Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Qupperneq 27
Vikublað 3.–5. mars 2015 Sport 27
ÖRYGGISVÖRUR
VERKTAKANS
KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
– Þekking og þjónusta í 20 ár
Kemi • Tunguhálsi 10 • 110 Reykjavík
www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30.
Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
Benjamin
Lecomte
Félag: Lorient
Aldur: 23 ára
Þjóðerni: Franskur
n Stjarna þykir fædd á Stade du
Moustoir þar sem Benjamin Lecomte
hefur staðið upp úr á fremur óstöðugu
tímabili hjá Lorient í Ligue 1. Þetta er
fjórða tímabil hans hjá franska félaginu,
að undanskildu afar gefandi lánstímabili
hjá Dijon í Ligue 2 tímabilið 2013–2014.
Hann fékk loks tækifærið á þessu
tímabili og hefur haldið byrjunarliðs-
sæti sínu með stæl. Hann sýndi það í
1–1 jafntefli gegn Lyon á dögunum að
hann getur orðið stórt nafn í franska
boltanum. Hann þykir mikill íþróttamað-
ur og sjálfstraust hans vex með hverjum
leiknum. Með því eykst geta hans til að
taka yfir vítateiginn. Í 25 leikjum hefur
Lecomte varið 86 skot, fleiri en nokkur
annar markvörður í Ligue 1.
5 framtíðarmenn
milli stanganna
n Þetta eru markmennirnir sem stórliðin munu slást um n Englendingar á flæðiskeri staddir
Í
26. umferð ensku úrvalsdeildar-
innar, sem fram fór um þar síð-
ustu helgi, stilltu aðeins sex af
tuttugu liðum deildarinnar upp
breskum markverði. Á undan-
förnum árum hafa bestu mark-
verðir ensku úrvalsdeildarinn-
ar nær undantekningarlaust verið
útlendingar og í raun aðeins lands-
liðsmarkvörður Englands, Joe Hart
hjá Manchester City, sem haldið hef-
ur uppi heiðri enskra markvarða hjá
stórliðum deildarinnar.
Það eru því ekki bara útivallar-
leikmenn sem eru aðkeyptir, held-
ur reiða félög á Englandi sig einnig
á útlenska hæfileika þegar kemur að
því að verja markið. Þó að þessi þró-
un sé vissulega ekki einskorðuð við
England þá virðist fátt benda til að
þetta breytist á næstunni. Ef marka
má samantekt knattspyrnutímarits-
ins Four Four Two um fimm efnileg-
ustu markverði Evrópu í dag þá eru
talsverðar líkur á uppistaða næstu
kynslóðar stjörnumarkvarða hjá
stórliðum Englands verði frá Frakk-
landi. Á meðan Englendingar eru á
flæðiskeri staddir virðist mikil gróska
í markmannsmálum handan Ermar-
sundsins.
Þetta eru þeir fimm sem Four
Four Two spáir að stórliðin sláist um
í nánustu framtíð. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Anthony Lopes
Félag: Lyon
Aldur: 24 ára
Þjóðerni: Portúgalskur (fæddur í Frakklandi)
n Lyon hefur verið á mikilli siglingu í Ligue 1 og er, þegar þetta er
skrifað, á toppi frönsku úrvalsdeildarinnar, tveimur stigum á undan
milljarðaliði PSG. Þó að markahrókurinn Alexandre Lacazette hafi
verið í sviðsljósinu vegna frammistöðu sinnar þá er Lyon ekki eins
manns lið. Þar hefur Anthony Lopes verið í lykilhlutverki í markinu.
Hann hefur haldið tólf sinnum hreinu í 26 leikjum. Hann náði þar að
auki að halda hreinu sex leiki í röð og þurfti tvítekna vítaspyrnu frá
Zlatan Ibrahimovic til að rjúfa það. Hann þykir viðbragðsskjótur og
góður á milli stanganna. Þegar Lyon seldi Hugo Lloris til Tottenham
árið 2012 þá var ekkert óðagot í herbúðum franska félagsins. Þar
vissu menn að þeir ættu Lopes inni. Hann lék sinn fyrsta byrjun-
arliðsleik 22 ára og hefur gert stöðuna að sinni síðan. Lopes er
fæddur í Frakklandi en er portúgalskur ríkisborgari sem leikið hefur
fyrir yngri landslið Portúgals. Hann á enn eftir að leika sinn fyrsta
A-landsleik fyrir þjóð sína en frammistaða hans hefur vakið mikla
athygli. Það gæti reynst Lyon þrautin þyngri að halda honum í
sumar.
Mattia Perin
Félag: Genoa
Aldur: 22 ára
Þjóðerni: Ítalskur
n Þó að erfitt sé að ímynda sér það þá er staðreynd að einhver
þarf á endanum að leysa Gianluigi Buffon af hólmi sem lands-
liðsmarkmaður Ítalíu. Þrátt fyrir ungan aldur þá hefur nafn
Mattia Perin þegar verið nefnt í því samhengi enda lék hann sinn
fyrsta A-landsleik fyrir Ítalíu í nóvember síðastliðnum. Perin
hefur byrjað alla leiki Genoa í Seria A-deildinni á þessu tímabili,
hann er hávaxinn og þykir sérlega sterkur í að koma út í teiginn
og hirða boltann í stað þess að kýla hann. Honum hefur farið
mikið fram í að draga úr mistökum sínum.
Loris Karius
Félag: Mainz Aldur: 21 árs Þjóðerni: Þýskur
n Mainz hefur átt erfitt uppdráttar í
þýsku Bundesligunni á tímabilinu og ekki
sloppið við fallbaráttuna. Hinn 21 árs
Karius mun hins vegar vera lykilmaður
í komandi baráttu og ástæðan fyrir því
að ekki er verr fyrir Die Nullfünfer komið.
Þrátt fyrir að sitja í 11. sæti, aðeins þremur
stigum frá fallsæti, hafa aðeins sjö lið
fengið færri mörk á sig en Mainz. Karius
hefur þar af haldið sex sinnum hreinu í
22 leikjum og hefur hinn ungi Þjóðverji
fengið mikið lof fyrir frammistöðu
sína. Hefur verið orðaður við Arsenal
og Liverpool í vetur en skrifaði nýverið
undir nýjan samning við Mainz til ársins
2018. Hann lék á árunum 2009–2011 með
varaliði Manchester City og því mörg lið á
Englandi sem þekkja til hans. Framtíðin
er björt hjá þessum viðbragðsskjóta og
útsjónarsama markverði.
Sergio Padt
Félag: Groningen
Aldur: 24 ára
Þjóðerni: Hollenskur
n Eins og svo margir efnilegir leikmenn þá
hóf Sergio Padt feril sinn hjá stórliði Ajax en
þurfti að færa sig um set til að springa út. Í
tvígang var hann lánaður áður en hann fann
fjöl sína með Gent í Belgíu þar sem hann lék
í þrjú ár. Groningen seldi aðalmarkvörð sinn,
Marco Bizot, í sumar og var Padt fenginn
til að hlaupa í skarðið. Groningen hefur átt
erfitt á tímabilinu en eins og svo oft vill
verða við slíkar aðstæður þá vekur mark-
vörðurinn athygli. Vörnin hefur verið hriplek
og hefur Padt því aðeins haldið hreinu í
fjórum leikjum af 24 á tímabilinu. Hann
er afar hávaxinn, mikill íþróttamaður og
ræður lögum og lofum í vítateignum. Hann
er líka kvikur og fljótur niður. Allt eru þetta
hæfileikar sem þykja eftirsóknarverðir.