Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Page 26
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
26 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Hauksson
Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir • Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Helgarblað 10.–13. apríl 2015
Við erum með
frábæra kennara
Þetta er ekki falleg
kveðjugjöf
Það er rangt
Hrollvekjandi bankabónusar
Friðrik Eysteinsson vandar HÍ ekki kveðjurnar. – DVBjörn Þorvaldsson segir ekki rétt að ruglað hafi verið saman „Ólum“ í al Thani-málinu. – DV
F
lest fyrirtæki vilja gera vel við
sitt besta starfsfólk. Það er hægt
með ýmsu móti. Bankastofn-
anir hafa gjarnan horft til þess
að veita bónusa. Samkvæmt núg-
ildandi lögum er heimilt að veita
bónusa sem nema fjórðungi af árs-
launum starfsmanns. Hér er horft til
lykilstarfsmanna. Nú vilja bankarn-
ir hækka þessar mögulegu bónus-
greiðslur. Þessi vilji kom mjög skýrt
fram í umsögn Samtaka fjármála-
fyrirtækja (SFF) nú nýverið, til efna-
hags- og viðskiptanefndar Alþingis
vegna frumvarps fjármálaráðherra
um breytingar á lögum um fjármála-
fyrirtæki.
Í frumvarpinu er lagt til að bón-
usgreiðslur verði óbreyttar, eða 25%
af árslaunum. SFF lagði til í umsögn
sinni að bónusarnir myndu hækka
í 100% af árslaunum. Og, það sem
meira er, að hluthafafundi í þessum
fjármálafyrirtækjum yrði heimilt að
hækka bónusana enn frekar, eða í
200% af árslaunum.
Ef tekið yrði tillit til umsagnar
SFF myndi það þýða að banka-
menn gætu fengið tvöföld árs-
laun yrði heimildin nýtt til
fullnustu. Hvaða starfsmaður
er svo verðmætur að hann
verðskuldi að fá árslaun í bón-
us? Fái í raun tvöföld laun fyrir
árið? Sjálfsagt eiga lesendur eflaust í
nokkrum vanda með að finna slíkan
einstakling – slíkt ofurmenni á sínu
sviði.
Hér á árum áður þótti öðrum
stéttum þrettándi mánuður banka-
manna öfundsverður. Hugmyndir
um auka ár, jafnvel á hverju ári, eru
með ólíkindum.
Tímasetningin á þessari umsögn
SFF er afleit. Kjarasamningar í full-
um gangi og verkfallsvofan vofir yfir
íslensku
samfélagi.
Verkföll eru
þegar hafin
og algerlega
ófyrirsjáan-
legt hversu umfangsmikil og kostn-
aðarsöm þau reynast á vordögum.
Að setja fram þessa kröfu við þær að-
stæður sem nú ríkja er ekki gáfulegt.
Bankamenn hafa átt undir högg að
sækja í umræðunni frá hruni og mátt
sitja undir margs konar ávirðing-
um. Margar þeirra hafa verið um af-
leiðingar bónusa – eða kaupauka
eins og bónusar eru gjarnan kallaðir.
Bónusar eru mjög vandmeðfarið fyr-
irbæri. Ef þeir eru hvati fyrir fólk til að
ná ákveðnum skammtímamarkmið-
um geta þeir hæglega leitt til hegð-
unar sem er varasöm og munum
við mörg hver enn eftir því frá hrun-
inu. Hér þurfa bankamenn og stjórn-
málamenn að sýna ábyrgð og skyn-
semi. Það er engin skynsemi í því að
bjóða árslaun í bónus í bönkum á
sama tíma og verkalýðurinn býr sig
undir að marsera í kröfugöngur þar
sem barist er fyrir 300 þúsund króna
lágmarkslaunum eftir þrjú ár. Banka-
starfsemi er ekki merkilegri fyrir-
tækjarekstur en annar. SFF eru hags-
munasamtök og berjast fyrir sína
umbjóðendur, en þarna fóru sam-
tökin út af sporinu og misstu sjónar
á samhenginu í íslensku samfélagi. n
Söguleg stund
Kringlukráin er eitthvert best
geymda leyndarmál íslensku
veitingahúsaflórunnar eins og fjöl-
margir fastagestir
geta vitnað um.
