Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Blaðsíða 28
Vikublað 3.–5. mars 201528 Lífsstíll
Greind með
mS 22 ára
H
ilmu kynntist ég fyrir
nokkrum árum því hún er
vinkona systur minnar. Í
mars í fyrra greindist hún
með MS, einungis 22 ára
gömul. Ég hef fylgst mikið með
Hilmu í gegnum hennar ferli þar
sem ég dáist að því hversu jákvæð
og sterk hún er. Þrátt fyrir þetta
mikla áfall hefur hún staðið sig eins
og hetja og heldur áfram að takast á
við lífið. Enda er það eitt það besta
sem hægt er að gera í aðstæðum
sem þessum.
Hilma er nú á öðru ári í hjúkr-
unarfræði og hefur sinnt því og náð
öllum prófum með glæsibrag. Eitt
af áhugamálum Hilmu er líkams-
rækt og kom hún í þjálfun til okk-
ar í nokkra mánuði til að halda sér
við efnið og vinna sig upp eftir slæm
köst. Vegna veikindanna hefur hún
þurft að hagræða ýmsu eins og t.d.
mataræðinu, hreyfingu og öðru.
Hilma stóð sig hins vegar virkilega
vel á því sviði og fannst mér alveg
ótrúlegt hvað hún var samviskusöm
og dugleg hvað það varðar.
Ég átti nokkur orð við Hilmu sem
geta vonandi hvatt aðra til að horfa
fram á veginn með jákvæðu hugar-
fari.
Grínaðist með MS
Hvað fór í gegnum huga þinn þegar
þú greindist?
„Þegar ég greindist þá kom það
mér einhvern veginn ekki á óvart.
Það var langur aðdragandi að grein-
ingunni. Ég byrjaði að finna fyrir
einkennum fyrsta kastsins í byrjun
febrúar 2014. Ég vissi alltaf að eitt-
hvað var að, en heimilislæknirinn
minn sagði að þetta væri líklegast
bara veirusýking. Fyrsta einkennið
var jafnvægisleysi. Ég man þegar ég
var í skólanum að sækja mér vatns-
glas og gat ekki gengið beint og sull-
aði alltaf úr glasinu. Ég sagði í gríni
við skólasystur mínar að ég væri
örugglega bara með MS, því
við vorum nýbúnar að læra
um sjúkdóminn. Þannig að
þegar ég svo greindist að lokum var
undirmeðvitundin búin að búa sig
undir þessar fréttir.“
Hvernig ferðu að því að vera svona
sterk og jákvæð í gegnum sjúkdóm-
inn?
„Það er mjög einstaklingsbund-
ið hvernig fólk tekur svona frétt-
um. Það fyrsta sem ég vildi gera við
greiningu var að fræðast betur um
MS. Ég las að fólk færi í gegnum
sorgarferli eftir greiningu sem gæti
varað í marga mánuði. Mér brá svo-
lítið og fór að hugsa hvernig fram-
tíðin yrði. Ég reyndi að sjá allt það
jákvæða, og það gaf mér mikla von
hversu mikið þessi sjúkdómur er
rannsakaður og hve miklar framfar-
ir eru í lyfjamálum. Ég hugsaði að
á endanum hlyti að finnast lækn-
ing við MS. Einnig var ég mjög fegin
að hafa ekki greinst með alvaralegri
sjúkdóm.
Annað kastið fékk ég svo í byrj-
un apríl. Þá hafði ég misst mikið
úr skólanum og lítið lært frá miðj-
um febrúar. Það olli mér miklum
kvíða gagnvart lokaprófunum sem
byrjuðu í lok apríl og ég átti erfitt
með að einbeita mér. Það hvarflaði
að mér að sleppa því að taka próf-
in og taka mér hlé frá skólanum. Ég
ákvað hins vegar að gefast ekki upp,
í versta falli næði ég ekki í prófun-
um. Einkunnirnar fóru fram úr mín-
um björtustu vonum og það hvatti
mig til horfa bjartari augum á fram-
tíðina.“
Heppin að eiga góða að
Hefur þig eitthvern tímann langað
til að gefast upp?
„Mér líður stundum illa og ég
er ekki alltaf jákvæð og sterk enda
tekur þetta mjög á andlegu hliðina.
Það er t.d. mjög erfitt þegar maður
finnur fyrir taugaverkjum eða mik-
illi þreytu. En ég er heppin að eiga
góða að sem ég get talað við. Til að
mynda er kærastinn minn, Aron,
alltaf til staðar og hvetur mig áfram.
Þess vegna staldrar þessi vanlíðan
aldrei lengi við. Ég held að það sé
afar slæmt að loka sig af með hugs-
unum sínum, enda líður mér alltaf
betur eftir að hafa talað um hlutina.
Ég finn oftast fyrir kvíða út af skól-
anum en þá minnir Aron mig á að
skólinn sé ekki það mikilvægasta í
lífinu, heldur heilsan.“
Hvað gerir þú til að hvetja þig áfram?
„Sjúkdómurinn hvetur mig
áfram. Ég fór að lesa hvað ég gæti
sjálf gert til að sporna við sjúkdóm-
inum og lifa betra lífi. Ég tók til í
mataræðinu samkvæmt þeim ráð-
leggingum sem ég fann og hætti
að borða mjólkurvörur og dró úr
hveiti- og sykurnotkun. Í staðinn fór
ég að borða mikið af hreinum, fersk-
um og óunnum mat. Ég hef alltaf
verið dugleg að stunda líkamsrækt
og hélt því áfram. Ég skráði mig svo
í þjálfun hjá Betri árangri í fyrra sem
kenndi mér mikið. Í framhaldinu
sá ég líka hvað bætt mataræði gerði
mér gott.“
Bjartsýn á framtíðina
Er eitthvað sem þig langar til að segja
við aðra í svipuðum aðstæðum?
