Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Qupperneq 16
Helgarblað 10.–13. apríl 201516 Fréttir
Skipuleggur vændisferðir
erlendis fyrir Íslendinga
n Ekki bara lúðar sem eiga ekki séns í aðrar konur n Vill bjóða löglega leið til að kaupa vændi
Ó
li er 29 ára einhleypur
námsmaður í Hamborg í
Þýskalandi. Hann stundar
framhaldsnám í viðskipta-
geiranum en meðfram
náminu stundar hann nýstárlega
tegund ferðaþjónustu. Óli skipu-
leggur vændisferðir fyrir Íslendinga
til Evrópu og stóð fyrir sinni fyrstu
ferð um miðjan janúar þar sem
hann leiddi sex íslenska karlmenn
í allan sannleikann um lostahlið-
ar Berlínarborgar fyrir 50 þúsund
krónur á haus.
Umræða og eftirspurn
„Ég hef aldrei skilið rökin á bak við
vændislögin á Íslandi. Eftirspurnin
er greinilega til staðar þó að vændi
sé ólöglegt, hvort sem fólki líkar það
betur eða verr. Ég heyrði af þessari
hugmynd fyrir nokkrum árum
þegar ég var ennþá búsettur á Ís-
landi. Það var fyrir hrun og einhver
aðili var að skipuleggja svona ferð-
ir, það var reyndar þekktur maður í
þjóðfélaginu. Ég fór ekki í svona ferð
en þær voru ansi frægar fyrir hrun.“
Þarna kviknaði hugmyndin og þegar
Óli flutti til Þýskalands fyrir ári síðan
ákvað hann að láta til skarar skríða
og hóf að skipuleggja ferðirnar.
„Umræða um vændi á Íslandi
hefur verið mikil á undanförnum
árum. Menn eru að fara fyrir dóm
fyrir að hafa keypt vændi, og þurfa
að greiða háar sektir. Þá datt mér í
hug að það væri sniðugt að bjóða
þessum mönnum upp á löglega leið
til þess að kaupa sér vændi.“ Óli setti
inn upplýsingar á heimasíðu sem
auglýsir vændi og fyrirspurnirnar
byrjuðu að streyma inn.
Sex Íslendingar í kynlífsferð
Fyrsta skipulagða ferð Óla átti sér
stað um miðjan janúar. „Það komu
sex einstaklingar til mín, eða réttara
sagt hitti ég þá í Berlín. Ég er ekki
ferðaskrifstofa – heldur koma þeir
á eigin vegum og fá mína leiðsögn
um borgina með áherslu á vændi
og kynlífskaup. Ég finn fyrir þá hót-
el og kynni fyrir þeim hvað er hægt
að gera í borginni, svo keyri ég þá á
milli staða. Það er þjónustan sem ég
rukka fyrir. Við völdum Berlín vegna
þess að flugið þangað er á góðu
verði og þjónustan sem er í boði er
mikil og fjölbreytt. Þannig var auð-
velt fyrir hvern og einn að finna það
sem hann vildi.“
Í undirbúningi ferðarinnar var
Óli í tölvupóstsambandi við menn-
ina, sem sögðu honum hverju þeir
væru að leita að. „Sumir voru ekki
með neinar sérstakar kröfur en aðr-
ir reyndari í þessum bransa.“ Að sögn
Óla er þjónustan sem er í boði mjög
breytileg en verðið er svipað um allt
Þýskaland. „Hérna greiðir maður
50 evrur fyrir það sem mundi kosta
35 þúsund krónur á Íslandi. Þetta er
staðlaður hálftími sem inniheldur
munnmök og samfarir með smokk.
Yfir helmingur vændiskvenna í
þýskalandi býður þetta verð. Sumar
rukka samt allt að því 80 evrur fyrir
sama pakka – það eru þá vændiskon-
ur sem eru líka klámmyndastjörnur
eða líta sérstaklega vel út.“
Beinir viðskiptum til klúbba
„Hér eru reknir kynlífsklúbbar, svo-
kallaðir saunaklúbbar, sem eru
flestir mjög huggulegir með sund-
laugum og gufuböðum. Maður
greiðir 20–80 evrur í aðgangseyri
og fær slopp og inniskó. Innifalið
er líka matur og drykkur, reyndar
er aldrei selt áfengi, en það er hægt
að hanga þarna allan daginn. Inni
á þessum stöðum eru svo vænd-
iskonur sem vinna á eigin vegum.
