Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 22
22 Fréttir Erlent Helgarblað 10.–13. apríl 2015
„Segðu SELFIE“
n Allir vilja fá sjálfsmynd með valdamesta fólki í heimi n Geta verið góðar í kosningabaráttu
V
insælustu ljósmyndirnar
þessa dagana eru án efa
sjálfsmyndir, myndir tekn
ar á farsíma. Talað er um
að ungmenni séu af „self
iekynslóðinni,“ eða „sjálfukyn
slóðinni“ þar sem þau keppast við
að taka myndir af sjálfum sér, vin
um sínum og ef þau detta í lukku
pottinn – með einhverjum frægum.
Ef til vill er einhver frægasta sjálfs
myndin raunar mynd af slíkri sjálfs
myndatöku. Um er að ræða mynd
sem ljósmyndari náði af þeim
Barack Obama, forseta Bandaríkj
anna, Helle ThorningSchmidt,
forsætisráðherra Danmerkur, og
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, þar sem þau hópuðu sig
saman til myndatöku í útför Nel
son Mandela í SuðurAfríku. Nú
hafa ljósmyndarar Reuters tekið
saman myndir af stjórnmálaleið
togum sem bregðast við óskum al
mennings um sjálfsmynd – sem sé
myndir af sjálfsmyndatökum. Ætla
má að sjálfsmyndir með stjórn
málamönnum verði afar algengar
í næstu kosningabaráttum víðs
vegar um heiminn, enda vinsælt
að þóknast kjósendum í slíkri bar
áttu. n
Brosir Boris Johnson, borgarstjóri Lundúnaborgar, situr fyrir á mynd á hjólastóla-rugbyleikum á
Ólympíuleikvanginum í Lundúnum. Íþróttamennirnir eru allir fyrrverandi hermenn sem slösuðust við herskyldu.
Litrík mynd Forseti Brasilíu, Dilma Rousseff, situr fyrir á mynd á Ólympíuleik-
vanginum í Rio de Janeiro.
Mynd af mynd Ed Miliband, leiðtogi breska verkamannaflokksins, situr
fyrir á ljósmynd í kosningabaráttuheimsókn í Bury á Norður-Englandi. Hér er hann með
tveimur piltum, en glöggir sjá að kona smellir af mynd af myndatökunni í bakgrunni.
Varaforseti Joe Biden tekur
sjálfsmynd með barnabarni þingkonunnar
Jeanne Shaheen eftir athöfn þar sem
Shaheen sór drengskapareið til starfa fyrir
þingið.
Á götunni Forseti Frakka, Francois
Hollande, leyfir ungri konu að smella af sér
mynd í Lille í Frakklandi.
Hátíðlegt Kanadíski forsætisráðherr-
an, Stephen Harper, tekur sjálfsmynd með eiginkonu
sinni, Laureen, við hátíðarhöld þann 1. júlí í fyrra.
Mynduð Anglea Merkel er án efa ein mest ljósmyndaða kona heims, á því liggur
enginn vafi. Hér eru að minnsta kosti fjórir að taka mynd af henni á sama tíma.
Fyrir fundinn
Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra Ísraels, tekur
sjálfsmyndir með ungmennum
fyrir ríkisstjórnarfund.
Í æfingu
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, er greinilega í
góðri æfingu þegar kemur að
sjálfsmyndum. Hér tekur hann
mynd með stúdentum í Jakarta
rétt áður en hann hélt erindi um
umhverfismál.
Verðandi forseti? Eflaust eykst
verðgildi þessarar myndar ef Hilary Clinton,
fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hættir sér í forsetaframboð
– og sigrar. Hér má sjá hana
með aðdáanda í Iowa á
steikarhátíð.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is