„Það sem hefur reynst mér mjög
vel er að tala við fólk í sömu aðstæð-
um. Það skilja fáir í kringum mig
hvað ég er að ganga í gegnum og
þá er gott að geta talað við fólk sem
gengur í gegnum það sama. Ég er í
hóp á Facebook með fólki sem er
með MS. Þar talar fólk um allt sem
tengist sjúkdóminum.
Fyrir mig var svo mikilvægast að
læra að setja sjálfa mig í fyrsta sæti
og að geta sagt nei. Slíkar aðstæður
bjuggu til óþarfa stress og vanlíðan
sem ég þarf að forðast. Ég er enn-
þá að læra að segja nei, en ég fann
fyrir miklum létti þegar ég fór að
setja sjálfa mig í fyrsta sæti. Það er
líka mikilvægt að draga úr álagi og
streitu. Einkennin aukast í kringum
prófin en ég tek á því með því að
taka sjúkrapróf og gera þetta á mín-
um hraða. Mér líður best þegar ég
fer í ræktina og borða hollt. Ég mæli
með að fólk finn sér hreyfingu við
hæfi og gefi sér tíma úr deginum
fyrir hana. Göngutúr hreinsar hug-
ann og gerir sálinni gott.“
Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér?
„Ég er mjög bjartsýn á framtíð-
ina því mér gengur vel í skólanum
og svo byrjaði ég á nýju lyfi í janú-
ar sem er það besta á markaðnum.
Það fyrirbyggir köst allt að 70%. Ég
fékk fimm köst í fyrra og ætla að
leyfa mér að halda í þá von með já-
kvæðu hugarfari að árið 2015 verði
kastalaust.“ n
Þangað til næst
Ale ræktardurgur.
Alexandra Sif
Nikulásdóttir
ale_sif@hotmail.com
Jákvætt
hugarfar
„You can't have a postitive life, with
a negative mind“. Þessi tilvitnun er
í miklu uppáhaldi hjá mér þar sem
hún kenndi mér nákvæmlega það
sem hún stendur fyrir.
Hana lét ég prenta út til þess
að líma á vegginn í herberginu
mínu við rúmið. Hún er það
fyrsta sem ég sé þegar ég vakna
á morgnana og það síðasta sem
ég sé þegar ég fer að sofa. Virki-
lega góð áminning inn í daginn.
Það er einmitt sagt að ein jákvæð
hugsun um morguninn leggi
grunninn að deginum.
Hér áður fyrr var ég frekar nei-
kvæð manneskja og lífið sam-
kvæmt því. Eftir að ég tamdi mér
jákvætt hugarfar og að sjá það
jákvæða í öllu, hefur lífið svo
sannarlega breyst til hins betra.
Þess vegna finnst mér einstaklega
gaman að kenna öðrum að bæta
hugarfarið, því ég veit hversu gott
það er fyrir sálina. Það geri ég í
gegnum þá samskiptamiðla sem
ég held utan um og þjálfunina. Ef
ég tengi svo jákvætt hugarfar við
árangur og þær sem eru í þjálfun
hjá okkur, þá ná einmitt þær sem
senda jákvæðasta póstinn hvað
mestum árangri.
Lífið hefur upp á svo ótrúlega
margt að bjóða að það er synd
að eyða því í neikvæðar hugsanir
sem koma manni lítið áleiðis í
lífinu. Að sjálfsögðu er einung-
is mannlegt að fara aðeins út
af af sporinu endrum og eins,
enda stöðug vinna. Það er mikil-
vægt að dvelja ekki lengi í slíkum
hugsunum heldur standa aftur
upp og horfa fram á við með já-
kvætt hugarfar að vopni.
Hilma Ýr Davíðsdóttir tekst á við sjúkdóminn með jákvæðu hugarfari
Pollýanna
Þegar ég var
yngri var ég
mikill lestrar-
hestur og las
hverja barna- og
unglingabókina á
fætur annarri. Mér
þótti einstaklega vænt
um bókina sem ég átti
um hana Pollýönnu.
Hana gaf amma mín sál-
ug móður minni þegar hún var lítil
og fékk ég hana því frá mömmu.
Pollýanna var ein af þessum bók-
um sem ég las oftar en einu sinni,
þar sem persónan sem hún fjallaði
um heillaði mig svo mikið.
Síðan hefur mikið vatn runnið
til sjávar og ég var búin að gleyma
hvernig sagan um Pollýönnu er.
Katrín sem ég vinn með kallar
mig svo oft Pollýönnu að það
vakti áhuga minn á að lesa hana
aftur. Þegar ég sótti hana til
mömmu var textinn á bókarkáp-
unni, „Sagan af stelpunni sem
kom öllum í gott skap“, það fyrsta
sem ég rak augun í og það gladdi
hjartað mitt.
Eftir lesturinn hef ég komist að
því að þrátt fyrir að þetta sé barna-
bók þá er boðskapurinn virkilega
góður og á vel við enn þann dag í
dag. Pollýanna er því góð áminn-
ing og hvatning fyrir aðra. Það
er alveg magnað hvað þessi litla
stelpa sér það jákvæða í öllum að-
stæðum og því margir sem gætu
lært af henni. Mæli með henni til
lestrar, sama hvort þú hefur lesið
hana áður eða átt það eftir.
„Mér líður stundum
illa og ég er ekki
alltaf jákvæð og sterk
enda tekur þetta mjög á
andlegu hliðina.
Lyfjagjöf Hilma fær lyf sem
dregur úr köstunum. Í fyrra
fékk hún fimm köst en vonar
að árið 2015 verði kastalaust.