Þar hittast
margir á plott-
fundum í há-
deginu og í vik-
unni mátti sjá tvo
fjandvini á hvorn
á sínu borðinu í góðra vina hópi.
Voru þar komnir þeir Björgólfur
Guðmundsson, kenndur við Haf-
skip og síðar Landsbankann,
og Gunnar Þ. Andersen, fyrrver-
andi forstjóri Fjármálaeftirlitsins
og aðalheimildarmaður Helg-
arpóstsins sáluga um fall Haf-
skips sem gerð voru skil í frægum
greinaflokki Halldórs Halldórs-
sonar.
Bjart í Skagafirði
Óhætt er að segja að bjart sé yfir
í Skagafirði. Landshlutanefnd
fyrir Norðurland vestra leggur til
að 130 störf verði
flutt eða sköp-
uð í landshlutan-
um og stefnt er að
því að 100 verði
í Skagafirði. Á
sama tíma gengur
körfuknattleiksliði
Tindastóls frá Sauðárkróki allt
í vil en liðið er komið í undan-
úrslit um Íslandsmeistaratitil-
inn. Í kvöld (föstudag) etur liðið
kappi við lið Hauka í Hafnarfirði
og býður Sveitarfélagið Skaga-
fjörður upp á fríar sætaferðir á
leikinn að norðan. Velta má fyrir
sér hvort réttnefni sé að tala um
fríar sætaferðir en Sveitarfélag-
ið Skagafjörður fær 25,4 prósent
skatttekna sinna frá Jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga.
Bitist um stólana í sam-
einuðum banka
Stjórnir MP banka og Straums
fjárfestingabanka horfa nú til
þess að fyrirhugaður samruni
félaganna, sem
tilkynnt var um
í febrúar síðast-
liðnum, geti form-
lega gengið í gegn
1. ágúst næst-
komandi. Vinnu
við áreiðan-
leikakannanir lauk undir lok síð-
asta mánaðar og drög að skipuriti
sameinaðs banka liggur enn
fremur fyrir. Þar gera ýmsir tilkall
til yfirmannsstöðu.
Ljóst er að Jakob Ásmundsson,
forstjóri Straums, og Sigurður
Atli Jónsson, forstjóri MP banka,
munu báðir gegna starfi for-
stjóra í sameinuðu félagi. Jakob
mun stýra fjárfestingabanka-
starfsemi á meðan Sigurður Atli
verður forstjóri eignastýringar og
viðskiptabankastarfsemi. Þá er
gert ráð fyrir því að Bjarni Eyvinds
Þrastarson hjá MP banka verði
framkvæmdastjóri markaðsvið-
skipta sameinaðs banka en ekki
Þorlákur Runólfsson sem tók við
því starfi hjá Straumi í síðasta
mánuði.
Anna Sigríður skólastjóri segir mörg atriði skýra af hverju Ísaksskóli sé í sérflokki. – DV
É
g er enn að reyna að skilja
umræðuna um styttingu
náms til stúdentsprófs. Þessa
dagana sérlega þar sem sumir
virðast halda að þetta sé ein-
hver ný dilla sem verið sé að troða
í gegn, með hraði og þvert á vilja
skólanna sem slíkra.
Meira að segja háskólarektors-
frambjóðendur virtust telja í
þættinum Vikulokin að þetta væri
enn á hugmyndastigi (sjá sarp RÚV
4/4 2015). Þá töluðu þeir um að
rýra gildi stúdentsprófsins og að-
eins einn þeirra virtist vita um að-
gangskröfur skólanna sem gera nú
í fæstum tilvikum kröfur um það
nám sem hefur verið í gangi síð-
ustu ár.
