Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Síða 2
Helgarblað 10.–13. apríl 20152 Fréttir
Lést á
herbergi sínu
Karlmaður sem fannst lát inn
í her bergi sínu á Hót el Örk í
Hvera gerði á laug ar dags kvöld var
Íslendingur á sex tugs aldri.
Beðið er eft ir gögn um frá
tækni deild lög regl unn ar á
höfuðborg ar svæðinu og niður
stöðu krufn ing ar, en ekki er talið
að and lát hans hafi borið að með
sak næm um hætti.
Fundu kíló af
fíkniefnum
Lögreglan á höfuðborgarsvæð
inu lagði hald á tæpt kíló af sterk
um fíkniefnum í umfangsmikl
um aðgerðum á dögunum. Um
var að ræða um 650 grömm af
amfetamíni og 250 grömm af
ecstasy (MDMA). Húsleit var
framkvæmd á fimm stöðum
á höfuðborgarsvæðinu vegna
málsins, en auk fíkniefna var lagt
hald á fjármuni sem grunur leik
ur á að séu tilkomnir vegna fíkni
efnasölu. Þá tók lögreglan einnig
í sína vörslu riffil með hljóðdeyfi.
Tveir karlar, annar á fertugs
aldri og hinn á fimmtugsaldri,
voru handteknir í þágu rann
sóknarinnar, en þeir hafa áður
komið við sögu hjá lögreglu.
Við aðgerðirnar naut lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu aðstoð
ar sérsveitar ríkislögreglustjóra
og fíkniefnaleitarhunds frá toll
inum. Rannsókn málsins hefur
staðið yfir í nokkurn tíma, og er
henni ekki lokið.
Fyrrnefndar aðgerðir eru liður
í að hamla gegn sölu, dreifingu
og framleiðslu fíkniefna.
R
ósa Signý Gísladóttir,
doktorsnemi í sálfræði
tungumáls, er í hópi þeirra
sem unnu að stórri rann
sókn á orðinu „ha“ og öðr
um svokölluðum „viðgerðum“ í sam
tölum í fjölmörgum tungumálum.
Grein sem kom út um rannsókn
ina hefur fengið mikla umfjöllun
og meðal annars hafa niðurstöður
hennar verið birtar í hinum þekktu
bandarísku dagblöðum New York
Times og Los Angeles Times.
Rósa Signý vann rannsóknina við
Max Planckstofnunina í Hollandi
ásamt kollegum sínum. Alls var
skoðað 31 tungumál, þar á meðal ís
lenska, rússneska, spænska, ítalska
og laoska, og byggði rannsóknin á
venjulegum samtölum fólks.
Engin tilviljun
„Meginniðurstaðan í verkefninu er
að öll löndin eru með orð á borð við
„ha“ í tungumálinu og þau eru alls
staðar lík. Þessi líkindi eru það mikil
að það getur ekki verið tilviljun,“
segir Rósa og bætir við að orðin séu
öll mjög stutt og hafi að geyma sér
hljóða á borð við „a“ eða „e“. „Það er
gaman að velta því fyrir sér af hverju
tungumálin þróuðu öll með sér
svona lík orð sem eru notuð í sama
tilgangi og staðfesta vandamál sem
tengist skilningi.“
Nokkrar kenningar hafa verið sett
fram um þessi líkindi. Bent hefur ver
ið á að hljóðin í „ha“ þarfnist lágmarks
áreynslu. Talfærin eru í hlutlausri stöðu
og tiltölulega auðvelt er að búa til þetta
orð. Því er hentugt að nota það í sam
tölum þar sem maður þarf að vera
snöggur að svara viðmælanda sínum.
Íslenska „ha-ið“ er öðruvísi
Rannsóknin á hinu íslenska „ha“
byggir á fimm og hálfs klukkutíma
samtölum sem tók Rósa upp með
32 Íslendingum og birtust niður
stöðurnar í tímaritinu Open Lingu
istics. Hún segir að meginniður
staðan varðandi íslenska orðið sé
að tónfall þess er öðruvísi en í öðr
um tungumálum. Íslenska „haið“
fari niður og tónfallið sé því fallandi.
