Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Qupperneq 18
Helgarblað 10.–13. apríl 201518 Fréttir
„Þetta er stórt samfélag“
n Um 500 manns spila póker reglulega n Háar fjárhæðir undir og langar setur við spilaborðið n Leita á náðir smálánafyrirtækja
K
allaðu mig bara ónafn
greindan ógæfumann,“ seg
ir viðmælandinn kíminn.
Blaðamanni dettur aðeins
eitt dulnefni í hug, Óli. Það
veit enginn hver Óli er. Hann er á
þrítugsaldri og er einn af þeim fjöl
mörgu sem að spila póker reglulega
á klúbbum bæjarins. „Ég heimsæki
þá flesta reglulega, það fer bara eftir
því hvar mest er að gera. Allir klúbb
arnir eru með opnar Facebooksíð
ur þar sem þeir tilkynna hvernig
mætingin er og hvort um almenni
legar upphæðir sé að ræða. Ég reyni
að haga seglum eftir vindi og fer
þangað sem mest er að gera,“ seg
ir Óli.
„Þetta er nokkuð stórt samfé
lag og maður er farinn að kannast
við allmarga. Ungir karlmenn eru í
yfir gnæfandi meirihluta en þó finn
ast spilarar
á öllum
aldri
og af báðum kynjum. Kjarninn mæt
ir grimmt en svo eru aðrir sem mæta
endrum og eins. Reglulega slæðast
svo inn nýliðar, oftast um helgar og
þá kannski beint af djamminu. Iðu
lega fara þeir út með skottið á milli
lappanna og léttara veski. Ef þeir
hins vegar eru heppnir og græða
þá mæta þeir undantekningarlaust
fljótlega aftur og þá er heppnin yfir
leitt á þrotum,“ segir Óli.
Misháir pottar
„Það er mismun
andi hvað pottarn
ir eru háir en
þegar þeir hörð
ustu eru að spila
þá geta millj
ónir skipt
um hendur á einni hönd,“ bæt
ir Óli við. Traustið er talsvert
innan samfélagsins. Margir
eru með reikning hjá stöðun
um, sumir í plús en svo eru
aðrir í miklum mínus. Þó kem
ur alltaf að skuldadögum. „Ég
veit af að minnsta kosti einum
sem skuldar um 5 milljónir á
einum klúbbnum. Hann fær
þó yfirleitt pen
inga lánaða til
að spila en
fær ekk
ert borgað út ef hann græðir það
kvöldið. Það fer þá bara inn á
skuldina. Hann er að reyna að vinna
þetta niður hægt og rólega.“
Langar setur
Seturnar geta verið ansi langar. Á
dögunum var haldið Íslandsmót í
Stór Bokka (e. High roller). Alls
tóku 56 keppendur þátt. Mótið
byrjaði klukkan 15.00 á laugar
degi og því lauk um klukkan
10 að morgni sunnudags. Seturn
ar eru þó oft enn lengri. „Ég þekki
nokkra sem reglulega byrja að
spila á föstudagskvöldi á ein
hverjum klúbbnum og halda
áfram, án hvíldar, eitthvað fram
á sunnudag,“ segir Óli. Hann
segir að í slíkum tilvikum dugi
ekki kaffi til að halda mönnum
vakandi. „Það eru margir sem
neyta fíkniefna á þessum stöð
um en það er aldrei neitt ves
en. Menn eru fyrst og fremst að
því til að halda sér einbeittum
og ferskum.“
Taka „rake“
Að sögn Óla þekkist það að
einhverjir staðir taki svokallað
„rake“. Þá kroppar gjafarinn,
sem klúbbarnir útvega, lítils háttar
upphæð af hverjum potti. Yfirleitt
á bilinu 2–5% en þó aldrei meira en
5.000 krónur af stærstu pottunum.
Fimm pókerklúbbar á
höfuðborgarsvæðinu
U
m páskana var opnaður nýr pókerklúbbur í Reykjavík. Staðurinn heitir
Magma og er staðsettur í Lágmúla 5. Á nýja staðnum er ekkert til sparað. Tvö
spilaborð, 9 manna hvort, eru á staðnum og eitt þeirra er útbúið sérstaklega
fyrir sjónvarpsupptökur, en eigendur sjá möguleika í því að taka upp helstu
mót. Stólarnir við spilaborðin eru sérmerktir staðnum og það sama gildir um spilin og
spilapeningana.
Magma er fimmti pókerstaðurinn á höfuðborgarsvæðinu en hinir hafa verið
starfræktir um þó nokkurt skeið og virðast fá að starfa nokkuð óáreittir enda halda
eigendur því fram að þriðji aðili hagnist á engan hátt af starfseminni.
Hinir fjórir staðirnir á höfuðborgarsvæðinu eru eftirfarandi:
Casa - Aðalstræti 9, 101 Reykjavík. Gengið inn frá Fógetagarðinum. Gullöldin -
Hverafold 5, 112 Reykjavík. Maverick Pókerklúbbur - Engihjalla 8, 200 Kópavogi. Póker
& Play - Faxafen 12, 108 Reykjavík.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Sá nýjasti var opnaður um helgina
„Ég veit af að
minnsta kosti
einum sem skuldar
um 5 milljónir á einum
klúbbnum.
Casa
Aðalstræti 9
Maverick
Pókerklúbbur
Engihjalla 8
Póker & Play
Faxafen 12
Magma
Lágmúla 5
Magma Pókerklúbburinn
var opnaður um páskana og
eru allir innanstokksmunir
merktir klúbbum.
Gull- og silfurkökur Kökurnar eru merktar stað
num.
Páskaopnun Boðið upp á páskaegg í tilefni opnunarinnar.