Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Síða 21
Umræða 21Vikublað 3.–5. mars 2015
Myndin Framkvæmdir við Frakkastíg Verktakar eru í óða önn við að undirbúa grunn að verslunarmiðstöð og íbúðum á svonefndum Frakkastígsreit sem er afmarkast af
Frakkastíg, Laugavegi og Hverfisgötu. mynd Sigtryggur ari
Ég var pirraður
og ruddalegur
Jón ragnar ríkharðsson birti umdeild ummæli um vinstri menn á Facebook. – DV
Skólakerfinu virðist sama
um að börn séu einhverf
andrea Ævarsdóttir segir son sinn hafa beðið lengi eftir greiningu. – DV
Sterk áhersla á
barnabækur
Bryndís Loftsdóttir er framkvæmdastjóri Bókamarkaðarins. – DV
Þ
essa dagana fer fram gríðar-
lega mikilvæg umræða í
þjóðfélaginu um fjármála-
kerfið; umræða sem þarf að
dýpka svo farið verði ofan í
kjölinn. Hún snýr að fjármálakerfinu
sem slíku, skattlagningu þrotabú-
anna og leiðréttingu lána og þar með
áframhaldandi uppgjöri vegna þess
tjóns sem fjármálakerfið olli Íslandi
fyrir sex árum síðan. Hún snýr að
höftum og mögulegu afnámi þeirra,
vöxtum, vaxtamun og þjónustu-
gjöldum, arðgreiðslum til eigenda
bankanna, eignarhaldi þeirra og
þannig mætti áfram telja. Þessi um-
ræða snertir nánast alla þætti samfé-
lagsins, eigna- og tekjutilfærslur og
þar með afkomu fólks og fyrirtækja
og þá einnig eigenda bankanna og
er ríkissjóður þar ekki undanskilinn,
Hún snýst um lýðræði, hver skuli
ráða hverju.
Eignarhald á bönkum
Í Bandaríkjunum er nú vaxandi
þrýstingur úr grasrótinni um að
stofnaðir verði eins konar bankar
fólksins og hefur í því samhengi ekki
síst verið horft til sveitarfélaganna,
að þau reki banka bæði til að annast
millifærslur á vegum sveitarfélags-
ins en einnig til að halda tilkostnaði
íbúanna og þar með vaxtagreiðslum
og arðgreiðslum í lágmarki. Með
öðrum orðum, menn ræða um
banka sem þjóna samfélaginu og
koma því vel en eru ekki gullmuln-
ingsvélar á kostnað samfélagsins.
Það vill nefnilega stundum gleym-
ast að í gegnum vexti og arð er ver-
ið að færa fjármuni frá einum vasa
í annan. Eða skyldu menn nokkuð
hafa gleymt gagnrýnni umræðu frá
níunda áratugnum og hinum tíunda,
ekki bara hér á landi heldur um allan
hinn „þróaða heim“ þar sem spurt
var hve lengi það gæti gengið að færa
ávinning af verðmætasköpun í þjóð-
félaginu frá heimilum og fyrirtækj-
um til fjármagnseigenda í þeim mæli
sem gert var. Svarið fékkst í sídýpk-
andi kreppum.
Sagan endurtekin
Nú er þessi saga að endurtaka sig á
nýjan leik. Vextir eru himinháir og
vaxtamunur einnig. Þá standa menn
nánast agndofa frammi fyrir tug-
milljarða arðgreiðslum bankanna
til eigenda sinna. Fram hefur kom-
ið í fréttum að arður sem rennur til
ríkis sjóðs af starfsemi Landsbank-
ans vegna rekstrarársins 2014 nemur
24 milljörðum króna. Það er von að
Viðskiptaráð hvetji til sölu bankans
hið bráðasta svo skjólstæðingar þess
geti fengið notið góðs af. Þetta gekk
einkavæðing bankanna út á – við
aldaskiptin. Hún snerist um að færa
tilteknum aðilum aðgang að þessum
miklu verðmætum sem bankarnir
voru færir um að soga út úr heimil-
um og fyrirtækjum. Þetta á Alþingi
enn eftir að rannsaka þótt það hefði
að mínu mati átt að hafa forgang um-
fram nánast allt sem rannsakað hef-
ur verið í tengslum við hrunið.
Krafan er lækkun fjár-
magnskostnaðar
En það eru ekki bara himinháir vext-
ir og arðgreiðslur sem virðast vera
að endurtaka sig. Athyglisverðar eru
fréttir um stórfelldar heildar launa-
hækkanir í fjármálastofnunum sem
virðast ekki vera í neinu samhengi
við þróun starfsmannafjöldans.
