Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Page 18
Vikublað 3.–5. mars 201518 Fréttir Erlent
Fundu fjöldagröf undir
frönskum stórmarkaði
F
ornleifafræðingar í París
hafa fundið hátt í tvö hund-
ruð beinagrindur undir
verslun franska stór-
markaðarins Monoprix í
hjarta miðborgarinnar. Forsvars-
menn verslunarinnar vildu rýma
kjallara byggingarinnar vegna
endurbóta og kölluðu til fornleifa-
fræðinga vegna þess að vitað var
að byggingin stendur grafreit gam-
als sjúkrahúss. Fyrirfram hafði ver-
ið búist við að þar væri að finna
einhverjar jarðneskar leifar í ljósi
sögunnar en umfang og magn kom
öllum í opna skjöldu.
Aldagamall grafreitur
„Við bjuggumst við að þarna yrðu
nokkur bein í ljósi þess að þarna
var grafreitur en ekki að þarna væri
fjöldagröf,“ segir framkvæmdastjóri
verslunarinnar á Sébastopol-breið-
götunni, Pascal Roy.
Sjúkrahúsið var starfrækt á
tímabilinu frá 12. til 17. aldar en
talið var að leifar þeirra sem grafnir
voru í grafreit þess hefðu verið færð-
ar yfir í grafhvelfinguna í París á 18.
öld. Í katakombum Parísarborgar er
að finna jarðneskar leifar rúmlega
sex milljóna einstaklinga sem fluttar
voru þangað frá kirkjugörðum borg-
arinnar fyrir rúmum 200 árum að því
er segir í grein breska blaðsins Tele-
graph.
Snyrtilegur frágangur
Uppgötvunin kom fornleifafræðing-
um Institut national de recherches
archéologiques préventives (INRAP)
verulega á óvart. Þeir hyggjast fram-
kvæma DNA-próf á beinunum til að
fá úr því skorið hvort fólkið sem jarð-
sungið var í grafreit sjúkrahússins,
Hopital del Trinité, hafi dáið úr
plágunni eða hungri eins og grunur
leikur á.
Enn sem komið er hafa fund-
ist átta grafir, en þar af hafa sjö inni-
haldið jarðneskar leifar allt að tuttugu
einstaklinga. Sú áttunda inniheldur
hins vegar líkamsleifar rúmlega 150
manns sem grafnir eru í nokkrum
lögum.
„Það sem kemur á óvart er að lík-
unum virðist ekki hafa verið kastað
í grafirnar heldur fremur komið þar
fyrir snyrtilega og af kostgæfni. Þess-
um einstaklingum – körlum, kon-
um og börnum – var komið fyrir á
víxl, með höfuð eins til fóta hjá öðr-
um, koll af kolli. Vafalaust til að spara
pláss,“ segir fornleifafræðingur IN-
RAP, Isabelle Abadie.
Hugsanlega fórnarlömb
plágunnar
Talið er að líkin hafi öll verið grafin á
svipuðum tíma, jafnvel á sama tíma
sem gefur til kynna að þarna kunni
að vera um að ræða fórnarlömb
plágunnar sem herjaði á París á 14.,
15. og 16. öld. Aldursákvörðun með
geislakolum mun kveða úr um ná-
kvæmari tímasetningu.
Á svæðinu hafa einnig fundist
brot úr leirmunum frá miðöldum auk
muna sem eru nær okkur í söguleg-
um skilningi.
INRAP mun flytja leifarnar til
frekari rannsókna að uppgreftri
loknum en franska ríkið mun síð-
an sjá um að koma beinunum til
hinstu hvílu, enn á ný. n
n Hátt í tvö hundruð beinagrindur í átta gröfum n Aldagamall grafreitur sjúkrahúss í París
Hátt í 200 beinagrindur Fornleifafræðingar INRAP munu framkvæma DNA-próf og
aldursákvörðun með geislakolum til að komast að meiru um þá sem þarna hvíldu.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Óhugnanleg uppgötvun
Forsvarsmenn Monoprix höfðu
búist við að bein væri að finna
í grunni verslunarinnar en þá
óraði ekki fyrir að þar væri að
finna aldagamlar fjöldagrafir.
Myndir deniS GlikSMAn, inrAp
„Líkunum virðist
ekki hafa verið
kastað í grafirnar heldur
fremur komið þar fyrir
snyrtilega og af kostgæfni.
Ferming · Brúðkaup · Skírn
Alhliða veisluþjónusta
Kökulist ehf. | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is
Gerðu daginn eftirminnilegan
Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð
Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir
Veisluréttir úr smiðju meistarans · Eingöngu fyrsta flokks hráefni