Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Side 14
14 Fréttir Viðskipti Helgarblað 10.–13. apríl 2015
Skeljungur skráður
á hlutabréfamarkað
n Stefnt að skráningu í byrjun næsta árs n Samið við Íslandsbanka og Arion banka
S
keljungur hefur ráðið Ís-
landsbanka og Arion banka
til að vinna að undirbún-
ingi að skráningu félagsins
á hlutabréfamarkað í Kaup-
höll Íslands. Stefnt er að því að hluta-
fjárútboð geti farið fram á fyrstu
mánuðum næsta árs, að sögn Val-
geirs Baldurssonar, forstjóra Skelj-
ungs.
Skeljungur verður annað elds-
neytisfélagið sem fer á hlutabréfa-
markað en N1, stærsta fyrirtækið á
eldsneytismarkaði, var skráð í Kaup-
höllina undir árslok 2013. Í samtali
við DV segir Valgeir að of snemmt
sé að segja til um hversu stór hlutur
verði boðinn til sölu til almennra
fjárfesta en stærstu hluthafar Skelj-
ungs eru í dag Arion banki, með
tæplega 15% hlut, ásamt ýmsum líf-
eyrissjóðum landsins og öðrum fag-
fjárfestum.
Ríflega ár er liðið síðan nýir
eigendur tóku við rekstri sameinaðs
félags Skeljungs og færeyska olíu-
félagsins P/F Magns. Kaupverðið á
félögunum nam samtals átta millj-
örðum króna en það var SÍA II, fram-
takssjóður í rekstri sjóðsstýringar-
fyrirtækisins Stefnis, sem fór fyrir
kaupunum. Stefnir er dótturfélag
Arion banka. Heildareignir sam-
stæðunnar námu um 16,3 milljörð-
um króna í árslok 2013 og velta fyr-
irtækjanna var tæplega 33 milljarðar
króna. Ekki hefur verið birtur árs-
reikningur fyrir árið 2014.
Aðspurður segist Valgeir ekki ótt-
ast að Skeljungur sé of lítið félag til að
verða tekið til viðskipta á hlutabréfa-
markaði og bendir á að N1 hafi skil-
að hluthöfum sínum góðum ábata
frá því að félagið fór á markað. Gengi
bréfa N1 hafa hækkað um liðlega
40% frá skráningu og þá hafa hluthaf-
ar fengið greitt til sín samtals um 5,5
milljarða króna vegna arðgreiðslna og
lækkunar hlutafjár félagsins.
Sex tilboð bárust
Samkvæmt skilyrðum sem
Samkeppniseftirlitið setti við kaup-
in á Skeljungi í ársbyrjun 2014 var
félaginu skylt að leita tilboða með
hlutlægum hætti vegna þjónustu og
ráðgjafar við fyrirhugaða skráningu
á hlutabréfamarkað. Valgeir segir að
sex fjármála- og verðbréfafyrirtæki
hafi gert tilboð í verkefnið. Niður-
staðan var sú að gengið var að tilboð-
um Íslandsbanka, sem mun sjá um
skráningarlýsingu, og Arion banka,
sem mun hafa umsjón með fram-
kvæmd hlutafjárútboðsins.
Fram kom í umfjöllun Viðskipta-
blaðsins í janúar síðastliðnum að
heildarkostnaður fyrirtækja við
skráningu í Kauphöllina hafi á síð-
ustu árum verið á bilinu 100 til 300
milljónir króna, oftast yfir 200 millj-
ónir. Á þessu ári munu þrjú ný fé-
lög bætast á aðallista Kauphallar Ís-
lands – Reitir, Eik og Skipti – og er
Arion banki umsjónaraðili með öll-
um þeim útboðum.
