Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Side 8
Helgarblað 10.–13. apríl 20158 Fréttir English Pub lok- að í Hafnarfirði Skemmtistaðurinn English Pub í Hafnarfirði hefur verið seldur og mun hann skipta um nafn á næstu vikum. John Mar Erlings­ son keypti staðinn af bræðrunum Hermanni og Ingvari Svendsen en söluverðið er trúnaðarmál. „Þetta var bara orðið gott í bili þarna. Við vildum einbeita okkur að Miðbænum,“ segir Ingvar, sem rekur American Bar í Austurstræti í Reykjavík með bróður sínum. Þeir áttu einnig hlut í English Pub í Austurstræti en hafa selt hann. Tæp fjögur ár eru liðin síðan English Pub var opnaður í Flatahrauni í Hafnarfirði. Þá­ verandi eigandi, Arnar Þór Gísla­ son, er einn af eigendum English Pub í Austurstræti. A lls munu fimm skólastjórn­ endur grunnskóla í Reykjavík láta af störfum í vor. Grunn­ skólar borgarinnar eru 37 tals­ ins og því er um óvenju hátt hlutfall að ræða. Skólastjórnendurnir starfa í Austurbæjarskóla, Breiðagerðis­ skóla, Réttarholtsskóla, Seljaskóla og Vesturbæjarskóla. Allir sem nú láta af störfum eru að nýta sér svokallaða 95 ára reglu en samkvæmt henni mega starfsmenn fara á eftirlaun ef starfs­ aldur og aldur viðkomandi er saman­ lagt 95 ár eða hærri. Samkvæmt heimildum DV hef­ ur álag á yfirstjórnir grunnskólanna aukist verulega síðan gripið var til stórtækra niðurskurðaraðgerða eftir hrun. Erfitt er þó að greina hver niðurskurðurinn var nákvæmlega í krónum. Sigrún Björnsdóttir, upp­ lýsingafulltrúi Skóla­ og frístunda­ sviðs, gaf þessi svör: „Fyrir liggur að á tímabilinu 2008–2013 lækkuðu heildarútgjöld á hvert grunnskóla­ barn um 8% að raungildi vegna ým­ issa hagræðingaraðgerða. Úthlutun fjármagns til stjórnunar í grunnskól­ um byggir á því, að skv. lögum um grunnskóla ber að vera skólastjóri við hvern skóla, auk staðgengils sem oft­ ast er aðstoðarskólastjóri eða deildar­ stjóri þar sem ekki er aðstoðarskóla­ stjóri. Auk þess er veitt fjármagn til kennara og sérkennara, en engin sér­ stök úthlutun er vegna deildarstjóra eða annarra millistjórnenda.“ Það rímar við heimildir DV um að ákall sé frá skólastjórnendum um aukið fjármagn til þess að hægt sé að ráða millistjórnendur, t.d. í formi deildarstjóra yfir ákveðnum bekkj­ ardeildum. Slíkir deildarstjórar létta álaginu verulega á yfirstjórnendum. Viðmælendur DV eru einnig sam­ mála um að skólaumhverfið hafi þyngst verulega undanfarin ár. Það skal þó ekki fullyrt að aukið starfsálag spili eitthvað inn í ákvörðun skólastjórnendanna sem nú láta af störfum. Þeir sem DV náði tali af þvertóku fyrir það og sögðu að um eðli­ lega endurnýjun væri að ræða. Sumir tóku hins vegar undir það að álag hefði vissulega aukist síðustu ár. n bjornth@dv.is Álag á yfirstjórnum grunnskólanna Fimm skólastjórnendur í Reykjavík láta af störfum í vor Telur „fyllstu ástæðu“ til að rannsaka bankaleka S tjórnendur Borgunar hf. íhuga að krefjast rannsókn­ ar á því hvort bankaleynd hafi verið rofin þegar upp­ lýsingar um úttekt greiðsl­ umiðlunarfyrirtækisins af reikningi hjá Sparisjóði Vestmannaeyja röt­ uðu í fjölmiðla í lok síðasta mánað­ ar. Þetta staðfestir Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, í samtali við DV. „Þessi leki er þess eðlis að okkur þykir fyllsta ástæða til að hann verði rannsakaður,“ segir Haukur og bæt­ ir við að stjórnendur fyrirtækisins ætli að fara yfir málið á næstu dög­ um. Birtist í Morgunblaðinu Borgun, sem er meðal annars í eigu Íslandsbanka, var innstæðu­ eigandi í Sparisjóði Vestmannaeyja (SV) þegar fréttir bárust af slæmri stöðu sjóðsins þann 26. mars síð­ astliðinn. Fyrstu vísbendingar rannsóknar á lánasafni SV lágu þá fyrir en þær sýndu mikla virðis­ rýrnun safnsins sem hefði á end­ anum getað leitt til gjaldþrots sparisjóðsins. Sama dag hófu við­ skiptavinir SV áhlaup á sjóðinn sem nam tæpum 700 milljónum króna og rýrði laust fé hans um helming. Í kjölfarið ákvað Fjár­ málaeftirlitið (FME) að heim­ ila samruna SV og Landsbankans enda fullnægði eiginfjárgrunnur sparisjóðsins ekki 14,7 prósenta eiginfjárkröfu FME. Landsbank­ inn yfirtók því allar eignir og skuld­ bindingar sjóðsins. Þann 31. mars, tveimur dög­ um eftir að samruninn var heimil­ aður, birtist frétt í Morgunblaðinu um að Borgun hefði tekið rúm­ ar 200 milljónir króna út úr SV í áhlaupinu eða rétt um þriðjung heildarupphæðarinnar. Var þess ekki getið hvaðan upplýsingarnar komu heldur vitnað til ónafn­ greindra heimilda. Færi til FME Haukur vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið í gær þegar eft­ ir því var leitað. Ljóst er að beiðni um rannsókn á því hvort stjórn­ endur eða starfsmenn SV hafi rof­ ið þagnarskyldu myndi enda á borði FME. Samkvæmt núgildandi lögum um fjármálafyrirtæki eru stjórnarmenn, framkvæmdastjór­ ar, endurskoðendur, starfsmenn og aðrir sem taka að sér verk í þágu fjármálafyrirtækja bundnir þagnarskyldu um upplýsingar sem þeir afla við störf sín og varða við­ skipti eða einkamálefni viðskipta­ vina. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi eða fjármálafyrirtæki falli eins og í tilviki sparisjóðsins. SV átti 0,4 prósenta hlut í Borg­ un þegar samruninn við Lands­ bankann gekk í gegn. Íslandsbanki er stærsti eigandi greiðslumiðlun­ arfyrirtækisins með 63,47 prósenta hlut. Eignarhaldsfélagið Borgun slf. á 25,48 prósent. n Borgun íhugar að krefjast rannsóknar á því hvernig viðskipti fyrirtækisins við SV rötuðu í fjölmiðla Sparisjóðurinn Greiðslumiðlunar- fyrirtækið Borgun hf. átti innstæðu í Sparisjóði Vestmannaeyja þegar fyrstu fréttir bárust af slæmri stöðu sjóðsins. Mynd EyjaFréttir Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is „Þessi leki er þess eðlis að okkur þykir fyllsta ástæða til að hann verði rannsakaður Forstjóri Borgunar Haukur Oddsson segir stjórnendur fyrirtækisins ætla að fara yfir það á næstu dögum hvort ósk- að verði eftir rannsókn á því hvort bankaleynd hafi verið rofin. Afþakkaði viðtal Í dag birtir DV umfjöllun Björns Jóns Bragasonar um íslenskan mann sem hvarf á dularfullan hátt í Bandaríkjunum árið 1988. Tólf árum síðar birtist hann aftur, eftir að hafa verið úrskurðaður látinn á Íslandi og syrgður af fjöl­ skyldu sinni. Maðurinn, Halldór Heimir Ísleifsson, býr á Íslandi í dag en þrátt fyrir margar tilraunir fjölmiðla hefur hann aldrei tjáð sig um málið opinberlega. Við vinnslu blaðsins hafði blaðamað­ ur samband við Halldór Heimi og bauð honum í viðtal, hann neit­ aði og sagðist ekki hafa í hyggju að tjá sig um málið, hvorki nú né síðar. Sjá ítarlega umfjöllun um málið á síðu 24. 7 manna bíll - Leðurinnrétting - Sjálfskiptur - 17” Álfelgur - Bakkskynjarar - Spólvörn og stöðugleikakerfi - Sæti fellanleg ofaní gólf - Miðstöð afturí - Mikið litað gler í afturgluggum - ofl. lúxus. - Eyðsla í blönduðum akstri er 7,9 L Nývirði 10.4 milljónir þennan færðu á 2 milljónum minna eða 8.380 þús. Nýr Chrysler Town & Country DIESEL eftirársbíll ←

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.