Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Page 4
Vikublað 3.–5. mars 20154 Fréttir
Nauðgaði 14 ára stúlku
Þrítugur karlmaður dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi
F
jölskipaður Héraðsdómur
Reykjavíkur hefur dæmt þrí-
tugan karlmann, Ingvar Dór
Birgisson, í þriggja og hálfs
árs fangelsi fyrir að nauðga fjórt-
án ára stúlku vorið 2010. Ingvar
var 25 ára þegar hann braut á stúl-
kunni, en hann hitti hana tvisvar
á heimili sínu. Hann áreitti hana
kynferðis lega og nauðgaði henni.
Ingvar sagði samskipti sín við
stúlkuna aðeins hafa farið fram á
samfélagsmiðlum og að hún hefði
aldrei komið heim til hans. Hann
neitaði að hafa áreitt hana eða að
hafa nauðgað henni. Framburður
stúlk unnar þótti trúverðugur og
meðal gagna í málinu var mynd
sem stúlkan teiknaði af íbúð Ingv-
ars og þótti sýna að hún hefði
komið á heimili hans. Í dómnum
kemur fram hvernig stúlkan lýsti
því að henni hefði fundist það
rangt að Ingvar væri að strjúka
henni, knúsa og kyssa. Hún hefði
spurt hann hvort honum fyndist
það ekki sjálfum í ljósi þess að hún
var 14 ára og hann 25 ára. Tveim-
ur vikum síðar hafði Ingvar aftur
samband við stúlkuna og ræddi
við hana um kynlíf og bað hana að
hitta sig. Hún vildi það ekki en lét á
endanum tilleiðast. Það var tveim-
ur vikum áður en hún fermdist. Í
dómnum kemur fram að hann hafi
rifið hana úr fötunum og beiðni
hennar um að hann hætti hafi ekki
borið árangur. Hún hefði frosið og
henni liðið mjög illa. Hún hraðaði
sér heim grátandi. Hún sagði móð-
ur sinni frá ofbeldinu nokkrum
vikum síðar. n
Bifreið ekið
á hús
Bifreið var ekið á hús í um-
dæmi lögreglunnar á Suðurnesj-
um á sunnudag. Ökumaðurinn
var kominn inn í verslun, sem
er í húsnæðinu sem hann ók á,
þegar lögreglu bar að garði. Hann
reyndist vera sviptur ökuréttind-
um og kvaðst hafa ætlað að til-
kynna óhappið daginn eftir, það
er á mánudag. Skemmdir urðu á
bifreiðinni og húsnæðinu.
Þá varð árekstur um helgina
þegar köttur hljóp í veg fyrir bif-
reið í Njarðvík. Ökumaðurinn
stöðvaði bifreiðina til að keyra
ekki yfir köttinn og við það hafn-
aði önnur bifreið aftan á henni.
Þá urðu nokkrir ökumenn
staðnir að hraðakstri eða að
sinna ekki stöðvunarskyldu. Loks
voru skráningarnúmer fjarlægð
af bifreiðum sem voru ýmist
óskoðaðar eða ótryggðar. Steinþór fær 10 milljónum
minna en undirmennirnir
n Laun bankastjóra Landsbankans stóðu í stað í fyrra n ESA vildi ekkert gera
M
ánaðarlaun Steinþórs
Pálssonar, bankastjóra
Landsbankans, voru 800
þúsund krónum lægri
en laun sjö undirmanna
hans í framkvæmdastjórn bankans á
síðasta ári. Steinþór var þá með 1,5
milljónir króna á mánuði á meðan
sjö framkvæmdastjórar fyrirtækisins
fengu að meðaltali 2,3 milljónir hver
eða 9,6 milljónum meira í árslaun en
bankastjórinn.
Netið dregið af laununum
Samkvæmt nýbirtum ársreikningi
Landsbankans stóðu laun Stein-
þórs nánast í stað milli ára í fyrra
en mánaðarlaun framkvæmdastjór-
anna hækkuðu að meðaltali um
400 þúsund krónur á tímabilinu.
Laun stjórnendanna sjö hækkuðu
því meira á síðasta ári en sem nem-
ur launahækkun Steinþórs frá árinu
2011 þegar hann fékk 1,2 milljónir á
mánuði.
