Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Síða 6
6 Fréttir Helgarblað 10.–13. apríl 2015
Lífeyrissjóðir töpuðu
á afskrift Icelandic
Icelandic Group afskrifaði 770 milljónir króna af viðskiptavild félags sem fyrirtækið keypti í fyrra
S
jávarútvegsfyrirtækið
Icelandic Group hf. afskrif-
aði í lok síðasta árs 5,2 millj-
ónir evra, jafnvirði 770 millj-
óna króna, af viðskiptavild
dótturfélagsins Icelandic – Ný-Fisk-
ur hf. Icelandic Group, sem fram-
leiðir og selur sjávarfang og er í eigu
18 lífeyrissjóða og Landsbankans,
greiddi samtals 12,2 milljónir evra,
sem svarar til tæplega 1,8 milljarða
króna, fyrir tvö fyrirtæki sem nú
mynda dótturfélagið.
Virðisrýrnun Icelandic - Ný-
Fisks nam því tæplega helmingi
kaupverðsins og skýrir að mestu 4,8
milljóna evra, rúmlega 710 milljóna
króna, tap móðurfélagsins á síðasta
ári. Þetta kemur fram í nýbirtum árs-
reikningi Icelandic Group fyrir árið
2014.
Huglægu eignirnar ofmetnar
Samkvæmt ársreikningnum keypti
Icelandic Group dótturfélagið í
janúar 2014 á níu milljónir evra
eða um 1,3 milljarða króna. Fé-
lagið var stofnað í Sandgerði 1989,
hét áður Ný-Fiskur hf. og sérhæf-
ir sig í sölu ferskra sjávarafurða,
sér í lagi þorsks og ýsu. Icelandic
Group keypti í kjölfarið Útgerðarfé-
lag Sandgerðis og greiddi 3,2 millj-
ónir evra fyrir einkahlutafélagið
eða 474 milljónir króna. Magnús
Bjarnason, þáverandi forstjóri
Icelandic Group, sagði kaupin mik-
ilvægt skref sem myndi styrkja að-
gengi samstæðunnar að sjávarauð-
lindum.
Stjórnendur Icelandic Group
ákváðu í kjölfarið að kanna virði
viðskiptavildar Icelandic - Ný-Fisks
sem samanstendur af huglægum
eða óefnislegum eignum dóttur-
félagsins. Kom þá í ljós að hún
hafði verið ofmetin um 770 millj-
ónir króna eða sem nemur tæpum
tveimur prósentum af heildareign-
um samstæðunnar. Afskriftin nam
aftur á móti fjórum prósentum af
eigin fé Icelandic Group sem var
130 milljónir evra, um 19,2 millj-
arðar króna, í lok síðasta árs.
Verri afkoma en 2013
Icelandic Group er í eigu Framtaks-
sjóðs Íslands (FSÍ). Lífeyrissjóður
verslunarmanna er stærsti einstaki
hluthafi FSÍ með 19,9 prósenta hlut
en þar á eftir koma Landsbankinn
með 17,7 prósent og Gildi lífeyris-
sjóður með 15,4. Sextán aðrir lífeyris-
sjóðir eiga níu prósent eða minna.
Stjórn Icelandic Group lagði til við
aðalfund félagsins í mars að enginn
arður yrði greiddur út til hluthafa
vegna síðasta rekstrarárs.
Samstæðan, sem á og rekur
fjórtán dótturfélög, skilaði á síð-
asta ári 4,8 milljóna evra tapi sam-
anborið við 2,3 milljóna evra hagn-
að árið 2013. Hagnaður Icelandic
Group fyrir fjármagnskostnað, af-
skriftir og skatta (EBITDA) nam aft-
ur á móti 13,2 milljónum evra, jafn-
virði 1,9 milljarða króna, árið 2014.
Samkvæmt ársreikningnum þurfti
Icelandic Group einnig að afskrifa
1,2 milljónir evra, um 177 milljón-
ir króna, af eignum breska dótturfé-
lagsins Icelandic Seachill Ltd.