Þær ganga um á nærfötum eða al-
veg naktar og rukka sérstaklega fyrir
sína þjónustu.“
Blaðakonu leikur forvitni á
að vita hvort einhver leið sé fyr-
ir vændiskaupendur að sannreyna
hvort vændiskonan sé fórnarlamb
mansals eða ekki. „Í Þýskalandi eru
starfandi samtök sem starfa gegn
mansali. Þeir staðir og klúbbar sem
bjóða upp á vændi eru flestir aðilar
að þessum samtökum og ég reyni
að beina mönnum þangað. Maður
notar skynsemina líka til að reyna
að átta sig á þessu. Þeir sem koma
í ferðirnar og spyrja um þær hafa
aldrei minnst á þetta. Ég hef ekki átt
nein alvarleg samtöl um áhyggjur af
þessu, en ég trúi því ekki að neinn sé
hlynntur mansali.“
Ekki lúðar sem kunna ekki á konur
En hverjir eru að koma í þessar ferð-
ir, voru þetta sex lúðar frá Íslandi
sem kunna ekki að reyna við kven-
fólk? „Nei, alls ekki,“ segir Óli og
hlær, „þetta virtust ekki vera menn
sem eiga í vandræðum með kven-
fólk. Það er algengur misskilningur
að þeir sem leita til vændiskvenna
séu bara lúðar sem fá ekki að stunda
kynlíf annars staðar. Ég veit lítið
um bakgrunn mannanna – spurði
til dæmis ekki um sambandsstöðu,
enda kemur mér það ekki við.
Við gerðum ýmislegt annað en að
stunda kynlíf í ferðinni – fórum út að
borða og svoleiðis. Í kvöldverðun-
um spjölluðum við um ýmislegt en
vorum nú ekki að fara djúpt í kyn-
ferðismálin.“
Fölsuð sönnunargögn
Í auglýsingu Óla um vændisferðirn-
ar kemur fram að hann geti aðstoð-
að menn við að falsa sönnunargögn
um ferðirnar sé þess þörf. Þannig
geta menn komið heim með myndir
úr bjórkynningu eða af golfvellinum
og gert þannig grein fyrir ferðum
sínum. „Ég legg nú ekki mikið á mig
í þessum efnum. Er svo sem ekki
að fótósjoppa andlitin á mönnun-
um inn á myndir af golfvöllum.
Það er svo margt hægt að gera sem
er menningarlegt og skemmtilegt
og þeir sem vilja hafa myndir þess
til sönnunar verða þá að gera eitt-
hvað fleira en að stunda kynlíf með
vændiskonum.“
Ein milljón kaupir vændi daglega
En hvers vegna kaupa menn vændi?
Blaðakonu þykir það vera stóra
spurningin. Óli hefur keypt kynlíf
bæði á Íslandi og erlendis og þykir
það sjálfsagt mál. „Það er svo auð-
velt að grípa í þetta – sérstaklega
hérna úti. Ég las um daginn að ein
milljón manna kaupi sér vændi dag-
lega í Þýskalandi. Það eru tveir ólíkir
hlutir að finna sér konu eða vænd-
iskonu. Kynlífið er öðruvísi og öll
samskipti eru öðruvísi. Maður ger-
ir aðra hluti með vændiskonu – er
djarfari í samskiptum. Margir fá að
gera hluti sem makinn vill kannski
ekki gera eða hluti sem ekki er við
hæfi að gera í skyndikynnum. Fyrir
suma snýst þetta um tilbreytinguna.
Að fá að vera með konu sem er allt
öðruvísi en konan heima hjá þeim.“
Að mati Óla er íslenski vændis-
markaðurinn erfiður fyrir þá sem
vilja kaupa vændi. „Í fyrsta lagi er
þetta ólöglegt. Konurnar nota vill-
andi myndir til að auglýsa sig – oft-
ar en ekki eru þetta myndir af ein-
hverjum allt öðrum svo þú veist
aldrei hvern þú ert að fara að hitta.
Auðvitað hefur fólk sínar skoðanir á
þessum hlutum og það sem ég býð
upp á er kannski á gráu svæði fyrir
marga. En þegar upp er staðið er ég
að bjóða mönnum, sem vilja kom-
ast hjá því að brjóta lögin, að kaupa
vændi á löglegan hátt.“ n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
„Margir fá að gera
hluti sem makinn
vill kannski ekki gera eða
hluti sem ekki er við hæfi
að gera í skyndikynnum.
Ein
ákvörðun
getur öllu
breytt
www.allraheill.is