Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Qupperneq 32
2 Ferðir - Kynningarblað Helgarblað 10.–13. apríl 2015
Fjölbreytt afþreying í boði
Steinsstaðir ferðaþjónusta í Skagafirði
H
jónin Friðrik Rúnar Frið-
riksson og Jóhanna Sig-
urðardóttir hafa frá árinu
2004 rekið ferðaþjónustu
að Steinsstöðum, 11 kíló-
metra frá Varmahlíð í Skagafirði.
Á Steinsstöðum má finna gisti-
heimili, tjaldstæði, sumarhús, leik-
tæki fyrir börnin, og sundlaug með
heitum potti. „Staðurinn er mjög
vinsæll fyrir ættarmót og það eru
22 ættarmót bókuð í sumar. Í miðri
viku er meira um erlenda ferða-
menn,“ segir Friðrik.
Gistiheimilið er uppgerður
skóli sem rúmar 35–40 manns.
Herbergin eru 2–4 manna, þau
eru samtals 16 og þar af 6 með
snyrtingu. Borðstofa, setustofa og
eldhús er í gistiheimilinu, ásamt
frírri internettengingu. Umhverfið
er hlýlegt og fallegt og skemmti-
legar gönguleiðir í nágrenninu.
Fjósið er gamalt útihús sem var
nýlega breytt og allt tekið í gegn. Í
því eru sex herbergi með snyrtingu,
og rúma samtals 16 manns, og tveir
salir, báðir með eldunaraðstöðu,
annar rúmar 100 manns og hinn 70
manns.
Sumarhúsið er einnig nýupp-
gert, gamalt og notalegt sumarhús.
Sumarhúsið er 2–3 manna með
borðstofu, svefnherbergi, snyrtingu
og eldunaraðstöðu.
Á Steinsstöðum er boðið upp á
morgunmat, hádegismat og kvöld-
mat eftir óskum hvers og eins, ef
pantað er með fyrirvara.
Á Steinsstöðum eru einnig tvö
góð tjaldstæði með inniaðstöðu:
matsal, eldunaraðstöðu, snyrtingu,
geymslu og fleira.
Á Steinsstöðum er einnig
bílaþvottaplan, heitt og kalt
vatn, rafmagn í húsbíla og los-
unarútbúnaður fyrir húsbíla.
Góð samvinna er við aðila í
nágrenninu sem bjóða upp á
ýmsa afþreyingu og því næg af-
þreying í boði fyrir þá sem hana
vilja: „Við erum í tengslum við
Viking rafting og hestaleigur í
nágrenninu og það er paintball
hérna,“ segir Friðrik.
Friðrik nefnir að lokum að
mikið sé um að tíundu bekk-
ir úr skólum alls staðar að af
landinu komi í útskriftarferð á
Steinsstaði, fara nemendurnir í raft-
ing, paintball, klettaklifur, sjóstöng,
skotfimi, Drangeyjarferð og fleira.
Það er ljóst að það er hægt að
hafa nóg fyrir stafni að
Steinsstöðum í Skagafirði.
Frekari upplýsingar má fá í síma:
899-8762 netfang:steinstadir@sim-
net.is. n
Steinsstaðir
Húnaflói
Sauðárkrókur
Hvammstangi
„Fjórhjólaferðirnar
eru okkar aðalsmerki“
Þórisstaðir: gisting, fjórhjólaferðir, veiði og fótboltagolf
H
jónin Elvar Grétarsson og
Aðalbjörg Alla Sigurðar-
dóttir, sem rekið hafa fjór-
hjólaleiguna Snilldarferðir
við miklar vinsældir síð-
an 2012, tóku við rekstri Þórisstaða í
Hvalfirði 1. apríl.
Á Þórisstöðum er stórt og fjöl-
skylduvænt tjaldsvæði sem liggur við
Þórisstaðavatn. Tjaldsvæðið er með
hreinlætisaðstöðu, rafmagn og þjón-
ustu fyrir húsbíla.
Þjónustumiðstöð Þórisstaða nefn-
ist Kaffikot og er þar rekið kaffihús og
boðið upp á léttar veitingar á góðu
verði. Samkomusalur Þórisstaða,
Fjárhúsið, er tilvalinn fyrir ættarmót,
brúðkaup, starfsmannaskemmtan-
ir og aðrar samkomur og tekur allt
að 200 manns í sæti. Sértjaldsvæði
er við Fjárhúsið. „Það eru aðeins ör-
fáar helgar
lausar í sum-
ar,“ segir Elvar.
Minni salur
sem tekur 50–
70 manns er
einnig á staðn-
um, ásamt
sumarbústað
sem hægt er að
leigja.
Fjölbreytt
afþreying er í boði og má nefna fót-
boltagolf, veiði og fjórhjólaferðir.
„Fjórhjólaferðirnar eru okkar aðals-
merki,“ segir Elvar. Fjórhjólaleigan
býr að átta tveggja manna Polaris-
fjórhjólum. Meðferð hjólanna er
kennd áður en lagt er af stað og all-
ar ferðir eru með
leiðsögn. „Á
vorin og haustin
er mikið um að
fyrirtækjahópar
komi til okkar
og fari á fjórhjól
og annað og sjá-
um við einnig um
mat, en grillað er
fyrir mannskap-
inn. Þetta er mjög
vinsælt,“ segir Elvar.
Þórisstaðir bjóða upp á nýj-
ung sem vígð verður um hvíta-
sunnuhelgina: fótboltagolfvöll.
„ Reglurnar eru þær sömu og í golf-
inu, en holurnar
eru stærri og all-
ir geta sparkað
bolta, þó að þeir
geti ekki spilað
golf,“ segir Elvar.
Hægt er
að kaupa
stangveiðileyfi í
þremur stöðu-
vötnum: Geita-
bergsvatni, Þóris-
staðavatni (Glammastaðavatni) og
norðanverðu Eyrarvatni.
Jafnframt er hægt fara í ratleiki og
gönguferðir og einfaldlega njóta fjöl-
breytts landslags og fuglalífs Hval-
fjarðar. Á veturna er tjaldvagna-
geymsla á Þórisstöðum og hægt að
koma tjaldvögnum og fellihýs-
um í geymslu.
Fjórhjólaferðirnar eru í boði allt
árið, en tjaldsvæði og samkomusalur
frá 1. maí út september, allar nánari
upplýsingar má fá í símum 431-1549
og 691-2272 eða með því að senda
póst á snilldarferdir@gmail.com. n