Herdís Fjeldsted, fram-
kvæmdastjóri FSÍ og stjórnarfor-
maður Icelandic Group, vildi ekki
tjá sig um virðisrýrnun Icelandic
- Ný-Fisks þegar eftir því var leit-
að. Sara Lind Þrúðardóttir, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs
Icelandic Group, vildi heldur ekki
veita viðtal vegna málsins. Ekki
náðist í Árna Geir Pálsson, núver-
andi forstjóra Icelandic Group, við
vinnslu fréttarinnar. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Höfuðstöðvarnar í Borgartúni
Framtakssjóður Íslands (FSÍ) keypti
eignarhaldsfélagið Vestia af Lands-
bankanum í desember 2010. Icelandic
Group var eitt þeirra fyrirtækja sem
fylgdi með í kaupunum. Mynd SiGtryGGur Ari
Stjórnar-
formaður-
inn Herdís
Fjeldsted vildi
ekki tjá sig um
virðisrýrnun
Icelandic - Ný-
Fisks þegar
eftir því var
leitað.
Ekki króna upp í kröf-
ur á kúlulánafélag
Lánuðu lykilstarfsmönnum sínum 8,5 milljarða
E
kkert fékkst upp í gjaldþrot
eignarhaldsfélagsins AB 133
ehf., en félagið er með sama
lögheimili og Kjartan Smári
Höskuldsson, sem er forstöðumað-
ur í eignastýringu Íslandsbanka.
Lýstar kröfur í félagið voru 364
milljónir króna.
Í skýrslu Rannsóknarnefndar
Alþingis um fjármálahrunið kemur
fram að Ari Daníelsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Glitnis í Lúxem-
borg, hafi fengið 232 milljónir að
láni til hlutabréfakaupa í Glitni í
gegnum félagið AB 133 fyrir hrun.
Í umfjöllun DV um málið árið
2010 kom fram að Ari fékk 170
milljóna króna kúlulán til hluta-
bréfakaupa í Glitni í maí 2008,
eða sama dag og bankinn veitti 16
stjórnendum sínum 8,5 milljarða
króna kúlulán til hlutabréfakaupa
í bankanum. Þá stóð lánið í 232
milljónum króna. n
Gat á flugvél
Icelandair
Flugvél Icelandair á leið frá
Keflavík til Denver í Bandaríkj-
unum varð fyrir eldingu skömmu
eftir flugtak á miðvikudag. Flug-
vélin lenti engu að síður heilu
og höldnu í Denver. Á mynd,
sem farþegi flugvélarinnar tók,
sést stórt gat á nefi vélarinn-
ar. Farþeginn, Brandon Bold-
enow, segir að flugstjórinn hafi
greint farþegum frá því að ekkert
amaði að vélinni, kerfi virkuðu
sem skyldi og var fluginu haldið
áfram og vélinni ekki snúið við.
Nokkuð algengt er að flugvélar
verði fyrir eldingum, en skemmd-
ir sem þessar hefðu átt að leiða
til þess að vélinni yrði snúið við
til Keflavíkur, að mati flugsér-
fræðingsins Greg Feith, sem segir
í samtali við bandaríska fjölmiðil-
inn 9News vera hissa á ákvörðun
um að halda áfram til Denver en
Icelandair segir að öllum öryggis-
reglum hafi verið fylgt.
Hótaði að skaða
sjálfan sig
Lögregla handtók karlmann í
vesturbæ Reykjavíkur eftir að
hann hafði hótað að skaða sjálf-
an sig og aðra. Ekki kemur ná-
kvæmlega fram hvern hann hót-
aði að skaða. Maðurinn fékk að
gista fangageymslur lögreglunn-
ar. Lögreglan stöðvaði svo bifreið
í Breiðholti um tíuleytið á mið-
vikudag. Ökumaðurinn er grun-
aður um að hafa ekið bifeiðinni
undir áhrifum fíkniefna auk þess
sem það kom í ljós að hann hafði
verið sviptur ökuréttindum. Í of-
análag var maðurinn með fíkni-
efni á sér sem grunur leikur á að
maðurinn hafi ætlað að selja. Bif-
reiðin var ótryggð og skráningar-
númer því klippt af henni.
HALTU HÚÐINNI GÓÐRI
Dagleg notkun
veitir sjáanlegan árangur
Derma Wipes hreinsar húðina.
Hentar vel fyrir feita húð
og húð sem hættir til að
fá bólur
Fæst í apótekum um land allt
Ari daníelsson