Það er sem sé eitt og annað sem
vantar í umræðuna.
Menn gefa sér að núverandi kerfi
sé gott. Nú ætla ég ekki að fullyrða
að svo sé ekki en bendi á að það er
næsta fátt til sem segir af eða á um
það. Kerfið hefur ekki verið rann-
sakað sem slíkt. Auk þess sem nú-
verandi kerfi er eiginlega ekki kerfi.
Á þetta hefur margoft verið bent.
Þá tala menn eins og þessi
styttingarumræða sé einhver
bráðasýki núverandi menntamála-
ráðherra.
Loks miðar umræðan við ein-
hverja mynd af skólakerfi sem er
bara alls ekki til.
Heildarmynd?
Setjum þetta upp svona:
Á dögunum hlýddi ég á sam-
tal þar sem kvartað var yfir því að
HÍ væri að innleiða aðgangspróf
(APH) vegna styttingarinnar. Þetta
er ekki rétt. Aðgangsprófin og um-
ræðan um þau kom í kjölfar lag-
anna frá 1996 og hafa þau verið í
umræðu um langt skeið. Þau eru
framkvæmd á grunni núverandi
kerfis, en ekki þess nýja. Raunar
mætti halda því fram að ef háskóla-
stigið hefði fallist á samræmd stúd-
entspróf sem reynt var að halda í
upphafi 21. aldarinnar þá væri ekki
þörf fyrir APH.
Aðgangskröfur háskólanna eins
og þær birtast á vefjum t.d. HÍ,
FSu og FMos eru síðan afar fróð-
legar og kalla á verulega fækkun
námsgreina. Þannig er lagadeildin
nánast eina deildin sem kallar á
dönsku. Þriðja mál er nær aldrei
nefnt, hvað þá fjórða mál. Sagan
sjaldan og félagsfræðin og þannig
má lengi telja. Með öðrum orðum
háskólar gera varla kröfu um það
stúdentspróf sem í boði er.
Svo má spyrja, hvað er stúdents-
próf?
a. Tveggja ára kerfi Menntaskólans
Hraðbrautar (vottað af MRN)?
b. Þriggja ára kerfi Kvennaskólans,
FMos, FSnæ og MTröll (vottað af
MRN)?
c. Fjögurra ára kerfið skv. námskrá
frá 1999 (vottað af MRN)?
d. Próf úr Sumarskóla FB (vottað af
MRN)?
e. Próf úr öldungadeild eða fjar-
námi (vottað af MRN)?
f. Próf úr háskólabrúm (vottað af
MRN)?
g. Próf úr ríkisskólum eða einka-
skólum eða áfangakerfi eða bekkj-
arkerfi (vottað af MRN)?
h. Minnt er á að í áfangaskóla geta
nemendur verið 2,5 ár eða fleiri að
ljúka fjögurra ára kerfinu!
i. Og svona rétt til að kóróna vitleys-
una má benda á fjölmargar „ytri út-
tektir“ á vegum Mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytisins (MRN)
sem nær aldrei fjalla um kennslu og
nám … hvers virði sem það nú kann
að vera. Sem sé – um hvaða kerfi er
verið að standa vörð?
Loks er mjög mikilvægt að menn
skilgreini hvers vegna duglegir ís-
lenskir nemendur ættu að sitja
þetta nám í fjögur ár? Það þekkist
varla á Vesturlöndum að nemendur
séu að taka aðgangspróf að háskóla
20 ára gamlir. (sjá hvítbók).
Heildarmynd?
Eitt enn – heimurinn breytist.
