Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Síða 12
Vikublað 3.–5. mars 201512 Fréttir
Lakkað smeLLuparket • 30 ára ábyrgð
Parket & gólf • Ármúla 32, 108 Reykjavík • S: 5681888 • parketoggolf.is
Verð: 9.060 kr. m²
Nú á tilboðsverði: 6.342 kr. m²
Hágæða
PlankaParket
- eik Sauvage
einstakt tilboð
-30% afsláttur
ATH TAkmArkAð mAgn Parket og gólf
finna innan hefðbundinna skóla.
Hins vegar sé einnig margt sem
betur megi fara. Hann fagnar um-
ræðunni og telur að ýmislegt þurfi
að endurskoða hjá grunnskólun-
um, til dæmis notkun bóka.
Engin eineltisáætlun
Enn hafa ekki verið gerðar nein-
ar rannsóknir hér á landi á grunn-
skólastigi Hjallastefnunnar. Reykja-
víkurborg lét hins vegar vinna
heildarmat á skólastarfi Barna-
skóla Hjallastefnunnar í Reykjavík
árið 2013. Þar kom meðal annars
fram að foreldrar hefðu gagnrýnt
tíð kennaraskipti og skipulag við
skólann. Þegar matið var unnið lá
heldur ekki fyrir formleg áætlun um
viðbrögð við einelti í starfsmanna-
hópnum og benda skýrsluhöfund-
ar á að skólinn þurfi að útbúa verk-
ferla um hvernig eigi að bregðast
við ef erfið mál koma upp varð-
andi kennslu og starfshætti í skól-
anum. Einnig þurfi að auka þjálfun
og fræðslu fyrir nýtt starfsfólk um
aðferðir og hugmyndafræði Hjalla-
stefnunnar. Í heildarmati Reykja-
víkurborgar segir jafnframt að bæta
þurfi upplýsingar um nám og ár-
angur nemenda og skýra fyrir for-
eldrum viðmið og kvarða námsmats
til að auðvelda þeim að sjá náms-
lega stöðu nemenda. Þetta er eitt af
því sem foreldrarnir sem DV ræðir
við gagnrýna, að þeir fái ekki nægar
upplýsingar um hvar börnin þeirra
standa námslega. Rétt er að taka
fram að skýrsla Reykjavíkurborgar
er á heildina litið afar jákvæð í garð
skólans og þar kemur meðal annars
fram að ekkert einelti hafi mælst í
nemendahópnum. Einnig segir að
starfsandi sé góður í skólanum og
samskipti hreinskiptin.
Engar matsskýrslur til
Lögum samkvæmt eiga sveitarfélög
að sinna mati og eftirliti með gæðum
skólastarfs og láta mennta- og
menningarmálaráðuneyti í té upp-
lýsingar um framkvæmd skólahalds,
innra mat skóla, framgang skóla-
stefnu sinnar og áætlanir um um-
bætur. DV kallaði eftir matsskýrslum,
svokölluðu ytra mati, um grunnskóla
Hjallastefnunnar hjá mennta- og
menningarmálaráðuneytinu. Í svari
frá ráðuneytinu segir hins vegar að
enn hafi ekki verið gefnar út mats-
skýrslur um grunnskóla Hjallastefn-
unnar, þrátt fyrir að elsti skólinn
hafi nú verið starfræktur í ellefu ár.
Skýrslur um mat og úttekt á Barna-
skóla Hjallastefnunnar í Garðabæ
og Vífilsstaðaskóla eru tilbúnar en
hafa ekki verið birtar opinberlega.
DV hefur skýrsluna fyrir Barnaskóla
Hjallastefnunnar í Garðabæ undir
höndum og er matið í stórum dráttu-
mfremur jákvætt. Gagnkvæm virðing
og góð samskipti einkenni skóla-
braginn og stefna skólans er skýr og
vel mótuð. Hún ber þess þó merki að
hafa fyrst verið mótuð fyrir leikskóla-
starf. Þá hefur skólinn, líkt og Barna-
skóli Hjallastefnunnar í Reykjavík,
ekki sett sér verklagsreglur um með-
ferð ágreinings- og eineltismála í
starfsmannahópnum og móttöku-
áætlun fyir nýja starfsmenn lá ekki
fyrir þegar matið var gert. Fram kem-
ur að aðlaga þurfi stefnu skólans enn
frekar að aðalnámskrá grunnskóla.
Þá segir að kennsluhættir séu nokk-
uð einhæfir, efla þurfi fjölbreytni
þeirra og auka aðgengi nemenda að
fjölbreyttum bókakosti. Enn fremur
kemur fram að árangur nemenda í
íslensku á samræmdum prófum fari
versnandi og nemendur sýni minni
framfarir í íslensku milli 4. og 7.
bekkjar en gerist á landsvísu. n
Barnaskóli Hjallastefnunnar
Hjallastefnan rekur fjölmarga skóla á
landinu. Einn þeirra er í Öskjuhlíð.
„Þessi aðferð
getur verið erfið
fyrir kennara“
V
ið erum að gera hlutina
öðruvísi og það hent-
ar ekki öllu starfsfólki. Þá
er bara mikið betra, hvort
sem fólk finnur það hjá sjálfu sér
eða ekki, að það fari í verkefni
sem hentar því betur.“ Þetta segir
Áslaug Hulda Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hjallastefnunnar,
í samtali við DV. Hún bendir á að
rúmlega fimm hundruð manns
starfi nú hjá Hjallastefnunni og
í starfsmannakönnun sem gerð
var á þessu skólaári hafi yfir níu-
tíu prósent starfsfólks gefið vinnu-
staðnum átta eða hærra í einkunn.
