum í raun ekki upp á annað verðmætt að bjóða en náttúruna. Rótgróna menningu vantar, þá sem háir og lágir sækjast eftir, ríkir og fá- tækir og eru reiðubúnir til að borga fyrir að mega njóta hennar, mann- virkja og safna. Til að forðast að horfast í augu við staðreyndir fámennrar þjóðar er sífellt verið að færa í fjölmiðlum fréttir af afrekum einstaklinga úti í „hinum stóra heimi“. Síðan reyn- ast afrekin vera að mestu tilbún- ingur. Fréttirnar lýsa örvæntingar- fullri þörf fyrir að öðlast frægð sem er álíka varanleg og umhleypingar síðla vetrar. Ólán okkar á sviði útrásar til ímyndaðs lífs hófst þegar herinn kom í heimsstyrjöldinni og viðhorfið til þjóðarinnar og eðlis hennar breyttist í öfugu hlutfalli við getu til stöðugleika. Okkur hefur mistekist að finna jafnvægi á milli óska og veruleika. Að læra að una við nýjar aðstæður tekur langan tíma. Aftur á móti er fljótlegt að una ekki við neitt, hvorki fortíð né fram- tíð sem hyggin þjóð reynir að reisa með hugsun á grunni sinnar eigin náttúru. n „Til þess að skoða „perlurnar“ þarf ferðamaðurinn ekki nauðsynlega að kaupa aðgangsmiða. Hekla er ekkert fallegri eða merki- legri í nálægð en í fjar- lægð. Við að skoða hana þarf maður engan passa. Guðbergur Bergsson rithöfundur Til umhugsunar Er þetta vonlaust land án frægðar? Mynd SiGtryGGUr ari „Vitið þið svolítið „leyndarmál“? Það eru líka rugludallar í læknisfræði og vísindum. Og bara því að fáeinir þeirra taki undir þetta bull gegn bólusetningum breytir ekki áratuga þekk- ingu og stöðugum straumi af nýjum rannsóknum sem sýna gagnsemi bólusetn- inga. Og svona barnalegar samsæriskenningar um að lyfjaiðnaðurinn múti meirihluta lækna og vís- indamanna er svona álíka gáfulegt og kenningar um að lending Armstrongs á tunglinu hafi verið fölsuð. Dettur heilvita fólki virkilega í hug að það væri hægt að halda svona samsæri með milljónum manna leyndu í áratugi? Er þetta fólk með fullu viti?“ Palli thordarson tók þátt í umræðunni um bólusetningar barna sem hefur verið fjörleg í athugasemdakerfi DV alla vikuna. „Kjaftæði, bólusetning er ekki þitt prívat og persónulega mál! Það hefur áhrif á alla í kringum þig hvaða val þú tekur í þessum efnum.“ Mörtu Sólrúnu Jónsdóttur var heitt í hamsi í sömu umræðu. „Það væri t.d. fínt að fá veðurspá daginn eftir. Það tryggir rétta spá.“ Innlegg Péturs Óla Jóns- sonar í umræðuna um aðrar hagræðingaraðgerðir frekar en uppsagnir veðurfréttarmanna hjá 365. „Þetta kallast þyngdarafl.“ arnaldur Árnason leysti ráðgátuna um óútskýrt afl sem hrinti lítilli stúlku. Myndbandið var afar vinsælt á dv.is en Arnaldur var fullur efasemda. „Væri ekki nær að minnka við íþróttafréttirnar, maður þarf ekkert að vita á hvaða mínútu einhver sparkaði bolta í netið, en hins vegar þurfum við oftast að vita veðurspána.“ Kitta Svansdóttir vill fórna íþróttafréttum, frekar en veðurfréttatíma Stöðvar 2. 8 13 15 10 30

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.