Skólinn er fyrir nemendur. Gleym-
um því ekki.
a. Umræðan um lengd náms til
stúdentsprófs er ævagömul. Þegar
MR var stofnaður á 19. öld var
hann sex ára skóli. Árið 1949 voru
tveir bekkir teknir af og í umbrotum
áranna 1960–1970 var rætt um
þriggja ára nám en sæst á sveigjan-
legan námstíma.
b. Umræðan um lengd náms til
stúdentsprófs hófst aftur í lok 20.
aldar og ekki að undra því skólaár-
um grunn- og framhaldsskóla var
breytt (sjá neðar). Hún fór á flug í
upphafi þeirrar 21. og birtist í frekar
uppblásnum og yfirspiluðum mót-
mælum 2003.
c. EN tökum eftir því að frá 1996
hefur grunnskólaárið lengst um
alla vega tíu daga og einu ári verið
bætt við grunnskólann. Að auki var
öðrum tíu dögum bætt við skólaár
framhaldsskólans. Þetta eru eitt ár
og 140 dagar (en skólaárið er 180
dagar í grunnskóla og 175 í fram-
haldsskóla) og lengist um fimm daga
næsta haust í framhaldsskólum (og
hefur þegar lengst í sumum hvort
sem er á grunni gamla kerfisins eða
nýja). Sem sé námstími frá upphafi
skólaskyldu og til stúdentsprófs hef-
ur frá 1996 lengst um tæp tvö skóla-
ár í dögum talið en það hefur engin
áhrif á námstíma til stúdentsprófs.
Sem sé meðan erlend ungmenni t.d.
í Danmörku og Bretlandi geta eðli-
lega lokið stúdentsprófi 18 ára (og
hafa gert það í áratugi) þá ljúka
íslensk ungmenni því 20 ára og á
sama tíma búið að lauma tveimur
námsárum inn án þess að það hafi
áhrif á námskrár og skipulag skól-
anna.
Með öðrum orðum:
- Aðgangspróf háskóla tengjast
ekki styttingunni.
- Aðgangskröfur háskólanna
gera varla kröfu um það stúd-
entspróf sem í boði er.
- Um hvaða stúdentspróf vilja
menn standa vörð?
- Hvers vegna ættu íslenskir
nemendur að sitja þetta nám í fjög-
ur ár, nánast einir Vesturlandabúa?
- Hvers vegna er kerfið óbreytt
þrátt fyrir að námsár lengist og
þeim fjölgi?
Hræðsluáróður
Það sem mér finnst einkenna
umræðuna er að andstæðingar
styttingar slá fram hræðsluáróðri
og sleggjudómum sem oft eru ekki
byggðir neinu nema óljósum slag-
orðum um skerðingu náms og ekki
eigi að hrapa að málum. Málið er
svolítið eins og fleiri hér á landi,
knúið af hagsmunum og er eins og
frosið á sama stað. Illugi á ekki þetta
mál. Þetta er búið að vera á hönd-
um allra ráðherra menntamála frá
aldamótum. Hversu margir hafa
þeir verið? Það að allir eru að flýta
sér núna er vegna þess að skólarn-
ir og starfslið þeirra hafa dregið
lappirnar og látið eins og þetta væri
vondur hausverkur. Hann hljóti að
líða hjá.
Og því er nú verr að fæstir horfa
á heildarmyndina. Það var því fagn-
aðarefni að það gekk svo fram af
þáttastjórnanda Vikuloka RÚV 4/4
sl. að hann benti háskólarektors-
frambjóðendum á að styttingin
væri ekki hugmynd heldur að hún
væri að koma til framkvæmda
haustið 2015. Það er næsta haust.
Eins og einhver sagði: „Wake up
and smell the coffee.“ n
Styttingin eina ferðina enn
Magnús Þorkelsson
skólameistari Flensborgarskóla
Kjallari „Þá tala menn eins og þessi
styttingarumræða sé ein-
hver bráðasýki núverandi
menntamálaráðherra.
„Hér á árum áður
þótti öðrum stétt-
um þrettándi mánuð-
ur bankamanna öfunds-
verður. Hugmyndir um
auka ár, jafnvel á hverju
ári, eru með ólíkindum.
Leiðari
Eggert Skúlason
eggert@dv.is