Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Blaðsíða 11
Vikublað 3.–5. mars 2015 Fréttir 11
„Þetta er ekki menntastofnun
– Þetta er barnagæsla“
starfsfólkið, sem er að stórum hluta
konur, beitt skoðanakúgun. Stefna
sem fagni fjölbreytni vilji heldur
einsleitt starfsfólk.
Ósamræmi í endurgjöf
DV hefur einnig rætt við nokkra for-
eldra sem hafa reynslu af grunn-
skólum Hjallastefnunnar. Sumir
hafa fært börnin sín úr Hjallastefn-
unni og yfir í hefðbundna grunn-
skóla, meðal annars vegna ósam-
ræmis milli niðurstaðna úr
samræmdum prófum og dómum
frá Hjallastefnunni. „Sonur minn
fékk hræðilega útkomu á sam-
ræmdu prófunum. Ég var búin að
fara í fjölda foreldraviðtala og þar
var alltaf talað um að hann væri fyr-
irmyndardrengur sem láti lítið fyrir
sér fara. Hann hefur bara gleymst,“
segir ein móðir.
„Þegar eldri börnin mín fóru
í gagnfræðaskóla voru þau bæði
greind lesblind og í sumum fög-
um stóðu þau mjög illa námslega.
Börnin mín höfðu til dæmis aldrei
heyrt um bragfræði, aldrei farið
í almennilega smíðakennslu eða
metnaðarfulla heimilisfræði. Ég
spyr mig, sem foreldri, af hverju fær
svona skóli að starfa á meðan hann
uppfyllir ekki þessi atriði?“ spyr
móðirin að lokum.
Annað foreldri sem DV ræðir vill
taka fram að margt frábært sé gert
hjá Hjallastefnunni sem ekki sé að
n Engar matsskýrslur til um grunnskóla Hjallastefnunnar n Kennarar segja erfitt að fylgja aðalnámsskrá n Frjálsræði of mikið
„Annaðhvort er
fólk Hjallastefnu-
fólk eða ekki“
Starfsánægja mælist mikil hjá Hjallastefnunni
DV ræddi við Önnu Ingólfsdóttur,
prófessor í tölvunarfræði við Háskól-
ann í Reykjavík, í lok janúar. Hún
hafði fært dóttur sína úr skóla Hjalla-
stefnunnar þegar í ljós kom „að það
var eitthvað stórkostlega mikið að
bæði í kennslu í skólanum og ekki
síst samskiptum við foreldra,“ eins
og hún orðaði það sjálf. Í kjölfar-
ið höfðu tveir fyrrverandi kennarar
við Hjallastefnuna samband við DV
og lýstu yfir áhuga á því að segja frá
sinni reynslu við fyrirtækið. Hvor-
ugur treysti sér hins vegar til að
koma fram undir nafni og því hafði
blaðamaður samband við þrjá aðra
kennara sem einnig höfðu starfað
hjá Hjallastefnunni. Tekið skal fram
að einn kennari sem DV ræddi
við hefur talsvert ólíka reynslu en hinir kennararnir. Hann seg-
ir framkomu stjórnenda við starfsfólk mjög fína og almennt væru allir
„ljúfir og jákvæðir.“ Hann viðurkennir hins vegar að hafa fundið fyrir
óöryggi í byrjun yfir því hvernig hann ætti að haga kennslunni. Varð-
andi starfsmannaveltuna segir hann: „Annaðhvort er fólk Hjallastefnu-
fólk eða ekki. Það er ekkert þar á milli.“
Rétt er að árétta að í öllum þeim gögnum sem blaðamaður fór yfir
við vinnslu þessarar greinar kemur fram að starfsandi er góður hjá fyr-
irtækinu. Niðurstöður Vilborgar Grétarsdóttur sýna til að mynda að
starfsánægja hjá starfsfólki Hjallastefnunn-
ar er mjög mikil, en rannsókn hennar snýr
einnig að leikskólum fyrirtækisins, ekki
eingöngu grunnskólunum.
DV sendi Reykjavíkurborg, Hafnar-
fjarðarbæ, Garðabæ og mennta- og
menningarmálaráðuneytinu fyrir-
spurn um hvort þeim hafi borist ein-
hverjar kvartanir, frá foreldrum eða
kennurum, vegna grunnskóla Hjalla-
stefnunnar. Í svari frá Reykja-
víkurborg og mennta- og
menningarmálaráðu-
neytinu kemur fram
að engar kvartanir
hafi borist, en Hafnar-
fjarðarbær og Garða-
bær höfðu ekki svarað
fyrirspurninni þegar
DV fór í prentun.
Atvinna í boði
staða sölumanns
Viltu skipta um vinnu?
Vantar þig vinnu?
Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir góðan
og harðduglegan sölumann.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera duglegur,
góður sölumaður, samviskusamur, heiðarlegur,
ábyrgur, jákvæður, lausnamiðaður, skemmtilegur
og hafa áhuga á sölumennsku og markaðsmálum.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði.
Umsóknir sendist á steinn@dv.is
Hjallastefnan
Margrét Pála Ólafs-
dóttir er höfundur
Hjallastefnunnar.
„Ég held að
kennarar séu
allir af vilja gerðir og vilji
gera sitt besta, en það
þarf bara að skapa betri
aðstæður til þess.
Framhald á næstu síðu