„Hjallastefnan leggur mikla
áherslu á fjölbreyttar kennsluað-
ferðir og við gerum þær kröfur að
kennarar bindi sig ekki við eyðu-
fyllingar í bækur, heldur útfæri
kennsluna með ögrandi og skap-
andi hætti. Margir aðrir skólar
gera það sama. Við förum líka
aðrar leiðir í umhverfi þar sem
við förum óhefðbundnari leiðir í
uppsetningu kennslurýma. Þar er
kennarastarfið endurhugsað þar
sem við leggjum meiri áherslu
á nálægð og öryggi fyrir börnin.
Þessi aðferð getur verið erfið fyr-
ir kennara og hún hentar því ekki
öllum. Vissulega förum við út fyrir
hefðbundið form í kennslu og því
er gerð sú krafa að kennarar stígi
út fyrir sinn þægindaramma.“
Þjálfunarprógramm
í undirbúningi
Áslaug Hulda segir það ekki rétt
að kennarar fái ekki leiðsögn um
hvernig þeir eigi að haga náminu.
„Nýtt starfsfólk fer á nýliðanám-
skeið og önnur sérnámskeið auk
þess sem skólastjórnendur og fólk
með reynslu leiðbeinir nýju fólki.
Allt starfsfólk fær mjög ítarlega
handbók um aðferðir Hjallastefn-
unnar auk þess sem hugmynda-
fræði okkar er mjög skýr,“ segir
Áslaug Hulda og bætir því við að
auðvitað megi alltaf gera betur
og í undirbúningi sé enn ítarlegri
handbók og sérstakt þjálfunar-
prógramm fyrir starfsfólk grunn-
skólanna. „Grunnskólar Hjalla-
stefnunnar hafa vaxið mjög hratt
á síðustu árum og starfsmanna-
fjöldi í samræmi við það, sem
skýrir þessa starfsmannaveltu að
hluta,“ segir hún jafnframt.
Byggja eigin samræðugrundvöll
Kennararnir sem DV ræðir við
segja ekkert málfrelsi innan veggja
Hjallastefnunnar, til dæmis hafi
ekki verið leyfilegt að tala um
pólitík, launamál eða fréttir. Ás-
laug Hulda segir öguð samskipti
vera meginstef Hjallastefnunnar.
„Það er skýrt kveðið á um mikil-
vægi þess að æfa jákvæðni í sam-
skiptum fullorðinna. Þar gerum
við samkomulag okkar á milli um
að tala ekki „um“ fólk, heldur „við“
fólk. Þetta felur líka í sér að við tök-
um ekki með okkur til vinnu nei-
kvæða umræðu sem á sér stað
í samfélaginu, enda á hún ekki
heima í umhverfi þar sem börn
eru í aðalhlutverki. Við byggjum
upp okkar eigin samræðugrund-
völl sem er gefandi, nærandi og
gleðjandi,“ segir hún.
Áslaug Hulda segir skólana að
sjálfsögðu vinna eftir aðalnámskrá
eins og lög og reglur gera ráð fyr-
ir. Góður árangur á samræmd-
um prófum sé meðal annars stað-
festing á því. Hugmyndafræði og
vinna Hjallastefnunnar samræmist
öllum lögum og reglum um íslenskt
skólastarf og uppfylli öll þau skil-
yrði sem því eru sett. Þá sé eftirlit
með skólum Hjallastefnunnar ekki
frábrugðið eftirliti með öðrum skól-
um, sé á ábyrgð sveitarfélaganna
og þurfi að uppfylla sömu kröfur
og gerðar séu til opinberra skóla.
Að auki gangast allir grunnskól-
ar undir úttektir sem gerðar eru
af mennta- og menningarmála-
ráðuneytinu. Nýverið var gerð út-
tekt á Barnaskóla Hjallastefnunnar
í Garðabæ og eru niðurstöður þar
mjög góðar og uppfyllir skólinn öll
þau skilyrði sem sett eru.
Koma í veg fyrir einelti
Líkt og áður segir fullyrða tveir
kennarar sem DV ræðir við að ein-
elti hafi viðgengist á vinnustaðn-
um. Áslaug Hulda segir mjög
leiðinlegt að heyra að þetta sé upp-
lifun einhvers sem hefur starfað
hjá Hjallastefnunni. Hins vegar
hafi ekkert eineltismál komið inn
á borð til hennar. Aðspurð hvort til
séu einhverjir verkferlar til að taka
á eineltismálum, komi þau upp
á vinnustaðnum, segir Áslaug að
meginreglur Hjallastefnunnar séu
til þess fallnar að koma í veg fyrir
einelti. „Ég held það væri erfitt að
finna fyrirtæki sem er með skýrari
stefnu í starfsmannamálum um
samskipti. Þegar samskipti eru góð
kemur þú í veg fyrir vonda hluti
eins og einelti.“ Þegar blaðamaður
spyr hvort ekki séu að auki til verk-
ferlar um hvernig skuli bregðast við
eineltismálum ef þau skyldu koma
upp segir Áslaug að mannauðs-
stjóri fyrirtækisins myndi þá taka á
slíkum málum. Hingað til hafi hins
vegar ekkert eineltismál komið á
borð mannauðsstjóra Hjallastefn-
unnar. „Ég hef vitað af málum sem
komið hafa á borð mannauðsstjóra
þar sem starfsfólk hefur verið orðið
óánægt og hefur það endað með
starfslokum. En þetta stóra orð hef-
ur ekki verið notað,“ segir Áslaug
Hulda að lokum.
Þurfa að stíga út fyrir sinn þægindaramma„Ég spyr mig, sem
foreldri, af hverju
fær svona skóli að starfa
á meðan hann uppfyllir
ekki þessi atriði?