Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2015, Qupperneq 36
Vikublað 3.–5. mars 201536 Fólk
Stjörnur sem
eiga mörg börn
Sumir myndu ef til vill halda því fram að Hollywood væri enginn staður
fyrir börn. Þessar stjörnur hafa hins vegar ekki látið stjörnulífernið aftra
sér frá að eignast fjölskyldu. Sumir stærri fjölskyldu en aðrir.
Duglega Kris Raunveruleikastjarnan Kris Jenner eignaðist Kim, Kloe,
Kourtney og Rob með Robert Kardashian. Síðar eignaðist hún dæturnar Kendall og Kylie
með Bruce Jenner. Samtals á Kris sex börn.
Sex börn Jolie og Pitt Angelina ættleiddi Maddox, Pax og
Zahara áður en þau Brad Pitt fóru að vera saman. Hann ættleiddi þau líka og svo eignuðust
þau saman Shiloh og tvíburana Knox og Vivienne.
Falleg ofurmamma Ofurfyrirsætan Heidi Klum
átti Lenu áður en hún kynntist Seal. Söngvarinn ættleiddi Lenu og hjónakorn-
in eignuðust þrjú börn í viðbót, Lou, Henry og Johan. Hjónin skildu 2012.
Fimm börn Leikarinn
Chris O'Donnell og eiginkona hans, Caroline,
eiga saman fimm börn: Lily, Christopher Jr.,
Charles, Maeve og Finley.
Madonna á fjögur
Madonna eignaðist Lourdes með fyrrverandi
kærasta sínum, Carlos Leon, og soninn Rocco
með Guy Ritchie. Síðar ættleiddi söngkonan
David og Mercy.
Átta börn Grínistinn Eddie
Murphy á átta börn. Sem hann veit af.
Sjö börn Leikarinn Kevin
Costner á sjö börn í heildina, þau Grace, Lily,
Joe, Annie, Hayes, Cayen og Liam.
Uppeldi í beinni
Raunveruleikastjarnan Tori Spelling og
eiginmaður hennar Dean McDremott leyfðu
heiminum að fylgjast með uppeldi fjögurra
barna þeirra, Finn, Stellu, Hattie og Liam.
Sjö í
heildina
Kvikmyndaleiktjórinn
Steven Spielberg og
Kate Capshaw eiga sam-
tals sjö börn. Kate átti
tvö áður en þau fóru að
vera saman og Steven
eitt. Saman eignuðust
þau svo þrjú.
Öðruvísi nöfn Sjón-
arpskokkurinn Jamie Oliver á fjögur börn sem
bera ansi skemmtileg nöfn; Daisy Boo, Poppy
Honey, Buddy Bear og Petal Blossom.
Flott mamma Tón-
listarkonan Lauryn Hill á sex börn! Hópurinn
ber nöfnin Micah, Joshua, Zion, John, Selah
og Sarah.
Villtur pabbi Vand-
ræðagemsinn Charlie Sheen á fimm börn
með fyrrverandi eiginkonum sínum Denise
Richards og Brooke Mueller.
Þrjár mæður Stór-
stjarnan Robert De Niro á hvorki meira né
minna en sex börn með þremur konum.