Í öllum hinum tungumálunum, fyrir
utan það sem talað er í Ekvador, sé
tónfallið rísandi. „Þetta þótti svolítið
merkilegt vegna þess að oft er rísandi
tónfall tengt við óvissu og að maður
sé að kalla eftir einhverjum upp
lýsingum,“ segir hún. „Þess vegna
þótti skrítið að hið íslenska „ha“ væri
fallandi en það reyndar passar inn
í íslensku hljóðfræðina, því spurn
ingar í íslensku eru mjög oft með
fallandi tónfalli.“
„What“ í staðinn fyrir „ha“
Að sögn Rósu er notkun orðins „ha“
merkilegri en fólk kann að halda
í fyrstu og í raun og veru sé það,
rétt eins og aðrar „viðgerðir“, algjör
grundvallarforsenda eðlilegra sam
skipta. Fólk verði að nota það til að
geta átt eðlileg samtöl við fólk.
Hún segir hið íslenska „ha“ miklu
algengara í samtölum fólks en spurn
ingarnar „hvað segirðu“ eða „hvað
sagðirðu“. Í rannsókninni fann hún
jafnframt engin dæmi um „afsakið“
eða „fyrirgefðu“, líklega af því að þau
orð eru meira notuð í stofnanamáli.
Í breskri ensku er „pardon“ aftur á
móti mjög mikið notað og í amerísku
er „what“ mikið notað. Hún tók
einmitt eftir því að ungir Íslendingar
notuðu „what“ oft í staðinn fyrir „ha“
þegar um undrun er að ræða og báru
þá orðið fram með rísandi tónfalli
eins og í enskunni.
Heilalínurit í doktorsritgerð
„Þetta var mjög skemmtilegt verk
efni og það væri mjög spennandi að
skoða betur íslensk samtöl og talmál
í framtíðinni,“ segir Rósa sem er
einnig að leggja lokahönd á doktors
verkefni sitt. Það fjallar um skiln
ing á óbeinni merkingu, þ.e. þegar
við segjum eitt en meinum annað.
Í þeirri rannsókn notaðist hún við
heilalínurit til að skoða hvernig við
förum að því að skilja óbeina merk
ingu í samtölum. n
Heimild: Dingemanse M, Torreira F, Enfield NJ (2013) Is “Huh?” a Universal Word? Conversational
Infrastructure and the Convergent Evolution of Linguistic Items. PLoS ONE 8(11): e78273.
Tungumál Land Ha-orð (skrifað með
hljóðfræðitáknum)
íslenska Íslandi ha (
enska Bretlandi hã &
ítalska Ítalíu ε: &
lao Laos hã: &
murrinh-patha Ástralíu a: &
siwu Ghana ã: &
rússneska Rússlandi a: &
„Ha“ merkilegra
en fólk heldur
Doktorsnemi í sálfræði tungumáls tók þátt í stórri rannsókn sem var gerð á orðinu „ha“
Dæmi um „ha“ í tungumálum
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Rósa Signý Gísladóttir
Rósa tók þátt í stórri
rannsókn á orðinu „ha" og
öðrum svokölluðum við-
gerðum í samtölum fólks.
Mynd SiGTRyGGuR ARi
BURT MEÐ MÚSARÚLNLIÐ
Ei algengasta vandamálið meðal tölvunotenda – bæði barna og fullorðinna
Léir álagi af viðkvæmum
sinaskeiðum úlnliðsins
Minnkar og fyrirbyggir spennu í hendi,
handlegg, öxlum og hálsi
duopad.is
Náúruleg staða með DuoPadSlæm staða handleggs
Meðmæli sjúkraþjálfara
léur og þægilegur
ÚLNLIÐSPÚÐI
aðeins 4 gr.
Fæst á www.duopad.is – árfesting gegn músararmi
DuoPad fylgir hreyfingum
handleggsins í staðinn fyrir að
allur líkaminn þurfi að aðlagast
stuðningi sem liggur á borðinu.
1
2
3
4
EINKENNI MÚSARÚLNLIÐS
Aukinn stirðleiki í hálsi og axlasvæði,
síðar seiðingur út í handlegg.
Verkur upp handlegg að olnboga með
vanlíðan og sársauka.
Verkurinn verður ólíðandi og stöðugur
í olnboga, úlnliðum og öxlum. Stífleiki í
hálsi getur verið viðvarandi.
Fólk getur orðið ófært um að nota
tölvumús og jafnvel óvinnufært.