Til samanburðar má nefna að
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri
Arion banka, var með 4,3 milljónir
í mánaðarlaun í fyrra eða næstum
þrefalt meira en Steinþór. Birna
Einarsdóttir, bankastjóri Íslands-
banka, var með næsthæstu launin af
bankastjórunum þremur eða rúm-
ar þrjár milljónir á mánuði. Arion
banki og Íslandsbanki hafa að auki
tekið upp kaupaukakerfi sem færðu
bankastjórunum tveimur samtals
11,1 milljón á síðasta ári. Lands-
bankinn hefur ekki tekið upp álíka
kerfi en Steinþór fékk aftur á móti 2,1
milljón í hlutabréfatengdar greiðsl-
ur á síðasta ári eða um 175 þúsund
krónur á mánuði.
Íslenska ríkið á 98 prósenta
hlut í Landsbankanum og launa-
kjör bankastjórans eru því ákveðin
af kjararáði. Samkvæmt nýjasta úr-
skurði ráðsins er kostnaður vegna
bifreiðahlunninda Steinþórs og
nettengingar á heimili hans dreginn
af laununum.
Stjórnin leitaði til ESA
Starfskjör bankastjóra Landsbank-
ans hafa verið til umræðu frá árinu
2011. Lög um kjararáð, sem sett voru
eftir bankahrun, kveða á um að þeir
sem undir ráðið heyra skuli ekki vera
með hærri laun en forsætisráðherra.
Vorið 2013 samþykkti aðalfund-
ur Landsbankans nýja kjarastefnu
þar sem sagði að kjör bankastjóra
og helstu stjórnenda ættu að vera
samkeppnishæf við kjör stjórn-
enda í stærri fyrirtækjum á fjármála-
markaði. Bankaráð Landsbankans
hafði þá sent Eftirlitsstofnun EFTA,
ESA, erindi þar sem fram komu
áhyggjur stjórnarinnar af því að
laun bankastjórans væru ákvörðuð
af kjararáði. Taldi bankaráðið það
kunna að brjóta í bága við stjórnar-
skrá Íslands og EES-samninginn og
benti á lögfræðiálit sem unnin höfðu
verið fyrir bankann. Var því ákveðið
að leggja til hliðar 47 milljónir króna
sem nota átti til að leiðrétta laun
Steinþórs.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum aflaði ESA upp-
lýsinga um málið á sínum tíma en
ákvað að aðhafast ekki frekar.
Ekki náðist í Steinþór við vinnslu
fréttarinnar. Steinþór hefur áður
sagt að hann telji laun sín ekki
samkeppnishæf og að hann vonist
til þess að lögum um kjararáð verði
breytt. n
Yfir Íslandsbanka Birna Einarsdóttir var
með 3,2 milljónir á mánuði í fyrra.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Bankastjórinn Steinþór Pálsson
tók við sem bankastjóri Landsbank-
ans í byrjun júní 2010. MYNd LANdSBANkiNN
Yfir Arion Höskuldur H. Ólafsson var með
4,3 milljónir í mánaðarlaun í fyrra.
„Spilling
rannsökuð“
„Ekki verður annað sagt en að
hér sé um spillingu að ræða sem
er nauðsynlegt að grípa til að-
gerða gegn,“ segir í bókun sem
Hildur Sverrisdóttir og Áslaug
María Friðriksdóttir, fulltrúar
Sjálfstæðis flokksins, lögðu fram
á fundi í stjórnkerfis- og lýð-
ræðisráði borgarinnar á mánu-
dag. Voru þær að vísa til þess að
hugmynd sem Bjarni Brynjólfs-
son, upplýsingastjóri borgarinn-
ar, kom fram með, um að leggja
göngustíg með fram KR-vellin-
um, hafi verið notuð til dæm-
is um það sem íbúar gætu hrint í
framkvæmd með íbúakosningu
á Facebook-síðu borgarinnar.
BJarni er einn stjórnanda síðunn-
ar og setti hugmyndina fyrst fram
á Facebook-síðu sinni þann 18.
febrúar síðastliðinn. Innri endur-
skoðun borgarinnar fer yfir málið.