Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Side 10
10 Fréttir Helgarblað 10.–13. apríl 2015
Heiðarleiki borgar sig
ekki í Handónýtu kerfi
Þ
etta kom bara eins og skell-
ur fyrir okkur,“ segir Anna
Katrín Snorradóttir, tveggja
barna móðir og námsmaður,
sem var synjað um undan-
þágu frá afborgunum á námsláni
frá LÍN á þeim forsendum að sam-
býlismaður hennar og barnsfaðir
var of tekjuhár í vinnu með námi á
síðasta ári. Anna, sem er nýkomin
úr fæðingarorlofi, hafði gert ráð fyr-
ir að fá undanþáguna þar sem hún
er enn í námi en segir að hún hafi
aldrei fengið neina meldingu frá LÍN
um að umsókn hennar hefði ver-
ið synjað. Það kom ekki í ljós fyrr en
eftir að innheimtubréf hafði borist
frá Motus. Hún segir að kerfið sé
meingallað. Það ýti undir óheiðar-
leika og svindl, ungu fjölskyldufólki
sé gert illmögulegt að mennta sig og
að áframhaldandi skólagöngu þeirra
beggja sé nú stefnt í voða.
Áður fengið undanþágu
Forsaga málsins er að Anna Katrín
útskrifaðist úr Keili í ársbyrjun 2013
og fór áfram í tölvunarfræði við Há-
skólann í Reykjavík um haustið það
ár. Námslánið sem nú er verið að
rukka hana um er vegna skólagöngu
hennar í Keili. Hún kveðst áður hafa
getað fengið undanþágu frá afborg-
unum vegna þess að hún er í námi.
En nú hafi reglum LÍN verið breytt
og ákveðin tekjumörk sett inn. Þær
kveða á um að ef tekjur sambýlisfólks
eða hjóna voru yfir 6,6 milljónum
árið 2014 fást engar slíkar undanþág-
ur. Anna Katrín segir að hún og mað-
urinn hennar hafi verið örlítið yfir
þessum mörkum en þar munar mest
um tekjur sambýlismanns hennar
sem var í fullu starfi meðfram námi
við Háskólann í Reykjavík til að fram-
fleyta hinni ungu fjölskyldu. Sjálf var
Anna í fæðingarorlofi í sex mánuði
af árinu og aðeins með tekjur upp á
hálfa milljón króna sjálf.
Á síðustu önn, fyrir áramót,
kláraðist fæðingarorlof hennar. Til að
brúa bilið þar til sonur hennar kæmist
til dagmömmu í janúar ákvað hún að
vera heima með drenginn og í 75 pró-
sent námi, til að eiga rétt á námslán-
um og láta enda ná saman. Hún var
því fast að því tekjulaus en nú upp-
lifa þau að verið sé að refsa þeim fyrir
að reyna að framfleyta fjölskyldunni
með heiðarlegum hætti vegna þess
að faðir barnsins var duglegur við að
vinna og hafði ágætis tekjur. Sótti um undanþágu
Anna Katrín segir að þar sem hún sé
enn í námi hafi hún ekki gert ráð fyr-
ir að þurfa að greiða af námsláninu.
Um er að ræða fasta afborgun upp á
125 þúsund krónur sem þau hafi ekki
gert ráð fyrir í sínum tekjuáætlunum.
Í lok febrúar síðastliðinn barst rukk-
un frá LÍN fyrir þessari afborgun.
Anna Katrín kveðst hafa farið strax
inn á sitt „svæði“ og sótt um undan-
þágu frá greiðslu á þeim forsendum
að hún væri í lánshæfu námi. Henni
barst um hæl staðfestingarpóstur
frá LÍN um að umsóknin væri mót-
tekin og að 5–10 daga gæti tekið að
vinna úr umsókninni. Síðan heyrði
Anna Katrín ekkert meira frá LÍN fyrr
en hún fær annan rukkunarpóst frá
sjóðnum.
Endaði hjá Motus
„Ég spurði enn á ný um stöðuna á
umsókn minni og óskaði eftir aðstoð
en fékk ekkert svar. Í gær [þriðjudag]
fékk ég svo bréf frá Motus um að ég
þyrfti að greiða kröfuna og hefði til
þess þrjá daga. Annars lendi ég á
vanskilaskrá og þess háttar vand-
ræðum,“ segir Anna Katrín.