Á meðal helstu einkafjárfesta sem
eiga hlut í Skeljungi eru Jón Diðrik
Jónsson, stjórnarformaður og eig-
andi afþreyingarfyrirtækisins Senu,
Ingi Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri
Lyfju sem seldi 9% hlut sinn í lyfjafyr-
irtækinu Invent Farma á árinu 2013
með góðum hagnaði, og Steinar Þór
Guðgeirsson, hæstaréttar lögmaður
og fyrrverandi formaður skilanefnd-
ar Kaupþings. Jón Diðrik er stjórnar-
formaður Skeljungs en Ingi er vara-
maður í stjórn félagsins. Þá situr Eva
Sóley Guðbjörnsdóttir, varaformað-
ur bankaráðs Landsbankans og for-
stöðumaður á fjármálasviði Öss-
urar, í stjórn Skeljungs fyrir hönd
fjárfestingafélags í eigu Steinars.
Samkvæmt upplýsingum um
hluthafa Skeljungs á heimasíðu fé-
lagsins á Einarsmelur ehf., fjár-
festingafélag Einars Arnar Ólafsson-
ar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs,
einnig hlut í félaginu. Einar Örn lét
af störfum sem forstjóri Skeljungs
í mars í fyrra, skömmu eftir að nýir
eigendur komu að rekstrinum, og
tók Valgeir þá við starfi hans. n
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Fyrrverandi
eigendur
högnuðust
um milljarða
Fyrrverandi eigendur Skeljungs og fær-
eyska olíufélagsins P/F Magns högnuð-
ust um marga milljarða króna við sölu á
félögunum fyrir liðlega ári.
Aðaleigendur Skeljungs
voru hjónin Svanhildur
Nanna Vigfúsdóttir
og Guðmundur Örn
Þórðarson en þau
keyptu upphaflega
51% hlut í Skeljungi
af Íslandsbanka haustið
2008 og eignuðust félagið að fullu
árið 2011. Í lok október í fyrra var síðan
upplýst um það í Morgunblaðinu að
Halla Sigrún Hjartardóttir, þáverandi
stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins,
Einar Örn og Kári Þór Guðjónsson, ráð-
gjafi og fjárfestir, hefðu einnig hagnast
hvert um liðlega 830 milljónir króna við
sölu á Skeljungi og P/F Magni.
Þremenningarnir höfðu áður allir
starfað í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka
en hætt þar störfum 2009 og 2011.
Höfðu þau keypt 66% hlut í Heddu
eignarhaldsfélagi um mitt ár 2011 af
Svanhildi og Guðmundi en það félag
hafði vorið 2009 eignast P/F Magn
fyrir aðeins 233 milljónir króna. Í árslok
2013 átti Hedda 66% hlut í Skeljungi og
25% hlut í Skeljungi. Félögin voru síðan
seld saman fyrir samtals átta milljarða
króna í janúar 2014. Í kjölfar frétta af
eignarhaldi Höllu Sigrúnar ákvað hún að
hætta sem stjórnarformaður FME þegar
skipun hennar rann út um síðastliðin
áramót.
Á markað Skelj-
ungur verður annað
eldsneytisfélagið
sem verður skráð í
Kauphöllina.
Forstjóri Skeljungs
Óttast ekki að félagið
sé of lítið til að fara á
hlutabréfamarkað.
Við prentum skýrslur - allt árið
• Kjölheftun
• Kjöllímdar
• Rafræn vefútgáfa
• Allar stærðir
• Allt að 124 síður
• Þykkari kápa
• 80 -130 gr. innsíður
Umslag annast prentanir ársskýrslna á gæðapappír og sér um allan
frágang í framhaldinu.
Stafræn prentun ársskýrslna er góður kostur og heldur kostnaði niðri
og skiptir þá engu hvort óskað sé eftir einu eintaki af ársskýrslu eða
100.
Hið sama gildir um annars konar skýrslur, t.d. afkomuskýrslur fyrir
hvern fjórðung eða hálfsárslega, eða annars konar prentefni sem
fyrirtæki eða félög þurfa að prenta og dreifa til hluthafa og/eða
viðskiptavina.
Fáðu tilboð í síma: 533 5252 eða umslag@umslag.is
Við bjóðum hraða og góða þjónustu!
Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is
Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is