Þetta þýðir að topparnir eru aftur
komnir í þann gír að hygla sjálfum
sér og sinni hirð. Ég tek undir með
þeim sem stigið hafa fram síðustu
daga og hvatt til að í stað þess að
beina tekjum af bankastarfseminni
ofan í eigin vasa og eigenda beri
bönkunum að horfa til viðskipta-
vina sinna, heimilanna og fyrirtækj-
anna sem mörg hver eru að sligast
undan háum fjármagnskostnaði. Þá
gengur náttúrlega ekki að hagnast
um 30 milljarða af þjónustugjöldum
eins og fram hefur komið í fréttum
að viðskiptabankarnir þrír hafi gert
á síðasta ári!
Skattlagning þrotabúanna
Ég hef tekið því fagnandi að reynt
skuli að færa lánastabbann niður
með svokölluðum leiðréttingum
stjórnvalda. Í þessu eru fólgin pólitísk
skilaboð inn í framtíðina. Það á að
vera hægt að færa peninga frá brösk-
urum til almennings, ekki bara á hinn
veginn. Hvað leiðréttinguna áhrærir
þótti mér ámælisvert að enginn vilji
skyldi hafa verið af hálfu ríkisstjórnar-
innar til að gera þessa aðgerð félags-
lega réttlátari, en það hefði verið hæg-
ur vandi. Forsenda þess hins vegar að
ég hef stutt þessa aðgerð er að hún
verði einvörðungu fjármögnuð með
skattlagningu þrotabúa bankanna en
ekki að nokkru leyti úr ríkissjóði þótt
fjármagnið renni í millifærslu um rík-
issjóð. Út undan okkur sjáum við at-
ganginn í kröfuhöfunum og útsend-
urum þeirra sem reyna allt hvað þeir
geta til að bægja skattheimtumönn-
um almennings frá og má það ekki
gerast að undan þeim verði látið.
Nauðsynlegt er að bankarnir bæti
það tjón sem þeir hafa valdið sam-
félaginu og tryggja þarf að Ísland sé
í jafnvægi í stað þess að verðmæta-
sköpunin sé soguð út úr hagkerfinu
með vöxtum og arði. Hvernig til tekst í
þessu efni er prófraun á fjármálakerf-
ið og stjórnmálin; prófraun á okkur
öll. n
Fjármálakerfið: Prófraun á okkur öll
Ögmundur Jónasson
þingmaður Vinstri grænna
Kjallari
„Nauðsynlegt er
að bankarnir bæti
það tjón sem þeir hafa
valdið samfélaginu og
tryggja þarf að Ísland sé
í jafnvægi í stað þess að
verðmætasköpunin sé
soguð út úr hagkerfinu
með vöxtum og arði.
Mest lesið
á DV.is
1 „Eiginkona mín og yfirmaður hennar nutu
hótelherbergisins svo að þau
eyddu tíma sínum eiginlega
bara í rúminu þar til þau
yfirgáfu hótelið.“
Eiginmaður í ástarsorg skrifaði umsögn
um hótel þar sem hann dásamaði það
sérstaklega fyrir nákvæma reikninga en
hann gat fengið ítarlegar upplýsingar
um framhjáhald eiginkonu sinnar í
gegnum hótelið.
Lesið: 33.020
2 Fann ástina á ný á Tinder Örvar Friðriksson missti konuna
sína, Berglindi Guðmundsdóttur, úr
krabbameini þann 17. október síðast-
liðinn. Hann kynntist fljótlega konu sem
hann er í sambandi með í dag og birti
til í lífi hans. „Ég leitaði á Tinder í mikilli
streitu og einmanaleika. Í sannleika
sagt þá vildi ég bara kanna hve mörgum
stelpum þætti ég sætur,“ segir Örvar.
Lesið: 29.076
3 Kokkálaður eiginmaður hélt óvænta afmælis-
veislu fyrir eiginkonuna
Maður var sannfærður um að eiginkona
hans stæði í framhjáhaldi og velktist
töluvert í vafa um hvernig best væri að
taka á málinu. Hann ákvað að halda
óvænta afmælisveislu fyrir konuna.
Lesið: 23.087
4 „Þetta fólk vill frekar hætta á að barn þeirra
veikist og deyi – en að að það
gæti greinst með einhverfu.“
Andrea Ævarsdóttir og Sigríður Björk
Einarsdóttir eru báðar upplýsingar-
fræðingar og mæður einhverfra drengja.
Þær eru í senn reiðar og gáttaðar á þeirri
umræðu sem skapast hefur í þjóðfé-
laginu um meint tengsl einhverfu og
bólusetninga, og telja hana á miklum
villigötum.
Lesið: 21.327
5 Öllum veðurfréttakon-um 365 sagt upp
Fjölmiðlasam-
steypan 365
hefur sagt upp
öllum veður-
fréttakonunum
á fréttastofu
Stöðvar 2, þeim
Soffíu Sveins-
dóttur, Elísabetu
Margeirsdóttur
og Ingibjörgu
Karlsdóttur.
Lesið: 20.898