Hún kveðst hafa hringt umsvifa-
laust í LÍN í leit að svörum varðandi
undanþáguna. Eftir nokkurt þref
fékk hún loks svar. „Þá kemur þetta
í ljós í símtalinu, með engum fyrir-
vara, að ég eigi ekki rétt á undanþágu
af því að við vorum yfir leyfilegum
hámarkstekjum fyrir sambýlisfólk
á ári. Rétt slefuðum yfir mörkin. Ég
spyr því, á maðurinn minn að bera
ábyrgð á því að ég borgi námslán-
ið mitt vegna þess að hann er með
góð laun? Ég fékk námslánin metin
n Fékk ekki undanþágu hjá LÍN vegna launa sambýlismanns n Frétti af synjun í innheimtubréfi frá Motus
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
„Ég fékk náms-
lánin metin út frá
því hvað ég ein var með
í laun, það var ekki tekið
tillit til hans tekna þegar
ég fékk námslánið en
samt á hann að sjá um
að borga þau.
Hegnt fyrir heiðarleika
Anna Katrín segir að ef hún
væri ekki skráð í sambúð fengi
hún undanþágu frá afborgun
á námslánunum, hærri náms-
lán og hærri barnabætur. Hún
er verulega ósátt með að vera
refsað fyrir eljusemi sambýlis-
mannsins. Mynd Sigtryggur Ari
Lín Anna Katrín sótti um undanþágu af afborgunum lána hjá LÍN.
Sömdu
um bætur
Gísli Freyr Valdórsson, fyrrver-
andi aðstoðarmaður innanrík-
isráðherra, og Tony Omos hafa
náð sátt um bætur fyrir þann
skaða sem Tony hlaut vegna
lekamálsins svokallaða.
Málið var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur á fimmtudag.
Eins og þekkt er orðið lak
Gísli Freyr persónuupplýsing-
um um Tony til fjölmiðla og úr
því varð lekamálið svokallaða.
Það leiddi svo til þess að Hanna
Birna Kristjánsdóttir sagði af sér
sem innanríkisráðherra.
Tony krafði Gísla Frey upp-
haflega um fimm milljónir króna
í bætur fyrir þann skaða sem
hann hlaut vegna málsins.
Í mars síðastliðnum greindi
DV frá því að sáttatilboð væri á
borðinu í málinu. Þá sagði Stef-
án Karl Kristjánsson, lögmað-
ur Tonys, að Tony væri að íhuga
tilboðið.
Í samtali við DV fyrir
skemmstu sagði Ólafur Garðars-
son, lögmaður Gísla Freys, að
sátt hefði náðst í málinu. Ekki
fékkst upp gefið hversu háa upp-
hæð Gísli Freyr mun borga Tony.
Tony Omos er því þriðji aðil-
inn sem Gísli Freyr greiðir bæt-
ur vegna málsins en fyrir hefur
náðst sátt í máli barnsmóður
Tonys, Evelyn Glory Joseph, og
Gísla Freys. Gísli hefur einnig náð
sátt í máli íslenskrar konu sem
var nafngreind á minnisblaðinu
sem sent var til fjölmiðla.
Ekki er vitað hversu háar bæt-
ur voru greiddar í þeim málum.
Vilja hjálpa
ungu fólki
Þessa vikuna stendur Hjálp-
arsími Rauða krossins 1717 fyrir
átaksviku sem snýr að málefnum
barna og ungmenna.
Ungmenni undir 20 ára aldri
eru um 15% af þeim sem hafa sam-
band við Hjálparsímann. Þrátt fyrir
lágt prósentuhlutfall telur Rauði
krossinn að þörfin sé talsvert meiri
og því var hleypt af stokkunum
netspjalli Hjálparsímans sem nálg-
ast má á www.1717.is.
Þannig getur ungt fólk (og allir
aðrir) nýtt sér þennan samskipta-
máta á sama hátt og símanúmerið
1717; allan sólarhringinn, nafn-
laust og alveg ókeypis. Netspjall-
ið er mikilvægur liður í að auka
þjónustu Hjálparsímans en með
því er auðveldara fyrir börn og
ungmenni að tala um erfið mál-
efni svo sem fíkniefni, drykkju,
kynlíf og kynvitund.
herbergi til leigu
Til leigu herbergi á góðum stað í Vesturbænum
í grennd við háskólasvæðið. Um er að ræða
c.a. 20 fm herbergi með húsgögnum.
Allar upplýsingar er að fá hjá mér í síma:
546-0028/844-5022. Logi